Morgunblaðið - 04.03.1983, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MARZ 1983
25
Kirkjur á landsbyggöinni
Messur á sunnudag
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar
BORGARNESKRIKJA: Æsku-
lýðsmessa á sunnudag kl. 11.
Barnamessa á morgun, laugar-
dag kl. 11. Sr. Þorbjörn Hlynur
Árnason.
HJARÐARHOLTSKIRKJA í Döl-
um: Fjölskyldumessa á æsku-
lýðsdegi nk. sunnudag kl. 14.
Nemendur úr grunnskólanum og
tónlistarskólanum lesa, leika og
syngja. Kjartan Eggertsson
organisti kemur meö gítarinn. Sr.
Friðrik Hjartar.
BÍLDUDALSKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11, viö æfum
fyrir guösþjónustuna. Guðsþjón-
usta kl. 14. Foreldrar ferming-
arbarna lesa Ritningarlestra og
flytja prédikun. Fermingarbörn
sýna leikþátt. Börn syngja og aö
lokum almennur söngur. Á
mánudagskvöldið kemur, kl.
20.30, Biblíulestur á prestsetrinu.
Sr. Dalla Þóröardóttir.
HVAMMST ANGAKIRK JA:
Æskulýösmessa kl. 14. Ungt fólk
aöstoðar. Barnamessa kl. 11. Sr.
Guöni Þór Ólafsson.
Guöspjall dagsins:
Lúk. 11.:
Jesús rak út illa anda.
RAUFARHAFNARKIRKJA:
Bænastund í kvöld, föstudag kl.
20. Barnaguösþjónusta í skólan-
um á sunnudag kl. 11. Sr. Guö-
mundur Örn Ragnarsson.
REYÐARFJARÐARKIRKJA:
Æskulýösdagsmessa kl. 10.30.
Sóknarprestur.
ESKIFJARÐARKIRKJA: Æsku-
lýösmessa kl. 14. Sóknarprestur.
EGILSST AÐAKIRKJA: í dag
föstudag, á Alþjóölegum bæna-
degi kvenna, almenn samkoma
kl. 20.30 í umsjá kvenna. Æsku-
lýösmessa sunnudag kl. 14.
Ragnhildur Ragnarsdóttir fóstra
talar. Sóknarprestur.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA: f
dag, á Alþjóólegum bænadegi
kvenna, helgistund kl. 20 í umsjá
kvenna. Æskulýösguösþjónusta,
sunnudag kl. 14. Æskulýösfélag-
iö leikur helgileik, leiöir söng og
kynnir félagiö. Kaffisala í safnaö-
arheimilinu eftir messu. Sr.
Magnús Björnsson.
þjónusta í Víkurkirkju á sunnu-
dag kl. 14. Organisti Sigríöur
Ólafsdóttir. Sóknarprestur.
VÍKURPREST AK ALL: Kirkju-
skólinn í Vík á morgun, laugar-
dag, kl. 11, og samvera fyrir aldr-
aöa í Leiksálum kl. 14 í umsjá
fermingarbarna. Æskulýösguös-
KIRK JUH VOLSPREST AK ALL:
Sunnudagaskóli í Hábæjarkirkju
kl. 10.30. Sunnudagaskólabörn
bjóöa foreldrum og vinum í
kökuboö í skólanum kl. 16.30.
Æskulýösguðþjónusta í Árbæj-
arkirkju kl. 14. Bibliulestur á
prestsetrinu á mánudagskvöldiö
kemur, kl. 21. Auöur Eir Vil-
hjálmsdóttir sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: í dag, föstu-
dag, Biblíulestur og fyrirbæn kl.
20. Á sunnudaginn æskulýös-
messa kl. 14. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKRIKJA: Fjölskyldu-
messa á æskulýösdegi kl. 14.
Organleikari Einar Sigurðsson.
Sr. Heimir Steinsson.
Heimspekideild Háskóla Islands:
Röð fyrirlestra til kynningar á rann-
sóknum sem deildarmenn vinna að
Frá blaðamannafundi heimspekideildar Háskóla íslands í gær. Á myndinni
eru, talið frá vinstri: Bjarni Guðnason, Arnþór Hannibalsson, Höskuldur
Þráinsson, Sveinbjörn Rafnsson, Gunnar Karlsson, forseti heimspekideildar,
Álfrún Gunnlaugsdóttir og Bent Jacobsen.
