Morgunblaðið - 04.03.1983, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1983
osífiiífw, (i reglur,
völd og vægi
Breyting á Blómum og myndum
Gömlu húsin við Laugaveg leyna á sér. Við breytingar, sem framkvæmdar
voru nýlega á versluninni Blóm og myndir, Laugavegi 53, kom í Ijós fallegur
hlaðinn skorsteinn, sem sómir sér vel við gjafavörur í gömlum stfl, sem
verslunin selur. Aðaláhersla er lögð á blómin, en eigandinn Guðrún Helga-
dóttir er komin af garðyrkjubændum í Hrunamannahreppi.
Samtök frettaljosmyndara
PRESS
LJÓSMYNDIR
Kjarvalsstadir 24 febr - 8. mars 1983
Opiö daglega kl. 14.00—22.00
Metsölubladá hverjum degi!
eftir Hafstein Dav-
íósson, Patreksfirði
Mikil umræða hefur farið fram
að undanförnu um val manna á
framboðslista flokkanna. Misjafnt
vægi atkvæða í hinum ýmsu kjör-
dæmum landsins hefur einnig
fengið mikla umfjöllun. Upp hafa
komið óæskilegar deilur um röðun
manna á framboðslista, sem sum-
staðar virðast ætla að leiða til sér-
framboða. Slíkt mál hefur því
miður skotið upp kollinum meðal
sjálfstæðismanna á Vestfjörðum.
Ekki virðist þessi sérframboðs-
hugmynd eiga marga stuðnings-
menn hér á suðurhluta Vestfjarða,
enda var algjör samstaða allra
kjördæmisfulltrúa héðan af suð-
ursvæðinu um framboðslistann,
eins og kiördæmisráð gekk frá
honum á Isafjarðarfundinum 15.
janúar sl. Er leitt til þess að vita,
að ágætis sjálfstæðiskona, búsett i
Reykjavík, sem bæði á sæti í mið-
stjórn og þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins skuli ýta undir þennan
ágreining og hvetja til klofnings,
mest vegna áhrifa frá ófélags-
bundnu fólki og á móti vilja kjör-
dæmisráðs. Þarna vantar „aga-
reglur" innan flokksins, ég tel að
þeir sem ætla sér í sérframboð,
geti ekki átt sæti í miðstjórn eða
þingflokki. Þessar reglur þarf að
setja.
Reglur
f 73. grein Stjórnarskrár ís-
lands segir m.a.:
„Rétt eiga menn á að stofna
félög í sérhverjum löglegum
tilgangi, án þess að sækja þurfi
um leyfi til þess. Ekkert félag
má leysa upp með stjórnar-
ráðstöfun ..."
Félög sem stofnuð eru sam-
kvæmt þessari grein, setja sér lög
eða reglur til að starfa eftir. Þar
er meðlimum m.a. tryggt málfrelsi
og atkvæðisréttur.
LAGERINN
Smiðjuveg 54, Kópavogi
Fullt af nýjum, ódýrum fatnaði
Það borgar sig að koma við á Smiðjuvegi 54
OPIÐ TIL 10 í KVÖLD
Skipulagsreglur Sjálfstæðis-
flokksins eru í 63 greinum, sem
skiptast í 19 kafla. Þar er fjallað
mjög ítarlega um alla þætti er
varða uppbyggingu flokksins og
starfsemi hans.
Völd
Samkvæmt þessum reglum, er
það kjördæmisráð, sem ákveður
framboðslista flokksins við kosn-
ingar til Alþingis og þarf meiri-
hluti fundarmanna að gjalda hon-
um jákvæði. Staðfestingu mið-
stjórnar þarf á framboðslista, svo
að hann verði fram borinn í nafni
flokksins.
Þótt hér sé um að ræða einföld
og skýr ákvæði, eru ekki alltaf all-
ir ánægðir.
Einn er sá vandi sem oft kemur
upp, sérstaklega hjá stórum flokki
eins og Sjálfstæðisflokknum, sem
hefur á að skipa mörgum úrvals-
mönnum, að of margir þeirra vilja
komast í framboð og vera í örugg-
um sætum eða efstu sætunum.
Þennan vanda telja sumir að leysa
megi með opnum prófkjörum.
