Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983 27
þorir vart aö leggja til atlögu viö
þau í hættu viö aö missa andlitið,
en fáir aðrir eiga möguleika á aö
hnekkja þeim.
Þegar mönnum sem æfa hjól-
reiöar er sagt af fróöum mönnum
aö þeir veröi aö hjóla minnst tvisv-
ar 100 km vegalengdir yfir keþþn-
istímabilið, getur Ole Ritter ekkl
annaö en brosaö.
„I tilraunum mínum til aö slá
tímamet í Mexíkó hjólaöi ég sem
svarar til 100 km keppni upp á
hvern dag.“
Ole Ritter er nú hjólreiöaþjálfari
í Danmörku og eina formúlan sem
hann gefur fyrir árangri er æfing
og aftur æfing. Danir æfa vel og
hefur einn Dani dvaliö yfir sumar-
tímann í ítalíu viö æfingar til aö
venjast aöstæöum, en þaö er
Jesper Warre. Einnig taka Danir
þátt í keppninni .Tour de France"
og þegar Ritter er spuröur um
muninn á þessum tveim keppnum
er svarið á þessa leiö: „Þó aö
„Tour de France" sé öllu ófrýni-
legri, þá er þaö aðeins af því aö sú
keppni fer fram seinna á tímabilinu
og í heitara veðri, í helvítis hita."
l*ýlt og endursagt úr Alt om Sport.
• Hjólreiðakeppnir fara oft fram við mjög arfiðar aðataaður og oft ar hjólað í miklu fjalllendi.
Vasile Stinga var markahæstur
heimsmeistara Rúmena með alls
65 mörk og var að auki kosinn
næstbesti leikmaður heims-
meistarakeppninnar (á eftir Sov-
étmanninum Wladimir Below).
Mönnun stendur engin ógnun af
Stinga hvaö hæð eða digurleika
varðar, eins og margar stórskytt-
ur eru, heldur er krafturinn og
skotharkan hreint meö ólíkind-
um, og til marks um þaö hefur
Stinga þeytt boltanum 73 metra
frá sér (nærri tvöföld lengd hand-
boltavallar). „Þar fyrir utan hefur
Stinga yfir að ráöa geysilegum
stökkkrafti. Viö mælingar hefur
komið fram að hann stendur jafn-
fætis bestu rúmensku þrístökkv-
urunum,“ segir Nicole Nedeff,
þjálfari rúmenska landsliðsins í
handbolta sem vill meina það, aö
hinn 25 ára gamli Stinga geti enn
betur, og komi til með að sýna
miklu meira í framtíðinni. Staö-
festar upplýsíngar um skotkraft
Stinga liggja ekki fyrir, en nefna
má að Austur-Þjóðverjinn Frank
Wahl og Vestur-Þjóöverjinn Er-
hard Wunderlich skjóta bolta
með hraðanum 125 km á klst.
— O —
Svíinn Ingemar Johansson sem
árið 1959 sló Floyd Patterson
niður og varð þar meö heims-
meistari í þungavígt, ætlar aö
gera sjónvarpsþætti um líf sitt
fyrir sænska sjónvarpið. Sýn-
ingar eiga að hefjast á árinu 1984
og hafa þættirnir að geyma
marga af frægustu bardögum
hans. Ingemar er svo sem enginn
viðvaningur í gerð mynda, þar
sem hann I frægð sinni sem
heimsmeistari 1959 lék í amer-
ískri kvikmynd, „All the young
men“, sem fjallaöi um stríðið í
Kóreu, en þar lék Ingimar hug-
prúöan hermann.
Ingemar er ekki hættur afskipt-
um af íþróttum, þó svo að hann
sé kominn af léttasta skeiðinu.
Hann stundar míkið skíöagöngu,
auk þess sem hann skrifar mikið
um þau mál í tímarit. Til stóð aö
„lngo“ tæki þátt í „Vasa Lopp“-
keppninni í marz síðastliönum,
en vegna meiðsla ( baki or hann
hlaut daginn fyrir keppnina varð
hann að hætta við.
— O —
George Foreman, fyrrverandi
heimsmeistari ( þungavigt, hefur
höfðaö mál gegn kaþólskum
söfnuði. Forsaga þessa máls er
sú að árið 1979 lánaöi hann söfn-
uöinum 90.000 dollara til að
byggja kirkju ( Houston. Lánið
átti að greiðast á 20 árum með
9% vöxtum, sem hins vegar söfn-
uöurinn gat ekkí staðið viö. Fore-
man leitaði því réttar síns, og
krefst þess aö fá þá 84.627 doll-
ara sem hann á eftir að fá borg-
aða. Foreman varö Ólympíu-
meistari í Mexíkó áriö 1968, og
síðan heimsmeistari atvinnum-
anna ( janúar 1972, þegar hann
Meistaramót í sundi
Innanhússmeistaramót íslands
í sundi verður haldiö dagana
25.—27. mars 1983 í Sundhöll
Reykjavíkur. Keppt veröur í
greinum skv. reglugerö SSf.
