Morgunblaðið - 07.04.1983, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1983
Minning:
Arnór Kr. Diego
Hjálmarsson fyrrv.
yfirflugumferðarstjóri
Fæddur 30. marz 1922
Dáinn 25. marz 1983
í dag er til moldar borinn Arnór
Kristján Diego Hjálmarsson, fv.
yfirflugumferðarstjóri. Hann
fæddist í Reykjavík 30. mars, 1922,
en lézt í Landspítalanum 25. mars
síðastliðinn, eftir skamma legu en
langvarandi vanheilsu. Arnór var
sonur hjónanna Hjálmars Diego
Jónssonar bakara, síðar fulltrúa
hjá Tollstjóra, og Halldóru Frið-
gerðar Sigurðardóttur. Þau voru
Vestfirðingar, en í æðum Hjálm-
ars rann suðrænt blóð sem leyndi
sér ekki í svip og skaphöfn hans.
Arnór ólst upp hér í Reykjavík
ásamt 8 systkinum. í þá daga voru
kjör fólks með öðrum hætti en nú
er og ekki allir hlutir sjálfsagðir.
Ánægja var af að hlýða á Arnór
rifja upp bernskubrek sín í leik og
starfi. Útsjónarsemi og frumleg
uppátæki skorti ekki, enda átti
hann þá, sem og ætíð, erfitt með
að sætta sig við að eitt eða annað
væri ekki hægt.
Þegar Arnór var 18 ára, blésu
skyndiiega nýir vindar inn yfir ís-
landsstrendur. Landið var her-
numið, þjóðin vaknaði og skynjaði
nálægð umheimsins. Nútíðin
hófst, fortíð var kvödd. Arnór
hafði þó alltaf verið vel vakandi og
hann vissi að nýr tími var hafinn.
Það sem áður var illmögulegt var
nú óhjákvæmilegt. Þau kaflaskipti
sem urðu í þjóðlífinu ýttu undir
áhuga Arnórs á tækniframförum,
fjarskiptum og flugsamgöngum.
Það var á þessum sviðum sem
hann haslaði sér völl í lífsstarfi
sínu.
Á stríðsárunum var Arnór við
nám og störf hjá breska flughern-
um, RAF. Jafnframt því lauk
hann prófi frá Loftskeytaskólan-
um. Á næstu árum jók hann veru-
lega við reynslu sína og þekkingu í
starfi sínu hjá íslenskum flug-
málayfirvöldum, og sótti einnig
framhaldsnám í flugumferðar-
stjórn í Bandaríkjunum. Ekki
ætla ég að telja upp öll þau trún-
aðarstörf sem Arnóri voru falin í
gegnum tíðina, en óhætt er að full-
yrða, að hann naut mikils trausts
hjá ráðamönnum íslenskra flug-
mála. Hann vann störf sín af alúð
og festu. Hann var virkur þátttak-
andi í uppbyggingu flugmála á fs-
landi. Arnór hafði óbilandi áhuga
og trú á flugævintýrinu.
Árið 1974 varð Arnór, aðeins
52ja ára, fyrir áfalli sem olli því
að hann þurfti að láta af störfum.
Þetta varð honum mjög þungbært,
ekki aðeins vegna þess að hann
var á besta aldri og varð að hverfa
frá lífsstarfi sínu, heldur miklu
frekar vegna þess að hann varð að
yfirgefa þann vettvang sem hafði
veitt honum svo mikla ánægju og
lífsfyllingu. Árin höfðu liðið fljótt.
Arnór hafði verið svo lánsamur að
vera hamingjusamur í starfi sínu.
Síðustu 9 æviárin gekk Arnór
því ekki heill til skógar. Batinn
var hægur, en þó miðaði áfram.
Hann gerði sér far um að njóta
tilverunnar þann tíma sem honum
var skammtaður, en hann vissi
fullvei að hvenær sem var gat
kallið komið. En kjarkur hans og
jákvætt lífsviðhorf, sem hann bjó
yfir í svo ríkum mæli, gerði hon-
um lífið léttara. Hver dagur var
honum ánægjuefni, hann sá ailtaf
ljósið. En kallið kom. Arnór
kvaddi, þreyttur á líkama, en
óhugaður í anda.
I dag reikar hugur minn, trega-
blandinn, yfir árin frá því kynni
okkar Arnórs hófust. Arnór var
um margt sérstakur persónuleiki.
