Morgunblaðið - 01.02.1983, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
Pólland:
Olszowski jákvæður
gagnvart ferð páfa
Varsjá, Póllandi, 31. janúar. AP.
STEFAN Olszowski, utanrik-
isráðherra Póllands, sagði í
dag að ferð Jóhannesar Páls
II páfa til PóJlands í júní,
gæti hugsanlega bætt sam-
skipti stjórnvalda og kirkju
þar í landi.
Prestar í Póllandi tilkynntu
komu páfa í stólræðum sínum í
gær, en ráðgert hefur verið að för
hans hefjist 18. júní. Þessi dagur
var fyrst nefndur 8. nóvember síð-
astliðinn af Glemp erkibiskupi og
Jaruzelski, leiðtoga Póllands, eftir
að þeir höfðu rætt saman.
Olszowski, sem ávarpaði þingið
í dag sagði einnig að endurgreiðsla
pólskra skulda í vestrænum bönk-
um, „fari ekki einungis eftir fjár-
hagsstöðu, heldur einnig eftir
Bændur mótmæltu:
Slepptu
30.000 hænum
Brest, Frakklandi, 31. janúar. AP.
MEIRA en þrjátíu þúsund ótta-
slegnar hænur þyrptust um götur í
þremur borgum í Bretagne-skaga
á laugardag eftir að reiðir eggja-
bændur slepptu hænunum til að
mótmæla lágu eggjaverði.
Lögregla í Brest, Morlaix og
Landivisiau tilkynnti að fjöldi
hæna hefði drepist þegar þær
lentu undir farartækjum, en
ekki mun hafa verið um nein
meiðsli að ræða á mönnum.
Yves Auffret, forseti sam-
bands eggjaframteiðenda í
Frakklandi, sagði að 4.000
eggjabændur í Bretagne hefðu
tapað um 7,5 milljónum franka
á síðastliðnu ári vegna offram-
leiðslu og minnkandi útflutn-
ings. Bretagne er mesta eggja-
hérað í Frakklandi, en hundruð
bænda þar hafa orðið gjaldþrota
eða eru skuldum vafnir vegna
tapsins.
viðhorfi til Póllands og samskipt-
um austurs og vesturs." Talið er
að þetta sé í fyrsta skipti sem
pólskur embættismaður tengir
endurgreiðslur lána við stöðu
stjórnmáia.
Islamahad, Pakislan, 31. janúar. AP.
DIEGO Cordovez, sérlegur sendi-
maður Sameinuðu þjóðanna, sneri í
dag úr fjögurra daga heimsókn til
Kabúl og sagðist hafa átt árangurs-
ríkar viðræður við stjórn marxista
þar.
„Ferðin til Kabúl var góð og ár-
angursrík", sagði Cordovez við
komuna við fréttamenn og kvaðst
Rannsókn er þegar hafin á þess-
um morðum, sem áttu sér stað í
grennd við þorpið Urchuruccay
um 80 km frá bænum Ayacucho,
en þar hjuggu bændur 7 skæruliða
til bana með sveðjum 22. janúar
sl. Höfðu fréttamennirnir haft í
hyggju að eiga viðtöl við leiðtoga
skæruliðahreyfingar þeirrar, sem
nú reynir að hvetja til bændaupp-
reisnar í landinu og vill kollvarpa
stjórninni í höfuðborginni Lima.
Lögregla og herlið byrjuðu leit
Jóhannes Páll II.
vera kominn til Pakistan að nýju
til að ráðfæra sig frekar við ráða-
menn þar.
Hann sagði hugsanlegt að hann
sneri aftur til Kabúl að nýju innan
nokkurra daga, en næst á dagskrá
væri að hitta að máli fulltrúa 2,7
milljóna afgangskra flóttamanna
í Pakistan.
úr þyrlum að fréttamönnunum, er
þeir komu ekki til baka á þeim
tíma, sem fyrirhugaður var.
