Morgunblaðið - 04.03.1983, Qupperneq 32
^/^skriftar-
síminn er 830 33
FOSTUDAGUR 4. MARZ 1983
Demantur 4®
æðstur eðaisteina -
(^ttll Sc é>tlfttr
Laugavegi 35
Fjórmenningarnir
fá yfir milljón kr. í
bætur með vöxtum
HÆSTIRÉTTL'R kvað í gær upp dóma í máli fjórmenninganna, sem árið 1976
sátu í gæzluvarðhaldi í 90—105 daga vegna gruns um aðild að Geirfinnsmálinu.
Meirihluti dómsins komst að þeirri niðurstöðu að greiða bæri mönnunum frá
190.000—236.500 krónur í bætur vegna þess miska, sem þeir hlutu. Með vöxtum
frá 10. maí 1976 til uppkvaðningar dóms Hæstaréttar nema bætur til fjórmenn-
inganna frá um einni milljón króna til um 1200 þúsund króna samkvæmt
lauslegum útreikningi.
Meirihluti Hæstaréttar, Ármann
Snævar, Magnús Thoroddsen og
Guðmundur Skaftason, taldi að
greiða bæri Einari Gunnari Bolla-
syni 236.500 kr. auk vaxta frá 10. maí
Hækkanir
á bilinu
11,4—20%
heimilaðar
VERÐLAGSRÁÐ hefur á fundi
sínum samþykkt að heimila
11,4% hækkun á sandi og möl frá
og með deginum í dag. Sömuleið-
is samþykkti Verðlagsráð, að
heimila 15% hækkun á steypu.
Verðlagsráð samþykkti á
fundi sínum, að heimila 20%
hækkun á töxtum leigubíl-
stjóra. Þá var samþykkt að
heimila 20% hækkun á far- og
farmgjöldum í innanlandsflugi.
Samþykkt var 17,6% hækkun
á töxtum vinnuvéla, um 19%
meðaltalshækkun á töxtum
vörubifreiða á flutningaleiðum.
Loks var samþykkt að heimila
14,74% hækkun á útseldri
vinnu iðnmeistara.
Sjóprófum
var frestað
SJÓPRÓF vegna strands Hafrúnar frá
Bolungarvík fóru ekki fram í gær eins
og fyrirhugað hafði verið. Starfsmenn
frá Siglingamálastofnun komust
ekki vestur, en fyrirhugað er að sjó-
próf verði um leið og hægt verður að
fljúga vestur. Mikill sjór er kominn
í Hafrúnu á strandstað undir Stiga-
hlíð, en ekki verður hægt að athuga
með björgun fyrr en veðrið gengur
niður.
1976, Valdimar Olsen og Magnúsi
Leópoldssyni 220 þúsund krónur
hvorum auk vaxta og Sigurbirni Ei-
rikssyni 190 þúsund krónur auk
vaxta frá 10. maí 1976.
Þeir Gaukur Jörundsson og Þór
Vilhjálmsson skiluðu sératkvæði í
málinu. Þeir töldu að greiða bæri
Einari Gunnari Bollasyni 286.500
kr., Valdimar Olsen og Magnúsi
Leópoldssyni 270 þúsund krónur
hvorum og Sigurbirni Eiríkssyni 230
þúsund krónur. Þeir töldu hins vegar
að aðeins bæri að greiða vexti frá
þeim degi er Hæstiréttur kvað upp
dóm sinn.
Það var ríkissjóður, sem áfrýjaði
dómi í héraðsdómi, en fjórmenn-
ingarnir gagnáfrýjuðu. Lögmaður
ríkissjóðs var Gunnlaugur Claessen.
Hafsteinn Baldvinsson var lögmaður
Valdimars Olsen og Magnúsar Leó-
poldssonar, Ingvar Björnsson var
lögmaður Einars G. Bollasonar og
Jón Ólafsson var lögmaður Sigur-
björns Eiríkssonar.
Strætisvagn, grís og hvalur
Ljósmynd Mbl. Emilla.
Við kynningu á opnun listamannastúdíós Glits í
Reykjavfk í gær var gestum boðið að skreyta kolur
sem á eftir að brenna. Davíð Oddsson borgarstjóri
skreytti sína kolu með stöfum SVR, öðru megin
teiknaði hann SVR en á hina hliðina skrifaði hann:
Ferðist ódýrt. Eins og sjá má skemmtu menn sér vel
yfir uppátækinu, en hjá Davíð á rayndinni stendur
Þorvaldur Guðmundsson sem gerði grís úr sinni kolu
og hægra megin við borðið situr Davíð Scheving
Thorsteinsson og málar hval á sína kolu.
