Morgunblaðið - 26.01.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983
— segir Ragnar Arnalds um skertar
fjárveitingar til Byggðasjóðs
„Það hefur verið svo mörg und-
anfarin ár, að framlög til fjárfest-
ingasjóða hafa ekki verið í fullu
samræmi við það sem upphaflegu
lögin gerðu ráð fyrir. Þetta gildir
bæði um Byggðasjóð, Stofnlána-
deild landbúnaðarins, Fiskveiða-
sjóð, Iðnlánasjóð og raunar allar
stofnlánasjóði. Fjárveitingar hafa
verið takmarkaðar til allra þess-
ara sjóða með sérlögum eða sér-
ákvæðum í lánsfjárlögum. Þetta
hefur verið ein mikilvirkasta leið-
in til þess að koma fram óhjá-
kvæmilegum sparnaði í fjárlög-
um,“ sagði Ragnar Arnalds fjár-
málaráðherra, er Mbl. spurði hann
hvers vegna framlag ríkisins til
Byggðasjóðs næmi ekki 2% af út-
gjaldalið fjárlaga, eins og lög
segja til um, en Mbl. skýrði nýver-
ið frá því að framlagið er nú
minna að raungildi en verið hefur
Viðræðunefnd Reykjavíkurborgar og menntamálaráðuneytisins;
varpsins á Alþingi sagði hann:
„Þau hafa á undanförnum árum
ekki verið afgreidd fyrr en á
vormánuðum og menn hafa að
sjálfsögðu haft vaxandi áhyggjur
af miklum erlendum lántökum,
einkum til orkumálanna, og bera
nú hæst lántökur til Landsvirkj-
unar. Við erum því að reyna að
halda þessum lántökum niðri eins
og kostur er.“
Viðræðunefndin um málefni Keldna og Keldnaholts að störfum. Fri vinstri: Árni Gunnarsson, Vilhjálmur Lúðvíks-
son, Markús Örn Antonsson, Guðmundur Magnússon, Guðmundur Pétursson, Þórður Þorbjarnarson og V ilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson.
Framlög ekki í
samræmi við
upphafleg lög
Samkomulag um málefiii
allt frá 1972.
Ragnar sagði það mikinn mis-
skilning að ekki væri farið að lög-
um þó framlag ríkisins væri
minna en 2%. Hann sagði:
„Mönnum finnst kannski að það
séu bara ein lög sem gilda, það er
þau lög sem upphaflega ákveða
greiðslur, og telja það síðan ekki
lög þegar upphaflegu lögunum er
breytt. Síðari breytingar breyta
ósköp einfaldlega fyrri lögum og
þetta er ekkert annað en viðleitni
af okkar hálfu til að tryggja jafn-
vægi í fjárlagadæminu og í ríkis-
fjármálum."
Ragnar sagði aðspurður í lokin,
að lánsfjárlagafrumvarpið væri
enn til meðferðar. Það hefði verið
aðalumfjöllunarefnið á ríkis-
stjórnarfundi í gærmorgun, einnig
á fundi í síðustu viku. Aðspurður
um hvenær vænta mætti frum-
Keldna og Keldnaholts
Viðræðunefnd Reykjavíkurborgar og menntamálaráðuneytisins sem síðan í
nóvember s.l. hefur unnið að gerð samkomulags milli ríkissjóðs og borgar-
innar um málefni Keldna og Keldnaholts, makaskipti á löndum og stöðu
ianda og stofnana rikisins í aðalskipulagi Reykjavíkur lauk störfum i gær og
sendi sameiginlegt álit í formi samnings til umbjóðenda sinna, Davíðs
Oddssonar borgarstjóra, og Ingvars Gíslasonar menntamálaráðherra.
Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, borgarfulltrúa, hefur Ingv-
ar Gíslason, menntamálaráð-
herra, sýnt mikinn velvilja og
skilning við að flýta fyrir niður-
stöðu í þessu máli, sem skiptir vís-
inda- og menntastofnanir þjóðar-
innar miklu og snertir framtíð-
arbyggð Reykjavíkur.
Nefndarmenn sögðu að á þessu
stigi væri ekki unnt að greina frá
efni samkomulagsins, það væri nú
í höndum borgarstjóra og mennta-
málaráðherra og yrði kynning á
einstökum efnisþáttum að bíða
undirskriftar þeirra.
