Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 38
46 Saudárkrókur: MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983 Vinna liggur að mestu niðri í frystihúsunum — 40 manns atvinnulausir fyrri hluta janúar Sauðárkróki, 28. janúar. Mynd Mbl./ EBB Hvað gerist viö 20 mi'nútna seinkun á flugi...? jr Islenski dansflokkurinn: Fjórir íslenskir ballettar frumsýndir NOKKUÐ hefur bryddað á atvinnu- leysi hér undanfarið en um 40 manns hafa fengið atvinnuleysisbætur fyrri hluta janúar. Vinna hefur lengið að mestu niðri í frystihúsunum þessa viku en væntanlega rætist eitthvað úr þegar togararnir landa eftir helgina. Afli hef- ur verið mjög tregur undanfarið — 40—115 tonn eftir 8—9 daga veiðiferð. l'ltgerðarfélag Skagfirðinga gerir út þrjá togara, Drangey, Hegranes og SÆNSKI stórmeistarinn Ulf And- erson sigraði á skákmótinu í Wijk an Zee í Hollandi, en mótinu lauk á sunnudag. í síðustu umferð gerði Svíinn jafntefli við Ree frá Hollandi í aðeins 13 leikjum. Það nægði hon- um til sigurs og um 80 þúsund króna fyrstu verðlaun á mótinu. Lokastaðan á mótinu varð þessi: 1. Anderson 9 v., 2. Ribli 8'k v., 3.-4. Browne og Hort 8 v., 5. Nunn Vk v., 6. Seiravan 7 v., 7. Hulak 6Í6 v., 8. Korchnoi 6 v., 9.—11. Friðrik ólafsson, Ree og Scheeren 5‘k v., 12. Van der Wiel 5 v., 13.—14. Kuligowski og Speel- man 4 'k v. Mikið var um jafntefli í síðustu umferðinni. Friðrik og Hulak gerðu jafntefli, Anderson samdi um jafntefli við Ree eftir aðeins 13 Skafta. Hegranesið hefur verið frá veiðum síðan í október síðastliðnum. En nú fara fram gagngerar endurbætur og breytingar á skipinu í Slippstöðinni á Akureyri. Skipið verður lengt, sett í það ný vél og milliþilfar, íbúðir skipverja endurbættar og lestinni breytt fyrir kassa. Að sögn fram- kvæmdastjóra útgerðarfélagsins, Bjarka Tryggvasonar, á skipið að leiki, Kuligowski og Scheeren gerðu jafntefli í 61 leik, van der Wiel og Speelman gerðu jafntefli, Ribli og Seiravan sömuleiðis og loks Browne og Nunn. 1 síðustu umferðinni tapaði Korchnoi fyrir Hort. Sá fyrrnefndi var með væn- lega stöðu, en gleymdi að skrá hjá sér einn leik og féll á tíma eftir 39 leiki, en Korchnoi hélt þá að hann hefði leikið tilskilda 40 leiki. Frammistaða Korchnois var slök á mótinu, hann vann 5 skákir, gerði 2 jafntefli og tapaði 6 skák- um. í júlímánuði fer mikið skákmót fram í Amsterdam, svonefnt OHRA-mót, en það var áður kennt við IBM. 32 skákmenn keppa í að- alflokki mótsins og hefur Friðrik Ólafssyni verið boðið að taka sæti þar ef einhver hinna 32 forfallast. vera tilbúið fyrri hluta aprílmánað- ar næstkomandi. Á síðastliðnu ári öfluðu togarar ÚS sem hér segir: Dangey tæp 3000 tonn, Skafti 2660 tonn og Hegranes 2560 tonn, en eins og áður segir hætti sðasttalda skipið veiðum í októbermánuði. Heild- araflaverðmæti allra skipanna var rúmar 42 milljónr króna. Um 80 manns starfa hjá ÚS; á skipum þess og í landi. Þá eru ótaldir þeir sem vinna að verkun aflans í frystihús- unum á Sauðárkróki og Hofsósi, auk þeirra sem atvinnu hafa af þjónustu við skipin. Jón Karlsson, formaður Verka- mannafélagsins Fram sagði félagið hafa áhyggjur af atvinnuástandinu. Sérstaklega hjá því fólki sem ætti allt undir