Morgunblaðið - 07.04.1983, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR7. MARZ 1983
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 180 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 15 kr. eintakiö.
Skýrsla
flugmálastjórnar
Fyrstu umferð í rannsókn
þeirra atburða sem gerð-
ust í lofti í nágrenni Vest-
mannaeyja 15. mars síðast-
liðinn er lokið. Fyrir liggur
skýrsla flugmálastjórnar um
þá atburðarás sem leiddi til
þess að hætta var á árekstri
flugvélar Arnarflugs á leið
frá Amsterdam og Orion-
vélar varnarliðsins sem var á
æfingaflugi suður af Reykja-
nesi. í forystugrein Morgun-
blaðsins 23. mars sagði: „Mál
þetta er þannig vaxið að ekki
verður við annað unað en all-
ir þættir þess verði þaul-
kannaðir og opinberlega
skýrt frá niðurstöðum, auk
þess sem gripið verði til við-
eigandi aðgerða til að koma í
veg fyrir að slíkt geti endur-
tekið sig.“
Af skýrslu flugmála-
stjórnar er augljóst, að ekki
er með rökum unnt að slá því
föstu eins og Pétur Einars-
son, flugmálastjóri, gerði á
fundi með blaðamönnum síð-
degis á þriðjudag, að „frum-
orsökin" að þessu atviki væri
sú að varnarliðsvélin hefði
farið út fyrir æfingasvæði
sitt, enda mildaðist túlkun
flugmálastjóra á þessum
þætti skýrslunnar eftir því
sem leið á daginn og um
kvöldið sagði hann í beinni
útsendingu í sjónvarpinu, að
atvikið ætti rætur að rekja
til brots á blindflugsreglum
og aðgæsluleysis við flugum-
ferðarstjórn. í þessum sjón-
varpsþætti kom fram, að
hinn nýskipaði flugmála-
stjóri hefur fullan hug á að
láta verulega til sín taka í
embættinu og hann skorti
ekki svör við spurningum
fréttamanna. Hann gerði sitt
til að berja í þann trúnað-
arbrest sem myndaðist
vegna gagnrýni út af skipun
hans í embættið, en það er
þó embættisfærslan sjálf
sem ræður úrslitum.
Skýrsla flugmálastjórnar
staðfestir hve flugumferðar-
stjórar gegna ábyrgðarmiklu
starfi. Lítið atvik eins og það
sem þarna gerðist þegar
flugumferðarstjóri biður
Orion-vélina um að merkja
inn á ratsjá tákn sem sýndi
að hún væri í sjónflugi þegar
hún hafði blindflugsheimild,
getur valdið því að fylgst er
með ferðum hennar með öðr-
um en hætti en ella. En þeg-
ar lá við árekstrinum var
annar flugumferðarstjóri
kominn á vakt við ratsjána
en sá sem skráði Orion-vél-
ina vitlaust. Hér skal aðeins
drepið á þetta eina atriði úr
skýrslunni að því er flugum-
ferðarstjórnina varðar, en
vissulega vakna spurningar
um fleira en þetta þegar at-
vikalýsingin er lesin og
Morgunblaðið mun birta
hana í heild. Flugmenn
Orion-vélarinnar segjast
hafa verið önnum kafnir við
æfingar og auk þess hafi
fjölstefnuvitinn á Keflavík-
urflugvelli, sem notaður er
til staðarákvörðunar, „dottið
út af og til“ eins og það er
orðað, stefnuvitinn hafi með
öðrum orðum ekki sent út
merki sem skyldi. Hvað olli
þessari truflun?
Rannsóknanefnd flug-
málastjórnar, sem þessa
skýrslu samdi leggur til að
vakta- og vinnuskipulagi í
flugturninum á Keflavíkur-
flugvelli verði breytt. Og
miðað við vinnuálagið á flug-
umferðarstjóranum, sem var
við ratsjána þegar flugvél-
arnar nálguðust hvor aðra
15. mars, sýnist ekki vanþörf
á því að huga að þessum
málum. Til að almenningur
gæti betur áttað sig á því hve
mikið er á flugmumferðar-
stjóra lagt, væri æskilegt að
launagreiðandi þeirra, ríkis-
sjóður, upplýsti hve mikla
yfirvinnu þessir menn vinna
að jafnaði. Ekki er langt síð-
an athygli fjölmiðla beindist
að starfi flugumferðarstjór-
anna á Keflavíkurflugvelli
og mátti þá helst skilja að
fleiri vildu starfa þar en
þyrfti, en nú kemur á hinn
bóginn í ljós að það vantar
flugumferðarstjóra í 5 heim-
ilaðar stöður.
Fleiri aðilar en flugmála-
stjórn eiga eftir að segja álit
sitt á þessu máli. Flugslysa-
nefnd er einn þessara aðila.
Skýrslan hefur verið send
saksóknara og ýmsum ráðu-
neytum. Enn er því full
ástæða til að fylgjast með
gangi þessa máls og mun
Morgunblaðið stuðla að því
að allar frekari skýringar á
atvikum þess eða ráðstafan-
ir, sem vegna þess verða
gerðar, komi fyrir sjónir al-
mennings. Hér er nauðsyn-
legt að standa óaðfinnanlega
að verki, því að mikið er í
húfi.
Norðurleiðarrúturnar sex í hnapp við Staðarskála { fyrradag. Nokkru síðar lögðu þær á Holtarvörðuheiði í fylgd
snjóplógs. Ljósm. AS.
Kolófært um allt Norðurland:
Milli 60 og 70 manns
tepptir í Staðarskála
Vélskófla búin snjóruðningstönn ryður brautina á Holtavörðuheiði.
