Morgunblaðið - 06.04.1983, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1983
Challenger:
Erfíðleikar með
fjarskiptahnött
KanaveralhtffAa, 5. aprfl. AP.
STÆR.STI og dýrasti fjarskipta-
hnötturinn, sem smíðaður hefur ver-
ið, valt um stjórnlaus f himingeimn-
um í nokkrar klukkustundir í dag
eftir að hann hafði verið losaður frá
geimferjunni Challenger. Geimför-
unum tókst þó að „koma böndum“ á
gripinn og vinna nú að því að koma
honum á rétta braut.
Fjarskiptahnötturinn, sem
Friðarhreyfingarnar:
Þúsundir tóku þátt í
mótmælaaðgerðum
Frankfurt, Haag, Basel, o.fl., 5. aprfl. AP.
MIKIL mótma-lahöld voru víða í Vestur-Evrópu um páskana og var mótmælun-
um beint gegn kjarnorkuvígbúnaði stórveldanna.
Einna víðtækust voru mótmælin í
Vestur-Þýskalandi, þar einangruðu
göngumenn bandarískar herstöðvar
og við fjarskiptastöð eina í Berlín
var meðal hinna handteknu þing-
maður og ' fyrrum hershöfðingi.
Hlaut hann mikið lof samgöngu-
manna sinna er lögreglan dró hann
burt af svæðinu. Við aðra herstöð
voru 160 manns handteknir, en
sleppt fljótlega aftur. Alls munu
nokkur hundruð manns hafa verið
teknir í vörslu lögreglunnar, flestir
í mjög skamman tíma.
í Skotlandi sluppu meira en 2.000
mótmælendur að kjarnorkukafbáti
þar sem hann lá við bryggju sína á
fljótinu Clyde. Röðuðu göngumenn
páskaliljum á bátinn og bjuggu til
friðartáknið úr liljum á þilfari
hans. Þótti ýmsum það góður endir
á þriggja daga mótmælaöldu sem
náði til flestra landa Vestur-
Evrópu, þó mest í Vestur-Þýska-
landi, Belgíu, Hollandi og Bret-
landi.
Yfirleitt fóru mótmælin frið-
samlega fram, t.d. urðu engin
meiðsl á fólki í V-Þýskalandi. í
Skotlandi kom til minni háttar
átaka er fyrrnefndur hópur stráði
blómum sínum á kafbátinn. Þar
voru nokkrir handteknir, þ.á m.
tvær stúlkur uppáklæddar sem
páskakanínur. Þriðja stúlkan hlaut
alvarlega skurði er hún hugðist
príla yfir gaddavírsgirðingu og taka
þátt í skreytingu bátsins.
Mótmælin þóttu takast illa í
Hollandi, alls voru 10 útibrennur
fyrirhugaðar en þar sem þátttakan
var mest, í borgunum Heerenveen
og Apeldoorn, voru þátttakendur
einungis um 200 manns á hvorum
stað.
I Sviss var þátttakan betri,
þar voru í einni göngu 10.—12.000
manns og þátttakendur í einstökum
göngum og fundum á Ítalíu náðu
nokkrum þúsundum.
Olíubrákin stefnir
til föðurhúsanna
Manama, Hahrain, 5. apríl. AP.
OLÍl BRÁKIN mikla, sem valdið hefur miklu hugarangri meðal íbúa við Persa-
flóa, leitar nú óðum til uppruna síns. stranda frans. „Vindáttin hefur bre.yst og
brákin stefnir nú óðfluga beint á íran,“ sagði talsmaður olíu- og steinefna-
rannsóknastofnunar í Saudi Arabíu í gær.
Sameinuðu arabísku furstadæm- ástandi hafði verið lýst yfir. Brákin
in voru um hríð í mikilli mengun-
arhættu, svo mikilli, að neyðar-
Fonda kærð
San Francisco, Kaliforníu, 5. aprfl. AP.
ÞRÍR íþróttaleiðbeinendur, kven-
kyns, í líkamsræktarmiðstöð Jane
Fonda, hafa kært leikkonuna fyrir
jafnréttisráðinu í Bandaríkjunum
fyrir að greiða ekki jöfn laun fyrir
sömu vinnu.
