Morgunblaðið - 01.02.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
Ragnar Jónsson og Kristján DavíAsson. Innfellda myndin er af mál-
verkinu sem Kristján málaði.
Minningargjöf um
Sigurjón Ólafsson
NÝLEGA afhentu þau Ragnar Jónsson, Björg Ellingsen og Kristján
Davíðsson Listasafni ASÍ málverk aö gjöf, til minningar um náinn vin
þeirra, Sigurjón Ólafsson, myndhöggvara, sem lést nýlega, að því er
segir í fréttatilkynningu frá Listasafni ASÍ.
Málverkið er eftir Kristján
Davíðsson og heitir Vetrarsól við
sæ. Listamaðurinn málaði
verkið sérstaklega til að minnast
vinar síns og hóf vinnu við það,
þegar hann frétti af láti hans.
Málverkið var afhent Lista-
safni ASÍ á heimili þeirra Bjarg-
ar og Ragnars, þar sem með-
fylgjandi mynd var tekin af
þeim Ragnari og Kristjáni. Inn-
fellda myndin er af málverkinu.
Auk ofangreindrar gjafar
hafa Listasafni ASÍ einnig bor-
ist gjafir frá tveimur lista-
mönnum, þeim Eiríki Smith og
Gunnari Erni Gunnarssyni. Gaf
Eiríkur safninu stórt málverk
sem var á sýningu hans í Lista-
safni ASÍ í desember sl. Verkið
heitir Stúlka við haf. Gunnar
Örn gaf safninu tússteikningu
sem ber heitið Verkakona.
Listasafnið þakkar gefendum
öllum þann hlýhug sem því er
sýndur með þessum gjöfum.
Þorrablót
í Króksfjarðarnesi:
Dansad fram
í birtu og síðan
5 tíma barning-
ur heim í ófærð
Miðhúsum, 31. janúar.
SÍÐASTLIÐIÐ laugardagskvöld var
haldið þorrablót í Króksfjaröarnesi,
en það má segja að þau séu aðalhá-
tíð ársins í flestum sveitum landsins
og telja margir, að menningarástand
hverrar sveitar megi sjá á því hvern-
ig að þorrablóti er staðið.
Samkvæmt upplýsingum frá
einum þorrablótsgesta, Lilju Þór-
arinsdóttur, fór Vestfjarðaleið
með fólk frá Reykhólum og
Reykjanesi í Króksfjarðarnes.
Ferðin inneftir gekk sæmilega, en
þá fór veður versnandi. Dans-
hljómsveitin komst til dæmis ekki
úr Stykkishólmi í Króksfjarðarnes
fyrr en um klukkan 1.30 um nótt-
ina. Var þá komið versta norð-
austan hríðarveður. Dansað var til
klukkan 7, en þá fór að birta af
degi og var lagt af stað frá
Króksfjarðarnesi. Jarðýta hjálp-
aði rútunni yfir verstu skaflana og
tók heimferðin nær 5 klukku-
stundir, en venjulega er um hálf-
tíma verið að fara þessa 30 kíló-
metra.
Að sögn Lilju var góður andi á
þorrablótinu og skemmti fólk sér
hið bezta.
Kennsla var felld niður í
grunnskólanum á Reykhólum í
dag vegna ófærðar, en reynt verð-
ur að ná börnunum saman á morg-
un. Skafrenningur er núna og
hríðarveður.
— Sveinn
31
Sölutækni —
Starfsþjálfun
Námskeiö eru aö hefjast í starfsþjálfun og sölutækni.
Námskeiöið fjallar um:
1. Hvernig á að muna mannanöfn — sem hjálpar þér
aö ná betra sambandi við fólk.
2. Að skilja sjálfan sig og aðra betur — læra hvernig
viö getum stýrt okkar viðhorfi.
3. Að gera starfið skemmtilegra — til þess aö veröa
ánægöari einstaklingar.
4. Að ákveða þarfir viðskiptavinarins og draga fram
staðreyndir og kosti vörunnar.
5. Að verða þakklátari einstaklingur — gera sér grein
fyrir verðmæti jákvæörar hugsunar.
6. Að bregðast vinsamlega við kvörtunum — aö
leysa úr vandamálum viöskiptavinarins á réttan
hátt.
7. Að hjálpa viðskiptavininum að taka jákvæða
ákvörðun — beina sölunni í réttan farveg.
8. Að skilja verðmæti eldmóðsins og setja sér
markmið til að auka söluna.
9. Að Ijúka sölunni á öruggan hátt.
10. Að lifa og starfa árangursríkara meö ööru fólki.
Fjárfesting í menntun gefur þér arð ævilangt.
Innritun og upp- AAJ J ^
lýsingar í síma Æ H
Einkaleyfi á íslandi
STJÓRNUNARSKÓLINN
dale carnegie Konráö Adolphsson
nAmskeiðin
Skartgripir
í miklu úrvali
Sendum í póstkröfu sími 28640
Útsölumarkaðurinn
í kjallara Kjörgarös
Útsölu-
markaður
í Kjörgarði (kjallara)
Góðar vörur á lágu
verði
Fatnaður fyrir alla
fjölskylduna
Barnaúlpur verö frá kr. 390.
Dömuúlpur verö frá kr. 490.
Herraúlpur verö frá kr. 490.
Flauelsbuxur verö frá kr. 195
stæröir 2—12.
Flauelsbuxur stæröir 26—40 kr. 295.
Ðarnapeysur frá kr. 90.
Fullorðinspeysur frá kr. 150.
Vynilstígvél verö frá kr. 295—395.
Sokkar — vetlingar — húfur
og margt margt fleira.
Gerið
svo
inn