Morgunblaðið - 01.02.1983, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
Stór
útsala
Dömudeild: Herradeild:
Kjólaefni, Undirfót,
metravara, sokkar,
borðdúkar, skyrtur,
diskaþurrkur. peysur.
Allt selt fyrir
ótrúlega lágt verð
Egill 3|£obsen
Austurstræti 9
FEBRÚARTILBOD
Viö bjóöum eitt þúsund króna affslátt af
12 mynda myndatöku og einni stórri
stækkun í stæröinni 30 X 40 cm.
Verö meö afslætti er kr. 1.480.-.
Ath. Tilboö þetta stendur aöeins í febrúar.
Pantiö því tíma strax.
Darna&fjölsk/ldu-
Ijósmyndir
Austurstrœti 6, sími 12644.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐM. HALLDÓRSSON
Hvað gerist eftir
daga Khomeinis?
SÍÐAN íranar hófu sókn gegn frökum í haust til aö tryggja borgirnar og þar sem hann er talinn barna-
Khorramshahr og Abadan hafa þeir sótt aöeins 10 km inn í Irak og a.m.k. legur í stjórnmálum er hann
150.000 íranar hafa fallið eða særzt. Sökum harönandi andspyrnu íraka herskáu klerkunum að skapi.
og versnandi veðurs hafa þeir ekki náö því meginmarkmiði að taka Tveir erkiklerkar koma til
borgina Basra. Orrusturnar hafa verið einhverjar hinar blóðugustu síðan greina auk Montazari: Golepa-
í Kóreustríðinu. Frekari tilraunir til að ná Basra verða að bíða vors vegna yegani, íhaldsmaður sem er á
aurs og bleytu á suðurvígstöðvunum. Hvorugur aðilinn getur knúið fram móti jarðaskiptingu og öllum til-
úrslit. raunum til að þjóðnýta utanrík-
isviðskipti, og Mahdavi-Kani,
fyrrum innanríkisráðherra og
nú leiðtogi svokallaðra „kross-
ferðar-klerka" í Teheran. Erki-
klerkarnir Janati og Meshkini
eru og líklegir.
Barátta herskáu klerkanna
fyrir vali Montazari hefur leitt
til ágreinings í klerkastéttinni,
bæði um arftaka Khomeini og
framtíð írans og stjórnarform.
íhaldssamir klerka vilja ekki að
framkvæmdavaldið verði eflt
meira á kostnað Khomeinis og
hugsanlegs eftirmanns hans og
P eru andvígir því að arftakinn fái
$ WsSBM| aðeins að stjórna í orði kveðnu.
Enginn hefur beinlínis lagzt
gegn hugmyndum herskáu
klerkanna, en áberandi er að
íhaldssamir klerkar hafa ekki
æ&jpÉÉpl viljað fylkja sér undir merki
* ™ i Montazari og súnnítar eru taldir
Montazari: tekur hann við? sérstaklega óánægðir. Margir
telja að einu lausnina á vanda-
málum írans eftir daga Khom-
einis að nefnd fari með völdin og
herferð herskáu klerkanna eigi
aðeins að tryggja setu Montazari
sjónarsviðinu: hann er 82 ára í nefndinni, þar sem ella kunni
gamall og heilsuveill. Myndir af hún að halla sér að íhalds-
Auk þess að reka íraka burt
af írönsku landi er aðal-
markmið írana enn að tryggja
stjórnarskipti í Bagdad. Helm-
ingur ríkisútgjalda fer til
stríðsrekstursins og öngþveiti
ríkir í efnahagsmálum, stjórn-
málum og félagsmálum. Vöru-
skortur er í landinu og biðraðir
við verzlanir, allar nauðsynjar
skammtaðar og svartamarkaðs-
brask í algleymingi — pakki af
vindlingum kostar kr. 210. Olíu-
framleiðsla hefur aukizt í þrjár
milljónir tunna á dag, en olíu-
viðskipti fara fram á vöruskipta-
grundvelli. Hernum er beitt í
auknum mæli til að haida uppi
gæzlu og eftirliti í borgum í stað
herlögreglu. Völd í hernum eru í
höndum klerks, sem hefur lítið
vit á hermálum, Hojetislam Mo-
hammadi Sevshahri.
Tveir yfirmenn úr flughernum
drógu upp dökka mynd af
ástandinu í heraflanum þegar
þeir leituðu nýlega hælis á Vest-
urlöndum og sögðu að hann væri
nánast lamaðaður. Sjálfboðalið-
um hefur fækkað, þrátt fyrir boð
um vist á himnum, og jafnvel 12
ára drengir eru teknir í herinn.
Margir flugmenn hafa verið líf-
látnir, fangelsaðir eða reknir, en
flugherinn heldur áfram barátt-
unni. Vopn og varahlutir berast
frá ísrael, Sýrlandi, Norður-
Kóreu og alþjóðlegum vopna-
kaupmönnum, sem selja bandar-
ísk hergögn.
