Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983 Leikurinn á sunnudaginn: Finnar gerðu einu marki minna i fyrri hálfleik en allan fyrri leikinn Frá Þórarní Ragnarssyni, blaðamanni Morgunblaösins, í Helsinki. Eftir stóran sigur á Finnum á laugardaginn, hafa íslensku leikmenn- irnir mjög líklega vanmetiö andstæöinga sína í leiknum á sunnudag- inn. íslensku leikmennirnir hafa sennilega reiknaö meö auöveldum leik en annaö kom í Ijós er út í baráttuna kom. Finnarnir börðust nú eins og Ijón og var allt annað aö sjá til þeirra en daginn áöur. ísland tók að vísu forystuna í upphafi leiksins, og komst í 3:1, en eftir tíu mínútur höföu heimamenn jafnað, 5:5. Finnar náöu síðan forystunni og háldu henni út allan fyrri hálfleikinn. • ólafur Jónsson átti mjög góöan leik í horninu í fyrri leiknum gegn Finnum á laugardaginn. Hann skoraöi fjögur mörk í leiknum og var mjög ógnandi. Einnig var hann sterkur í vörninni. Hér sóst hann ( landsleik gegn Dönum milli jóla og nýárs. Er tuttugu mín. voru liðnar var staðan 12:9 og í hálfleik var mun- urinn þrjú mörk. Staöan þá 18:15 fyrir Finna. í fyrri hálfleiknum skor- uöu þeir því jafn mörg mörk og í öllum leiknum daginn áöur, og allt gat þvt ekki veriö meö felldu hjá Islendingunum. fslensku leikmennirnir og farar- stjórar þeirra voru þungbúnir er gengiö var til búningsklefa í hálf- leik, og hefur Hilmar Björnsson ör- ugglega messaö heldur hressilega yfir liöinu þær mín. sem leikhléiö stóö yfir. Vörn og markvarsla ís- lands voru eins slök og hugsast í fyrri hálfleik, en sóknarnýtingin var góö. Hilmar tók þaö til bragðs í upp- hafi síöari hálfleiks aö láta taka tvær helstu skyttur Finnanna úr umferö og heppnaöist þaö bragö mjög vel. Eftir átta mín. leik — á 38. mín. leiksins — hafði Islandi HM í stökki: Norðmaður sigraði saman- iagt í Sviss Skiðastökkvarar sátu ekki auðum höndum um helgina. Keppt var bæöi í Sviss, þar sem heimsbikarinn var á dagskrá, og einnig var finnska meistaramótiö hald- iö. Norðmaöurinn Per Berg- erud sigraöi í svissnesku keppninni, en hún var í þrem- ur umferðum eins og við höf- um áöur sagt frá. Hann sigr- aði í keppninni á sunnudag- inn, sem fram fór í Engelberg, stökk 115 metra og hlaut fyrir þaö 130.8 stig. Hver kepp- andi stökk aöeins eitt stökk, þar sem hvasst var og rign- ing. Annar á sunnudaginn var Jeff Hasting frá Bandaríkjun- um. Stökk hann einnig 115 metra, en hlaut 129.3 stig fyrir þaö. Host Balau frá Sviss sigraði í tveimur fyrstu um- ferðunum í þessari svissn- esku stökkkeppni, en hann lenti í 40. sæti ó sunnudaginn og kom þaö í veg fyrir sigur hans samanlagt. Hann stökk aöeins 86 metra og fékk 88.6 stig. Norömenn komu vel út í keppninni í Engelberg, þeir nældu í þrjú af fimm fyrstu sætunum. Hinn 19 ára gamli Matti Nykaenen kaus aö keppa í heimabæ sínum, á finnska meistaramótinu, heldur en aö keppa í Sviss, en hann hefur enn sem fyrr forystuna