Morgunblaðið - 25.01.1983, Page 41

Morgunblaðið - 25.01.1983, Page 41
c MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 1983 45 \fik?AKANDI SVARAR í 8ÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI Hvað á að kalla svona vinnubrögð? Margrét Guðmundsdóttir, Akur- eyri; skrifar: „Agaeti Velvakandi. Gleðilegt nýár. Tilefni þess, að ég sting niður penna er ein hliðin á jólabókaflóðinu. Getur þú frætt mig á því, hvaða reglur gilda um bókaþýðingar? Eru engin takmörk fyrir því hve oft er hægt að þýða og gefa út sömu bókina ef aðeins er skipt um nafn á henni í hvert skipti? Meðal jólabóka í ár er „Skógarvörðurinn" eftir Sigge Stark. Á efnisúrdrætti, bútum í blöðum, fæ ég ekki betur séð en hér sé á ferðinni gömul bók sama höfundar gefin út 1950 sem þá hét „Skógardísin", og Vanda litla á Hlennbakka sé hér orðin að önnu í Hlíð. Sama forlag hefur gefið út bæk- ur Margit Sederholm undir nýjum nöfnum. Unglingabækur Evi Begenæs hafa náð vinsældum. Fyrir nokkrum árum kom út „Sag- an af Veigu Falk“. Þar er á ferð- inni ein af Kittu-bókunum, sem seinna voru gefnar út. „Aprílást" útg. 1981 er sama bók og „Anna Beta og Friðrik", og „Stefán og María" útg. 1982 hét áður „Anna María trúlofast". (Á bókarkápu sögð „ný saga“.) Og enginn aldurshópur sleppur ... „Dvergurinn Daði“ er sama persóna og hann „Patti litli“, sem gamall og geðstirður krummi rændi frá húfunni góðu, sem gerði hann ósýnilegan. Endurútgáfa á vinsælum upp- seldum bókum er ágæt sbr. bækur Margit Ravn, Enid Blyton, Sögu- safn heimilanna o.fl. sem allar halda upprunalegum nöfnum. En hvað á að kalla svona vinnu- brögð? P.S. Þeir eru að kýta um Gili- trutt í Mogganum. Þá bók hef ég ekki lesið, en sá úr henni fárán- lega mynd, sem sýnir ísl. bónda klæddan eins og sænskan Dala- karl og með hjarðmannsstaf úr Biblíunni. Ég er hrædd um að þessi Biblíufjárhirðir hefði fljót- lega orðið úti hér norðanlands." Þakka fyrir sérlega skemmtilegt kvöld Lágmark aö rétt sé með farið Málfríður Sigurðardóttir, Akur- eyri, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að gera athugasemd við athugasemd, sem kom í þessum þætti síðastliðinn miðvikudag. Þannig var mál með vexti, að ég kom fram í spurninga- þætti Útvarpsins á Akureyri og fékk þar m.a. spurningu um það, hvaða lið hefði unnið tiltekinn leik í knattspyrnukeppni. Ég lét þess getið þá um leið, af því að ég gat upp á Akurnesingum, að það væri kannski óskhyggja hjá mér, að Reykvíkingar ynnu ekki alltaf. Einhver Börkur Þorkelsson sá ástæðu til að gera athugasemd við þetta og taldi ummæli mín til marks um fjandsamleg viðhorf gagnvart Reykvíkingum. Orð mín voru nú ekki meint þannig af minni hálfu, því að ég hef ekkert við Reykvíkinga að athuga á nokk- urn hátt. Og mér finnst það lág- markskrafa, þegar menn eru að gera athugasemd við það sem fólk segir, að þeir fari rétt irieð það, sem eftir er haft. Kistan flytur sig um set Spurt var hér fyrir helgi, hvort Verslunin Kistan, Skólavörðustíg 4, væri hætt störfum. Svo er ekki. Þættinum hefur borist vitneskja um, að verslunin er aðeins að flyt- ja sig um set og tekur að öllum líkindum aftur til