Stúlkurnar segja að frú Fonda
hafi unnið mikið og gott starf í
jafnréttismálum, en sé ekki sam-
kvæm sjálfri sér. Hún borgi
tveimur karlkyns leiðbeinendum
meira kaup fyrir sömu vinnu og
þær inna af hendi og það geti
þær ekki liðið. Byrjunarkaup
stúlknanna var 5 dollarar á
klukkustund og það hækkaði í 6
dollara er þær voru orðnar van-
ari. Karlarnir tveir fá 7 dollara á
klukkustund. Lögfræðingur
leikkonunnar sagði kaupmis-
muninn vera rétt með farinn.
hefði ekki einungis valdið óbætan-
legu tjóni á lífríki landanna, heldur
einnig á mannvirkjum. Aðeins eitt
af furstadæmunum, Ras A1 Hhai-
mah, er enn í dálítilli hættu, en
hverfandi miðað við sem áður var.
Talið er að magnið samsvari
350.000 tunnum af íranskri hráolíu.
En vindáttin þarf ekki annað en
að breytast á nýjan leik og þá
breytist staðan með, hætta gæti
einungis verið liðin hjá í bili. Þau
lönd sem liggja að Persaflóanum
hafa rætt með sér ýmsa möguleika
á endanlegri lausn, en það hefur
reynst erfitt viðureignar þar sem
írakar hafa lofað að skjóta á alla
tilburði írana til að hefta olíulek-
ann, eða hreinsa brákina upp. Yfir-
völd annarra Persaflóaríkja reyna
mjög þessa dagana að draga úr
óbilgirni íraka, en hermt er að ír-
anir bíði spenntir eftir því að geta
hafið aðgerðir. Fulltrúar íraka í
sameiginlegum viðræðum hafa ekki
verið með umboð til að ræða tíma-
bundið vopnahié meðan olían er
hreinsuð upp.
^ V" '
« m •" i » * J
kostaði 100 milljónir dollara, er
búinn sínum eigin stýrieldflaug-
um og eiga þær að koma honum á
braut í 22.530—35.400 km fjarlægð
frá jörðu. Vandræðin stöfuðu af
einhverri bilun í einni eldflaug-
anna en nú standa góðar vonir til
að ráða megi bót á henni.
Fjarskiptahnötturinn er sá
fyrsti þriggja sams konar hnatta,
sem Bandaríska geimferðastofn-
unin er að láta smíða og er ætlað
að verða nokkurs konar skiptiborð
á milli jarðar, 26 gervihnatta og
flota fjögurra geimferja.
Challenger, nýja geimferjan,
hefur staðið sig fullkomlega í
þessari ferð og Paul J. Weitz, flug-
stjóri hennar, lauk fyrsta deginum
með þessum orðum: „Þetta hefur
verið mikill sigurdagur fyrir
geimferðaáætlunina."
Til minningar um
síðustu kvöldmáltíðina
Páll páfí II sést hér kyssa fætur lítils drengs en það gerir páfí ávallt á
páskum til minningar um síðustu kvöldmáltíðina. Athöfnin fór fram í
kirkju heilags Jóhannesar sl. fímmtudag, á skírdag. AP
Vona að Sovétmenn
skoði hug sinn betur
London, 5. aprfl. AP.
RÍKISSTJÓRNIR ýmissa Vestur-Evrópuríkja og dagblöð í
þessum löndum létu í gær í Ijós þá von, að Gromyko, utanrík-
isráðherra Sovétríkjanna, sæi að sér og endurskoðaði þá
ákvörðun að hafna alfarið tillögum Reagans Bandaríkjafor-
seta um takmörkun meðaldrægra eldflauga í Evrópu.
ráðherra Breta, kvaðst sl. sunnu-
dag, vona, að þrátt fyrir „stóryrð-
in“ væri Gromyko til viðræðna um
tillögurnar. „Sovétmenn verða að
skilja, að það er einnig í þeirra
þágu að draga úr vígbúnaðinum,"
sagði Pym.
