Morgunblaðið - 25.01.1983, Page 25

Morgunblaðið - 25.01.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983 29 Eignatjón af völdum snjóflóða og vatnavaxta að mestu bætt Rætt við Ásgeir Ólafsson hjá Viðlagatryggingu íslands „VIÐLAGATRYGGINGIN nær til allra brunatryggöra vrrömæta eins og húsa og lausafjár og ef innbú er tryggt heimilistryggingu þá nær hún líka til þess. Ræktaö land og lóöir eru einnig tryggö og svo þaö, sem snýr aö sveitarfélögunum, hitaveitur, vatnsveitur, rafvirki og skolpveitur. Er þá eink- um haft i huga tjón af völdum náttúruhamfara eins og eldgosa, snjóflóöa, skriðufalla og vatnavaxta," sagöi Ásgeir Ólafsson hjá Viðlagatryggingu ís- lands þegar hann var inntur eftir bótaskyldu tryggingarinnar. Ásgeir sagði, að Viðlagatrygg- ing Islands hefði verið stofnuð með lögum nr. 52 árið 1975 en Matthías Bjarnason, sem þá var ráðherra, skipaði í þessu skyni nefnd um áramótin 1974—75. Það voru einkum snjóflóðin í Neskaup- stað og ekki síst, að þau skyldu ísafjörður: Hætta á snjó- flóðum liðin hjá ísafirdi, 24. janúar. NOKKUR hætta var talin á snjóflóö- um viöa á ísafirði um helgina, og var töluveröur viöbúnaður hjá almanna- varnanefnd og lögreglu. Fólk var beöiö um aö flytja sig úr nokkrum húsum í Holtahverfi og í Hnífsdal, og munu flestir hafa orðið viö þeirri beiöni. Einhverjar skemmdir urðu þar sem vatn flæddi inn í hús, en ekki er vitað um aðrar skemmdir. Nokkur smásnjóflóö féllu, en engin til skaða. Menn frá tæknideild ísafjarðar- kaupstaðar fylgdust reglulega með breytingum á snjóalögum, og vakt var í lögreglustöðinni allan sólarhringinn. Óshlíð er ófær og að sögn manna sem sigldu fyrir hlíðina er nærfellt óslitin röð snjóflóða á veginum frá Hnífsdal og út í Bol- ungarvík. Nú er komið frost hér vestra, og ekki er talin hætta á snjóflóðum að óbreyttu. Ekkert hefur verið flogið frá ísafirði síðan á fimmtudag, en síð- degis í dag fór flugvél flugfélags- ins Arna til Patreksfjarðar að sækja sjúkling sem átti að fara á sjúkrahús í Reykjavík. — Úlfar koma ofan í eldgosið í Eyjum, sem áttu mestan þátt í að mönnum skildist nauðsyn þessarar trygg- ingar. Lögin voru svo endurskoðuð á síðasta ári og tók sá viðauki gildi nú um áramótin síðustu. Að því er Ásgeir sagði tók við- lagatryggingin áður aðeins til húsa og lausafjár en með viðauk- anum var ákveðið, að hún skyldi einnig ná til ræktaðs lands og lóða, ýmissa mannvirkja á vegum sveitarfélaga eins og hitaveitna, vatnsveitna, rafvirkja og skolp- veitna og til brúa en vegir og götur eru undanskilin. Bifreiðar falla ekki undir þessa tryggingu, venju- leg ábyrgðartrygging þeirra nær aðeins til óhappa og slysa í um- ferðinni. Það tjón, sem á þeim verður af völdum snjóflóða eða skriðufalla, verður því eigandinn að bera sjálfur nema bifreiðin sé tryKKÚ húftryggingu en hún bætir tjón af þessu tagi. Sagði Ásgeir, að bætur Viðlagatryggingar færu eftir mati en sjálfsábyrgð eigenda væri hins vegar 5% og aldrei minni en 5000 kr. Það kom fram hjá Ásgeiri, að fyrstu og mestu bótagreiðslur Við- lagatryggingar til þessa hefðu verið vegna jarðskjálftanna á Kópaskeri og nágrenni en einnig hefðu flóðin á Norðurlandi í nóv- ember sl. fallið undir hana. Við- lagatrygging tekur að sjálfsögðu til þess eignatjóns, sem varð í hörmungaratburðunum á Patr- eksfirði, og einnig til vatnavaxt- anna í Borgarfirði og á Suður- landi. Sagði Ásgeir, að matsmenn væru nú á förum vestur en talið er, að eignatjónið þar nemi tug- milljónum króna. „Hlutverk okkar að aðstoða og leiðbeina“ — segir Guðjón Petersen, framkvæmda- stjóri Almannavarna ríkisins „Starf Almannavarna rikisins miöaöi aö því aö aöstoöa almannavarna- nefndina á Patreksfiröi meö ráðgjöf og senda sérfræöinga vestur, búnað og annaö eftir því sem hægt var. Aðfaranótt sunnudagsins tókst aö koma 8 björgunarmönnum og leitarhundum vestur. Mennirnir voru sérstaklega valdir vegna þjálfunar í snjóflóð- aleit, hafa hlotið þjálfun erlendis og foringi þeirra var Magnús Hallgrímsson, verkfræðingur, sem er þrautþjálfaður snjóflóðasér- fræðingur," sagði Guðjón Peter- sen framkvæmdastjóri Almanna- varna ríkisins í samtali við Mbl. um þátt þeirra í björgunarstarf- inu á Patreksfirði. „Undir morgun kom 30 manna úrvalslið til Patreksfjarðar með varðskipinu Ægi, en ekki tókst að koma björgunarliðinu flugleiðis. Þetta var okkar meginhlutverk. Síðan kom sú staða upp á sunnu- dag að flytja þurfti matvæli, lyf og lýsingarbúnað vestur. Undir miðnætti á