Mál þetta 'hefur verið lengi í
deiglunni en hinn 8. nóvember
1982 skipaði Ingvar Gíslason þá
Árna Gunnarsson, deildarstjóra,
Guðmund Magnússon, háskóla-
rektor, Guðmund Pétursson. for-
stöðumann á Keldum, og Vilhjálm
Lúðvíksson, framkvæmdastjóra
Rannsóknaráðs ríkisins í nefnd til
viðræðna við þá borgarfulltrúa
Markús Örn Antonsson, Vilhjálm
Þ. Vilhjálmsson og borgarverk-
fræðing, Þórð Þorbjarnarson.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
sagði, að viðræðurnar hefðu verið
gagnlegar og vinsamlegar og það
væri skoðun nefndarinnar, að
samkomulagið muni stuðla að far-
sælli þróun borgarsamfélagsins,
Háskóla íslands og rannsókna-
stofnananna að Keldum og í
Dómkirkjan í Edinborg:
Leifí Breiðfjörð falið verkefni til
minningar um skáldið Robert Burns
BLAÐIÐ The Scotsman í Edinborg skýrði svo frá í fyrradag, að
Leifi Breiðfjörð glerlistarmanni hefði verið falið að gera steindan
glugga í St. Giles-dómkirkjuna í Edinborg, sem er höfuðkirkja
Skotlands.
Það eru annars vegar alþjóðleg samtök; „The International
Federation of Burns Societies“, þ.e. félag sem vinnur að því að
halda á loft minningu skozka þjóðskáldsins Robert Burns um
allan heim, og hins vegar kirkjuráð St. Giles, sem valið hafa Leif
Breiðfjörð til verksins.
Upphaflega fór fram opin al-
þjóðleg samkeppni á árinu 1980
um þennan minningarglugga, en
öllum tillögum sem um hann
bárust, var hafnað. Þá var tekin
sú ákvörðun að skrifa 9 glerlist-
armönnum frá Þýzkalandi,
Frakklandi og Englandi og þeir
beðnir um upplýsingar og mynd-
ir af eigin verkum. Úr þessum
hópi var Leifur Breiðfjörð feng-
inn til þess að gera tillögu að
minningarglugganum. Fór Leif-
ur síðan út til Edinborgar í
fyrravor til þess að kynna ser
aðstæður og vann svo um sumar-
ið að tillögu sinni að glugganum.
Tillaga þessi var svo samþykkt í
júlí sl.
Stefnt er að því, að þessi
gluggi verði settur upp eftir þrjú
ár. Næsti áfangi Leifs í gerð
gluggans er að stækka fyrir-
mynd hans upp í fulla stærð.
Síðan fer listamaðurinn til Eng-
lands til þess'að velja glerið, en
glugginn verður unninn þar í
landi. Mun Leifur fylgjast með
gerð verksins. Glugginn er um 10
metra hár og 5 metra breiður.
Efni glermyndar Leifs tengist
hugsjónum skáldsins. Þannig
tengist neðsti hluti myndarinnar
náttúrunni sem umhverfi
mannsins, miðhlutinn er byggð-
ur á bræðralagshugmynd Burns
og efsti hlutinn er táknrænn
fyrir lífsgleðina.
Leifur Breiðfjörð fer til Edin-
borgar í febrúar nk., en þar verð-
ur hann prófdómari við stein-
glerdeild Listaháskólans í Edin-
borg.
Steindi glugginn, sem fyrir er
í St. Giles, er frá 1881 og verður
hann tekinn niður svo hægt sé að
koma minningarglugganum fyr-
ir.
St. Giles-dómkirkjan í Fdinborg. Það er stóri glugginn á framhlið kirkj-
unnar, sem Leifur Breiðfjörð mun gera glermyndina í.
Keldnaholti og þar með þjóðarinn-
ar í heild.
7 skip selja
erlendis
í vikunni
NÚ ER fyrirhugað að alls 7 skip selji
afla sinn erlendis t þessari viku. Þar
af seldu tvö í gær og fyrradag, annað
í Englandi og hitt í Þýzkalandi. Af
hinum fimm er fyrirhugað að fjögur
selji i Þýzkalandi.
A mánudag seldi Ingólfur GK
43,3 lestir í Grimsby. Heildarverð
var 1.049.500 krónur og meðalverð
24,23. í gær seldi Snæfugl SU
101,7 lestir í Bremerhaven. Heild-
arverð var 1.660.900 krónur og
meðalverð 16,32. Það skal tekið
fram, að skipið fékk gott verð
fyrir karfa, en lakara fyrir aðrar
tegundir, en aflinn var nokkuð
blandaður.
Skákþing Reykjavíkur;
Elvar í
efsta sæti
ELVAR Guðmundsson hefur forustu
að loknum 7 umferðum á Skákþingi
Reykjavíkur. Hann vann alþjóðlega
meistarann Hauk Angantýsson í 7.
umferð og vakti viðureign þeirra
mikla athygli. í 2.—3. sæti eru
Haukur Angantýsson og Dan Hans-
son með 6 vinninga.
Með 5 vinninga eru: Þröstur
Einarsson, Sveinn Kristinsson,
Halldór G. Einarsson, Óskar
Bjarnason, Hrannar Jónsson og
Guðlaug Þorsteinsdóttir. Mótið er
opið og er teflt eftir Monrad-kerfi.
Attunda umferð fer fram í kvöld
og hefst kl. 19.30.
ö
INNLENT