Eins og nú er geta óflokksbundnir
yfirleitt fengið að taka þátt í
opnum prófkjörum hjá flestum
eða öllum flokkum. Þetta er all-
stór hópur þegar 16 til 20 ára eru
meðtaldir, en þeir hafa ekki kosn-
ingarétt til Alþingis. Þessi
óflokksbundni hópur getur í gegn-
um opin prófkjör haft margföld
áhrif miðað við félagsbundna, sem
aðeins taka þátt í prófkjörum hjá
einu félagi.
Þannig geta óflokksbundnir í
gegnum opin bindandi prófkjör
gert hin réttkjörnu kjördæmisráð
áhrifalítil eða áhrifalaus um val
manna og niðurröðun á fram-
boðslista, sem er oft á tíðum eitt
aðalmál hvers kjördæmisráðs.
Ef þessi sjónarmið eiga að fá að
ráða, hlýtur að koma upp sú staða,
að færri og færri fást til að gerast
félagar í pólitískum félögum, þau
verða óstarfhæf og leggjast niður
og við tekur stjórnleysi og ringul-
reið.
Annar ókostur við prófkjör er
sá, að fjölmennustu byggðarlögin
geta ráðið mannavali, eins og
reyndar glöggt má sjá af útkomu
prófkjöra undanfarið, en það
skapar óánægju og getur veikt
framboðin verulega.
í Sjálfstæðisflokknum eru
leyfðar fjórar tegundir sjálfstæð-
isfélaga. Þau eru: Almenn félög,
félög ungra, félög sjálfstæðis-
kvenna og félög sjálfstæðislaun-
þega, þ.e. fólk innan launþega-
samtaka eins og ASÍ, BSRB o.fl.
Á þessu má sjá að menn hafa
ýmsa möguleika á að stofna félög
og komast til áhrifa í flokknum.
Auk þess er hverjum frjálst að
I
Seljum í dag og næstu daga lítiö
gölluö húsgögn á mjög hagstæöu verði.
Hafsteinn Davíðsson
„Ég sætti mig ekki við þaö,
að ófélagsbundnir fái að ráða
stórmálum innan míns fé-
lags, jafnvel hafa þar úrslita-
áhrif, eða taka þar ráðin af
okkur, sem erum þar Iög-
mætir félagar.“
koma sínum sjónarmiðum á fram-
færi t.d. við félagsbundna með við-
tölum og hafa þannig áhrif, en
meðan þeir kjósa heldur að vera
ófélagsþundnir verða þeir að
sætta sig við að njóta ekki sömu
réttinda og við hin félagsbundnu,
sem búin erum að starfa í flokkn-
um og halda uppi merki hans ár-
um saman.
Ég sætti mig ekki við það, að
ófélagsbundnir fái að ráða stór-
málum innan míns félags, jafnvel
hafa þar úrslitaáhrif eða taka þar
ráðin af okkur, sem erum þar
lögmætir félagar.
Fáum við að taka þátt í kosn-
ingu innan t.d. búnaðarfélags,
kaupfélags eða nokkurs félags,
nema vera þar skráðir félagar?
Við innanfélagsprófkjöri eða
skoðanakönnun er ekkert að segja,
en ef viðhafa á opin prófkjör, tel
ég að þau gætu farið þannig fram:
Atkvæðaseðlar væru hafðir í
þremur litum. Einn litur fyrir
félagsbundna og lögmæta fé-
laga. Annar litur fyrir þá sem
skrifað hafa undir stuðnings-
yfirlýsingu við flokkinn, og
þriðji liturinn fyrir þá sem
vilja hvergi láta nafns síns get-
ið, en vera með. Svo kjördæm-
isráð geti séð hver er vilji ein-
stakra héraða eða svæða innan
kjördæmisins, má merkja kjör-
kassana og telja upp úr hverj-
um fyrir sig. Utkoman er ekki
bindandi fyrir kjördæmisráð
en skoðast sem ábending um
hvert stefnir.
Síðar mun ég gera grein fyrir
skoðunum mínum varðandi „væg-
ið“ o.fl.
Patreksfirði, 27.02. ’83,
Hafsteinn Davíðsson.
K.M.
HUSGÖGN
Smiðjuvegi 38, Kópavogi,
sími 79611.