Morgunblaðið - 25.01.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983
bráðabirgðalaga verði verulega
þrengdur. Fulltrúar eins flokks-
ins, Alþýðuflokks, leggja meira
að segja til að hann verði felldur
niður með öllu og Alþingi sitji
formlega allt árið.
Breytingarnar eru þrjár og
allar til bóta að mínum dómi.
Hin fyrsta þeirra er sú að ríkis-
stjórninni skal skylt að leggja
bráðabirgðalögin fyrir Alþingi
þegar í þingbyrjun. Þetta
ákvæði er mikilvægt. Það kemur
í veg fyrir það að unnt sé að
stjórna á grundvelli bráða-
birgðalaga — laga sem Alþingi
hefur aldrei samþykkt — nær
allan þingtímann. Alþingi fær
strax tækifæri til þess að fjalla
um lögin og segja álit sitt á
þeim. Bráðabirgðalög núverandi
ríkisstjórnar hefðu því komið
strax til afgreiðslu þingsins, í
stað þess að allmargar vikur
liðu af þingtímanum þar til þau
sáu dagsins ljós.
í öðru lagi er það ákvæði í
tillögum nefndarinnar að ráð-
herra sá, sem bráðabirgðalögin
hyggst setja, skal kynna efni
þeirra fyrir viðkomandi þing-
nefnd áður en lögin eru gefin út.
Þetta er einnig nýmæli, sem
ekki er að finna í stjórnar-
skránni í dag. Kosturinn við
þessa breytingu er sá að með
henni fá allir flokkar vitneskju
um þá lagasetningu, sem í
bígerð er, og þá einnig stjórnar-
andstaðan, sem fulltrúa á í öll-
um nefndum þingsins á hverjum
tíma.
Gefst þá tækifæri til þess
fyrir nefndarmenn að segja ráð-
herra álit sitt á hinni fyrirhug-
uðu lagasetningu, benda á það
sem betur má fara eða leggja til
að áformum um útgáfutíma eða
önnur atriði verði breytt. Hvað
stjórnarandstöðuna snertir fær
hún fyrirfram vitneskju um
hvað til stendur, ólíkt því sem er
í dag, þegar þingmenn hennar
lesa fyrst um bráðabirgðalögin í
dagblöðunum eins og aðrir
landsmenn. Gefst þeim flokkum
því meira og betra svigrúm til
þess að láta strax uppi álit sitt á
þeirri bráðabirgðalagasetningu
sem fyrir dyrum stendur.
Falla úr gildi
eftir 3 mánuði
Þriðja breytingin sem Stjórn-
arskrárnefnd leggur til að gerð
verði á réttinum til útgáfu
bráðabirgðalaga varðar lífaldur
þeirra.
Nú halda bráðabirgðalög gildi
sínu allt til þingloka, ef þau eru
ekki formlega felld í þinginu.
Eftir þeim er því hægt að
stjórna landinu í a.m.k. sjö mán-
uði eftir að Alþingi kemur sam-
an að hausti — án þess að þingið
hafi nokkru sinni samþykkt þau.
í augum uppi liggur að hér er
vissri misnotkun boðið heim, ef
menn vilja svo vera láta.
Tillaga nefndarinnar er því sú
að bráðabirgðalög falli ávallt og
ætíð úr gildi, ef Alþingi hefur
ekki samþykkt þau eftir 3 mán-
uði. Þetta þýðir það í reynd að
lögin falla sjálfkrafa úr gildi
10.—15. janúar hafi þau ekki
hlotið samþykki, þar sem þau á
að leggja fram strax í þingbyrj-
un. Þetta ákvæði gegnir því
mikilvæga hlutverki að koma í
veg fyrir að ríkisstjórn geti
dregið það von úr viti að láta
bráðabirgðalögin koma til at-
kvæðagreiðslu á þinginu. Þótt
hún vilji draga lokaafgreiðslu
þeirra sem mest, t.d. vegna
óvissu um fylgi við lögin, þá
kemur þetta ákvæði til skjal-
anna og hindrar að lengri drátt-
ur en 3 mánuðir sé mögulegur.
Þetta ákvæði er því mjög til
bóta. Það hreinsar borðið og
skýrir línurnar varðandi um-
deild bráðabirgðalög. Úrslit fást
í málinu tiltölulega snemma á
þingtímanum og öllum flokkum
er þá ljóst hvar þeir standa.
Miðað við þær umræður sem
að undanförnu hafa farið fram í
þjóðfélaginu um hlutverk og
gildi bráðabirgðalaga held ég að
þingmenn ættu almennt að
fagna þessari breytingu og ekki
láta sér til hugar koma að draga
í fjögur ár að festa hana í
stjórnarskrá.
Stjórnarskrárnefnd
Talið frá vinstri: Gunnar G.
Schram ráðunautur nefndarinnar,
Guðmundur Benediktsson ritari
nefndarinnar, Sigurður Gizurar-
son, Ólafur Ragnar Grímsson,
Ragnar Arnalds, Gunnar Thor-
oddsen formaður nefndarinnar,
Þórarinn Þórarinsson, Gylfi Þ.
Gíslason, Matthías Bjarnason,
Jón Baldvin Hannibalsson og
Tómas Tómasson.
Vélsleðakeppni
Björgunarsveit-
arinnar Ingólfs
ÞAÐ ER fyrirhugað að halda vél-
sleðakeppni á vegum Björgunarsveit-
arinnar Ingólfs i Keykjavík, sunnu-
daginn 30. janúar og hefst hún kl.
13.30, ef snjórinn verður ekki farinn
og veður leyfir, segir í fréttatilkynn-
ingu frá slysavarnadeildinni Ingólfi.
Þátttaka verður skráð í Björgun-
arstöðinni í Gróubúð á Granda-
garði eftir kl. 19.00 öll kvöld og á
laugardag. Einnig verða þar veittar
allar upplýsingar um fyrirkomulag
keppninnar.
Hvað er
Skypant er liður í þjónustu Jöfurs h.f. við Chrysler, Dodge
og Plymouth eigendur á íslandi. Með nútímalegu skipulagi,
hraðvirkri tækni og góðri samvinnu við Chrysler verksmiðjurn-
ar í Bandaríkjunum og Flugleiðir hefur okkur tekist að stytta
stórlega afgreiðslutíma sérpantaðra varahluta og koma á fót
þjónustu sem brýn þörf var fyrir; Skypant.
Hvernig vinnur
Þig vantar sérpantaðan varahlut í Chryslerinn þinn og hefur
því samband við Skypant sérfræöing okkar, Jóel Jóelsson.
Hann sér um að telex-skeyti með nauðsynlegum upplýsing-
um sendist umsvifalaust til varahlutamiðstöðvar Chrysler,
skammt frá Kennedyflugvelli. Þar sér talva um að koma
boðum til sérhæfðra starfsmanna á varahlutalager. Þeir
senda varahlutinn með hraðboða í vöruafgreiðslu Flugleiða
á Kennedyflugvelli þar sem vörunni er tryggð fyrsta ferð heim
og Chryslerinn þinn er kominn á götuna fyrr en varir.
tfresS
\te9'
sKtefJ'3"’
JOFUR HF.
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
GÓÐUR • ÓDÝR • LIPUR . SÆLL - AFBRAGÐ
SYNISHORN UR
MATSEÐLI
Súpa og salat
fylgir öllum
réttum.
Grísarif
(spareribs) með
barbecue sósu.
ARNARHOLL
Hvíldarstaður
í hádegi
höll að kveldi
Velkomin