í útliti bar hann ákveðið vitni suð-
ræns uppruna — ekki laust við
höfðinglegt yfirbragð. Hann var
glaðlyndur og jafnan léttur í
skapi, en undir niðri bjó vestfirsk
festa — geðríki notaði hann í
miklu hófi. Hann var umfram allt
jákvæður maður, laðaði fram góð-
ar hugsanir og hlýtt viðmót, leit-
aðist við að sjá það besta í fari
annarra og sá jafnan ljósu hlið-
arnar á lífinu. Hann naut þess að
vera til og ekki síður að vísa öðr-
um á birtuna. Arnór var svo sann-
ariega ljós- og gleðigjafi, hvar sem
hann kom.
Arnór var mjög félagslyndur
maður. Hann átti gott með að um-
gangast aðra og kunni vel við sig í
fjölmenni. Aldrei naut hann sín þó
betur en í hlutverki gestgjafans.
Gestrisni hans og örlæti var við-
brugðið. Það var alltaf opið hús
hjá Arnóri, og móttökurnar ætíð
innilegar. Allir sem vöndu komur
sínar á heimili Arnórs og hans
ágætu eiginkonu, Guðfinnu Vil-
hjálmsdóttur, eiga þaðan ljúfar
minningar um gleðskap og góðar
stundir. Arnór veitti, af rausn,
vináttu og veraldargæði. Það var
hans aðalsmerki.
Þrautseigja Arnórs hin síðari ár
vakti vaxandi aðdáun mína. Þegar
ég heimsótti hann í Landspítal-
ann, þar sem hann háði sitt loka-
stríð, varð mér ljósara en nokkru
sinni hugrekki hans og æðruleysi.
Það var mér gæfa að kynnast slík-
um manni. Ég er Arnóri eiiíflega
þakklátur fyrir örlæti hans, vin-
áttu og umhyggju fyrir okkur öll-
um.
Elskulega tengdamóðir, ég votta
þér innilega samúð mína.
Arngeir Lúðvíksson
f raðir frumherja íslenskra
flugmála eru nú höggvin skörð eitt
af öðru og nú síðast hverfur ágæt-
ur vinur og samstarfsmaður, Arn-
ór Hjálmarsson, fyrrum yfirflug-
umferðarstjóri, af sjónarsviðinu..
Kynni okkar Nóra, eins og hann
var oftast kallaður af vinum sín-
um, hófust snemma árs 1940 er
Svifflugfélag íslands sendi nokk-
urn hóp félaga sinna með flugsýn-
ingu til Akureyrar og var Arnór,
þá kornungur, einn í þeirra hópi.
Fljótt urðum við góðir kunn-
ingjar og skrifuðumst á um árabil,
m.a. naut ég gestrisni foreldra
hans að „Steinhólum", er ég dvaldi
í Reykjavík í nokkra daga árið
1941. Áhugamál okkar beggja var
flugið og að læra að fljúga var þá
draumurinn, sem mjög erfitt var
að láta rætast vegna fjárskorts. Á
þessum árum snemma í stríðinu
var það helst til ráða að ganga f
breska flugherinn og öðlast þann-
ig reynslu og þekkingu, reyndum
við Nóri það báðir, en það er önn-
ur saga.
Á árunum 1942—45 starfaði
Arnór sem loftskeytamaður á
fiski- og farskipum, en við lok
stríðsins opnuðust leiðir til starfa
að flugmálum, en með stofnun
embættis flugmálastjóra snemma
árs 1945, var brotið blað hvað
þetta snertir. Samningar voru
gerðir milli íslenskra og breskra
yfirvalda um afhendingu Reykja-
víkurflugvallar og þjálfun
starfsmanna flugmálastjórnar í
því sambandi. Arnór hóf störf á
Reykjavíkurflugvelli í byrjun
september 1945, fyrstur manna, í
flugturninum og við skyld störf.
Það var sérstaklega ánægjulegt
fyrir íslendinga að heyra íslenska
rödd í talstöð „turnsins" hljóma út
yfir völlinn þann 15. sept. 1945,
þ.e. „The Battle of Britain Day“,
en þá var almenningi leyft að
skoða þetta „stríðsmannvirki" í
fyrsta sinn. Röddin var Arnórs og
boðaði það að við íslendingar ætl-
uðum okkur að taka við rekstri
flugvallarins í framtíðinni, þrátt
fyrir allar hrakspár fjölmiðla og
ýmissa borgarbúa.
