Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
Ljósmyndari Mbl., Ólafur K. Magnússon, tók þessa svipmynd á Alþingi í gær:
Kyjólfur Konráð Jónsson, Salome Þorkelsdóttir og Jóhann Einvarðsson.
Bifreiðum ekið með ljós
allan sólarhringinn
Salome Þorkelsdóttir (S) mælti nýverið í efri deild Alþingis fyrir frumvarpi
sem hún flytur til breytinga á umferðarlögum. Það er gert ráð fyrir því að
bifreiðar, bifhjól og vélhjól skuli aka með Ijósum allan sólarhringinn árið um
kring. Önnur ökutæki, sem talin eru upp í 2. gr. umferðarlaga, hafi Ijósatíma
frá hálfri klukkustund eftir sólarlag til hálfrar klukkustundar fyrir sólarupp-
rás. Jafnan skal þó aka með Ijósum séu birtuskilyrði slæm.
Salome sagði m.a.:
Frumvarpi þessu, ef að lögum
verður, er ætlað að hafa nokkur
áhrif til bóta á öryggi í umferð-
inni.
Um alllangt skeið hefur um-
ferðaróhöppum fjölgað hér á
landi ár frá ári. Meiðslum og
dauðaslysum hefur fjölgað og
eignatjón er geysilegt. Þrátt fyrir
aukna löggæslu og bætta umferð-
arlöggjöf næst ekki sá árangur
sem vænst var.
Oft verða óhöppin vegna þess
að gangandi vegfarandi verður
þess ökutækis, sem óhappinu
veldur, ekki var í tæka tíð eða
stjórnendur ökutækja sem rekast
á, gera sér hættuna ekki ljósa
fyrr en of seint.
í nokkrum löndum hefur öku-
mönnum verið gert að aka með
ljósum á bifreiðum sínum allan
sólarhringinn árið um kring.
Víða eru ökumenn hvattir til þess
að aka með ljósum á daginn ef
skyggni er ekki gott. Margir
verða við þeirri áskorun en aðrir
ekki. Þá verður jafnvel enn erfið-
ara að forðast hættu, þegar á eft-
ir 3—4 bifreiðum með ljósum
kemur ein ljóslaus.
Allir, sem reynslu hafa af
akstri, vita að t.d. þeirrar bifreið-
ar, sem kemur á móti í umferð-
inni, verður mun fyrr vart, ef
henni er ekið með ljósum, þó al-
bjartur dagur sé.
Af þessum ástæðum hefur
„Greyhound" langferðabifreiðun-
um í Bandaríkjum Norður-
Ameríku verið ekið með ljósum
allan sólarhringinn í meira en
hálfa öld.
Svíar hafa ekið með ljósum all-
an sólarhringinn í allmörg ár og
eru eina Norðurlandaþjóðin sem
náð hefur því marki að fækka
umferðaróhöppum. Finnar hafa
fylgt fast á eftir með mjög góðum
árangri. Bifreiðar, framleiddar í
Svíþjóð, eru nú þannig gerðar að
þar koma ljósin á um leið og bif-
reiðin er ræst.
Öldruðum í umferðinni fer
fjölgandi, og þótt kannanir sýni
að aldraðir ökumenn valdi ekki
slysum öðrum fremur, nema síð-
ur sé, þá er þó ljóst að þetta
ákvæði í umferðarlögum mundi
auka öryggi allra sjóndapurra í
umferðinni, bæði ökumanna, en
þó einkum gangandi vegfarenda.
Einn af hverjum fjórtán körl-
um, sem aka bifreið, er sam-
kvæmt erlendum skýrslum hald-
inn svonefndri „rautt-grænt"
litblindu, þannig að þessir öku-
menn eiga erfitt með að greina
rauða og græna hluti við vissar
aðstæður, en bifreið með ljósum
sjá þeir vel.
í skýrslu sem landlæknisemb-
ættið hefur tekið saman um slys í
umferð, kemur fram sú hörmu-
lega staðreynd, að í ungu ald-
urshópunum, 7—20 ára, eru slys-
in algengasta dánarorsökin hjá
okkur og á aldrinum 17—25 ára
eru umferðarslysin ein algengari
dánarorsök en nokkur önnur.
Vitað er að umferðarlögin eru í
heildarendurskoðun, en ástandið
hjá okkur er svo slæmt að við
megum ekki bíða.