HEIMSPEKIDEILD Háskóla ís-
lands gengst fyrir sjö opinberum
fyrirlestrum á þessu vormisseri, til
að kynna almenningi rannsóknir
sem deildarmenn eru að vinna að,
að því er tilkynnt var á blaðamanna-
fundi á miðvikudag. Fyrirlestrarnir
verða fluttir á laugardögum í mars
og apríl, og hefjast klukkan 14 í
Árnagarði.
Fyrirlesarar eru þau Álfrún
Gunnlaugsdóttir, dósent, Arnór
Hannibalsson, dósent, Gísli Krist-
jánsson, sagnfræðinemi, Kristján
Árnason, stundakennari við Hl,
Ingi Sigurðsson, lektor, Höskuldur
Þráinsson og Kristján Árnason,
lektor og Julian Meldon D’Aecy,
lektor.
Fyrsti fyrirlesturinn verður nú
á laugardaginn, hinn 5. mars, er
Álfrún Gunnlaugsdóttir, dósent í
almennri bókmenntafræði, flytur
fyrirlestur um Parcevals sögu.
Laugardaginn 12. mars flytur
Arnór Hannibalsson dósent í
heimspeki, fyrirlestur sem nefnist
Heimspeki og saga.
Laugardaginn 19. mars flytur
Gísli Kristjánsson, sagnfræði-
nemi, fyrirlestur um Verslunar-
svæði ísafjarðar á síðari hluta 19.
aldar.
Að þessum þrem fyrirlestrum
loknum verður tveggja vikna hlé,
fyrst vegna málþings deildarinn-
ar, síðan vegna páskaleyfis. Síðan
verður þráðurinn tekinn upp að
nýju:
Laugardaginn 9. apríl flytur
Kristján Árnason, stundakennari
í almennri bókmenntafræði, fyrir-
lestur sem nefnist Heimspeki og
skáldskapur.
Laugardaginn 16. apríl flytur
Ingi Sigurðsson, lektor í sagn-
fræði, fyrirlestur sem hann kallar
íslensk sagnfræði frá miðri 19. öld
til samtímans í erlendu samhengi.
Laugardaginn 23. apríl flytja
Höskuldur Þráinsson, prófessor,
og Kristján Árnason, lektor, báðir
í íslenskri málfræði, fyrirlestur
um málfar Vestur-Skaftfellinga.
Laugardaginn 30. apríl flytur
Julian Meldon D’Arcy, lektor í
ensku, fyrirlestur sem nefnist
Tálmyndir af átrúnaðargoð í Tess
of the d’Urbervilles eftir Thomas
Hardy.
Á blaðamannafundinum í gær
kom fram hjá Gunnari Karlssyni,
prófessor og forseta Heimspeki-
deildar, að a.m.k. einu sinni fyrr
hefur verið gengist fyrir fyrir-
lestraröð til kynninga á rann-
sóknum í deildinni. Nýmæli sé á
hinn bóginn að stundakennarar og
stúdentar taki þátt í fyrirlestra-
haldi, en með því vilji Heimspeki-
deild viðurkenna að fólk í þeim
stöðum leggi einnig fram skerf til
rannsókna.
Benedikt Þórisson með sýnishorn af myndböndum með kennslu- og frsðslu-
efni, sem bókaverzlun Snæbjarnar býður til kaups eða leigu.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon.
Fræðsluþættir
á myndböndum
BÓKAVERZLUN Snæbjarnar hefur
nýlega hafið útleigu á myndböndum
með kennslu- og fræðsluefni ýmiss
konar, en í fyrrasumar hóf verzlunin
útleigu á barna- og fjölskyldumynd-
um, afþreyingarmyndum, frá Walt
Disney.
Meðal þess fræðslu- og kennslu-
efnis, sem nú verður á boðstólum,
er enskunám frá Nelson Filmscan,
en myndspólunni fylgir bæði
kennslu- og æfingabók og sérstök
hljóðsnælda fyrir segulband. Hvað
fræðsluefnið snertir er þegar
hægt að fá bönd með golfkennslu,
sjálfsvarnarkennslu, kennslu í
hundaþjálfun, gítarkennslu, yoga,
stjörnufræði og listmálun, svo
eitthvað sé nefnt.