Við yfirtöku Reykjavíkurflug-
vallar starfaði Arnór sem flugum-
ferðarstjóri árið 1946 en eftir að
Keflavíkurflugvöllur var afhentur
íslenskum yfirvöldum seint á ár-
inu 1946, varð Arnór fyrsti flug-
vallarstjórinn þar suðurfrá, eða
þar tii á miðju ári 1947.
Eftir það starfaði hann við flug-
umferðarstjórn samfellt í nær
þrjátíu ár, lauk m.a. prófi frá
„flugháskóla" bandarísku flug-
málastjórnarinnar í Oklahoma
City, í flugumferðarstjórn og
skyldum fræðum og starfaði eftir
það í nokkurn tíma sem flugum-
ferðarstjóri fyrir vestan.
Árið eftir að hann kom frá
Bandaríkjunum tók hann við
starfi yfirflugumferðarstjóra
flugstjórnarmiðstöðvarinnar á
Reykjavíkurflugvelli og gegndi því
starfi til ársins 1976, er hann lét
af störfum af heilsufarsástæðum.
Auk þeirra starfa sem hér að
framan hefur verið getið, starfaði
hann sem kennari í flugumferðar-
stjórn, í blindflugi og fleiri tengd-
um greinum. Ýmis trúnaðar- og
félagsmálastörf voru honum falin,
enda maður traustur og duglegur.
Að leiðarlokum er margs að
minnast og margar ánægjustundir
átti maður í hans félagsskap, enda
mikill höfðingi heim að sækja. Ég
vil að lokum votta Guðfinnu og
börnunum dýpstu samúð okkar
hjóna.
Gunnar Sigurðsson
Foreldrar Arnórs voru þau
Hjálmar Diego Jónsson, bakari,
•gullsmiður og síðast fulltrúi toll-
stjóra í Reykjavík, og kona hans,
Halldóra Friðgerður Sigurðar-
dóttir.
Mikill höfðingi er látinn langt
um aldur fram. Arnór mun vera
með þeim fyrstu er undirbjó sig
fyrir það starf að gerast flugum-
ferðarstjóri er síðari heimsstyrj-
öldinni lyki, en Arnór hafði tekið
virkan þátt í starfi svifflugfélags-
ins, og mun að undirlagi þáver-
andi flugmálaráðunauts ríkisins,
Agnars Kofoed-Hansen, hafa tek-
ið loftskeytamannspróf. Loft-
skeytapróf þótti þá nauðsynlegt,
en til þeirra hluta varð að taka
gagnfræðapróf sem Arnór lauk
árið 1944. Hann hafði gengist und-
ir próf hjá brezka flughernum í
því skyni að gerast sjálfboðaliði í
hernum, en ekkert varð af því.
Arnór gegndi ýmsum störfum
hjá flugmálastjórninni, þ.á m. sem
flugvallarstjóri á Keflavíkurflug-
velli, unz hann gerðist flugum-
ferðarstjóri og síðar yfirflugum-
ferðarstjóri 1955.
Eg býst við að aðrir mér færari
taki sér penna í hönd og skýri bet-
ur frá starfi Arnórs á sviði flug-
umferðarstjórnar, en meiningin
var með þessum fáu línum að
minnast mannsins Arnórs,
óvenjulegs persónuleika, sem mér
er Ijúft að geta um hérna í nafni
mín og konu minnar.
Arnór var óvenjulegur persónu-
leiki, svo óvenjulegur að engum
líktist. Veitull var Arnór með af-
brigðum, og naut sín hvað best er
hann var veitandi. Eg kynntist
Arnóri náið og ég tel mig fremst-
an í hópi þeirra er kölluðu hann
vin sinn. í nokkurn tíma bjuggum
við saman í bragga úti á flugvelli
er við báðir vorum í húsnæðis-
vandræðum. Betra sambýlisfólk
get ég ekki hugsað mér. Stundum
kastaðist þó í kekki með okkur, en
þá var bara hellt upp á könnuna
og allt var gleymt.
Arnór vann mikið brautryðj-
endastarf á sviði flugumferðar-
stjórnar hér á landi, og sakir þess
að hann bjó á flugvellinum var
hann oft kallaður til er menn
vantaði og var þá ekki hugsað um
yfirvinnu eins og nú, en þetta var
ekki síst er slys urðu að dagur og
nótt runnu saman.
I einkalífi sínu var Arnór vel
giftur er hann gekk að eiga Guð-
finnu Vilhjálmsdóttur, en hún
hefur staðið dyggilega við hlið
manns síns og alið honum mann-
vænleg börn. Tveir synir Arnórs
vinna nú við flugumferðarstjórn
og feta dyggilega í fótspor hans.
