Morgunblaðið - 03.05.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983
23
Stuttgart olli vonbrigðum
og átti aldrei möguleika
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni,
fréttamanni Mbl. í Hamborg:
ÞRJÁTÍU og þrjú þúsund áhorf-
endur voru mættir á Volkspark
Stadion til að horfa á viðureign
Hamburger og Stuttgart i Bund-
esligunni á laugardag. Mjög gott
veður var á meðan leikurinn fór
fram; 15 stiga hiti og logn.
Þaö kom fram strax í upphafi
leiksins aö liö Stuttgart, meö sex
framsækna leikmenn, virtist ætla
aö taka litla áhættu í leik sínum.
Liöiö lék mjög vel skipulagöan
varnarleik og virtist ætla aö reyna
aö halda ööru stiginu í leiknum.
Eftir rólegar þreifingar á báöa
bóga fyrstu 20 mínútur leiksins þar
sem lítil hætta skapaöist, fóru
leikmenn Hamborgar aö gera sér
grein fyrir því aö mótstaöan var
minni en þeir höfðu gert ráö fyrir
og tóku þeir þá leikinn í sínar
hendur.
Á 21. mínútu átti Jakobs stór-
hættulegan skalla aö marki Stutt-
gart en Gruniger varöi val. Tveimur
mínútum síðar var Kaltz brugöiö
illa inn í vítateig og bjuggust flestir
viö vítaspyrnu, en dómarinn
dæmdi ekkert.
HSV — Stuttgart
2:0
Á 25. mínútu átti Hamborg sitt
besta marktækifæri í fyrri hálf-
leiknum. Hartwig átti þrumuskalla
af stuttu færi en Gruniger varöi
meistaralega vel.
Hamborg tókst ekki aö skora í
fyrri hálfleiknum þrátt fyrir nokkra
pressu. Vörn Stuttgart meö þá
Förster-bræöur sem sterkustu
menn lék mjög vel. Stuttgart átti
fáar sóknir í fyrri hálfleiknum og
sér í lagi voru framlínumenn liösins
daufir, og bitlausir. Staöan i hálf-
leik var því 0—0.
Leikmenn Hamborg réöu lögum
og lofum á vellinum í síöari hálf-
leiknum, og lá mark þeirra í loftinu.
Þaö kom svo á 58. mínútu. Thom-
as Von Heesen náöí aö pota bolt-
anum í netiö eftir hornspyrnu.
Frekar ódýrt mark og nokkur
heppnisbragur á því. Mínútu áöur
en markið kom var greinilegri víta-
spyrnu sleppt. Rolff var brugöiö
inn í vítateig Stuttgart og ekkert
annaö en víti var hægt aö dæma,
en dómaranum yfirsást illa. Þegar
brotiö var sýnt hægt í sjónvarpinu
eftir leikinn voru allir á einu máli
um aö um víti var að ræöa.
Síðara mark Hamborg skoraöi
svo miöjuleikmaöurinn Felix Mag-
ath sem var besti maður vallarins.
Á 67. mínútu fókk hann góöa
sendingu og afgreiddi boltann
viöstööulaust meö miklu þrumu-
skoti meö vinstra fæti beint í netiö.
Þaö veröur aö segjast eins og er
aö lið Stuttgart olli miklum von-
brigöum í þessum leik. Leíkmenn
virtust bera mikla viröingu fyrir
mótherjum sínum og náöu aldrei
aö skapa sér verulega hættuleg
marktækifæri. Var mikill munur á
liðunum í þessum leik. Ásgeir Sig-
urvinsson náöi sér ekki á strik í
leiknum frekar en aörir. Hann vann
mjög vel á vellinum en góöar
sendingar hans til framherjanna
fóru flestar forgörðum, þar sem illa
var unnið úr þeim. Ásgeir fær 4 j
einkunn í þýsku blööunum eftir
leikinn, sem er ekkert sérstakt.
Sagt eftir leikinn:
„Með þessum ósigri höfum
við misst af meistaratitlinum"
— sagði Benthaus þjálfari Stuttgart
Frá Jóhanni Inga
Gunnarssyni, Hamborg:
Á BLAÐAMANNAFUNDI eftir leik
Hamborg og Stuttgart höföu
þjálfarar liöanna þetta aö segja
um leikinn og leikmenn sína;
Benthaus þjálfari Stuttgart:
— Meö þessum ósigri höfum
viö misst af lestinni og eigum viö
nú ekki lengur neina möguleika á
meistaratitli í „Bundesligunni“ í
ár. Þaö er mér mikið áhyggjuefni
hversu illa okkur gengur í mikil-
vægum leikjum í deildarkeppn-
inni. Við höfum verið í fremstu
röö og átt góöa möguleika á
efsta sætinu en þegar kemur aö
stórleik, þá missum viö flugið og
náum okkur ekki á strik.
