Morgunblaðið - 07.04.1983, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1983
>•©<
Bifreiðar
á kjördag
D-listann vantar fjölda bifreiöa til aksturs frá hinum
ýmsu bifreiöastööum D-listans á kjördag.
Frambjóöendur heita á stuöningsmenn listans aö bregð-
ast vel viö og leggja listanum liö, m.a. með því aö skrá
sig til aksturs á kjördag, 23. apríl.
Vinsamlegast hringiö í síma 85730.
V________________________________)
11-listinn
Myndin er tekin þegar bókagjöfin var formlega afhent. Frá vinstri: Guðmundur Magnússon, háskólarektor, frú
Vigdís Finnbogadóttir, forseti, og Per Saugman, stjórnarformaður Blackwell Scientific Publications.
Heildsölubyrgöir:
Agnar Lúðvíksson hfM
Nýlendugötu 21.
Sími12134.
5H010KAW (g)
Byrjendanámskeiö hjá
KARATEDEILD GERPLU
3ja mánaða námskeið meö prófi hefst
mánudaginn 11. apríl nk.
Kennsla fer fram í nýjum sal íþróttahúss Gerplu viö
Skemmuveg Kópavogi (rétt við Breiðholtsbraut).
Innritun og upplýsingar í síma 74925 eft-
ir kl. 16.
Hentug aðstaða miðsvæðis Breiöholts
og Kópavogs.
Karatedeild Gerplu
Bókagjöf til Háskólabókasafns
í FEBRÚAR síðastliðnum barst Há-
skólabókasafni vegleg bókagjöf frá
útgáfufyrirtækinu Blackwell Scient-
ific Publications í Oxford. Var hér
um að ræða um 700 bindi vísindarita
sem fyrirtækið hefur gefið út, þar af
um 200 bindi tímarita. Jafnframt fól
gjöfin í sér áskrift á 13 vísindaleg
tímarit, svo og fyrirheit um allmarg-
ar bækur sem koma út síðar á þessu
ári.
Forgöngu um gjöf þessa hafði
Per Saugman, stjórnarformaður
og forstjóri Blackwell Scientific
Publications, en hann er einlægur
aðdáandi íslands og íslenskrar
menningar. Er gjöfin veitt í tilefni
af heimsókn forseta íslands, frú
Vigdísar Finnbogadóttur, til
Oxford í febrúarmánuði 1982.
Bækurnar í gjöf þessari eru nýj-
ar af nálinni og taka til flestra
greina sem kenndar eru við Há-
skólann. Þó er misjafnt hvað
greinar bera úr býtum og fer það
eftir þeim vísindasviðum sem
fyrirtækið hefur lagt mesta rækt
við. Nefna má sem dæmi að all-
mikið er um rit í læknisfræði og
skyldum greinum, náttúruvísind-
um, hagfræði og heimspeki.
Háskólabókasafni er mikill
fengur að þessari höfðinglegu
bókagjöf og stendur í mikilli þakk-
arskuld við Blackwell Scientific
Publications, og þá sérstaklega
Per Saugman sem hefur sýnt Há-
skólanum einstæða velvild með
gjöf þessari.
Bækurnar verða yarðveittar í
Háskólabókasafni og útibúum
þess.
Þær verða til sýnis í handbóka-
sal Háskólabókasafns 5.—12. apr-
íl. (Frétutilkynning)
Uppboð á eignum Iðntækni:
Skáksambandið hefur ekki gert
kröfu til einvígismyndarinnar
EKKERT hefur komið fram af hálfu
Skáksambands íslands um að það
muni gera kröfu til kvikmyndaspólu
af einni einvígisskák Fischers og
Spasskýs, sem telfd var í heims-
meistaraeinvíginu í Reykjavfk fyrir
nokkrum árum, samkvæmt upplýs-
ingum sem Mbl. fékk hjá Sigurði M.
Helgasyni, fyrrverandi borgarfógeta
í gær.
Forsaga málsins er sú að fyrir-
tækið Iðntækni tók upp eina ein-
vígisskákina og hefur kvikmynda-
spóluna í fórum sínum, en fyrir-
tækið hefur nú verið tekið til
gjaldþrotaskipta. Á uppboði, þar
sem eignir fyrirtækisins verða
boðnar upp, verður m.a. umrædd
kvikmyndaspóla.
Iðntækni tók upp þessa skák að
tilhlutan Bandaríkjamanns nokk-
urs, Chesters Fox að nafni, en
hann hafði upptökuréttinn af ein-
víginu. Fox sinnti síðan ekki frek-
ar upptökum af einvígisskákunum
og fékk Iðntækni ekkert greitt
fyrir þátt sinn í málinu, þannig að
á kvikmyndina hefur verið litið
sem eign þrotabúsins, að sögn Sig-
urðar. Sigurður gat þess að upp-
boðið á eignum Iðntækni færi
fram á næstu vikum.
Jón kotbóndi (Bjarni Sigurjónsaon), kerling hans (Herdís Birgisdóttir) og
Lykla-Pétur (Helgi Bjarnason).
„Gullna hliðið“ sýnt á Húsavík
Innanlandsflug Flug-
leiða um páskana:
Mikill far-
þegafjöldi
UM 5.100 farþegar voru
fluttir í innanlandsflugi
Flugleiða um páskana; þar af
rúmlega 2.100 á annan í
páskum.
Að sögn Þórarins Stefánsson-
ar hjá Flugleiðum er farþega-
fjöldinn óvenju mikill nú þó að
ekki sé um met að ræða. Þórar-
inn sagði ennfremur að eins og
undanfarin ár hefðu flestir ferð-
ast til Akureyrar, en nú hefði
straumurinn einnig legið til ísa-
fjarðar vegna skíðalandsmóts-
ins þar. Þórarinn sagði að inn-
anlandsflugið hefði gengið ljóm-
andi vel um páskana þó að ekki
hefði verið flogið á föstudaginn
langa og páskadag.
Loks má geta þess að á annan
í páskum voru tvær þotur Flug-
leiða notaðar við farþegaflutn-
ingana sem stóðu frá því kl. 8 að
morgni fram yfir miðnætti.
Þurfti því að fá undanþágu fyrir
lendingu þotanna á Reykjavík-
urflugvelli eins og tíðkast á
stórhátíðum s.s. jólum og pásk-
um.
Húsavík, 2. aprfl.
LEIKFÉLAG Húsavíkur frumsýndi
sjónleikinn GULLNA HLIÐIÐ, eftir
Davíð Stefánsson, sl. miðvikudag
fyrir fullu húsi og við góðar undir-
tektir áhorfenda.
Leikstjóri er Einar Þorbergsson
og mest af tónlist Dr. Páls ísólfs-
sonar flutti Úlrik Ólafsson. Leik-
mynd gerðu Sverrir Jónsson og
Sigurður Hallmarsson, sem jafn-
framt flutti forspjall höfundar.
Sýningarstjóri var Finnur Ingi-
marsson og ljósa- og tæknimeist-
ari Grétar Ragnarsson.
Með aðalhlutverkin fara: Jón
kotbónda leikur Bjarni Sigurjóns-
son og kerlingu hans Herdís Birg-
isdóttir, Vilborgu grasakonu leikur
Margrét Halldórsdóttir, Lykla-
Pétur Helgi Bjarnason og óvininn
Einar Þorbergsson.
f þröngu húsrými og á lítilli
senu hefur leikstjóra vel tekist að
staðsetja ýmis erfið atriði.
Fréttaritari.