í stiga- keppnínni um heimsbikarinn í stökki. Hann sigraöi aö sjálfsögðu í keppninni i Finnlandi, stökk 102 og 94.5 metra og hlaut 257.5 stig. Annar varö Markku Pusenius meö 230 stig (92.5 og 91.5 metra stökk), og þriðji varð Tuomo Ylipulli með 2266.1 stig. Stökk hann 91.5 og 86.5 metra. Hilmar Björnsson „Við megum aldrei van- meta andstæðinginn“ Frá Þórarni Ragnarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins, í Helsinki. Hilmar Björnsson, landsliös- þjálfari, sagöi eftir leikinn viö Finna á sunnudaginn, að sá leikur sýndi svo ekki yröi um villst aö aldrei mætti vanmeta andstæðing. Jafnvel ekki þó stórsigur hefói unnist á honum eins og nú daginn áóur. „Það skortir oft meiri einbeitingu hjá íslenska landsliöinu í síöari leiknum — ef leiknir eru tveir leikir við sömu þjóð.“ Hilmar sagöi aö finnska lands- liðiö væri svipaö að getu og önn- ur finnsk landsliö sem hann heföi séð. „Þeir eru alltaf erfiöir á heimavelli ef þeim tekst vel upp,“ sagöi Hilmar. „Ég var nokkuð ánægöur meö sóknarnýtinguna hjá okkur í leiknum — hún var um 60% — en vörnin og mark- varslan voru ekki nógu góö,“ sagöi hann. Fram kom hjá Hilmari aö í feröinni yröi reynt aö fínsiípa þau leikkerfi sem liöiö heföi veriö aö æfa aö undanförnu, og sagöi hann að þessi ferö væri afskap- lega mikilvægur undirbúningur fyrir B-keppnina. „Þaö er mjög gott fyrir strákana vegna and- legrar uppbyggingar, aö feröast svona dag eftir dag, búa á hótel- um, leika í mismunandi íþrótta- húsum og æfa svo á morgnana,“ sagöi Hilmar. — SH/ÞR. tekist aö jafna, 20:20, og síöan kom mjög góöur kafli hjá liðinu þar sem þaö geröi sjö mörk gegn einu marki Finnanna. Breyttist staöan því í 27:21 og voru þá tíu mín. eftir. Er hér var komið sögu tóku Finnar Kristján og Alfreö úr umferö og riðlaöist leikur íslenska liösins nokkuö viö það. Finnar náöu aö minnka forskotiö og ná muninum niöur í tvö mörk — og uröu loka- tölur 30:28 eins og áöur kom fram. Sóknarnýting íslenska liösins var 60% sem telst mjög gott, en varnarleikurinn og markvarsian voru ekki til aö hrópa húrra fyrir. íslendingar geröu sig seka um mörg klaufaleg varnarbrot í leikn- um og voru þeir reknir allt of mikiö af velli. Tii gamans má segja frá því aö í tvígang voru sex útileikmenn Finna gegn fjórum íslenskum inní á vellinum, en Finnum tókst í hvor- ugt skiptið aö skora — og segir það nokkuö um getu Finnanna. Mörk íslands: Kristján Arason 11/4, Guömundur Guömundsson 5, hans Guðmundsson 4, Alfreö Gíslason 3, Páll Ólafsson 2, Steindór Gunnarsson 2, Ólafur Jónsson 2, Þorgils Óttar Mathie- sen 1. Markahæstir hjá finnum voru: Jan Rönnberg 6, Markus Lindberg 5, Mikael Kjellmann 5. Fimm íslendingum var vikiö af ieikvelli, Kristjáni Arasyni í fjórar mín„ Hans í tvær, Alfreö í tvær, Steindóri í fjórar og Þorbirni Jenssyni í tvaér. Þrír Finnar voru reknir út af. — SH/ÞR. Krizaj náði ekki að sigra á heimavelli: 30.000 