E1 Diario, blað jafnaðarmanna í
Lima, en þrír starfsmenn þess eru
á meðal hinna myrtu, heldur því
fram, að ekki séu allir á einu máli
varðandi þessi morð. Segir blaðið,
að sumt í framkomnum skýrslum
bendi til þess, að það hafi verið
herlögreglan á þessu svæði, sem
hafi drepið fréttamennina í mis-
gripum og talið þá vera skæruliða.
Kabúl-heimsóknin
var árangursrík
— segir Cordovez sérlegur sendimaður SÞ
Níu fréttamenn
myrtir í Perú
Ayacucho, 31. janúar. AP.
NÍU FRÉTTAMENN í Perú hafa fundizt myrtir á því landsvæði í Perú,
sem skæruliðar ráða yfir. Virðist sem reiðir bændur hafi talið þá skæru-
liða og banað þeim. Skýrði yfírstjórn hersins í Perú frá þessu í dag.
.
Vestur-Þýzkaland:
Vaxandi bjart-
sýni hjá frjáls-
um demókrötum
Hafa 5% atkvæða samkvæmt nýjustu skoðanakönnun
Bonn, 31. janúar. AP.
Eftir James M. Markham, fréttaritara New Y'ork Times.
HINN litli flokkur frjálsra demókrata (FDP) í Vestur-Þýzkalandi, sem þó er
aðili að ríkistjórn landsins, hélt flokksþing nú um helgina, er lauk á sunnu-
dag. Talsverð bjartsýni ríkti á þessu flokksþingi og var ástæðan sú, að
skoðanakannanir nú benda til þess í fyrsta sinn um langan tíma, að flokkur-
inn sé a nýjan leik nærri því að hljóta nægilega mörg atkvæði, sem þarf til
þess að falla ekki út af Sambandsþinginu í kosningunum 6. marz nk.
Flokksþingið fór að þessu sinni Genscher, utanríkisráðherra og
fram í Freiburg í suðvesturhluta formaður FDP, flutti í Freiburg,
landsins og eftir tveggja daga um-
ræður og hugleiðingar virtist sem
tekizt hefði að setja niður deilur
milli hægri og vinstri arms flokks-
ins, en þær mótuðu mjög sams kon-
ar flokksþing, sem haldið var í
Vestur-Berlín í nóvember sl.
Baráttuhugur flokksmanna dvín-
aði mjög og álit flokksins út á við
setti mjög ofan, eftir að FDP hætti
stuðningi sínum við Helmut
Schmidt sem kanslara í september
sl., en það varð til þess, að kristi-
legir demókratar með Helmut Kohl
í fararbroddi komust til valda.
Þetta varð til þess, að margir
vinstri sinnaðir meðlimir FDP
yfirgáfu flokkinn í mótmælaskyni.
í ræðu, sem Hans-Dietrich
gagnrýndi hann jafnaðarmenn
harkalega, en þeir eru nú í stjórn-
arandstöðu. Varaði Genscher við
hugsanlegu bandalagi jafnaðar-
manna og hinna róttæku græn-
ingja, sem leiða kynni til þess, að
Vestur-Þýzkaland tæki upp hlut-
leysisstefnu og færi úr
Atlantshafsbandalaginu. Jafn-
framt færði Genscher fram rök
fyrir þeirri nauðsyn, að FDP ætti
áfram aðild að ríkisstjórn landsins,
því að með því móti væri tryggt
nauðsynlegt móttvægi gegn þeim
öflum á meðal kristilegra demó-
krata, sem andvg væru slökunar-
stefnu gagnvart kommúnistaríkj-
um Austur-Evrópu og „vildu snúa
hjóli sögunnar við“. Með þessu var
Vissi CIA um morðin?
Tel Aviv, 31. janúar. AP.
STARFSMENN bandarísku leyniþjónustunnar vissu um fjöldamorð vopn-
aðra sveita kristinna manna á palestínskum flóttamonnum í Beirút síðastlið-
ið sumar, segir í fregn í ,,Jerúsalem-Post“ í dag.
