Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983 2 Hvalveiðibannið: Látum reyna á hótanir áður en við gefumst upp — segir Sigurður Markússon „MÉR finn.st það ógeðfellt að verið sé að setja þrýsting á okkur, sem gæti leitt til þess, að annað fyrirtæki í sjávarútvegi yrði að leggja upp laupana, það er Hvalur hf.,“ sagði Sigurður Markússon, framkvæmda- stjóri sjávarafurðadeildar Sam- bandsins, er Morgunblaðið innti hann álits á því hvort mótmæla bæri hvalveiðibanninu og hvaða áhrif mótmæli gætu haft. „Ég held að almennt séum við þeirrar skoðunar að rétt sé að láta á það reyna, hversu alvarlegar þessar hótanir eru áður en við gef- umst upp fyrir þeim,“ sagði Sig- urður. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið. BÚH-togararnir aftur á veiðar MAÍ, togari Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar, held- ur til veiða í dag og má búast við að vinna hefjist í Fiskiðjuveri BÚH um 10. febrúar. Apríl fer til veiða á fimmtudag og Júní eftir helgi. Hátt í 200 manns var sagt upp hjá BÚH fyrir áramót vegna rekstrarerfiðleika fyrirtækisins, en búast má við að fólkið verði allt komið til vinnu aftur eftir um vikutíma. Að sögn Sigurðar Þórðarsonar, formanns út- gerðarráðs, nam heildarvandi fyrirtækisins um 50 milljónum króna. Um % hlutar þess hafa verið leystir með láni úr Byggðasjóði og skuld- breytingum og vilyrði hefur fengist fyrir meiri aðstoð. — Sú afgreiðsla, sem við höfum fengið og er í sjónmáli, gerir það að verkum, að nú er ýtt úr vör, sagði Sigurður Þórðarson. Meðfylgjandi mynd af Hafnarfjarðartogurum í höfn tók RAX í gær. Hafnarfjörður: Malbikun boðin út BÆJARSTJÓRN Hafnarfjardar hef- ur nú samþykkt aö heimila bæjar- verkfræðingi að bjóða út malbikun á nokkrum götum bæjarins. Er það þáttur í undirbúningi malbikunar- framkvæmda næsta sumars. Bæjar- verkfræðingur vinnur nú að gerð út- boðsgagna. Götur þær er fyrst verða boðnar út eru: Hrauntunga frá Hraun- brún að Víðistaðaskóla með snún- ingshaus og bílastæðum. Botn- langar ekki meðtaldir; Dalshraun frá Stakkahrauni að Hjallahrauni ásamt botnlanga; Hjallahraun frá Trönuhrauni að Reykjanesbraut; Helluhraun frá Hjallahrauni að Flatahrauni ásamt bontnlöngum; Lækjarhvammur, Fjóluhvammur, og Háihvammur. Alls eru þetta 23.600 fermetrar. Ennfremur verður boðin út endurlögn á mal- biki á um 9.000 fermetra og mal- biksviðgerðir. Milljóna tjón álversins vegna raka í forskautum VEGNA raka í forskautum í ál- verinu í Straumsvfk hafa þau enzt mun verr en venjulega og hefur af þessum sökum orðið mikið tjón. Sigurður Briem, raf- magnsverkfræðingur í Straums- vík, sagði í gær, að ekki væri enn vitað hversu mikið tjónið væri, en þó orðið Ijóst, að það skipti milljónum. Við framleiðslu á hverju tonni af áli þarf hálft tonn af for- skautum, en forskaut eru kola- blokkir, sem eru festar á gaffla og endast venjulega í um 4 vik- ur. Við uppskipun á sendingum á forskautum til álversins í des- ember og janúar komst raki í mikið af forskautunum. Sér- staklega varð ein sendingin illa úti, en þá var skipað upp í Hafn- arfirði þar sem unnið var við út- skipun í Straumsvíkurhöfn. Óveður tafði síðan fyrir að hægt væri að flytja forskautin til Straumsvíkur og snjóaði meðal annars á þau. Raki