Akvæðið, sem þetta frumvarp
fjallar um, er einfalt, getur tekið
gildi strax eftir samþykkt Iag-
anna og það má vænta árangurs.
Ráðherra getur með reglugerð
sett ákvæði um viðurlög.
Nú er norrænt umferðarörygg-
isár. Ljósatími allan sólarhring-
inn, allt árið, væri verðugt byrj-
unarákvæði.
Matthías Á. Mathiesen:
Atvinnusamdráttur
og lífekjaraskerðing
— árangur þriggja ára stjórnarferils
Annari umræðu um bráðabirgða-
iög ríkisstjórnarinnar var framhald-
iö í neöri deild Alþingis í gær en
lauk ekki. Henni verður framhaldið
nk. miðvikudag kl. 2 miðdegis.
Matthías Mathiesen (S) mælti fyrir
nefndaráliti sjálfstæðismanna í fjár-
hags- og viðskiptanefnd þingdeildar-
innar (Alberts Guðmundssonar og
Sigurlaugar Bjarnadóttur auk hans)
og gerði harða hríð að ríkisstjórninni
fyrir vinnubrögð, varðandi bráða-
birgðalögin, og aðgerðar- og stefnu-
leysi í efnahagsvanda þjóðarbúsins
og undirstöðuatvinnuvega.
Vinnulagið
veldur töfum
Matthías Á. Mathiesen (S) benti
m.a. á að ríkisstjórnin hefði ekki
lagt bráðabirgðalögin fyrir Al-
þingi fyrr en mánuður var liðinn
af starfstíma þess. Fimm mánuðir
liðu frá útgáfu þeirra unz þau
komu til umfjöllunar í neðri deild
þingsins. Efri deild hefði afgreitt
frumvarpið frá sér enda þótt vant-
að hafi fjölmargar upplýsingar,
varðandi einstök efnisatriði, á
þeirri forsendu, að úr yrði bætt í
síðari þingdeild. Á þetta hafi þó
enn skort. Sjávarútvegsráðherra
hafi og flutt breytingartillögu við
bráðabirgðalögin í neðri deild, í
stað efri deildar, sem þýði, að
frumvarpið verði aftur að fara til
fyrri þingdeildar, verði breyt-
ingartillagan samþykkt. Allt þetta
sýni Ijóslega að vinnulag ríkis-
stjórnarinnar hafi fremur öllu
öðru valdið þeim töfum í meðferð
málsins sem orðið hafi.
Því var lýst yfir í fyrri þing-
deild, sagði Matthías, að ítarleg
athugun skyldi fram fara á fram-
Matthías Á. Mathiesen (S) talar
fyrir nefndaráliti sjálfstæðismanna í
neðri deild í gær.
(Ljósm. Mbl. Ól. K.M.)
kvæmd láglaunabóta og hvað
mætti verða til úrbóta, en ekkert
hefur enn fram komið um hvern
veg verður að láglaunabótum stað-
ið 1983. í morgun, þegar þingnefnd
fjallaði síðast um málið, varð að
ráði að senda Sigurði Líndal, laga-
prófessor, fyrirspurnir varðandi
vafasamar lagaheimildir til
greiðslu láglaunabóta á yfirstand-
andi ári.
Breytingartillaga
sjávarútvegsráðherra
Fjárhæð sú, sem ríkisstjórnin
hyggst ráðstafa, skv. breytingar-
tillögunni, af gengismun er svipuð
og allur gengismunur af skreið-
arbirgðum (50 til 60 m.kr.). Telja
skreiðarframleiðendur að fremur
hafi verið ástæða til að styrkja
stöðu þeirra vegna söluerfiðleika
og kostnaðar vegna geymslu, láns-
fjármagns sem og hugsanlegrar
verðmætisrýrnunar en bregðast
við með því að skattleggja þessa
erfiðleika. Norðmenn hefðu farið
öðru vísi að eða gert ráðstafanir
til að létta undir með skreiðar-
framleiðendum.
Matthías benti og á að fulltrúar
Seðlabanka hafi gefið upplýsingar
um að ráðstöfun gengismunar
fram hjá sjóðum og stofnunum
sjávarútvegs og fiskframleiðslu
væru einsdæmi.