Yfirmennirnir telja útilokað
að herinn geri byltingu og segja
einu leiðina að heraflinn og al-
menningur styðji Mujahidín-
andspyrnuhreyfinguna. And-
stöðu innan heraflans sé mætt
með handtökum, pyntingum,
fangelsunum eða dauða. Khom-
eini hafi útsendara og njósnara í
öllum greinum heraflans og
fyrir tilverknað þeirra hafi þús-
undir verið handteknir.
Flugherinn veldur stjórnvöld-
um mestum áhyggjum. Stöðvar
flestra íranskra herflugvéla eru
langt inni í landi (svo að þær
verða að taka eldsneyti í lofti),
því stjórnin vill nota þær til að
bæla niður uppreisnir ef með
þarf. Herflugvélum er bannað að
fljúga nærri norðurhluta Teher-
an, þar sem Khomeini erki-
klerkur býr, og hinni helgu borg
Qom. Allar herflugvélar verða
að fljúga skotfæralausar á föstu-
dagsmorgnum þegar klerkar
messa. Leitað er á flugmönnum
fyrir brottför til að ganga úr
skugga um hvort þeir ætla að
flýja land og flugáætlanir eru
afhentar á síðustu stundu.
Klerkarnir Ali Khamenei for-
seti og Hashemi Rafsanjani
þingforseti og aðrir valdhafar
reyna stöðugt að treysta sig í
sessi skv. fréttum sem berast frá
íran. Khomeini hverfur brátt af
honum birtast sjaldan í blöðum
og hann kemur sjaldan fram
opinberlega, þótt hann taki enn
á móti nefndum verkamanna og
ráðherrum.
Nýlega var kosið „sérfræð-
ingaþing", sem á að velja eftir-
mann Khomeini. Khamenei og
Rafsanjani eru ekki taldir nógu
vel í stakk búnir andlega til að
taka við af Khomeini í hlutverki
staðgengils Messíasar. í fyrra-
sumar var hindrað að valinn
yrði sá maður, sem þá var talinn
líklegastur, Kazem Shariatma-
dari. Hann var talinn annar
vinsælasti erkiklerkurinn í íran,
en honum var rutt úr vegi með
því að bendla hann við mál Sa-
degh Ghotzbadeh fyrrverandi
utanríkisráðherra, sem var tek-
inn af lífi þegar ekki var hægt að
nota hann lengur.
Líklegast er talið að sérfræð-
ingaþingið skipi nefnd til að fara
með völd Khomeinis og hún mun
lítil áhrif hafa á daglega stjórn.
En verið getur að takast megi að
finna eftirmann, sem herskáir
klerkar ættu auðvelt með að
hafa áhrif á og gripi ekki fram í
fyrir hendurnar á þeim. Líklega
yrði þá fyrir valinu erkikerkur-
inn Hussein Ali Montazari, leið-
togi hinnar helgu borgar Qom.
Khomeini mun styðja hann:
Ahmad sonur stakk fyrstur upp
á honum í apríl í fyrra. Kosn-
ingar til sérfræðingaþingsins
áttu upphaflega að fara fram þá,
en þeim var frestað vegna orð-
róms um að Khomeini lægi fyrir
dauðanum.
Montazari er veiklundaður og
hefur ekki til að bera þá persónu
sem Khomeini. Hann er rúmlega
sextugur, sat árum saman í
fangelsi á valdaárum keisarans
mönnum.
Valdhafarnir reyna jafnframt
að ná tökum á islömskum dóm-
stólum, sem hafa starfað í tvö ár
og haldið uppi ógnarstjórn með
gerræðislegum handtökum, ólög-
legum aftökum og grimmdar-
verkum, sem skyggja á atburð-
ina í tíð keisarastjórnarinnar.
Verulega hefur dregið úr starf-
semi Mujahidín-skæruliða og
annarra andspyrnuhópa vegna
ógnarstjórnarinnar, en nú ógna
dómstólarnir klerkaveldinu.
Khomeini skipar alla dómara og
þeir heyra beint undir hann, en
óvíst er að nokkur valdhafi geti
haft taumhald á þeim þegar
Khomeini er allur. Hann fól því
Rafsnjani og Khamenei að sjá
um að dómstólarnir færu ekki út
fyrir verksvið sitt og virtu
mannréttindi. Rannsóknar-
nefndir ferðast um landið í leit
að sökudólgum og þeim verður
refsað.
Klerkarnir treysta með þessu
völd sín og róa stjórnarsinna,
sem hafa orðið fyrir því að ætt-
ingjar þeirra hafa verið fangels-
aðir, pyntaðir og líflátnir. Gagn-
legt er fyrir klerkana að dóm-
stólarnir hafa útrýmt stórum
hluta stjórnarandstæðinga auk
fjölda saklausra borgara. Hins
vegar breytir það litlu þótt völd
dómstólanna verði skert, því að í
tilskipun Khomeinis um að
mannréttindi skuli virt eru óvin-
ir islamska lýðveldisins undan-
skildir. Ógnarstjórninni er því
ekki lokið. Hún gæti jafnvel
harðnað, því að það eina sem
gerist er að völd skrifstofu-
báknsins aukast. Reynt er að
breiða yfir kúgunina á sama
tíma og stríðið við íraka dregst á
langinn.