Morgunblaðið - 25.01.1983, Síða 3

Morgunblaðið - 25.01.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983 3 Cosmos fór yfir landið 20 mínútum áður en hann féll í Indlandshaf: „Sluppum með skrekkinn“ — segir Gudjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna 70 MANNS víðs vegar um landið fylgdust með því af hálfu Almannavarna ríkisins, hvort sovéski kjarnorkugervi- hnötturinn Cosmos félli til jarðar hér á landi, en Al- mannavörnum ríkisins barst aðvörun frá Bandaríkjunum um að líkur á að gervihnöttur- inn félli til jarðar á íslandi hefðu stóraukist. „Segja má að við íslend- ingar höfum sloppið með skrekkinn. Cosmos fór yfir landið aðeins 20 mínútum áður en farið féll í sjóinn í Indlandshafi. Við fengum sérstaka aðvörun um að hætta væri á að farið féíli til jarðar hér á landi. Ásamt ís- landi fengu nokkur önnur ríki aðvörun; meðal annars Guatemala og Mexikó í Mið- Ameríku, Bandaríkin og Kanada, Grænland, Noregur og Svíþjóð og ríki í Mið- Evrópu og þá ríki í Afríku þar sem Cosmos fór yfir,“ sagði Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins í samtali við Mbl. Síðustu tvær klukkustund- irnar fór Cosmos tvívegis yf- ir landið áður en það fór inn í gufuhvolf jarðar og brann að mestu upp; í seinna skipt- ið 20 mínútum áður en farið féll til jarðar. Mynd Mbl. KÖE Guðjón Petersen, framkvsmdastjóri Almannavarna, sýnir feril sovéska gervihnattarins Cosmos tvo síðustu hringina umhverfis jörðu. Prófkjör Alþýðu- flokks á Suðurlandi: Steingrímur Ingvarsson efstur í annað sætið í PRÓFKJÖRI Alþýðuflokksins i Suðurlandskjiirdæmi um helgina, þar sem kosið var um annað sæti listans, varð Steingrímur Ingvars- son, yfirverkfræðingur á Selfossi efstur, annar Guðlaugur Tryggvi Karlsson, hagfræðingur Reykjavík, og þriðji Hreinn Erlendsson, for- maður Alþýðusambands Suðurlands, Selfossi. Samtals kusu 820. Steingrímur hlaut 412 atkvæði, Guðlaugur Tryggvi 252 atkvæði og Hreinn 143. Ogildir seðlar voru 11, auðir 2. Kosningin er bindandi þar sem samkvæmt prófkjörsreglum þurfa 20% þeirra sem þátt tóku í síðustu Alþingiskosningum að taka þátt í prófkjöri til þess að niðurstaðan verði bindandi. Magnús H. Magnússon alþingismaður er sjálfkjörinn í fyrsta sæti listans, þar sem aðrir buðu sig ekki fram i það sæti. Eskfirsk hús- móðir í síldar- útvegsnefnd DAGMAR Oskarsdóttir, húsmóðir og gjaldkeri við Söltunarstöðina Sæ- berg h.f. á Eskifirði, var nýverið skipuð í Síldarútvegsnefnd. Hún mun vera fyrsta konan sem sæti á í nefndinni. Síldarútvegsnefnd er skipuð fulltrúum Félaga síldarsaltenda, sem eru tvö á landinu, einnig full- trúum stjórnmálaflokkanna. Dagmar er skipuð sem fulltrúi Fé- lags síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi, formaður nefndar- innar er Kristmann Jónsson. sagan „Hyrder" frá 1971 var til- nefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs það ár og sama máli gegndi um smásagnasafnið „Dinosaurusens sene eftermiddag" árið 1974. Smásagnasafnið „Om fjorten dage“ stendur í tengslum við „Dinosaurusens sene eftermid- dag“ og einnig við safnið „Argu- menter for benaadning" frá árinu 1976. Þessi verk eru samt ekki skoðuð sem hlutar af einni heild, enda þótt þau varpi ljósi hvert á annað. Þau má lesa sem sjálfstæð verk hvert út af fyrir sig. Tíminn er höfuðviðfangsefnið í „Om fjorten dage“. Þar er mönn- unum og einstökum atriðum í lifi þeirra lýst af stakri nákvæmni en jafnframt með ljóðrænum skiln- ingi og afar fögrum stil, sem þrátt fyrir einfaldleika geymir einnig kímni og samúð. Okkarmenn Síminner 9044473219774/5 (ef þú hrinqir beint) .::: Hafskip hf. hefur flutt starfsemi markaðsdeild- ar sinnar að verulegu leyti til stærstu sam- gönguhafnanna erlendis. Hagræðið er ótví- rætt. Þú getur verið í beinu sambandi við þann stað sem þér hentar þegar þér hentar. Okkar menn hafa sérþekkingu á flutningum hver á sínu svæði. Það sparar tíma og eykur öryggi. Slíkt er ómetanlegt því tíminn í vöru- flutningum er dýrmætur. Þá er ekki síður mikilvægt að vita að íslenskir aðilar gæta íslenskra hagsmuna erlendis. Ef þú þarft t.d. að fá sérstakar upplýsingar varðandi vöruflutninga til og frá Bretlandi, eða vandamál þar að lútandi skjóta upp kollin- um, er ekkert einfaldara en að taka upp símann og hringja beint í númer 9044 473 219 774 eða 5 (svæðisnúmer Bretlands er innifalið). Þar svarar starfsfólk svæðisskrifstofunnar í Ipswich, þau Gísli Theodórsson, Reynir Guð- mundsson, Linda Edmunds eða Deirdre Aldis,- — og leysa úrerindi þínu á stundinni. Viljirðu frekar nota telex þá er númerið (01) 988856 A/B HAFSKI G. Þessi þjónusta er til þæginda fyrir þig — Notfærðu þér hana. Okkar maður, - þinnmaður. 5S HAFSKIP HF.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.