Morgunblaðið - 26.01.1983, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983
Fylkir með
forystuna
LIÐ Ögra fékk enn einn
skellínn er það mætti
Skallagrími í þriðju deildinni
á laugardaginn. Lokatölurn-
ar uröu 29—11, eftir aö staö-
an í hálfleik var 14—4. Lið
Skallagríms var nokkuð jafnt
að getu þótt helst hafi borið
á þeím Þorsteini, Stefáni og
Kristmari. Hjá Ögra var
Traustí skástur í markinu
ásamt bróður sínum Olgeiri.
Mörk Skallagríms: Krist-
mar 8, Þorsteinn og Stefán 6,
Jón og Þóröur 3, Ingí Rafn 2
og Karl eitt mark.
Mörk Ögra: Otgeir 6, Tadu-
es 3, Rafn og Jóhann eitt
hvor.
Fyrir stuttu sigraöi Reynir
Sandgerði Skallagrim meö
46 mörkum gegn 14. Staðan
er nú þannig í 3. deild:
FjrSúr 9 9 0 0 199—141 18
Reynir S. 10 7 1 2 258—188 15
Þór Ak. 9 5 2 2 234—165 12
Akranet 9 5 1 3 244—178 11
Keflavík 9 5 1 3 211—167 11
Týr Ve. 8 3 1 4 173—151 7
Dalvík 7 2 0 5 164—165 4
Skallagrtmur 11 2 0 9 192—304 4
Ögri 10 0 0 10 111—337 0
Næstu leikir í 3. deild fara
fram á föstudagskvöldiö. Þá
leika Reynir og Þór Akureyrí
í Sandgeröi kl. 20.00 og Ak-
urnesingar mæta Dalvíking-
um á Akranesi kl. 20.30.
Úrslitaleikurinn
um næstu helgi
Laugardaginn 29. janúar
næstkomandi veröur úrslita-
leíkur um sæti í 1. deild í
liðakeppni í badminton milli
B-tiðs Badmintonfélags
Akraness og Vals. Þessi lið
skildu jöfn eftir líðakeppnina
á Selfossi á dögunum og
vegna veöurs varð að fresta
úrslitaleiknum. Leikur þessi
fer fram í íþróttahúsinu á
Akranesí og hefst kl. 14.30,
og er full ástæða til að hvetja
Akurnesinga til að fjölmenna
i íþróttahúsið og hvetja sína
menn, en uppistaðan í liðinu
er hiö unga badmíntonfólk
Akurnesinga sem um sið-
ustu helgi vann það afrek að
vinna 24 af 27 gullverðlaun-
um i opnu unglingamóti sem
haldið var á Akranesi.
Firmakeppni hjá
mfl. Vals í knatt-
spyrnu í febrúar
Meistaraflokkur Vals í
knattspyrnu heldur firma-
keppni 19. og 20. febrúar
næstkomandi. Allar upplýs-
ingar er hægt aö fá i íþrótta-
húsi Vals við Hlíöarenda.
Stjörnugjöf-
in:
VÍKINGUR:
Viggó Sigurðsson ★ ★ ★
Steinar Birgisson * *
Guðmundur Guðmundsson*
Kristján Sigmundsson ★
ÞRÓTTUR:
Ólafur Benediktsson ★ ★ ★
Páll Ólafsson ★ ★
Ólafur H. Jónsson ★
Þorvaldur Geirsson ★★★
Viðar Þork. ★★
Páll Kolbeinsson ★
Jón Sigurðsson ★
Rafn Viggósson:
„Fannst tapið gegn
Noregi heldur stórt
„ÞAD má segja að ég sé ánægöur
með árangurinn. Ég bjóst ekki viö
sigri gegn Þjóðverjunum en við
unnum Möltu eins og ráð var gert
fyrir. Ég hef ekki enn fengiö nógu
góðar upplýsingar um leikinn
gegn Norðmönnum til að geta
dæmt um hann, en 2:5 tap finnst
mér of stórt, þar sem ég hafði
heyrt að tveir bestu Norðmenn-
irnir yrðu ekki með,“ sagði Rafn
Viggósson, formaður Badminton-
sambands íslands, í spjalli við
Mbl. í gær.
Eins og við sögðum frá á laug-
ardaginn tapaði ísland fyrir
V-Þjóðverjum og vann síðan
Möltu. Um helgina var síðan leikið
gegn Tékkum, Norðmönnum og
Finnum í keppni um 5.—8. sætið,
og hafnaöi island í sjöunda sæti.
ísland sigraði Finnland 6:1, tapaöi
síðan með sömu tölum gegn Tókk-
um og leikurinn gegn Norðmönn-
um tapaöist eins og áöur sagöi.
ísland hafnaði því í sjöunda sæti.