Að sögn forráðamanna bóka-
verslunarinnar verða fræðsluspól-
urnar allar til leigu en einnig
verður hægt að fá þær til kaups.
Prentaður hefur verið bæklingur
með öllum þeim fræðsluspólum
sem eru á boðstólum og verður
honum dreift nú næstu daga.
Þegar Snæbjörn Jónsson,
skjalaþýðandi, stofnsetti bóka-
verslun sína þann 3. desember
1927, var ætlun hans að reka fyrir-
tækið meira sem menningarfyrir-
tæki en sem atvinnu. Hann reyndi
eftir megni að hafa aðeins þær
bækur á boðstólum, sem eitthvert
gildi höfðu á sviði menningar og
fróðleiks.
Erlendar kennslu- og fræðslu-
bækur urðu því fljótlega áberandi
í bókaúrvali verslunarinnar. Bæk-
ur frá Oxford University Press og
valdar bækur frá McGraw-Hill,
Max Hueber Verlag, Longmans og
Hudson-bókhlöðunum á sviði
kennslu, fræðimennsku, vísinda og
lista gerðu bókaverslun Snæ-
bjarnar að sérverslun á þessu
sviði.
Skóli fatlaðra fær
stórgjöf frá Nirði
LIONSKLÚBBURINN Njöróur hef-
ur fært skóla fatlaðra sextíu þúsund
krónur aö gjöf. Peningunum verður
varið til þess að greiða kostnað við
akstur nemenda í og úr skóla.
Júlíus S. Ólafsson, formaður
Lionsklúbbsins Njarðar, afhenti
Jóni Ásgeirssyni, framkvæmda-
stjóra Rauða kross Islands, pen-
ingagjöfina og sagði við það tæki-
færi að féð væri úr sjóði sem
stofnaður var á ári fatlaðra en þá
söfnuðu klúbbfélagar m.a. fé með
því að selja herðatré.
Jón Ásgeirsson tók við gjöfinni
fyrir hönd allra þeirra sem átt
hafa samstarf um að koma skól-
anum á fót og gat þess að pen-
ingarnir kæmu í afar góðar þarfir.
Síðustu daga hafa borist fram-
lög frá öðrum aðilum. Hjálpar-
stofnun kirkjunnar gaf 30.000.-
krónur, Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra 10.000.- krónur, Styrktar-
félag ríkisins lagði fram 15.000.-
krónur sem nota á til að kaupa
námsbækur.
BENIDORM1983:13.APR. 11.MAÍ 1.JÚNÍ 22.JÚNÍ 13.JÚLÍ 3.& 24.ÁGÚST 14.SEPT. 5.0KTÓBER
3QMARZ FIMMTÁN D4GA BÁSKAFERD
UMBOÐSMENN:
SIGBJÖRN GUNNARSSON,
Sporthúsiö hl., Akureyri — slml 24350.
HELGI ÞORSTEINSSON,
Ásvegi 2, Dalvlk — slmi 61162.
FEROAMIÐSTÖO AUSTURLANDS,
Anton Antonsson, Selás 5, Egilsstööum —
Slmi 1499 og 1510.
VIÐAR ÞORBJORNSSON,
Noröurbraut 12, Höfn Hornafiröl — slml 8367.
FRIOFINNUR FINNBOGASON,
c/o Eyjabúö, Vestmannaeyjum — slml 1450.
BOGI HALLGRlMSSON,
Mánagerði 7, Grlndavlk — slmi 8119.
BJARNI VALTÝSSON,
Aðalstöölnnl Keflavlk, Keflavlk — slmi 1516.
Helöabrún 17. — slml 1286.
GISSUR V. KRISTJÁNSSON,
Breiðvangi 22, Hafnarflrði — slml 52963.
ÓLAFUR GUÐBRANDSSON,
Merkutelg 1, Akranesl — slml 1431.
SNORRI BÖÐVARSSON,
Sandholti 34, Ólafsvlk — slmi 6112.
ÓLAFUR HELGI KJARTANSSON,
Miðengl 2, Selfossí — slmi 1308.
RÚNAR BIRGISSON,
Stðragarðl 11, Húsavlk — slml 41570—41679.
Benidorm kynning í Þórskaffi 27.
febrúar — Kvikmyndasýning, Þórs-
kabarett, dans.
FERDA AÐALSTRÆTI9
MIÐSTOÐIN SÍMI28133 11255