áhorfendur í Kranjska Gora Hans Enn, Austurríki, sigraöi á laugardaginn ( stórsviginu í Kranjska Gora ( Júgóslavíu. Sam- anlagóur tími hans var 2:24,19. Svisslendingurinn Max Julen varó annar á 2:24,45 og Svíinn Ingemar Stenmark þriöji á 2:24,89. Phil Mahre var í áttunda sæti eftir fyrri ferðina en hafnaöi í því fimmta þegar upp var staöiö. Á sunnudaginn var svo keppt í svigi og sigraöi þá Austurríkismað- urinn Franz Gruber. Stig Strand, Svíþjóö, var í fyrsta sæti eftir fyrri feröina, en en Gruber skaust fram úr honum meö frábærri frammi- stööu í seinni feröinni. Samanlagö- ur tími Grubers var 1:28,62, en Strand var á 1:28,96. Frakkinn Michel Canac varð þriöji á 1:29,43. „Brautin var ekki slæm. Ég lagöi mikiö á mig til aö sigra á þessu móti, en rásnúmer mitt í seinni feröinni haföi einnig mikiö aö segja,“ sagði Gruber viö frétta- mann AP eftir keppnina, en hann fór annar í síöari feröinni, en í þeirri fyrri var hann sá sjöundi. Um 30.000 áhorfendur mættu á keppnina á sunnudaginn og bjugg- ust margir þeirra viö því aö Bojan Krizaj bæri sigur úr býtum þar sem hann var á heimavelli. Hann sigraöi þarna í fyrra, en hann náöi ekki aö sigra nú. Krizaj datt snemma og fleiri frægir kappar féllu einnig úr keppni. Nægir aö nefna menn eins og Ingemar Stenmark, Phil Mahre, Pirmin Zurbriggen og Andreas Wenzel til aö fá menn til aö trúa því aö brautin hafi verið erfiö. • Pirmln Zurbriggen er nú í ööru sæti ( stigakeppninni um heims- bikarinn, en Peter MOIIer er efst- ur. Afmælismót Júdósambandsins: Fyrri hlutinn var á laugardaginn lotflnnMntnfr riíTMiiíini FYRRI hluti afmælismóts Júdó- sambands íslands var haldinn í íþróttahúsi Kennaraháskólans sl. laugardag, en Judósambandið varð 10 ára 28. janúar. Á þessum fyrri hluta mótsins var keppt í þyngdarflokkum karla. Úrslit urðu sem hér segir: + 65 kg 1. Gunnar Jónasson, Gerplu. 2. Rúnar Guöjónsson, JFR. 3. Magnús Jónsson, Árm. + 71 kg 1. Halldór Guöbjörnsson, JFR. 2. Karl Erlingsson, Árm. 3. Ásgeir Ásgeirsson, Gerplu. + 78 kg 1. Ómar Sigurðsson, UMFK. 2. Magnús Hauksson UMFK. 3. -4. Níels Hermannsson, Árm. 3.-4. Gísli Wíum, Árm. + 86 kg 1. Kári Jakobsson, JFR. 2. Kristján Valdimarsson, Árm. 3. Arnar Marteinsson, Árm. + 86 kg 1. Kolbeinn Gíslason, Árm. 2. Bjarni Friðriksson, Árm. 3.-4. Hákon Halldórsson, JFR. 3.-4. Siguröur Hauksson, UMFK. Áöur en keppnin hófst var form- leg gráöun á vegum JSÍ. Siguröur H. Jóhannsson hlaut þá gráóuna 4. dan, en þaö er hæsta gráöa í júdó sem íslenskur júdómaður hefur hlotiö til þessa. Seinni hluti afmælismóts JSÍ veröur næstkomandi laugardag, 5. febrúar, í íþróttahúsi Kennarahá- skólans og hefst kl. 15.00. Veröur þá keppt í flokkum drengja og unglinga, kvennaflokki og í opnum flokki karla. • Átök i júdó eru oft mikil og skemmtileg tilþrif sjást í viöur- eignum kappanna, eins og t.d. á þessari mynd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.