Morgunblaðið - 01.02.1983, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
5
Fjöldi fólks var á skíðura f Skálafelli og á skfðasvæöum í nágrenni
Reykjavíkur um helgina og lyfturnar óspart notaðar.
Nýja stólalyftan í
notkun í Skálafelli
STÆRSTA skíðalyfta lands-
ins var tekin í notkun í
Skálafelli á sunnudag. Fjöldi
fólks var á skíðum í Skála-
felli þennan dag og lyftan
óspart notuð eftir að þeir
Þórir Jónsson og Einar Þor-
kelsson, formaður rekstrar-
nefndar skíðasvæðis KR,
höfðu fyrstir farið upp með
lyftunni. Formlega verður
lyftan vígð um miðjan febrú-
ar. Þórir Jónsson sagði í gær,
að skíðalyftan, framkvæmdir
vegna hennar, þjónustumið-
stöð, vegagerð og þær fram-
kvæmdir aðrar, sem KR-ing-
ar standa fyrir í Skálafelli
kostuðu hátt i 11 milljónir
króna.
Hin nýja skíðalyfta
KR-inga er tveggja sæta
stólalyfta, 1200 metra löng,
og getur flutt 1200 manns á
klukkustund. Hæðarmis-
munur er 272 metrar. Lyftan
er af gerðinni Doppelmeier.
Þórir Jónsson og Einar Þorkelsson
fara fyrstir upp með nýju stólalyft-
unni í Skálafelli.
Fjársöfnun
vegn nauð-
staddra á
Patreksfirði
Morgunblaðinu hefur borizt eftir-
farandi:
Vegna hinna þungu og válegu
atburða, sem urðu á Patreksfirði
laugardaginn 22. janúar, þegar
flóðbylgjur runnu þar yfir byggð-
arlagið með þeim afleiðingum að
fjórir létust og fjöldi fólks missti
heimili sín, höfum við undirritaðir
ákveðið að hafa forgöngu um fjár-
söfnun meðal almennings til
styrktar þeim og hjálpar, sem sár-
asta nauðina hafa orðið að þola og
þyngstar raunir.
Við gerum okkur það ljóst, að
svo þungt böl sem þetta, svo snögg
og óvænt svipting eigna og ást-
vina, og yfirþyrmandi röskun í
einkalífi fólks, sem nú hefur orðið
á Patreksfirði, verður alrdei að
fullu bætt þeim, sem orðið hafa að
þola. En heilög skylda býður
hverjum þegni þjóðar að koma til
hjálpar nauðstöddu samferðafólki,
Iétta því eftir megni þungar byrð-
ar svo að það megi finna og sann-
reyna að Ijósið skín í myrkrinu, að
heit hjörtu samúðar og mannkær-
leika bærast í brjósti þeirra, sem
fjær standa og finna sárt til með
þeim, sem hlotið hafa hvað
þyngstan skapadóm.
Við heitum því á alla, skylda og
vandalausa, brottflutta Patreks-
firðinga og héraðsmenn, að taka
saman höndum við okkur. Við
heitum á almenning að gefa þessu
málefni verðugan gaum, að við
megum einu sinni enn rétta hlýja
hjálparhönd þeim, sem við þyngst
bölið búa.
Góðir samborgarar. Þið sem
viljið og getið sinnt þessu brýna
erindi, leggið vinsamlegast fram-
lag ykkar inn á gíróreikning nr.
17007-0 á pósthúsum, í bönkum og
sparisjóðum.
Patreksfjarðarsöfnunin:
Póstgíró 17007-0
Reykjavík, 30. janúar 1983.
Sigfús Jóhannsson,
Svavar Jóhannsson,
Tómas Guðmundsson,
Steingrímur Gíslason,
Hannes Finnbogason,
Grímur Grímsson.
Útfararathöfn
á Patreksfirði
ÍITFARARATHÖFN um þau,
sem létust í snjóflóðunum á Patr-
eksfirði laugardaginn 22. janúar
síðastliðinn, fer fram í félags-
hcimilinu á Patreksfirði í dag.
Séra Þórarinn Þór prófastur ann-
ast athöfnina, sem hefst klukkan
13. Félagsheimilið verður skreytt
á viðeigandi hátt og altari verður
flutt í félagsheimilið úr kapellu
sjúkrahússins á staðnum.
Okhormenn
íNewYork
Símínn er
901(516)423-7547
(ef þú hringir beint)
-pw.ferða: _ Hatnborg Hotterdan1 Mánodaya MiðviKudeQ® " ... Fitnrotudaga
Antwerpen SSUSST- Ménudaga Pnöiud./Mröv.d. Mtðv.d /^,ð'udrt ."nantw^d 3'ia vikna fresti 3,a viknafrest) ^
Fredrikstaa • ^r^fvaastervW/ Gdynra
Hafskip hf. hefur flutt starfsemi markaðsdeild-
ar sinnar að verulegu leyti til stærstu sam-
gönguhafnanna erlendis.
Hagraeðið er ótvírætt. Þú getur verið í beinu
sambandi við þann stað sem þér hentar þeg-
ar þér hentar.
Okkar menn hafa sérþekkingu á flutningum
hver á sínu svæði. Það sparar tíma og eykur
öryggi. Slíkt er ómetanlegt því tíminn í vöru-
flutningum er dýrmætur. Þá er ekki síður
mikilvægt að vita að íslenskir aðilar gæta
íslenskra hagsmuna erlendis.
Éf þú þarft t.d. að fá upplýsingar frá fyrstu
hendi varðandi flutninga til og frá Ameríku
þá hringirðu beint í okkar menn í New York.
Síminn er:901 (516) 423 - 7547 (svæðis-
númeriðíBandaríkjunum er innifalið). Þau
Baldvin Berndsen, Björgvin Björgvinsson,
Finnbogi Gíslason eða Josephine Laforge
munu svara og leysa strax úr erindi þínu.
Viljirðu frekar nota telex, þá er númerið
0023-4758217.
Þessi þjónusta er til þæginda fyrír þig. —
Notfærðu þér hana.
Okkar maður, - þinn maður.
22 HAFSKIP HF.