Morgunblaðið - 01.02.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1983
37
Sigurvegararnir í tvímenningskeppninni, Lars Blakset og Steen Möller. Þetta er í annað
sinn sem Steen Möller vinnur Stórmót Flugleiða. Einhverjir höfðu á orði að hann hefði
haft sterkari stöðu en aðrir keppendur þar sem „betri helmingurinn", Kirsten Möller,
var einnig meðal þátttakenda.
Meðspilari Alan Sontag, Kyle Larsen, vakti mikla athygli í mótinu fyrir frumlega
hegðan. Myndin var tekin þegar hann var að íhuga íferð í spaða. f sveitakeppninni á
sunnudagskvöldið hlustaði hann á útvarp á meðan hann spilaði og virtist það ekkert há
spilamennskunni.
Stórmót Bridgefélags Reykjavíkur og Bridgesambandsins:
Danir unnu — Þórarinn og Guðmund-
ur Páll misstu niður afgerandi forystu
Mörg stórstirni úti í kuldanum í sveitakeppninni
og Guðjón Stefánsson og Jón
Björnsson með 55 stig eins og
Möller og Blakset.
Staðan eftir 20 umferðir:
Guðmundur — Þórarinn 227
Möller — Blakset 190
Larson — Sontag 111
Guðm. P. — Hörður Blöndal 90
Ingvar — Orwell 82
Hermann og Ólafur Lárussynir 82
í næstu umferðum skoruðu
Guðmundur og Þórarinn mikið og
nokkrum umferðum síðar voru
þeir orðnir langefstir. Kom þá
fyrir atvik sem skipti sköpum hjá
þeim í keppninni. Kom upp svo-
kölluð hikstaða þar sem Guð-
mundur Páll var talinn hafa hugs-
að óeðlilega lengi og sagt síðan
pass og þegar kom að spilafélaga
hans Þórarni, hafi hann sagt sögn
og þá hugsanlega vegna „óeðli-
lega“ langs umhugsunarfrests
Guðmundar Páls. Keppnisstjóri
dæmdi í málinu með því að leið-
rétta skor, en málið var kært til
dómstóls sem dæmdi Guðmundi
og Þórarni mjög í óhag. Mjög
skiptar skoðanir voru um máls-
meðferðina svo ekki sé meira sagt,
bæði hvað dóm og forsendur varð-
aði svo og skipan dómstólsins. Út í
það verður ekki farið nánar hér.
Eftir þetta atvik gekk þeim félög-
um afar illa í keppninni og í 38.
umferð var svo komið að þeir
höfðu tapað forystunni sem þeir
höfðu haft lengst af.
Staða efstu para eftir 38. umferðir:
Möller — Blakset 240
Guðmundur — Þórarinn 234
Larson — Sontag 184
Mittelman — Molson 168
Aðalsteinn — Stefán 148
Jón Haukss. — Vilhjálmur 110
Auken — Werdelin 100
Fimm umferðir voru eftir og gat
því allt gerst enn. Það vakti at-
hygli að Aðalsteinn Jörgensen og
Stefán Pálsson voru á jafnvel enn
hraðari endaspretti, en Banda-
ríkjamennirnir og skoruðu mikið
eftir að hafa haft sig lítið í
frammi fyrri hluta mótsins.
Það má segja að það hafi verið
heppni í allri óheppni Guðmundar
og Þórarins að aðeins voru 5 um-
ferðir eftir því stigatala þeirra
lækkaði með hverri umferðinni.
Virðist sem landanum sé fyrir-
munað að vinna barometer-
keppnir stórmótanna en vonandi
eiga okkar menn að fáfleiri tæki-
færi á stórmótum sem þessu til að
klekkja á gestunum. Færeyingar
áttu eitt par í þessari keppni og
fannst mér fengur að að hafa þá
enda þótt þeir blönduðu sér ekki f
toppbaráttuna. Þá kom á óvart
hve bresku pörin áttu erfitt upp-
dráttar.
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
ensson og reiknimeistarar sem
ætíð vinna vanþákklátt starf voru
Vilhjálmur Sigurðsson og Sigur-
jón Tryggvason.
Stórmót Flugleiða
Undanrásir í stórmóti Flugleiða
hófust á sunnudag og mætti 21
sveit af 24 sem höfðu skráð sig til
keppninnar. Spilað var í þremur
riðlum — 7 sveitir í hverjum riðli
(yfirseta) og voru spilaðir 10 spila
leikir.
A-riðill:
Sveit Ólafs Lárussonar sigraði
örugglega í þessum riðli, vann alla
leikina. Sveit Tony Sowter varð í
öðru sæti en sveit Sævars Þor-
björnssonar sem er núverandi Is-
lands- og Reykjavíkurmeistari
varð að láta sér nægja 3. sætið og
er þar með úr leik.
Ólafur Lárusson 112
Tony Sowter 105
Sævar Þorbjörnsson 71
B-riðiIl:
Keppnin í þessum riðli var mest
spennandi og skemmtilegust. Sveit
Hrólfs Hjaltasonar kom nokkuð á
óvart og vann hvern leikinn á fæt-
ur öðrum og svo fór að sveit hans
stóð uppi sem sigurvegari í riðlin-
um. Gífurleg keppni var um hitt
sætið í úrslitunum sem lauk með
sigri sveitarfélaga Þórarins Sig-
þórssonar, en Þórarinn og Guð-
mundur tóku ekki þátt í undan-
keppninni.
Hrólfur Hjaltason 93
Þórarinn Sigþórsson 85
Karl Logason 81
Steen Möller 80
Jón Hjaltason 75
Það voru því ekki ómerkari
sveitir en danska sveitin og sveit
Jóns Hjaltasonar sem nýlega vann
undankeppni Rvíkurmótsins með
yfirburðum sem voru úti í kuldan-
um.
C-riðill:
í þessum riðli var mjög
skemmtileg keppni sem lauk með
óverðskulduðum sigri Bandaríkja-
mannanna. Þá skutust Aðalsteinn
Jörgensen og félagar hans nokkuð
óvænt upp í annað sætið í síðustu
umferðinni, þegar bæði Karl Sig-
urhjartarson og Egill Guðjohnsen
töpuðu leikjum í síðustu umferð.
Þess má geta að Karl Sigurhjart-
arson vann þessa keppni örugg-
lega í fyrra.
Alán Sontag 91
Aðalsteinn Jörgensen 89
Karl Sigurhjartarson 86
Egill Guðjohnsen 83
Stórmóti Flugleiða lauk seint í
gærkvöldi. Þátturinn mun segja
frá úrslitakeppninni við fyrsta
tækifæri.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddason, setti Stórmótið. Hann sagði síðan fyrstu
sögnina fyrir Steen Möller sem eftirlét honum scti sitt á meðán. í.jósm. Mbl. Arnór
Heimili:
Staöur:
Æf of London
Ifccmoft/
Sendist til: FREEMANS OF LONDON,
Reykjavíkurvegi 66, 220 Hafnartirði,
sími 53900
Nafn:
Eg hlakka til
Vorsins
Sendið mér
Fmemans..
pontunarhstann
strax
LUNDABAGGAR
BRINGUKOLLAR
HRÚTSPUNGAR
HANGIKJÖT
SVIÐASULTA
SVIÐAKJAMMAR
HÁKARL
BLÓÐMÖR
LIFRARPYLSA
FLATKÖKUR
RÚGBRAUÐ
HARÐFISKUR
SMJÖR
RÓFUSTAPPA
érverslun meö k|otvörur
Borgar
kjör
Grensásvegi 26
Símar 38980-36320