Morgunblaðið - 07.04.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1983
15
100 ára skólahaldi fagnað
í Barnaskóla Eskifjarðar
BARNASKÓLI Eskifjarðar var fyrst settur 14. janúar 1883 og var
fyrsti kennsludagur 16. sama nránaftar. Þá hafði verið reist nýtt
skólahús, sem enn stendur og er nú notað sem íbúðarhús. Núver-
andi skólahús var síðan reist 1910, en verið er að byggja nýtt. Fyrsti
skólastjórinn var Ögmundur Sigurðsson, en núverandi skólastjóri
er Jón Ingi Einarsson. í upphafi voru nemendur 16 en eru nú yfir
200.
Afmælishóf vegna þessa var
haldið miðvikudaginn 30. marz
síðastliðinn. Meðal gesta voru
Einar Bragi, rithöfundur, og kona
Bæjum,
ísafjarðardjúpi:
Versta veð-
ur í Djúpinu
Bæjum, 5. aprfl.
SÓTSVARTUR þreifandi bylur hef-
ur verið hér í Djúpi í allan dag, akk-
að niður snjó ofan á þann sera mikill
var fyrir. „Djúpbáturinn er að sigla
hér út Djúpið í 9—10 vindstigum og
þreifandi byl,“ sagði Halldór Her-
mannsson, „með 20—30 farþega um
borð, fólk úr heimsóknarferð um
páskana á heimaslóðir".
Frá ísafirði fór báturinn kl. 8 í
morgun og er væntanlegur til ísa-
fjarðar klukkan 11 í kvöld. Ferðin
hefur því tekið um 15 klukku-
stundir og komið var við á mörg-
um höfnum tvisvar eftir fólki í út-
leið. Við Bæjarbryggju kvað Hall-
dór skipstjóri rétt grilla í stýri-
manninn frammi á dekkinu. Kvað
hann þetta versta veður sem hann
hefði fengið í Djúpinu í vetur og
ófært taldi hann að taka Æðareyj-
arhöfn með nú í útleið. ófært er
hér milli nokkurra staða vegna
snjóa. Fallið hafa niður tvær ferð-
ir til Unaðsdalsbóndans sem ekki
hefur komið mjólk frá sér vegna
ófærðar. Þó að skipshöfn Djúp-
bátsins hefði sótt mjólkina til
hans á plastkænu í síðustu ferð er
alófært í dag.
Jens í Kaldalóni
Sæmdir heið-
ursmerkjum
fálkaorðunnar
FOR8ETI íslands hefur í dag sæmt
eftirtalda íslendinga riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu:
Hólmstein Helgason, fv. af-
greiðslumann, Raufarhöfn, fyrir
störf að félags- og atvinnumálum.
Frú Laufeyju Eiríksdóttur,
Reykjavík, fyrir félags- og safnað-
arstörf.
Pál Kr. Pálsson, organleikara,
Hafnarfirði, fyrir tónlistarstörf.
Sigurð M. Þorsteinsson, fv. að-
stoðaryfirlögregluþjón, Reykjavík,
fyrir störf að flugbjörgunarmál-
um.
Snorra Hjartarson, skáld,
Reykjavík, fyrir bókmenntastörf.
Stefán Þorleifsson, sjúkrahús-
ráðsmann, Neskaupsstað, fyrir
störf að félags- og sjúkrahúsmál-
um.
Frú Unni Ólafsdóttur, Reykja-
vík, fyrir listsaum og gerð kirkju-
muna.
Reykjavík, 5. apríl 1983.
FréiUtilkynning frá orðuriUra
hans, en hann hefur ritað sögu
skólans frá upphafi til ársins 1939.
Þar voru og Guðmundur Magnús-
son, fræðslustjóri á Austurlandi,
og kona hans. Jóhann Clausen,
bæjarstjóri, flutti ávarp og setti
samkomuna. Gestir fluttu ávörp
svo og skólastjóri. Nemendur lásu
upp úr 3. bindi Eskju um aðdrag-
andann að stofnun skólans og
fyrstu starfsmánuðina. Einnig
sungu nokkrir nemendur á milli
atriða. Að lokum voru sýndar
gamlar skuggamyndir af starfi
skólans.