Eftir því sem ég best veit var afi
Arnórs franskur skútuskipstjóri
sem oft kom við á Dýrafirði, hét
hann Jean Diego. Mikill höfðingi
hlýtur sá maður að hafa verið.
Hann mun hafa ætlað að taka
Hjálmar, drenginn sinn með sér
til Frakklands, en af því varð ekki
og ólst Hjálmar, faðir Arnórs, upp
í Dýrafirði. Ég býst við að Arnór
hafi sótt höfðingsskap sinn til afa
síns Jean Diego. Hefir Arnór skírt
sín börn eftir honum og má kann-
ast við ýms einkenni um höfð-
ingslund hjá börnum Arnórs.
I félagsmálum var Arnór góður
liðsmaður. Hann var einn af
stofnendum Kiwanis-hreyfingar-
innar hér á landi og tók virkan
þátt í Oddfellow-hreyfingunni á
meðan heilsa entist.
Ég læt hér staðar numið en vil
að endingu þakka vini mínum
Arnóri fyrir samfylgdina, við
lærðum ýmislegt hvor af öðrum,
eins og Arnór var vanur að segja.
Ég sakna hans mikið, en eitt sinn
skal hver deyja, það er alveg víst.
Arnór verður mér ávallt í minni
sem hinn síglaði höfðingi; hann
nýtur góðrar flugumferðarstjórn-
ar yfir móðuna miklu.
Guðfinnu og öllum ástvinum
Arnórs flyt ég hugheilar samúð-
arkveðjur frá mér og konu minni.
Sigurður Jónsson
Fallinn er frá, langt um aldur
fram, einn af brautryðjendum ís-
lenskrar flugumferðarstjórnar,
Arnór Hjálmarsson, fyrrverandi
yfirflugumferðarstjóri.
Arnór var einn af þeim íslend-
ingum er fyrstir hófu störf á
stríðsárunum hjá breska flug-
hernum í flugturninum á Reykja-
víkurflugvelli. Arnór og þeir
starfsbræður hans er byrjuðu um
líkt leyti, lærðu fyrst hjá Bretun-
um, en héldu síðan til Banda-
ríkjanna til náms í flugumferðar-
stjórn hjá flugmálastjórninni þar.
Voru þeir þar bæði við nám og
störf, en Bandaríkjamenn stóðu
þá tvímælalaust fremstir þjóða í
þessari ungu og lítt þekktu starfs-
grein sem flugumferðarstjórnin
var. Segja má, að þeir ungu menn
er þá tóku til starfa hafi lagt
hornsteininn að þeirri umfangs-
miklu starfsemi sem flugumferð-
arstjórnin á íslandi er í dag.
Framsýni og dugnaður þeirra
sköpuðu íslensku flugumferðar-
stjórninni það traust sem varð til
þess að nú er íslenska flugstjórn-
arsvæðið eitt það stærsta í heimi
og spannar yfir svæði er nær lang-
leiðina frá Noregs- og Skot-
landsströndum, suður fyrir Fær-
eyjar, norður á Norðurpól, yfir
Grænland og allt vestur að
ströndum Kanada.
Arnór varð vaktstjóri við flug-
stjórnarmiðstöðina í Reykjavík og
síðar fljótlega yfirflugumferðar-
stjóri Reykjavíkurflugvallar, út-
hafs- og innanlandsflugstiórnar,
auk björgunarmiðstöðvar. I störf-
um sínum sem yfirflugumferðar-
stjóri kom Arnór fram fyrir hönd
íslensku flugmálastjórnarinnar
við margvísleg tækifæri. Auk fjöl-
margra ráðstefna innanlands og
utan, átti hann mikil samskipti
við flugrekstraraðila, hernaðaryf-
irvöld, björgunar- og leitarsveitir,
flugmálastjórnir annarra ríkja,
auk fjölda stofnana og einstakl-
inga. Hjá öllum þessum aðilum
naut hann trausts og virðingar.
Einnig var hann vinsæll vegna
þeirra hæfileika, að hann kunni
vel að slá á létta strengi og gleðj-
ast í góðra vina hópi, að lokinni
önn dagsins. Átti hann þá til að
bregða á leik, sýndi sjónhverf-
ingar, dansaði steppdans eða sló
trommur.
Arnór var mjög sérstæður per-
sónuleiki, dökkur yfirlitum og suð-
rænn í fasi og hreyfingum. Höfð-
ingi var hann hinn mesti bæði í
orðum og athöfnum, hugsaði stórt
og allur kotungsskapur var honum
fjarri. í minnum eru hafðar höfð-
inglegar móttökur og veitingar á
heimili hans við mörg tækifæri.
