Morgunblaðið - 13.04.1983, Page 25

Morgunblaðið - 13.04.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983 73 í< lk í fréttum George Boy hefur engan tíma fyrir hitt kynið + „Ég er svo miklu fallegri með farö- ann,“ segir söngvarinn George Boy en hann kemur aldrei svo fram, aö hann sé ekki málaöur og makaöur í bak og fyrir. Auk þess er hann oft í fötum, sem mörgum þykja dálítiö kvenleg, eins og t.d. æpandi rauöum morgunslopp. „Fólk er alltaf aö spyrja mig alls kyns spurninga um kynlíf mitt og þaö þótt óg sé bara klæddur í venjuleg föt. Annars er kynhegöun manna svo persónu- bundin og ég hef satt aö segja engan tíma fyrir þess háttar,“ segir George. George segir, aö klæönaöurinn og framkoma hans hafi ekkert aö gera meö vinsældirnar. „Do you really want to love me“ heföi t.d. aldrei komist á toppinn ef þaö heföi ekki veriö reglu- lega gott lag. George Boy og hljómsveit hans, Culture Club, vinna nú aö gerð stórrar plötu en stöan ætla þeir aö leggja upp í hljómleikaferöalag um heim allan og ekki koma heim fyrr en einhvern tíma fyrir næstu jól. + Jerry Lewis er nú genginn í þaö heilaga meö flugfreyjunni Sandra Pitnik eins og raunar þegar hefur veriö sagt frá. „Hún bjargaöi lifi mínu,“ segir Jerry, „meö því aö koma mér strax á sjúkrahús þegar ég fékk hjarta- áfall. Þegar ég vaknaöi upp eftir aðgeröina var þaö mitt fyrsta verk aö biöja hennar." Þau hjón- in ætla til Cannes í næsta mán- uöi til aö vera viöstödd kvik- myndahátíöina þar, en fyrsta myndin, sem þar veröur sýnd, er „Konungur gamanleiksins" þar sem Jerry leikur á móti Robert de Niro. Vantar þig kápu eða frakka Nú eru sumarvörurnar komnar. Léttar sumarkápur. Rykfrakkar. Regnfrakkar. Jakkar. Stæröir 34—36. Póstsendum. Sími 13300. lyrnFDK Laugavegi 26. Blaöburöarfólk óskast! Úthverfi Langholtsveg 151—208 Austurbær Lindargata 39—63 Skipholt 1—50 Laugaveg 101 — 171 SPUNNIÐ UM STALÍN eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN Víst ertu njósnari, þú njósnaðir fyrir óvinaríki. Þýzka- land. Ég hef aldrei verið njósnari, þetta er allt eintómur tilbúningur. Þetta er ráðabrugg, samsæri. Ég trúi ekki, að félagi Stalín standi á bak við þetta. Það stendur enginn á bak við þetta nema þín eigin sviksemi. Þú veizt þú lýgur, þú stóðst ásamt hinum fyrir morðinu á Kíroff. Yfirheyrslur hafa sýnt það og sannað. Ég hef enga hugmynd um morðið á Kíroff. Ég vissi ekkert um það, fyrr en það var afstaðið. Þið vitið það sjálfir. Ég er saklaus. Þetta er hryllilegt. Eins og út úr Þúsund og einni nótt. Þú ert ekki saklaus. Þú lýgur. Þú ert fulltrúi erlends valds. Þú hefur unnið gegn föðurlandi þínu. Þú lézt myrða Kíroff. Þú hefur unnið þér til óhelgi. Játaðu! Nei, ég játa ekki, þetta er allt lygi. Stóðstu ekki í bréfaskriftum við Kamenev? Jú. Þarna sérðu, hann hefur játað. Játað, játað hvað? Hann hefur játað. Og það er nóg! Nei, það getur ekki verið. Játað, að þið genguð erinda erlends ríkis. Þið njósnuð- uð um ykkar eigið fólk. Þið höfðuð jafnvel í hyggju að myrða félaga Stalín. Þið selduð ríkisleyndarmál í hendur óvinum ríkisins. Þið bunduzt samtökum um að hrifsa til ykkar völdin. Zinoviev örmagnast. Það er eins og hann sé að gefast upp, þegar hann segir lágum rómi: Þetta er allt tómur þvættingur. Þetta er jafn fjarstæðukennt og frásagnir biblíunnar. Já, þarna kom það, segir Yagoda, biblíunnar! Þið notuðuð lykilorð úr biblíunni. Dulmál ykkar voru tilvitnanir í biblíuna. Skriðkvikindi eins og þið notið hana til skítverka, það hæfir. Ha, biblíuna? Hvað ertu að tala um? Ég sagði að — Já, þú sagðir, að þið hefðuð notað biblíuna, grípur Yagoda sigri hrósandi fram í fyrir Zinoviev. Það kemur heim við játningar Kamenevs. Hann hefur afneitað þér. Zinoviev gefst upp: Afneitað mér? Bilbíuna? Ég á skilið þyngstu refsingu. Fylgismaður Zinoviev er trotský- isti. Og trotskýisti er fasisti. Nú brosir Yagoda með sjálfum sér. Hann sigraði í þctta skipti. Hann kom sigri hrósandi með játninguna til Stalíns. Bravó, félagi! sagði Stalín og faðmaði hann að sér. Og þeir fengu sér í glas saman. Það var gott kvöld. Einhver dýrmætasta minning, sem Yagoda á úr lífi sínu. En svo kom reiðarslagið. Og hann hugsar um það, ekki síður. 11 agoda stendur upp og gengur um gólf í fangaklef- anum, hristir höfuðið. Jú, ætli hann muni það ekki! Eða þegar Stalín lét koma með Kamenev og Zinoviev úr Lúbjanka-fangelsinu, og lofaði þeim, að þeir yrðu ekki teknir af lífi, ef þeir játuðu. Hann kom með þá á fund Stalíns í skrifstofu hans í Kreml. Voroshiloff var viðstaddur. Því gleymir Yagoda ekki. Voroshiloff og Yeskov, auðvitað! Þú verður ekki með neitt múður, hafði Stalín sagt við Yagoda. Múður? hafði hann svarað, það er það síðasta sem mér dytti í hug. Hann vissi, hvað var í aðsigi. Hann fann byssukjaftinn undir herðablaðinu og reyndi að komast hjá að fá kúlu í bakið. En það ætlaði augsýnilega að mistakast. Hann þekkti kerfið öðrum mönnum betur. Slíkur maður múðrar ekki, svo mikið var víst. Nú dettur honum einna helzt í hug, að hann hafi verið settur yfir drullupoll og í þessum polli er ekki annað en pöddur. Hann er settur til höfuðs pöddunum og þeim tekur að fækka. En svo kemur að honum sjálfum að lifa pollinn af. Hann minnist þess nú, að hann hafði komizt FRAMHALD

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.