Helstu dagblöð í Vestur-Evrópu
taka í svipaðan streng. „Ráða-
menn í Moskvu misstu nú fyrir
Utanríkisráðherra Vestur-
Þýskalands, Hans-Dietrich
Genscher, sagði, að afstaða Rússa
hefði valdið miklum „vonbrigðum
öllum þeim, sem áhuga hafa á af-
vopnun", en í yfirlýsingu frá sl.
sunnudag sagði hann, að Nato-
ríkin „verði að vona, að Sovét-
menn taki raunhæfa afstöðu til
þeirra". Francis Pym, utanríkis-
skemmstu bandamann í eld-
flaugabaráttunni, sem þeir höfðu
bundið miklar vonir við, Jafnaðar-
mannaflokkinn vestur-þýska, sem
beið ósigur í síðustu kosningum,"
sagði II Messaggero í Róm. „Nú
reiða þeir sig á friðarhreyfingarn-
ar á Vesturlöndum."
Á blaðamannafundi sl. laugar-
dag hafnaði Gromyko þeim tillög-
um Reagans, að Nato kæmi upp
færri eldflaugum en fyrirhugað
væri gegn því, að Rússar fækkuðu
sínum eldflaugum af gerðinni SS-
4, SS-5 og SS-20, sem nú eru um
600 talsins.
Sovétríkin:
Vídeóbyltingin veldur
ráðamönnum áhyggjum
MoHkvu, 5. aprfl. AP.
VÍDEÓBYLTINGIN hefur náð til Sovétríkjanna og ganga
nú vestrænar klám- og hryllingsmyndir kaupum og sölum
á svarta markaðnum að því er sagöi í sovésku dagblaði sl.
sunnudag, en þar var fólk eindregið ráðið frá því að sjá
þessar myndir.
1 greininni, sem birtist í mál-
gagni miðstjórnar kommúnista-
flokksins, Sovietskaya Rossiya,
var gengist við því berum orðum,
að stjórnvöld óttuðust vídeóbylt-
inguna því að hún gerði Rússum
kleift að horfa á vestrænar
kvikmyndir heima hjá sér og
utan við ritskoðunina. í Sovét-
ríkjunum þurfa allar kvikmynd-
ir, leikrit, bækur, tónlist og önn-
ur hugverk að ganga í gegnum
nálarauga ritskoðunarinnar áð-
ur en birting er leyfð og þær
vestrænar kvikmyndir, sem
sleppa í gegn, eru þær, sem
gagnrýna þjóðfélagið þeim meg-
in gaddavírsgirðingarinnar,
gamanleikir og barnaefni.
Til að hræða fólk frá vídeóinu
sagði blaðið frá konu, sem flytja
varð á geðveikrahæli eftir að
hafa séð eina hryllingsmyndina,
og það vitnaði í „sérfræðinga",
sem sögðu, að myndin „Frank-
enstein" væri „hroðalega skelfi-
leg“. Blaðið sagði ekkert um
hvernig myndböndin bærust til
landsins en vitað er, að embætt-
ismenn og listamenn, sem fá að
fara úr landi, birgja sig oft vel
upp áður en haldið er heim.
I dollarabúðunum sovésku er
hægt að kaupa myndbandatæki
fyrir um 2100 dollara en sagt er,
að snældurnar sjálfar gangi á
um 420 dollara, um 8500 kr. ísl.,
á svarta markaðnum. Tækin eru
hins vegar seld á um 12.600-
16.800 dollara á svarta markaðn-
um og er það miklu meira en
venjulegt fólk ræður við. Þess
vegna er það algengt, að margir
séu um kaupin á sama tækinu.
Er tölvuvædingin orðin aðkallandi? Rafrás réttir þér hjálparhönd
RAFRÁS aðstoðar við vai á þeim búnaði sem best hentar í hverjutilfelli. RAFRÁSsérum uppsetningu og gerir tillögur um besta
nýtingu búnaðarins. RAFRÁS annast reglulegt eftirlit með öllum búnaði frá fyrirtækinu.Líttu við hjá okkur í FELLSMÚLA 24 eða
hringdu í síma 82055/82980 og kynntu þér hvaða aðstoð við getum veitt við tölvuvæðinguna.