Arnór vann störf sín sem yfir-
flugumferðarstjóri af dugnaði,
samviskusemi og útsjónarsemi.
Sem yfirmaður á vinnustað var
hann eins og að líkum lætur oft
umdeildur meðal sinna starfs-
manna. Hann gerði miklar kröfur
um að menn ræktu störf sín af
alúð og kostgæfni og væru helst
fullkomnir i störfum sínum. Ef
honum fannst út af bregða, var
hann ómyrkur í máli og hafði
stundum hátt. Hinsvegar varði
hann ávallt vel málstað sinna
manna útávið, ef honum fannst á
þá hallað, óverðskuldað.
Þegar ég kom til starfa við flug-
umferðarstjórnina í Reykjavík
fyrir nær átján árum, tók Árnór á
móti mér með vinsemd, fór með
mig um stofnunina og setti mig
síðan til náms og starfa. Þá og alla
tíð síðan reyndist hann mér vel,
þótt hann segði mér oft til synd-
anna, en sem yfirflugumferðar-
stjóri gegndi hann hlutverki upp-
alanda og læriföður er hann fékk
til starfa unga menn og óreynda.
Brýndi hann óspart fyrir mönnum
að vinnan væri númer eitt og ætti
alltaf að vera 1 fyrirrúmi. Síðar
skarst stundum í odda er við flug-
umferðarstjórar í krafti stéttar-
baráttunnar og með aukinni
flugumferð gerðum kröfur um úr-
bætur á vinnustað, fleiri menn á
vaktir og því um líkt. Þá var það
hans hlutskipti að gæta aðhalds
og sparsemi í rekstrinum og það
gerði hann svikalaust. Engu að
síður hélst fullur vinskapur og var
hann alltaf góður félagi.
Árnór varð fyrir því áfalli að
veikjast alvarlega árið 1974 og
leiddi sjúkdómurinn til þess að
hann varð að hætta störfum end-
anlega árið 1976. Ég veit, að árin
eftir það hljóta oft að hafa verið
honum ákaflega erfið. En aldrei
heyrði ég hann mæla æðruorð,
hann tók veikindum sínum með
karlmennsku, fann sér léttari
störf á öðrum vettvangi, sinnti
hinum margvíslegu áhugamálum
sínum og reyndi að njóta lífsins
eins og kostur var ásamt eigin-
konu sinni, Guðfinnu, sem stóð
eins og klettur með manni sínum
gegnum súrt og sætt.
Nú, þegar Arnór er allur, minn-
ist ég hans með hlýhug og þakk-
læti og sendi Guðfinnu, konu
hans, börnum þeirra og fjölskyldu
hans allri innilegustu samúðar-
kveðjur og bið Guð að veita þeim
styrk í sorginni.
Sigurjón G. Sigurjónsson
Vorið 1946, fyrir tæpum 37 ár-
um, er ég hóf störf hjá Flugmála-
stjórn íslands, eru mér minnis-
stæð fyrstu kynnin við vörpulegan
mann, þéttan á velli og þéttan í
lund, óvenju suðrænan útlits og
með virðulegt og athyglisvert
skegg. Hann vakti athygli hvar
sem hann fór og ekki síður er í ljós
kom við nánari kynni, að hann
hafði til að bera óbugandi sjálfs-
traust og afburða frásagnargáfu
og fór þar svo sannarlega á kost-
um er honum tókst best upp.
Þetta var Arnór Kristján Diego
Hjálmarsson, einn af frumherjum
flugumferðarstjórnar á íslandi og
sá sem fyrstur manna hóf nám í
þeirri grein hér á landi, hjá Eng-
lendingum á Reykjavíkurflugvelli,
haustið 1945.
Arnór fæddist í því sögufræga
Unuhúsi við Garðastræti í
Reykjavík hinn 30. mars 1922 og
var því aðeins tæplega 61 árs er
hann hvarf okkur yfir móðuna
miklu. Sitt suðræna útlit fékk
Arnór frá föður sínum, Hjálmari
Diego bakara, gullsmið og síðast
lengi fulltrúa hjá Tollstjóraemb-
ættinu í Reykjavík, sem fæddur
var að Þingeyri við Dýrafjörð, og
föðurafanum Jean Diego, fæddum
í Frakklandi, af fransk-spænskum
ættum, en fluttist til Bandaríkj-