sunnudag voru björg- unarmenn fluttir til baka með Fokker-vél Landhelgisgæzlunn- ar,“ sagði Guðjón Petersen. Hann var spurður hverju það sætti, að Ríkisútvarpið hefði ekki haldið áfram útsendingum til þess að koma boðum og leiðbeiningum til Patreksfirðinga og annarra Vestfirðinga, svo sem oft er gert þegar neyðarástand skapast og sagði hann, að almannavarna- nefndin á Patreksfirði hefði ekki talið þess þörf. SNJÓFLÓÐIN Á PATREKSFIRÐI Þessi mynd var tekin skömmu eftir aö fyrra flóöiö féll. Björgunarmenn eru komnir i vettvang og í fjarska má sjá varöskipiö Tý úti á Tiröinum. Morgunblaðið/ Kristófer Kristófersson. Vorum á leið inn í höfnina er flóðið féll — rætt við Ólaf Val Sigurðsson, skipherra á Tý „Viö vorum á leiö inn í höfnina á Patreksfiröi þegar snjóflóöið féll; vorum aö sækja viðgerðarhluta í tæki, sem biluöu vegna snjóflóðs- ins á Bíldudal. Lögreglan gerði okkur viðvart og baö um aðstoð. Um 25 mínútum eftir aö flóðið féll, voru allir tiltækir menn, níu tals- ins, farnir í land á bátum meö öll tiltæk verkfæri, sem þurfti og lýst- um við upp svæðið,“ sagöi Olafur Valur Sigurösson, skipherra á varöskipinu Tý, í samtali viö Mbl. Ólafur Valur Sigurösson, skipherra. „Okkar menn voru í landi til klukkan hálf sex morguninn eft- ir. Okkar hlutverk í björgunar- starfinu að öðru leyti var að annast fjarskipti milli allra að- ila. Jafnframt gátum við lánað heimamönnum ógrynni af tepp- um og dýnur lánuðum við á sjúkrahúsið. Þá lánuðum við dælur til þess að dæla úr kjöllur- um húsa og gáfum björgunar- mönnum að borða. Einnig fluttum við björgun- armenn og leitarhunda, sem komu með flugi yfir til Patreks- fjarðar. Ég held að staðarmenn hafi metið að við skyldum vera til halds og trausts svo fljótt sem raun ber vitni og það er allt- af ánægjulegt að geta orðið að liði,“ sagði Ólafur Valur. Forsætisráðherra um atburðina á Patreksfirði: Stjórnvöld lini áfallið eftir megni „ÁTAKANLEGASTUR er sá skaöi, sem aldrei verður með fjár- munum bættur, mannslífin sem töpuöust, heimilin sem lögö voru í rúst. Sumt eignatjón verður held- ur aldrei aö fullu bætt. En stjórn- völd munu eftir megni leitast við aö lina það áfail, sem þetta byggö- arlag hefur orðið fyrir, og mun þá hafa hliösjón af aðgerðum vegna snjóflóöanna í Noröfirði í des- ember 1974,“ sagði Gunnar Thoroddsen, forsætisráöherra er snjóflóðin í Patreksfirði komu á dagskrá Sameinaðs þings í gær. Jón Helgason, forseti Sam- einaðs þings, gerði þingheimi grein fyrir þeim sorglegu tíð- indum, sem borizt höfðu frá Patreksfirði. „Slíkur atburður er mikið áfall fyrir byggðarlag- ið,“ sagði þingforseti, „þar sem fólk er tengt nánum böndum vensla og vináttu. Sárastur er söknuður nánustu ættingja og vina hinna látnu. Við vottum þessu fólki einlæga samúð og hluttekningu." Þingmenn risu úr sætum til að taka undir hluttekningarorð þingforsetans. Gunnar Thoroddsen, forsæt- isráðherra, sagði m.a.: „Fjölskyldum hinna látnu og Patreksfirðingum öllum vil ég votta samúð í nafni þjóðarinnar allrar og ríkisstjórnar íslands. Islenska þjóðin vill með sam- hjálp kappkosta að bæta tjón af slíkum áföllum eftir því sem í mannlegu valdi stendur. Lög um Viðlagatryggingu Is- lands með endurbótum, sem gengu í gildi um síðustu áramót, tryggja bætur fyrir verulegan hluta þess fjárhagsskaða sem orðinn er. Verði sveitarfélag fyrir óvæntu fjárhagstjóni, svo sem vegna náttúruhamfara, er heimilt að veita því aukafram- lag úr Jöfnunarsjóði sveitarfé- laga.“ Forsætisráðherra lauk ííðan máli sínu með þeim orðum, sem eru upphaf þessarar fréttafrá- sagnar. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, 4. þingmaður Vestfirðinga, þakkaði — fyrir hönd þing- manna úr Vestfjarðakjördæmi — þingforseta, forsætisráð- herra og ríkisstjórn fyrir hlý og vinsamleg orð í garð fólksins á Patreksfirði og fyrir þá yfirlýs- ingu sem forsætisráðherra flutti í Sameinuðu þingi. „Hörmulegur atburður gerðist þegar snjóflóð féllu á Patreks- fjörð sl. laugardag með þeim af- leiðingum að fjórir létu lífið og margt manna missti heimili sín. Á slíkum stundum sem þessari er okkur íslendingum ljóst að við erum sem ein fjölskylda og viljum bera hvers annars byrð- ar. Ég er þess fullviss að allt verður gert sem unnt er til þess að mæta þeim vanda sem nú hefur komið upp á Patreksfirði, eftir því sem hægt er að bæta slíkt tjón sem þar varð. Ég þakka velvild og samúð allra al- þingismanna."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.