Sex áætlunarrútur frá Norður-
leið lentu í talsverðum hrakning-
um I fyrradag og nótt. Rúturnar
voru á leið frá Akureyri til Reykja-
víkur og voru 18 klukkustundir, en
alls voru um 350 manns farþegar
með þeim.
„Það er mjög mikill snjór hjá
Vatnshorni og við Gauksmýri og
þar stöðvuðust bflarnir. Það skóf
mikið og var erfitt að moka,“ sagði
Þorvarður Guðjónsson hjá Norður-
leið í samtali við Morgunblaðið í
gær. Þorvarður gagnrýndi enn
fremur ökumenn fólksbfla sem
þarna voru, „eins og alltaf þá oliu
þeir töfum. Þeim var svo hjálpað
að Hvammstangavegamótunum,
en við biðum þar í rútunum til þess
að fara ekki á móti umferðinni.
Þegar komið var að okkur, hafði
veðrið versnað til muna. Veghefill
frá Vegagerðinni fór á undan
okkur yflr Holtavörðuheiðina og
gekk það ágætlega en seinlega.
Þegar niður í Borgarfjörð kom
seinkaði okkur enn, því þar, svo og
í Hvalfirði og á Kjalarnesi, var gíf-
urlega mikið hvassviðri. Annars á
Vegagerðin þakkir skildar fyrir
frammistöðuna, án hennar hefðu
um 350 manns neyðst til að dvelja
nóttina í Staðarskála í Hrútafirði,"
sagði Þorvarður.
1 gærkvöldi voru þó enn milli
60 og 70 manns veðurtepptir í
Staðarskála. Þar ræddi Mbl. við
Magnús Gíslason og sagði hann
að engar horfur væru á því að
fólkið færi þaðan fyrr en veður
gengi niður. Þungir bílar fóru
norður eftir undir kvöldið til að
kanna ástand vega. Enn var
mikið hvassviðri í Hrútafirðin-
um er Mbl. símaði þangað.
Hjá Vegaeftirliti ríkisins fékk
blaðið þær upplýsingar, að
vonskuveður hefði verið frá
Borgarfirði og alveg til norð-
austurlands, og i gær voru allir
vegir í þessum landshlutum
ófærir. Könnun og snjómokstur
lá niðri, en hefst aftur við fyrsta
tækifæri. Á Vestfjörðum var
víða þungfært að sunnanverðu,
en ófært alls staðar að norðan,
utan hvað fært var frá ísafirði
til Bolungarvíkur og Súðavíkur.
Sunnanlands var hins vegar fært
um allt og sömuleiðis upp alla
Austfirði til Egilsstaða. A Snæ-
fellsnesi var fært um Heydal, en
Kerlingarskarð og Fróðárheiði
voru lokuð.
Hjá Flugleiðum fengust þær
upplýsingar undir kvöldið, að
ástandið væri að færast í betra
horf, Fokker-vél sem hafði ekki
komist frá Akureyri síðan í
fyrramorgun var á leið til
Reykjavíkur og tvær þotuferðir
frá Keflavík til Akureyrar voru
fyrirhugaðar. Flogið var til
Sauðárkróks í gær og víða ann-
ars staðar gátu vélar lent. Hins
vegar var einum Fokker snúið
frá ísafirði.
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn 1983 er í dag:
„Heilbrigði fyrir
alla árið 2000“
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er í
dag, 7. aprfl, en hann er haldinn ár-
lega í því skyni að vekja athygli á
nauðsyn átaks til betra og heilbrigð-
ara lífs. Dagur þessi er haldinn við
mismunandi aðstæður í löndum
heimsins, en hvarvetna er hann
helgaður þessu málefni, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt-
inu.
Þar segir að árið 1982 hafi verið
helgað málefnum fatlaðra og áður
hafi máli fatlaðra verið gefinn
gaumur í tilefni Alþjóðaheil-
brigðisdagsins. Á þessu ári hafi
aðildarþjóðir Alþjóðaheilbrigðis-
dagsins ákveðið að taka til sér-
stakrar meðferðar stefnumótun í
heilbrigðismálum til ársins 2000.
Þessi alþjóðastefnumótun hefur
ákveðið að beina athygli fólks að
markmiði stofnunarinnar um
„Heilbrigði fyrir alla árið 2000“.
Markmið í heilbrigðismálum
hefur einnig borið á góma á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna,
sem hefur ályktað að umbætur i
heilbrigðismálum sé mikilvægur
hlekkur í félagslegri og efnahags-
legri þróun í heiminum. Allsherj-
arþingið hefur beint því til Al-
þjóðabankans og Þróunarsjóðs
Sameinuðu þjóðanna að sinna
heilbrigðismálum sérstaklega og
þá einkum verkefnum sem lúta að
vatnsöflun og bættri hreinlætis-
aðstöðu í þriðja heiminum.
f fréttatilkynningunni segir
ennfremur að ýmsar greinar heil-
brigðismála, einkum baráttan við
smitsjúkdóma, krefjist sameinaðs
alþjóðlegs átaks og ekki síður að
þeim, sem búa við góðar efnahags-
legar aðstæður, beri siðferðileg
skylda til að aðstoða fólk og þjóðir
annars staðar til að komast úr
ástandi örbirgðar, fátæktar og
vanheiisu. Fjölmargar landssafn-
anir í þágu fólks í þriðja heimin-
um beri þess vott að Islendingar
séu tilbúnir til að leggja sitt lóð á
vogaskálarnar.