í forskautum gerir það að verkum að þau losna fyrr en ella af göfflunum og þegar for- skaut ónýtast á skömmum tíma hefur það keðjuverkun í för með sér, því þá eykst álag á önnur. Nú hefur orðið að taka 30 ker úr rekstri beinlínis af þessum völd- um, en ennþá eru ekki öll kurl komin til grafar þar sem ekki er talið, að tjónið sé komið fram nema að hluta. Raki hefur áður komist í for- skaut svo tjón hefur hlotist af, en ekki í svo miklum mæli sem nú, að sögn Sigurðar Briem. Lesendaþjónusta Morgunblaðsins: Spurt og svar- að um skattamál MORGUNBLAÐIÐ veitir nú les- endum sínum þá þjónustu að afla svara við spurningum þeirra um skattamál. Geta lesendur hringt í síma 10100 klukkan 10—12 á mánudegi til föstudags og borið upp spurningar sínar viðvíkjandi skattamálum, útfyllingu framtals- eyðublaðs, frádráttarreglum og fleiri atriðum. Morgunblaðið leitar svara hjá skrifstofu ríkisskattstjóra í Reykjavík og birtast þau síðan í blaðinu ásamt spurningum. Nauðsynlegt er að spyrjendur gefi upp nafn sitt og heimilis- fang. Þessi lesendaþjónusta verður veitt þar til skilafrestur skattaframtala einstaklinga er úti, þ.e. fimmtudaginn 10. febrú- ar. Síminn er 10100 milli klukk- an 10 og 12 virka daga. Ágúst Kvaran leikstjóri látinn ÁGÚST Kvaran, fyrrverandi leik- stjóri, Akureyri, lézt sl. sunnudag, 88 ára að aldri. Ágúst var fæddur 16. ágúst 1894 á Breiðabólstað á Skógarströnd, sonur séra Jósefs Kristjáns Hjör- leifssonar og konu hans, Lilju Mettu Kristínar Ólafsdóttur. Að loknu skólanámi starfaði Ágúst hjá heildsalafyrirtækjum í Reykjavík, en flutti til Akureyrar 1928 og starfaði þar að heildsölu. Hann starfaði mikið að leiklist- armálum, bæði sem leikari og leikstjóri. Fyrri kona hans var Soffía Guð- laugsdóttir leikkona og eignuðust þau eina dóttur. Þær mæðgur eru báðar látnar. Síðari kona hans var Anna Schiöth, sem lézt fyrir tæp- lega tveimur árum. Ágúst lætur eftir sig þrjú börn. Hvalveiðibannið: Stjórnvöld leysi vanda Hvals hf. á annan hátt en með mótmælum — segir Guðmundur H. Garðarsson, blaðafulltrúi SH „AFSTÖÐU Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsannaa til þess hvort hvalveiðibanni verði mótmælt má rekja til þess, að forráðmenn Coldwater Seafood Corporation, sölufyrirtækis SH í Bandaríkjunum, vöktu athygli á því síðastliðið haust, að vandræði gætu skapazt í fisksölumálum okkar í Bandaríkjunum yrði hvalveiðibanninu mótmælt. Rök þeirra voru meðal annars þau, að ákvörðun Alþjóðahvalveiðiráðsins um bann á hvalveiðum ætti mjög mikinn hljómgrunn hjá bandarískum almenningi og framámönnum í bandarískum stjónrmálum," sagði Guðmundur H. Garðarsson, blaðafulltrúi SH meðal annars er Morgunblaðið ræddi við hann. „Það er rétt á þessu stigi máls- ins að vekja athygli á því, að Cold- water, fyrirtæki SH í Bandaríkjun- um hefur haft algjöra forystu á þessum markaði í áratugi. Á síðasta ári seldi Coldwater sjávarafurðir fyrir tæpar 200 milljónir dala, en á sama ári var sala Iceland Seafood Corporation, fyrirtæki SÍS í Banda- ríkjunum rúmar 100 milljónir dala. Markaðshlutdeild Bandaríkjanna í sölu frystra sjávarafurða frá íslandi hefur verið um og yfir 60% á síðustu árum og komst upp í 74% 1978. Fyrir sumar tegundir eins og hörpudisk hefur