starfsemi frystihúsanna. Félagið hefði fyrir nær mánuði skrifað bæjarstjórn, útgerðarfélag- inu og frystihúsunum og kvatt þessa aðila til þess að beita sér fyrir að tryggja aukið hráefni til fiskvinnsl- ustöðvanna, með leigu á skipi meðan Hegranesið er frá veiðum. Það mál mun í athugun en Jón sagðist ekki vita hvernig það stæði. Án einhverra ráðstafana gætu næstu mánuðir orð- ið verkafólki erfiðir og allt yrði að gera til að koma í veg fyrir atvinnul- eysi. Fólk mætti varla við að missa úr nokkurn dag. I byggingariðnaði hafa verkefni verið næg fram að þessu. Einkum er unnið við ýmsar opinberar framkvæmdir en minna við verkefni á vegum einstaklinga. Kári. ÍSLENSKI dansflokkurinn frum- sýnir 2. febrúar fjóra nýja íslenska balletta í Þjóðleikhúsinu. Fyrsti ballettinn er eftir Nönnu Ólafsdóttur, saminn við tónverk Leifs Þórarinssonar, Largo Y Largo. Lýsir hann i dansi æviskeiðum mannsins frá æsku til elli og dansa nokkur böm úr Listdansskóla Þjóðleik- hússins með dansflokknum. Tónlistin er flutt af lítilli hljómsveit. Annar ballettinn er eftir Ingi- björgu Björnsdóttur og heitir n20 mínútna seinkun", tónlistin er eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Þessi ballett fjallar um 20 mín- útna seinkun sem verður á flugi og því sem gerist á flugvellinum á meðan beðið er. Þriðji ballettinn heitir„Hvar?“ og er samin af meðlimum dans- flokksins við tónlist eftir Þóri Baldursson. Fjórði ballettinn, sem er af klassískum toga, er einnig sam- inn af flokknum við tónlist eftir Aram Katsatúrían, Jean Sibeli- us og Edward Elgar, nefnist hann „Dansbrigði". Anderson 80 þús. kr. ríkari eftir sigurinn í Hollandi MorgunblaúiA Kristján K. Kinarsson Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan: Vill að hvalveiði- banni verði mótmælt Ungir myndlistarmenn á Kjarvalsstöðum: Sýnd verða 180 verk eftir 58 myndlistarmenn Óráðlegt að mótmæla hval- veiðibanni að mati Náttúru- verndarráðs Náttúruverndarráð boðaði til fundar sl. sunnudag, þar sem viðhorf ráðs- ins til hvalveiðibanns Alþjóðahval- veiðiráðsins voru kynnt. Var þar vís- að til ályktunar Náttúruverndarráðs frá 25. október síöastliðnum, þar sem sterklega var varað við því að banninu yrði mótmælt, samanber frétt í Morgunblaðinu á sunnudag. Myndin er frá fundinum. Aðalfundur Skipstóra- og stýri- mannafélagsins Öldunnar var haldinn 9. janúar sl., segir í frétta- tilkynningu frá félaginu. A þessum fundi var kjörin ný stjórn til næstu tveggja ára, sem Fimm sölur FIMM íslen/k fikiskip lönduóu afla sínum erlendis í gær, en yfirleitt fékkst lágt verð fyrir aflann. f dag selja tvö skip ytra. Gullver frá Seyðisfirði seldi 109 lestir í Hull í gær fyrir 2037 þús- und, meðalverð á kíló 18,67 kr. Örn KE seldi 72,2 lestir í Grimsby fyrir 970 þúsund krónur, meðalverð á kíló 13,40. Guðfinna Steinsdóttir seldi 44,2 lestir í Fleetwood fyrir 655 þúsund krónur, meðalverð á kíló 14,83 kr. Óskar Halldórsson seldi 47 lestir í Grimsby, meðalverð á kíló 17,32 krónur. Jöfur KFI seldi 92,7 lestir í Cuxhaven fyrir 1353 þúsund krónur, meðalverð á kíló 14,59 krónur. er þannig skipuð: Formaður var kjörinn Ragnar G.D. Hermannsson, Reykjavík, og aðrir í stjórn Þorvaldur