Morgunblaðið - 01.02.1983, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
25
• Kristján Arason iék vel í báöum leikjunum gegn Finnum og var markahæatur í þeim báöum. Hann skoraöi elletu mörk í seinni leiknum, sem
fram fór á sunnudaginn, en í þeim fyrsta skoraöi hann sjö mörk. Hér sést hann ( baráttu viö danskan varnarmann í leik þjóöanna milli jóla og
nýárs, í Laugardalshöllinni.
Tólf marka sigur gegn Finnum
— íslendingar náðu sér vel á strik í síðari hálfleiknum
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaöamanni
Morgunblaösins, í Helsinki.
íslendingar léku fyrri leik sinn
viö Finna á laugardaginn og fór
hann fram i íþróttahöll rétt fyrir
utan Helsinki. fslendingar unnu
stórsigur í ieiknum — 31:19 — og
Svissneska skíöastúlkan Doris
de Agostini sigraði á laugardag-
inn í bruni í heimsbikarnum, sem
fram fór í Les Diablerets í heima-
landi hennar.
De Agostini, sem er 25 ára göm-
ul, sagöi viö fréttamann AP eftir
keppnina aö þetta heföi veriö
hennar besta keppni frá upphafi.
Nokkur rigning var meöan á
keppninni stóö og geröi hún hluta
keppenda erfitt fyrir. Tími Agostini
voru yfirburöir þeirra miklir, sér-
staklega í seinni hálfleíknum.
islendingar léku þokkalega
framan af og náöu nokkurra
marka forskoti, komust í 6:2, og
staöan var 9:6 er fimmtán mín.
var 1:24,65, en i ööru sæti var 19
ára austurrísk stúlka, Elisabeth
Kirchler, sem var á 1:25,13.
Kirchler og stöllur hennar frá
Austurríki settu mikinn svip á mót-
iö, og uröu fimm austurrískir kepp-
endur meöal átta efstu.
Sú sem mest kom á óvart allra
keppenda var bandarísk stúlka,
Debbie Armstrong, 19 ára frá
Seattle Washington. Hún fékk tím-
ann 1:26,05 og er þetta hennar
voru liðnar af leiknum. Síöari hluti
hálfleiksins var slakur hjá íslenska
liðinu og Finnum reyndar líka —
og var þá mikiö um mistök á báöa
bóga. Finnar minnkuöu muninn
niöur (tvö mörk, um tíma var staö-
besti árangur í heimsbikarnum, en
tvö ár eru síöan hún tók þátt í
keppninni.
Efstar voru þessar dömur:
Doris de Agostini, Sviss 1:24,65
Elisabeth Kirchler, Austurríki 1:25,13
Veronika Vitzhum, Austurríki 1:25,44
Maria Walliser, Sviss 1:25,91
Debbie Armstrong, Bandaríkjunum 1:26,05
Sigrid Wolf, Austurríki 1:26,14
Sieglende Winkler, Austurríki 1:26,39
Sylvia Eder 1:26,52
Á sunnudaginn var svo keppt í
svigi i Les Diablerets, og sigurveg-
ari þar varö Maria-Rosa Quario frá
ialíu. Samanlagður tími hennar var
1:21,72, og var þetta hennar fyrsti
sigur í heimsbikarnum siöan 1979.
Hanni Wenzel, Liechtenstein, varö
önnur á 1:22,29 og þriöja Doro-
thea Tlalka frá Póllandi á 1:22,50.
Roswita Steiner, Austurríki,
varö fjóröa á 1:22,69, fimmta
Petra Wenzel, Liechtenstein,
1:22,72 og sjötta Tamara McKin-
ney, Bandaríkjunum, á 1:22,86.
Mikil rigning var seinni daginn í
Les Diablerets, og gekk mörgum
keppendum illa vegna hennar. Er-
ika Hess var ein þeirra sem dæmd-
ar voru úr leik. Tamara McKinney,
sem varö í sjötta sæti, er nú efst í
stigakeppninni um heimsbikarinn í
kvennaflokki. Hún er með 162 stig,
Hanni Wenzel er komin í annaö
sætiö meö 161 stig, Erika Hess er
númer þrjú meö 135 stig og fjóröa
er Elisabeth Kirchler, Austurríki,
meö 120 stig.
an 10:8, og síöar 12:10, og fengu
heimamenn þá tækifæri til aö
skora en þaö nýttist ekki. islend-
ingar skoruöu svo tvö síöustu
mörk fyrri hálfleiksins og staöan
því 14:10 í leikhléi.
i síöari hálfleiknum snerist
dæmiö alveg viö. Þá léku íslensku
strákarnir viö hvern sinn fingur
enda mótstaöan ekki mikil. Leik-
kerfi íslenska liösins gengu vel upp
og sáust oft fallegar leikfléttur hjá
því. Kristján Arason og Alfreö
Gíslason voru í aöalhlutverkum í
sókninni og skoruðu þeir nokkur
mörk meö stórglæsilegum þrumu-
skotum eftir uppstökk.
Yfirburöir íslands voru algerir og
er tíu mín. voru búnar af seinni
hálfleiknum var staöan oröin 22:10
— og hélst sá munur lengi vel.
Tölur eins og 26:16 og 28:18 sáust
á töflunni, en áöur en yfir lauk
tókst (slendingum að auka frekar
viö þennan mun. Lokatölur uröu
31:19 — 12 marka munur — og
var síðasta mark leiksins einkar
glæsilegt, og vakti það mikla hrifn-
ingu. Knettinum var hent inn í víta-
teig Finna — Páll Ólafsson skaust
inn á milli tveggja varnarmanna,
stökk inn í teiginn, greip knöttinn
meö annarri hendi og skoraöi meö
þrumuskoti. Glæsileg tilþrif og
kunnu áhorfendur vel aö meta
þau. Áhorfendur voru ekki margir
á leiknum, aðeins um 300, en þess
má geta að kaflar úr leiknum voru
sýndir í finnska sjónvarpinu á laug-
ardagskvöldiö.