Skólanum bárust góðar gjafir í
tilefni afmælisins. Lionsklúbbur
Eskifjarðar gaf myndsegulband,
kvenfélagið Döggin gaf leir-
brennsluofn, fræðslustjóri afhenti
fyrir hönd menntamálaráðu-
neytisins ljósritun handrita Land-
námu, sem stofnun Árna Magnús-
sonar gaf út 1974, Einar Bragi, rit-
höfundur, afhenti fyrsta hluta af
listaverkagjöf, sem gamlir nem-
endur standa að. f þessum hluta er
um að ræða 6 myndir og veggrefil.
Öll eru verkin eftir íslenzkar lista-
konur og gat Einar Bragi þess, að
hann vonaðist til að þessi verk
gætu orðið fyrsti vísir að lista-
verkasafni, sem saman stæði af
verkum íslenzkra listakvenna. Á
skírdag var bæjarbúum boðið í af-
mæliskaffi og komu alls um 500
gestir og þáðu veitingar. Á skír-
dag var einnig opnuð í skólahús-
inu sýning á gömlum og nýjum
munum og var hún opin yfir pásk-
ana.
— Ævar
Utankjörstaðakosning
Utankjörstaöaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins í Valhöll
Upplýsingar um kjörskrá og fl.
Háaleitisbraut 1 — Símar 30866, 30734 og 30962.
Sjálfstæðisfólk. Vinsamlega látiö skrifstofuna vita um
alla kjósendur, sem verða ekki heima á kjördegi.
Utankjörstaðakosning fer fram í Miðbæjarskólanum
alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22.
Sunnudaga kl. 14—18.
Alltaf á fóstudögum
AÐ VERÐA VANFÆR A
VORUM DÖGUM
— Nýr greinaflokkur um barneignir hefur göngu
sina.
BATIKVERKSTÆÐI
KATRÍNAR OG STEFÁNS
— Hefur veriö starfrækt í rúm 10 ár, en nú eru
þau hjón komin aftur út á hinn almenna vinnu-
markað.
ANNARSFLOKKS
ÞEGNAR í TÖLVUÞJÓÐ-
FÉLAGINU?
— Félagslegar hindranir viröast standa í vegi
fyrir auknum áhuga kvenfólks á tölvuvæöingunni.
Höfóar til
.fólksí öllum
starfsgreinum!
Hópferðir í
langferðabílum um
Þýskaland
FERÐAVAL býöur í sumar 2 og 3 vikna
hópferðir til Þýskalands og Sviss.
Ferðin hefst með siglingu M/S EDDU frá
Reykjavík til Bremerhaven, þar sem ís-
lensk langferðabifreið, með íslenskum
ökumanni og leiðsögumanni taka á móti
hópnum — og eru með honum allan tím-
ann.
Ekið verður um fegurstu staði og fræga í
Þýskalandi, og gist er á góðum hótelum.
Áfangar eru hæfilegir.
í 14 daga ferðinni verður ekið um
Þýskaland í viku og komið til skips aftur á
áttunda degi. Þetta er ferð um Rínarlönd
og Mosel.
í lengri feröinni veröur ekið í áföngum
suður til Miinchen og að Konstanz-vatni
(Boden See), um Svartaskóg og heimleiðis
um Moseldal og Rínarlönd.
Þetta eru vel undirbúnar ferðir, sem
skipulagðar hafa verið með reyndum aðil-
um, erlendis og með ferðaþjónustu Far-
skipa hf.
Verði er stillt í hóf.
Leitið upplýsinga.
Brottfarardagar frá Reykjavík.
1. — 8. — og 15. júní— 13. júlí-
24. og 31. ágúst.
Nánari upplýsingar í skrifstofunni.
FERDAWjVAL
SNÆLAND GRÍMSSON HF.
Feröaskrifstofa
Kirkjustræli 8
108 Reykjavík
Sími 19296 — 26660
3,—