Ingólfur Jónsson, Jóhannes Nordal og Steingrímur Hermannsson um málflutning iðnaðarráðherra:
Vandséð hvernig hann þjónar
málstað íslendinga og samstöðu
„í UMRÆÐUM um álsamningana
að undanförnu hefur af hálfu iðnað-
arráðherra verið vegið að þeim, sem
áður fyrr hafa staðið að samningum
um álbræðsluna við Straumsvík,
bæði upphaflega og við endurskoð-
un þeirra 1975. Margt er athugavert
og villandi í því, sem haldið hefur
verið fram í þessu máli, auk þess
sem vandséð er, hverju það þjónar
málstað íslendinga eða samstöðu
þeirra í samningum við Alusuisse,
að reynt sé að stofna til illdeilna
um allt, sem aðhafst hefur verið í
þessu máli, áður en núverandi iðn-
aðarráðherra tók við völdum,“ segir
í upphaft yfirlýsingar sem þeir Ing-
ólfur Jónsson, fyrrum ráðherra, Jó-
hannes Nordal, seðlabankastjóri,
og Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sendu til fjölmiðla í gær, en þeir
voru í nefnd þeirri sem samdi um
endurskoðun á álsamningunum við
Alusuisse 1975, þegar Gunnar
Thoroddsen var iðnaðarráðherra.
Yfirlýsing þremenninganna er
birt í heild á miðopnu Morgun-
blaðsins í dag, en í henni rekja
þeir efni breytinganna frá 1975 og
svara þeim atriðum, sem Hjörleif-
ur Guttormsson hefur tíundað í
gagnrýni sinni á samningsgerðina.
I lok yfirlýsingarinnar segir meðal
annars um gildi samninganna frá
1975:
„Það var því mikilvægt, að með
þessum samningum var brotinn ís
að því leyti, að íslendingar fengu
betri rök og traustari rétt til þess
að krefjast endurskoðunar, hven-
ær sem verulegar breytingar yrðu
á ytri aðstæðum þeim í óhag.
Þann rétt teljum við unnt að
sækja með samningum og byggj-
um þar m.a. á reynslunni frá 1975.
Jafnframt er það skoðun okkar, að
málstað íslendinga sé ekki vel
þjónað með því að leggja megin-
áherslu á deilur um þá samninga,
sem gerðir hafa verið í fortíðinni
við allt aðrar aðstæður, í stað þess
að reyna með jákvæðum huga að
læra af reynslunni og marka
stefnu, sem geti sameinað íslend-
inga um árangursríka samnings-
gerð í þessu rnáli."
fSjá á miöopnu: Nettóhagnaður
íslendinga í beinum greiðslum
6,5 milljónir dollara frá 1975.)
BÚIST er viö, að vestanáttin gangi niður í dag og birti til. Á morgun er
hins vegar búist við að þykkni upp og vestanlands verður suöaustanátt
með rigningu síðdegis. Þvf er ekki útlit fyrir að skíðaveður verði sérlega
skemmtilegt um helgina suðvestanlands, en á Noröurlandi er búist við
góðu veðri. Meðfylgjandi mynd er tekin í einni hryðjunni í miðbæ
Reykjavíkur í gær og eins og sjá má var ekki um annaö að ræða, en setja
undir sig hausinn og berjast gegn garranum.
Vinnuregla Verðlagsstofnunar um gjaldskrárhækkanir:
Samgöngufyrirtæki fá
hækkun án umsóknar
VEGNA deilu verðlagsyfirvalda og
borgarstjórnar Reykjavíkur um hækk-
un á fargjöldum með strætisvögnum
Reykjavíkur, en Verðlagsstofnun hef-
ur nú kært borgarstjórn Reykjavíkur
fyrir Rannsóknarlögreglu ríkisins
vegna hækkunarinnar og krafist lög-
banns í annað sinn, lcitaði Morgun-
blaðið upplýsinga um það hjá Georg
Olafssyni, verðlagsstjóra, hvort ekki
séu dæmi um það, að samgöngufyrir-
tæki fái að hækka gjaldskrár sínar án
þess að sækja um það til verðlagsráðs.
Verðlagsstjóri greindi frá því að
samkomulag væri um það, að sam-
göngufyrirtæki fengju slíkar hækk-
anir án umsókna en annað ætti við
um Strætisvagna Reykjavíkur í þvf
máli sem nú er á döfinni vegna að-
draganda þess og framvindu.
„Það er samkomulag, að þeir fá
sömu hækkun og Flugleiðir," sagði
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, þeg-
ar Morgunblaðið spurði hann, hvort
Arnarflug fengi hækkun á fargjöld-
um innanlands án þess að sækja um
hana. „Flugleiðir er leiðandi aðili í
innanlandsfluginu," sagði Georg „og
sækir um og síðan fá önnur minni
flugfélög sömu hækkun og Flugleið-
ir. Það er með samkomulagi."
Þá var verðlagsstjóri spurður að
því, hvort Samband íslenskra sam-
vinnufélaga sækti um hækkun á
farmgjöldum fyrir skipafélag sitt.
„Þeir gera það stundum," sagði
Georg Ólafsson, „en það er Eim-
skipafélagið sem er ieiðandi á því
sviði og Hafskip gerir það öðru
hvoru en þessi fyrirtæki fá alltaf
sömu hækkun."
Enn var verðlagsstjóri spurður,
hvort strætisvagnar Kópavogs
sæktu sérstaklega um hækkun far-
gialda. „Þeir sækja sérstaklega um,“
sagði Georg, „en það eru dæmi um
það, að þeir hafi ekki gert það og
þeir hafa þá fengið sambæriiega
heimild og strætisvagnar Reykja-
víkur." Um strætisvagna Akureyrar
sagði verðlagsstjóri, að þeir hafi
ekki sótt um hækkun á fargjöldum
en hafi fylgt hækkunum hér syðra.