Skráningum ber að skila á þar til
gerðum skráningarkortum til
mótanefndar fyrir 10. mars 1983.
Skráningargjald kr. 10 fyrir
skráningar, en aö öðrum kosti
verði skráningar ekki teknar til
greina. Nafnalisti yfir keppendur,
þjálfara og fararstjóra skal fylgja
skráningum og er þetta mjög
áríðandi vegna tölvuvinnslu á
skrá. Skráningarkort skulu vera
rétt og snyrtilega útfyllt skv. regl-
um þar að lútandi, vitlaust útfyllt
skráningarkort verða ekki tekin
til greina. Innheimt veröa auka
skráningargjöld fyrir allar breyt-
ingar á skráningu.
Þau félög sem óska eftir aóstoö
SSÍ í sambandi viö gistingu mót-
dagana hafi samband viö móta-
nefnd fyrir 1. mars 1983. Niöurröö-
un í riðla fer fram laugardaginn 12.
mars 1983 kl. 14.00.
Aö gefnu tilefni vill mótanefnd
vekja athygli á aö þjálfarar og for-
ráöamenn sundfélaga skrái ein-
göngu til keppni þá sundmenn
sem þeir telji aö eigi fullt erindi á
mót þetta i keppni um Islands-
meistaratitil. Undanrásir hefjast kl.
9.00 og úrslit ekki seinna en kl.
16.00.
bankaði Joe Frazier ( gólfið á
Jamaica. Hann varð svo aö láta (
minni pokann fyrir Muhammed
Ali í Zaire í október 1974.
Stjarna er fædd, sást skrifaö (
dagblööum þegar hinn 17 ára
gamli Svíi, Mats Wilander, spilaði
sig upp til Grand-Prix keppninnar
í BrUssel (mars síöastliðnum, eft-
ir viðureign við Vitas Gerulaitis.
„Mats Wilander spilar betur en
Björn Borg geröi á hans aldri, og
er ástæðan einkum sú aö Mats
spilar gagnstætt Birni við sér
sterkari menn,“ segir Gerulaitis.
— O —
Það er óhætt að segja að millj-
ónir króna séu í boði þegar um
stóra tenniskeppni er að ræða.
Til dæmis hafði John McEnroe
rúmar 15 mHljónir ( árslaun fyrir
aö blaka tennisspaðanum áriö
1981. Á meðan haföi Martina
Navratilova mestar tekjur
kvenna, eða nærri 14 milljónir.
Þaö eru nú samt ekki allir
atvinnumenn ( tennisíþróttinni
sem raka að sér slfkum auði.
Ameríkumennirnir Eric Sherbeck
og Dirk Metz tóku báðir þátt (
75.000 dollara keppninni ( Ástr-
alíu. Þeir töpuðu 1. umferð og
fengu hvor 2.400 kr. Af þessum
2.400 kr. þurfti Sherbeck að
greiöa 1.600 kr. ( sekt fyrir aö
mæta í leikfimisbuxum ( undan-
keppnina. Þar aö auki borgaöi
hann 500 kr. ( tolla, 350 kr. (
keppnisgjald og 200 kr. til ATP,
sambands atvinnutennisleikara.
Ferðir og uppihald þurfti hann að
greiða sjálfur, að sjálfsögöu.
— O —
Ef brasilíski þrístökkvarinn
Joao Carlos del Oliveira væri ekki
jafn heimsfrægur og raun ber
vitni og auk þess hetja í heima-
landi sínu má búast við því að
hann væri búinn að missa sína
hægri hönd. „Þaö hefur kostaö
um það bil 270.000 krónur aö
meöhöndla Oliveira, og þá eru
ekki meðtalin laun lækna,“ segir
taugasjúkdómafræðingurinn
Nubor Facure, sem er yfirmaöur
hinna mörgu lækna sem annast
hafa Oliveira síöan hann lenti í
alvarlegu bílslysi ( desember síö-
astliðnum. Ríkisstjórnin, herinn
og fjöldi einstaklinga hefur sagt
sig fúsa til aö greiða sjúkrahús-
leguna, hversu hár sem reikning-
urinn veröur. Oliveira er liöþjálfi,
og það er ósk hans aö halda
áfram sem leiðbeinandi hersins.