Frétt þessi í dag, sem höfð er
eftir bandarískum yfirmönnum í
Washington, er í mótsögn við
skýrslu bandaríska utanríkisráðu-
neytisins sem birt var á sunnudag
til að mótmæla fregnum í Lund-
únablaðinu „Sunday Times", þar
sem segir að bandarískir yfirmenn
hafi vitað um fjöldamorðin „að
minnsta kosti sólarhring áður en
þeim lauk“.
. ERLENT
„Gandhi“ hlaut
fimm verðlaun
— á Golden Globe kvikmyndahátíðinni
Hollywood, 31. janúar AP.
„GANDHI“, kvikmynd Richards Attenboroughs um æfí indverska leiðtog-
ans hlaut fímm verðlaun á svonefndri „Golden Globe“-kvikmyndahátíð,
sem fram fór á laugardag. Attenborough fékk verðlaun fyrir kvikmynda-
stjórn, John Briley fyrir kvikmyndahandrit og myndin sjálf fékk verðlaun
sem bezta erlenda kvikmynd ársins 1982. Þar að auki fékk Ben Kingsley
tvenn verðlaun sem kvikmyndastjarna ársins og sem bezti leikarinn.
„Ég get ekki lýst því, hversu
fjarska uppyngjandi það er að
vera kallaður ný stjarna 39 ára
garnall", sagði Kingsley eftir
verðlaunaafhendinguna. Fleiri
gestir en nokkru sinni aður voru
nú viðstaddir afhendingu þessara
verðlauna, en afhendingin fór
fram á Beverly Hilton hótelinu í
Hollywood.
Kvikmyndin „Tootsie" hlaut
þrenn verðlaun á þessari
kvikmyndahátíð. Jessica Lande
fékk verðlaun fyrir bezta auka-
hlutverkið, Dustin Hoffman sem
bezti gamanleikarinn og myndin
sjálf sem bezta söngva- og gam-
anmynd ársins 1982. Meryl Streep
fékk verðlaun fyrir leik sinn sem
fórnarlamb fangabúðanna í
harmleiknum „Sophiets Choice",
en Julie Andrews hlaut verðlaun
Corvetta Scott King, ekkja mannréttindaleiðtogans Martins Luthers King, sést hér á milli þeirra Richards
Attenborough (til vinstri), sem hlaut Golden Globe-kvikmyndaverðlaunin fyrir stjórn kvikmyndarinnar „Gandhi“
og leikarans Bens Kingsley (til hægri), sem hlaut sömu verðlaun sem bezti leikarinn fyrir leik sinn í sömu mynd.
Þessi mynd var tekin við afliendingu verðlaunanna.
sem bezta leikkonan í söngva- og
gamanmynd í myndinni „Victor-
Victoria". Þá hlaut myndin „E.
T.“ einnig verðlaun og sömuleiðis
John Williams fyrir tónlistina í
þeirri myndi.
Áhrifamesta augnablik kvölds-
ins varð, er Dustin Hoffman
kynnti Sir Laurence Olivier, sem
hlaut verðlaun þau, er kennd eru
við Cecil B. DeMille. Ætlaði lófa-
klappinu þá aldrei að linna. Sir
Laurence hlaut verðlaunin fyrir
framlag sitt til kviklmyndalistar-
innar í heild sinni.
Mikiar bollalegginar eiga sér
nú stað um, hverjir hljóta munu
Oscars-verðlaunin síðar á þessu
ári og flestir þeirra, sem þar eru
taldir koma til greina, voru
viðstaddir verðlaunahafhending-
una nú.
GOÐUR
ODYR
LIPUR
SÆLL
AFBRAGÐ
ARPIARHÓLL
Hvíldarstaður
í hádegi
höll að kveldi
Velkomin
SÝNISHORN ÚR
MATSEÐLI
Rifjasteik
að dönskum hætti
(Flæskesteg)