Erfitt er aö gera upp á milli ís-
lensku leikmannanna, en aö öör-
um ólöstuöum komst Ólafur
Jónsson einna best frá leiknum.
Hann lék mjög vel í horninu og
skoraöi fjögur falleg mörk og stóö
sig einnig vel í vörninni. Kristján og
Alfreö voru báöir góöir og Hans
Guðmundsson var þokkalegur.
Mörk íslands: Alfreö Gíslason 7,
Kristján Arason 7/2, Hans Guö-
mundsson 4, Ólafur Jónsson 4,
Guðmundur Guömundsson 3,
Þorgils Óttar Mathiesen 2, Páll
Ólafsson 1, Steindór Gunnarsson
1, Jóhannes Stefánsson 1 og
Þorbjörn Jensson 1.
Þjálfari Finnanna:
„Okkur vantar
samæfingu“
Frá Þórarni Ragnarstyni, blaöamanni
Morgunbladsins, í Helsinki.
„Þaö háir okkur mjög að viö
höfum lítið sem ekkert getaö æft
saman. Við vorum meö sjö æf-
ingar í desember fyrir keppni
sem við tókum þátt í þá, og síöan
vorum viö með tvær æfingar fyrir
þessa leiki viö ísland,“ sagði Ju-
hani Kaivola, þjálfari finnska
landsliösins, í spjalli viö blaöa-
mann Morgunblaðsins, eftir
seinni leik þjóðanna á sunnudag-
inn.
„Okkur vantar tilfinnanlega fleiri
landsleiki — ég er meö ungt og
vaxandi liö en okkur vantar meiri
samæfingu," sagöi Kaivola.
Honum fannst íslenska liöiö
gott, og sagöi aö þaö ætti góöa
möguleika gegn Spánverjum og
Svisslendingum í B-keppninni í
Hollandi. „Viö lékum ekki eins vel í
fyrri leiknum og viö getum, en í
þeim síöari var ég nokkuö ánægö-
ur meö mína menn. Þá léku þeir
vel, en eflaust hefur veriö um van-
mat íslensku leikmannanna aö
ræða og þaö spilaö inn í,“ sagöi
þjáKarinn.
— SH/ÞR.
Heimsbikarinn á skíðum:
De Agostini og Quario
unnu í Les Diablerets
Rútan fór
ekki í gang
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaóa-
manm Morgunblaósins, í Helsinki.
Leik íslendinga og Finna á
sunnudaginn seinkaði um
tuttugu mínútur, þar sem
rútan, sem flytja átti ís-
lenska liöið í höllina þar sem
leikurinn fór fram, fór ekki í
gang. Þurfti því aö fá aöra
rútu í snarheítum. Var þaö
gert og íslendingarnir kom-
ust á leiöarenda, þó ekki
kæmu þeir á réttum tíma.
Skoða leiki
Spánverja
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaóa-
manni Morgunblaósins, í Helsinki.
íslensku landsliösmenn-
irnir hafa dundað viö það i
Norðurlandaferð sinni að
skoöa spánska liöið, sem fs-
land mætir í B-keppninni i
Hollandi, mjög gaumgæfi-
lega á myndböndum. Eru
þeir meö myndir af nýlegum
leikjum liðsins, og er þaö al-
veg óbreytt frá liðinu sem
stóö sig svo vel í síöustu
heimsmeistarakeppni.
— SH/ÞR.
Móttökur til
fyrirmyndar
Frá Þórarni Ragnarssyni, blaóa-
manni Morgunblaósins, í Helsinki.
Móttökur þær sem is-
lenska landsliöið hefur feng-
iö hér í Finnlandi eru til mik-
illar fyrirmyndar. Landsliðiö
býr á mjög góöu hóteli rétt
fyrír utan Helsinki, og Finnar
gera allt sem í þeirra valdi
stendur til aö dvöl þeirra hér
megi verða sem ánægju-
legust.
Austur-Þjóö-
verjar unnu
handboltamót
á Spáni
Austur-Þjóóverjar sigruöu
i alþjóða handknattleiks-
keppni sem haldin var á
Spáni um helgina. Þeir sigr-
uóu A-lió Spánar 22:20 í
fimmtu og síöustu umferó á
sunnudaginn.
Mikiö var skorað af mörk-
um í þessari siöustu umferö,
en úrslit í öörum leikjum uröu
þau aö Pólverjar unnu B-liö
Spánar meö 45 mörkum gegn
23 og Júgóslavar unnu frakka
30:22. Austur-Þjóöverjar eru
meö geysilega sterkt liö og
unnu þeir alla sína leiki. Þeir
fengu 10 stig, Júgoslavar
uröu í öðru sæti meö 8 stig,
Pólland fékk 66, Spánn A 4,
Frakkland 2 og Spánn B rak
lestina meö ekkert stig.
Innanhúss-
knattspyrna
telpna
Knattspyrnusamband Ís-
lands hefur ákveöiö að halda
íslandsmót { innanhúss-
knattspyrnu fyrir telpur 14
ára og yngri. Mótið verður
haldið á Akranesi laugard-
aginn 12. febrúar og hefst kl.
11.30 f.h.
Þátttökutilkynningar
ásamt þátttökugjaldi, sem er
kr. 500.-, skulu hafa borist
skrifstofu knattspyrnusam-
bandsins fyrir 7. febrúar.