þetta verið svo til 100%, en 1981 fóru 96,6% af hörpudiski til BAndaríkjanna miðað við magn og 84,3% af frystum humri. í lok nóvember vakti Þorsteinn Gíslason, forstjóri Coldwater síð- astliðin 20 ár, athygli stjórnar SH á því, að aðgerðir öflugra dýravernd- unarsamtaka (Animal Welfare Intit- ute) gætu haft mjög neikvæð áhrif á sölu á íslenzkum fiski í Bandaríkjun- um og hefði meðal annars einn stærsti viðskiptavinur íslendinga í þessum málum, veitingahúsakeðjan Long John Silver, þegar orðið fyrir miklum óþægindum og óttaðist af- leiðingar frekari aðgerða." Hvað gæti helzt gerzt? „Hættan, sem í þessu er fólgin er sú, að sveigist almenningsálit í Bandaríkjunum gegn einhverri þjóð eða vörum frá henni, er það ekki á valdi stjórnarinnar í Washington að breyta því eins og hendi sé veifað. Helztu kaupendur afurða okkar í Bandaríkjunum óttast að, mótmæli ísland hvalveiðibanninu, skaði það hið góða álit, sem íslendingar og ís- lenzkar vörur, sérstaklega sjávaraf- urðir, njóta í Bandaríkjunum. Sumir gera lítið úr því, sem þeir kalla til- finningalega afstöðu manna til þessa máls og tel ég það mjög háskalegt, því í þjóðfélagi eins og Bandaríkjun- um, þar sem menn eru frjálsir, getur tilfinnanleg afstaða til hlutanna ráðið úrslitum, ekki sízt hvað varðar vörukaup. Þorsteinn Gíslason upplýsti sjáv- arútvegsráðherra, þegar á sínum tíma um yfirvofandi hættu og greindi stjórn SH frá afstöðu mála. Á stjórnarfundi 14. desember síð- astliðinn var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Stjórn SH beinir því til sjávarútvegsráðherra, að hann hafi forgöngu um, að íslenzk stjórnvöld gefi út opinbera yfirlýsingu þess efn- is, að fsland muni ekki mótmæla samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um bann við hvalveiðum. Með slíkri yfirlýsingu verður afstýrt hugsan- legu tjóni í fisksölumálum íslend- inga í Bandaríkjunum, þar sem af- staða einstakra þjóða til þessa máls er mikið hitamál." Þá er rétt að taka það fram, að á stjórnarfundi SH sitja bæði aðal- og varamenn 18 talsins hvaðanæva af landinu, en alls eru nú 67 frystihús innan SH. Við hjá SH viljum sér- staklega taka það fram, að vegna þeirra innlendu aðila, sem hvalveiði- bannið kemur niður á þegar þar að kemur, þykir okkur miður að þurfa að taka þá afstöðu er fram kemur í samþykkt stjórnar SH, en eins og málum er háttað er ekki forsvaran- legt að virða að vettugi skoðanir þeirra, er bera höfuðábyrgðina í fisksölumálum íslendinga í Banda- ríkjunum. Ég skil ekki þá afstöðu manna, st .n segja að það verði bara að koma í ljós hvort mótmæli íslands við hvalveiðibanninu hafi eitthvert tjón í för með sér og þá beri að endur- skoða afstöðuna. Ég tel að neikvæð- ar afleiðingar geti orðið það miklar fljótt, að erfitt verði að bæta það tjón, sem af verður og vinna sig sterkt upp á markaðinn aftur. Við skulum muna það, að fslendingar eru meðal leiðandi afla í fisksölu- málum í Bandaríkjunum. Ég tel að hér sé um svo mikla hagsmuni að tefla fyrir atvinnu- og efnahagslíf, að Alþingi beri að leysa vanda Hvals hf. og þeirra, sem þar eiga mestra hagsmuna að gæta, eigenda og starfsmanna, með öðrum hætti en að mótmæla banninu,” sagði Guðmund- ur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.