starfa á fimmtudag að Laugavegi 64. Getur það verið? Árni Helgason, Stykkishólmi, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Eg var að hlusta á fréttir frá Alþingi, þar sem sagt var, að þegar taka hefði átt fyrir í neðri deild frumvarp til staðfestingar á bráðabirgðalögum ríkisstjórnar- innar frá í haust, hefðu vinir vorir í stjórnarandstöðu krafist frest- unar og borið því við, að þeir hefðu ekki kynnt sér bráðabirgðalögin nægilega. En nú minnir mig ekki betur en strax í haust hafi þeir verið ákveðnir í að fella þetta frumvarp, hvað svo sem það kost- aði. Getur virkilega verið, að þeir hafi þá ekki haft hugmynd um, hvað fælist í því, sem þeir voru svona ákveðnir í að fella? D.Ó., Hafnarfirði, skrifar: „Velvakandi. Mig langar til að koma á fram- væri kveðju til einnar efnilegustu hljómsveitar landsins að mínum dómi, Lótusar frá Selfossi, svo og þeirra sem stóðu fyrir dansleikn- um í Tónabæ 14. þ.m. Sérstaklega þakka ég þó strák- unum í Lótus fyrir sérstaklega skemmtilegt kvöld. Og að lokum vona ég að þeir eigi eftir að ná langt á tónlistarbrautinni. Við fylgjumst vel með þeim frá upp- hafi til enda, aðdáendur þeirra.“ Einskis virði A.L. skrifar: „Velvakandi. Vegna deilu borgarstjórnar og verðlagsnefndar um strætis- vagnafargjöld koma mér í hug ummæli Gunnars Tómassonar, hagfræðings hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum, sem birtust í Morgunblaðinu hinn 1. des. sl. og voru eftirfarandi: „öll afskipti stjórnvalda, sem skerða sjálf- stæði fyrirtækja eru annaðhvort skipulagsgalli í stjórnkerfinu eða misbeiting þess í þágu ann- arra markmiða en hagkvæmni og hagvaxtar. Opinber afskipti af verðlagningu eru einskis virði, nema sem tæki til eflingar miðstýringar fjármagns". Svo mörg og áreiðanlega rétt eru þessi orð hins reynda og merka manns. Hvergi í Evrópu hefir verðbólga verið meiri að undanförnu en á íslandi og hvergi hafa jafnframt verið meiri verðlagshöft, sem sannar þá einnig gagnsleysi hafta og miðstýringar. Þökk sé Davíð borgarstjóra og hans mönnum fyrir hugrekki og einbeitni í „strætó-málinu". GÆTUM TUNGUNNAR Að líta við merkir að líta um öxl, að horfa 1 baka; en það merkir ekki að líta inn, eí koma við. Hamar ogsög er ekki nóg NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ^ Fríðríks Ólafssonar Kennsla hefst þriðjudaginn 15. febrúar næstkomandi í húsakynnum skólans að Laugavegi 51. Á fyrstu starfsönn verða þrenns konar námskeið: Byrjendaflokkur Framhaldsflokkur l Framhaldsflokkur ll Hvert námskeið er 12 klst., tvær klst. í senn einu sinni í viku. Þátttökugjald: Fullorðnir kr. 720 Börn, unglingar (f. 1968 og síðar) kr. 600 Skráning: Skráning hefst í dag kl. 14.00 - 19.00 í síma 25555, en eftir það er tekið við innritunum alla virka daga í sama síma milli kl. 17.00 og 19.00. Sérnámskeið: Skákskólinn útvegar einnig leiðbeinendur fyrir einkatíma, sérstök námskeið í fyrirtækjum * eða námskeið úti á landi. Skákskóli Friöriks ólafssonar Laugavegi 51, sími 25555. Friðrik Ólafsson, CuðmundurSigurjónsson, HelgiÓlafsson, Jón L. Árnason, Margeir Pétursson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.