Bráðabirgða-
rádstafanir
Matthías Á. Mathiesen undir-
strikaði að allar ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar í efnahags- og at-
vinnumálum hefðu verið bráða-
birgðaráðstafanir og allar í bráða-
birgðalögum. Afrek ríkisstjórnar-
innar felast í fjórum orðum:
launaskerðing, skattahækkanir,
erlendar lántökur og ríkisumsvif.
Eftir þriggja ára setu stjórnarinn-
ar er útlitið í þjóðarbúskapnum
dekkra en nokkru sinni fyrr. Fram
undan blasir við 70% verðbólga,
erlendar skuldir sem nema 55% af
þjóðarframleiðslu, samdráttur at-
vinnuvega, vaxandi atvinnuleysi
og lífskjaraþrenging. Verðbætur
launa hafa verið skertar 13 sinn-
um með lögum síðan 1978. Bráða-
birgðalögin fela og í sér hækkun
vörugjalds og verðlags í landinu.
Vörugjaldshækkunin, sem laun-
þegar greiða í hærra vöruverði,
gefur ríkissjóði tvöfalda þá fjár-
hæð sem ráðgert var að ráðstafa í
láglaunabætur 1982 og 1983.
Stuttar þingfréttir
Greiðslukerfi láglaunabóta í endurskoðun
• Steingrímur Hermannsson, sjáv-
arútvegsráðherra, sagði í gær á
þingi, í umræðu um bráðabirgða-
lög ríkisstjórnarinnar, að hann
teldi ekki ástæðu til svartsýni
varðandi sölu á skreið sem liggur
óseld í landinu, en ríkisstjórnin
gerir ráð fyrir að taka gengismun
af skreiðarútflutningi til að mæta
tekjutilfærslu skv. bráðabirgða-
lögunum. Þó mætti gera ráð fyrir
að brúa þyrfti eitthvert bil með
lántöku, milli ráðgerðrar ráðstöf-
unar og innkomu gengismunar.
• Ragnar Arnalds, fjármálaráð-
herra, sagði reglur um greiðslu
láglaunabóta, sem einnig mætti
kalla neikvæðan tekjuskatt, hafa
reynzt á ýmsan hátt gallaðar,
þrátt fyrir ítarleg samráð við full-
trúa úr verkalýðshreyfingu og
vandaðan undirbúning. Þessi út-
borgun öll væri nú í endurskoðun,
og ekki væri unnt að ræða fram-
haldið, þ.e. greiðslur 1983, fyrr en
henni væri lokið. Ráðherrann
taldi fulla lagaheimild fyrir fram-
haldi greiðslna 1983, samkvæmt
fjárlagalið sem nefndur væri
efnahagsráðstafanir.
• Vilmundur Gylfason (BJ) gagn-
rýndi „fjórflokkana" fyrir það
sem hann kallaði uppgjöf í efna-
hagsmálum. Þeir vildu og stefna
bæði kjördæma- og stjórnar-
skrármálum í hættu til að knýja
fram þingrof og kosningar, ekki í
þágu fólksins í landinu, heldur
sjálfra sín.
• Jóhanna Sigurðardóttir (A)
minnti á ummæli Guðmundar J.
Guðmundssonar (Abl), þess efnis,
að hann myndi ekki styðja um-
rædd bráðabirgðalög nema það
kæmi fram, að aðrir en láglauna-
fólk greiddu góðan hluta kostnað-
ar gegn verðbólgunni. Hann hefði
og sett það skilyrði fyrir stuðningi
sínum að lánskjaravísitölu yrði
breytt. Nú liggur fyrir nefndar-
álit, sem GJG hefur undirritað,
þar sem hann mælir með sam-
þykkt bráðabirgðalaganna, og því
er tímabært að spyrja: Ætlar
GJG að samþykkja bráðabirgða-
lögin án þess að fyrst verði sam-
þykkt fyrirliggjandi frumvarp
varðandi lánskjaravísitölu?
Umræðu um bráðabirgðalögin
lauk ekki og verður henni fram
haldið á morgun, miðvikudag.
Utsala hjá Verksmiójusölu
Barnabuxur verð frá kr. 100.
Karlmannabuxur verð frá kr. 200.
Kvenbuxur verð frá kr. 190.
Ullarúlpur loðfóðraðar verð frá kr. 500.
Pils og buxnapils verð frá kr. 250,
o.fl., o.fl.
Opiö kl. 13.00—18.00
Verksmiðjusalan,
Skeifan 13, á móti Hagkaup.