— En nú stefnum vlö á það
eitt aö tryggja okkur sæti í Evr-
ópukeppninni fyrir næsta keppn-
istímabil.
Ernst Happell þjálfari Hamburg:
— Liö Stuttgart lék mjög
skipulega í þessum leik, en ég
átti von á meiri mótspyrnu þar
sem þetta var þeirra síðasta
hálmstrá til aö vinna titilinn í ár.
Vörn liösins var sterk, en í þess-
um leik voru leikmenn Hamburg-
er þeim fremri á öllum sviöum
. knattspyrnunnar og veröskuld-
uðu sigur. Viö erum á réttri leiö
og munum berjast af fullum krafti
til þess aö verja titilinn í ár og
jafnframt stefnum viö aö sigrl í
Evrópukeppni meistaraliöa í
Aþenu.
• Ernst Happell þjálfarí Ham-
burger er ánægður með sina
menn.
• Benthaus þjálfari Stuttgart
hefur áhyggjur af því hversu illa
lið Stuttgart leikur í míkilvægum
leikjum deildarkeppninnar.
• Rudi Völler skoraði þrjú mörk gegn Fortuna DUsseldorf og er nú
markahæsti leikmaðurinn (1. deild í V-Þýskalandi — hefur skoraö 23
mörk. Völler hefur fengið gífurlega há tilboð frá liðum á Ítalíu og ekki
er ólíklegt aö hann leiki þar innan fárra ára ef fer sem horfir.
• BurgsmUller ásamt eiginkonu sinni og börnum. Hann er einn af
markahæstu leikmönnum f þýsku „Bundesligunni“. Hvað tekur nú
viö hjá honum?
Staóaní
Þýskalandi
Staten í 1. deild í V-Þýskalandi
Hamburger SV
Werder Bremen
Bayern MUnchen
VFB Stuttgart
1. FC Köln
1. FC Kaiaeralautern
Borussia Dortmund
Eíntracht Frankfurt
1. FC NUrnberg
Arminia Bielefeld
UFL Bochum
Braunschweig
Fortuna DUaseldorf
Mönchengladbach
Bayer 04 Leverkusen
Hertha BSC Berlin
Karlsruher SC
Schalke 04
29 16 11 2 66:28 43
29 19 5 5 63:34 43
29 16 9 4 67:23 41
28 15 7 6 64:38 37
29 14 9 6 60:35 37
29 12 12 5 49:35 36
29 15 5 9 64:44 35
29 11 5 13 43:42 27
29 10 6 13 39:57 26
28 10 5 13 37:57 25
29 7 11 11 33:41 25
29 7 10 12 32:51 24
29 8 8 13 47:70 24
29 9 4 16 48:51 22
29 7 8 14 35:59 22
29 5 9 15 35:52 19
29 6 6 17 34:73 18
29 5 6 18 37:63 16
• Karl-Heinz Feidkamp sem rekinn var frá Borussia Dortmund. Þar
fékk hann 18.000 mörk í laun á mánuði, en nú hefur hann tekið viö
þjálfum Armenia Bielefeld, þar sem hann fær 12.000 mörk á mánuði.
Dortmund þurfti aö greiöa honum 100.000 mörk til aö láta hann hætta
hjá félaginu.
„Rekið stjórnina"
hrópa áhorfendur
ÞAD gengur afar illa hjá liöi
Borussia Dortmund um þessar
mundir í 1. deild. Eftir aö liöið
rak þjálfara sinn Karl-Heinz
Feldkamp, hefur allt gengið á
afturfótunum og liöið á nú litla
sem enga möguleika á aö ná
sæti í Evrópukeppni næsta ár.
Þá hefur fyrirliöa liðsins og ein-
um besta manni þess um langt
árabil, Manny BurgsmUller, ver-
ið vikið úr liöinu þar sem hann
setti sig mjög upp á móti
stjórninni en þjálfarinn Feld-
kamp var rekinn. Nú er Burgs-
múller til sölu hjá liðinu fyrir aö-
eins 200 þúsund mörk. Burgs-
mUller hefur fengið lögfræöing í
lið með sér og heimtar að fá aö
spila en um síöustu helgi var
hann ekki einu sinni á bekkn-
um. Hann fær ekki aö mæta á
æfingar. BurgsmUller ætlar sér
að stefna stjórn félagsins fyrir
vinnubrögöin gagnvart sér. Á
meöan á öllu þessu stendur
hrópa áhorfendur á leikjum fé-
lagsíns í stórum kór: „Rekiö
stjórnina, viö viljum BurgsmUII-
er.“