Læknar eru bjartsýnir á að hann
nái heilsu sinni aftur, en hafa þó 2
sálfræðinga til að undirbúa Oliv-
eira undir aö hugsanlega þurfi að
fjarlægja handlegginn. Á milli
þess sem sálfræðingarnir heim-
sækja Oliveira eru það ekki
ómerkari menn en forseti lands-
ins og ráöherrar sem vitja hans.
Oliveira setti heimsmet í þri-
stökki í Mexíkó áriö 1975 er hann
stökk 17,89 metra. Hann á tvær
gull medalíur frá „World Cup“
ásamt tveimur bronsmedalíum
frá leikunum ( Moskvu og
Montreal.
írisGrönfeldt
kjörin íþróttamaóur
Borgarf jarðar 1982
ÍRIS Grönfeldt, Borgarnesi, hefur
veriö kjörin iþróttamaöur Borg-
arfjaröar 1982. í hófi sem var á
Hvanneyri nýlega var kosning
hennar tilkynnt. Hlaut hún 49 stig
af 50 mögulegum í kosningunni
um titilinn, er kosningin fór fram
meöal stjórnarmanna og for-
manna iþróttanefnda Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar en það
er Ungmennasambandið sem
stendur aö útnefningunni. f öðru
sæti varð Einar Vilhjálmsson, (
þriöja sæti varð Jón Oiöriksson, (
fjórða sæti varð Sigurður Ein-
arsson og í fimmta sæti varö
Kristín Njálsdóttir.
íris er mjög vel aö þessari út-
nefningu komin. Hún hefur æft
frjálsar íþróttir af miklum dugnaöi
og ósérhlífni í mörg ár þó hún sé
aðeins 19 ára gömul. Á þessu ári
bar hæst hjá henni nýtt glæsilegt
íslandsmet sem hún setti á móti í
Borgarnesi í vor. Hún varö þá fyrst
íslenskra kvenna til aö kasta spjót-
inu yfir 50 metra er hún bætti eigiö
islandsmet um tæpa 4 metra,
kastaöi 51,58 m. Hún er fjölhæfur
kastari og var m.a. íslandsmeistari
kvenna baaöi í kúluvarpi og spjót-
kasti. Hún hefur átt fast sæti í
landsliöi Islands og hefur víöa
keppt fyrir islands hönd í aöalgrein
sinni, spjótkastinu, og staöiö sig
vel.
iris fór núna eftir áramótin til
Bandaríkjanna þar sem hún dvelur
til vorsins í Tuscalusa í Alabama
og er viö nám viö Alabama-há-
skóla, auk þess sem hún æfir
íþrótt sína af kappi meö þaö aö
markmiði aö komast á næstu
Ólympíuleika. Hún gat þvi ekki tek-
iö á móti hinum veglega bikar sem
hún á aö varðveita þetta áriö
a.m.k. sem iþróttamaður Borgar-
fjaröar og veittu foreldrar hennar,
þau Erla Daníelsdóttir og Þórleifur
Grönfeldt, bikarnum viötöku fyrir
hennar hönd.
Þetta er í þriðja skiptiö sem út-
nefning iþróttamanns Borgarfjarð-
ar fer fram. 1980, i fyrsta skiptiö,
varð Jón Diöriksson fyrir valinu en
Einar Vilhjálmsson í fyrra.
HBj.
Firmakeppni
hjá Þrótti
EINS og undanfarin ár gengst
Knattspyrnufélagið Þróttur fyrir
firmakeppni ( innanhússknatt-
spyrnu í Vogaskólanum. Keppnin
hefst að þessu sinni um aðra
helgi í febrúar, ern nánari dag-
setning veröur ákveðin þegar
þátttaka er Ijós. Þátttökutilkynn-
ingar þurfa að berast til Guðjóns
Oddssonar í Liturinn, Síðumúla
15, fyrir mánudagskvöld 7. febrú-
ar. Þátttökugjald er kr. 800.
• A-aveit Ármanns sem sigraöi ( þriðja skipti ( sveitakeppni í júdó. Bjarni Friðriksson, formaöur júdódeild-
ar Armanns, heldur á skildinum sem sveitin vann. Lengst til vinstri í efri röð er þjálfari deildarinnar,
Japaninn Yoshihiko lura. Úrslit ( sveitakeppninni urðu þau að A-sveit Ármanns sigraði, sveit Gerplu varð í
öðru sæti og B-sveit Ármanns í þriðja sæti.