Árnason, Reykjavík, varafor- maður, Gunnar Gunnarsson, Ólafsvík, gjaldkeri, Hróbjartur Lúthersson, Reykjavík, ritari, og Einar Sigurðsson, Þorlákshöfn, Björn Jónsson, Reykjavík, og Árni Guðmundsson, Reykjavík, meðstjórnendur. Eftirfarandi ályktanir voru gerðar um hvalveiðar og verð- lagsmál. „Aðalfundur Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Öldunnar, haldinn að Borgartúni 18 sunnu- daginn 9. janúar 1983, skorar á Alþingi og ríkisstjórn íslands að mótmæla hvalveiðibanni því sem Alþjóðahvalveiðiráðið ákvað að tæki gildi í Norður-Atlantshafi 1986.“ „Skipstjóra- og stýrimannafé- lagið Aldan mótmælir afskiptum stjórnvalda af síðustu fiskverðs- ákvörðun svo og framlengingu olíugjalds og hækkun útflutn- ingsgjalda." Þess skal getið að þetta ár er merkisár í sögu félagsins þar sem það verður 90 ára 7. okt. nk. og er elsta stéttarfélag landsins. Þessara tímamóta verður vænt- anlega minnst síðar á árinu. ALLS munu 58 ungir myndlistar- menn sýna um 180 verk á sýningu ungra myndlistarmanna, sem verð- ur opnuð á Kjarvalsstöðum laug- ardaginn 5. febrúar næstkomandi. Þóra Kristjánsdóttir, listráðunaut- ur Kjarvalsstaða, sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins að um 80 manns hefðu svarað auglýs- ingu og sent inn um 400 verk, sem dómnefnd hefði síðan valið úr áð- urnefnd 180 verk. „Reglur voru settar um að taka ekki listiðnað að þessu sinni," sagði Þóra, „en þetta eru fjöl- breytileg verk, olíumálverk, teikningar, vatnslitamyndir, skúlptúrar, glermyndir og fleira. Margt af því fólki sem sendi inn verk sín er fólk sem nýlega hefur lokið námi hér heima, og einnig var sent inn af fólki, sem hefur verið erlendis undanfarin ár, og við vissum varla um. Fólkið má ekki vera eldra en 30 ára, og þeir sem munu sýna að þessu sinni eru á aldrinum sautján ára til þrítugs. Þetta verður sölusýning, og flest verkanna til sölu. Þá höfum við samvinnu við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónskóla Sigursveins, sem munu gangast fyrir fimm nemendatón- leikum, þar sem flutt verða ný tónverk eftir nemendur í tón- fræðadeild Tónlistarskólans. Tónleikar þessir verða haldnir á Kjarvalsstöðum meðan á sýning- unni stendur, en henni lýkur 20. febrúar." Þóra sagði, að ánægjulegt væri að vinna við sýningu af þessu tagi, þar sem svo margt ungt fólk syndi verk sin. Hugmyndina að sýningunni hafi Einar Hákon- arson átt, stjórnarformaður Kjarvalsstaða. „Sýning af þessu tagi hefur ekki verið haldin síðan 1967,“ sagði Þóra, „er efnt var til sýningar ungra málara í Laug- ardalshöll. Svo skemmtilega vill til, að tveir dómnefndarmanna nú, þeir Einar Hákonarson og Kristján Guðmundsson, voru meðal þeirra sem tóku þátt í sýn- ingunni þá.“ í þættinum „Á förnum vegi“ í Mbl. á sunnudaginn urðu mis- tök við birtingu meðfylgjandi myndar. Rétt röð er þessi frá hægri: Friðbjörg Sigurbjörns- dóttir, Didda Wilson og Fanný Jónsson. Prentvilla varð í nafni Diddu Wilson. Svo skemmtilega vill til að Didda er einmitt stödd á íslandi núna, en heldur heim- leiðis í dag eftir hálfs mánaðar dvöl. Fylgja henni beztu kveðj- ur. Morgunblaðið biðst velvirð- ingar á þessum mistökum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.