„Ég haföi sætt mig viö 4:3 tap
gegn Noregi, en mér fannst 2:5
heldur stórt,“ sagöi Rafn. „Er ég
heyrði að tveir bestu úr þeirra liöi,
sem eru systkini, yrðu ekki meö,
geröi ég mér jafnvel vonir um sig-
ur. Ég hef það helst á tilfinningunni
aö okkar menn hafi verið of sigur-
vissir fyrst þau voru ekki meö,“
sagöi Rafn. Um keppnina sagði
Rafn aö Island heföi aldrei náö svo
langt fyrr, hvort þetta væri besti
árangur sem landslið heföi náð
væri matsatriöi. „Við náöum mjög
góðum árangri á Evrópumótinu í
Þýskalandi í apríl, og ég tel þaö
jafnvel betri árangur en nú náöist."
— SH.
Páll í „400 leikja-klúbbinn“
HINN gamalkunni handknatt-
leiksmaöur, Páll Björgvinsson,
kemst í hinn eftirsótta „400 leikja
klúbb“ í næsta leik Víkings.
Páll lék sinn 399. leik fyrir Víking
gegn KR á dögunum. Páll hefur
veriö í eldlínunni síðan 1967 og
hann mun ákveöinn i að leggja
skóna á hilluna eftir þetta keppn-
istímabil. Þeir munu ekki vera
margir handknattleiksmennirnir
hér á landi, sem náö hafa aö leika
400 leiki fyrir félög sín í hand-
knattleik. Auk þess hefur Páll leik-
iö 67 landsleiki fyrir ísland.
• Páll Björgvinsson — kominn í
„400 leikja klúbbinn".
• Broddi Kristjánsson — einn þeirra sem keppti með landsliðinu í
Basel í Sviss um helgina.
r ■
IBR fjallaði
um gervigrasið
STJÓRN íþróttabandalags
Reykjavíkur hefur nýlega fjallað
um lagningu gervigrass ó hallar-
flötina í Laugardal. Á fundinum í
ráðinu kom fram, að allir voru
sammála um aö þessi fram-
kvæmd væri ein hin nauðsynleg-
asta í íþróttamannvirkjagerð í
Reykjavík. Rætt var við formenn
knattspyrnufélaganna í Reykjavík
og voru þeir sammála um aö
þetta mál þyrfti aö hafa forgang.
Jafnframt aö byggja þyrfftí að-
stöðu viö nýja völlinn fyrir áhorf-
endur og leikmenn.
— ÞR.
Þorbergur Aðalsteinsson:
„Frekar aö vera með sex
lið í einni deild“
• Þorbergur Aöalsteinsson er nú
óðum aö ná sér af meiðslum sem
hann hlaut í Evrópuleik Víkings
og Dukla Prag í haust. Þorbergur
telur heppilegra að hafa sex lið í
1. deild og leika fjórfalda umferð
en aö halda því fyrirkomulagi
sem nú er notað.
„ÉG ER ekki alveg orðinn nægi-
lega góöur í hendínni ennþá en er
óðum að ná mér. Ég á allt eins
von á þvt að ég leiki með lands-
liðinu í Hollandi og ég verð ör-
ugglega með Víkíngi í 4-liöa úr-
slitakeppninni um Islandsmeist-
aratitilinn í handknattleik, því
ætla ég ekki að missa af,“ sagði
Þorbergur Aðalsteinsson hand-
knattleiksgarpur úr Víkingi. Þor-
bergur meiddist á hægri hendi í
Evrópuleik Víkínga úti í Tékkó-
slóvakíu, er liðið lék gegn Dukla
Prag. Þorbergur er nú aö verða
góður eftir nokkurt hlé.
Þorbergur var spurður álits á
hinu nýja mótafyrirkomulagi og á
útkomu Víkinga í deildarkeppninni.
„Það er álit mitt að það eigi
frekar að hafa sex liö í einni deild
og leika fjórfalda umferð,“ sagöi
Þorbergur. „Eins og deildin er
núna þá er of mikið að leikjum sem
draga ekki að sér áhorfendur og
hafa litla þýðingu fyrir liöin, hand-
knattleikslega séð. Leikmenn leyfa
sér kæruleysi og því skila þeir ekki
nægilegri æfingu fyrir leikmenn. Ef
sterkari liðin léku oftar saman, og
þá ekki eins þétt og gert veröur í
úrslitakeppninni þar sem hætta er
á meiöslum, þá held ég að útkom-
an yröi betri. En allt er þetta nú
skref í rétta átt.
„Lið mitt, Víkingur, lék ekki
nægilega vel framan af. Okkur hef-
ur vantað öllu meiri snerpu. En viö
misstum líka leikmenn vegna
meiösla og það hefur sett strik í
reikninginn. Ég er ekki í nokkrum
vafa um að um að við verðum
sterkir í lokakeppninni. Viö ætlum
okkur að vinna íslandsmeistaratit-
ilinn fjóröa árið í röð. Það verður
þungur róöur, þar sem öll liöin
fjögur sem leika til úrslita Víkingur,
FH, KR og Stjarnan geta leikiö vel
og eru sterk þegar þeim tekst vel
upp," sagði Þorbergur, sem greini-
lega var farið aö klæja í lófana og
beið þess aö geta fariö aö leika
aftur. Hann hefur haldiö sér vel viö
með líkamlegum æfingum og
hlaupum, en ekki átt þess kost að
æfa skot- eða boltaæfingar.
— ÞR.