Morgunblaðið - 03.05.1983, Page 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983
Reglur um hunda-
hald í Kópavogi
eftir Einar I. Sigurðsson
I Morgunblaðinu þann 28. apríl
sl. gefur að líta eftirfarandi:
Reglum um hundahaid í Kópavogi breytt: I
Lífið ánægju-
legra að vera
með hund í leyfil
- segir Einar Sindrason læknir
Síðar segir blaðamaður orðrétt:
„Kópavogsbær hefur nýlega gef-
ið leyfi fyrir þeim hundum sem í
bænum voru í febrúarmánuði
sl., en bannað hundahald að
öðru leyti."
Og síðar segir Einar Sindrason,
læknir:
„ ... og mér finnst eðlilegt, að ef
maður ætlar að eignast hund
(undirstrikun mín), sem er mik-
ill ábyrgðarhluti og mikið fyrir
því að hafa, að maður borgi sín-
ar tryggingar .., “
Að gefnu þessu tilefni er rétt að
benda Einari Sindrasyni lækni og
öllum öðrum á það að samkvæmt
þessum nýju reglum um hunda-
hald í Kópavogi, sem settar eru í
samræmi við vilja meirihluta
Kópavogsbúa að lokinni könnun í
kosningum í maí 1982 og heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið hefur nú staðfest og tóku
gildi 7. apríl sl., er MEGINMÁLIÐ
í þeim að HUNDAHALD er
BANNAÐ í lögsagnarumdæmi
Kópavogs og þess vegna er ekki
um það að ræða að menn eignist
nýja hunda í Kópavogi, en Bæjar-
stjórn Kópavogs getur þó veitt
undanþágu frá banni þessu í eftir-
greindum tilvikum.
a) Ef eigandi lögbýlis sækir um
leyfi til að halda hund vegna
búreksturs.
b) Ef lögreglustjóri og/eða hjálp-
arsveitir sækja um leyfi til að
halda hund vegna gæslu og/eða
björgunarstarfa.
GloRÍAV\i\dERbilr
Stretch gallabuxur
hæfaþér
Gloria Vanderbilt stretch-gallabuxur
eru ólíkar öörum gallabuxum. — Sniön-
ar fyrir konur. Þær eru því sér-
saumaðar fyrir þig. Cosmopolitan —
Which og New York Magazine hafa
kosið Gloria Vanderbilt-buxurnar þær
beztu á markaðinum.
Þessar frábæru gallabuxur fást
hjá:
ASSA, Laugavegi 118.
Gullfoss, Miöbæjarmarkaðinum.
Parið, Akureyri.
Einar I. Sigurðsson
c) Ef blindir menn sækja um leyfi
til að halda hund sér til leið-
sagnar.
d) Ef fyrir liggur umsögn heilsu-
gæslulæknis í Kópavogi og fé-
lagsráðgjafa Kópavogs um það,
að nauðsynlegt sé fyrir ein-
stakling að halda hund vegna
sérstakra læknisfræðilegra og
félagslegra ástæðna.
Og ef leyfi er veitt samkvæmt
þessu þá er það með ströngum
skilyrðum og ákvæðum um refs-
ingar fyrir brot á þeim. Þessi und-
anþáguheimild er svipuð því sem
var í áðurgildandi samþykkt um
bann við hundahaldi f Kópavogi
frá árinu 1975, en frá þeim tíma
og þar til nú hafa aðeins verið
veitt 5 undanþáguleyfi.
Þeir sem ekki hafa fengið slíkt
undanþáguleyfi og eru með hunda
nú eru brotlegir samkvæmt regl-
um um hundahald í Kópavogi.
Varðandi alla þessa óleyfilegu
hunda í lögsagnarumdæmi Kópa-
vogs, var sett sérstök viðbót við
þessar nýju reglur um bann við
hundahaldi í Kópavogi, sem er:
Akvæði til bráðabirgða, en þar segir
svo í 1. lið:
„1) Allir óleyfilegir hundar sem
voru í lögsagnarumdæmi
Kópavogs 11. febrúar 1983,
skulu fá að vera áfram svo
lengi sem þeir lifa, enda skal
færa þá alla til skráningar
strax og eigi síðar en mánuði
eftir að samþykkt þessi tekur
gildi og hefur verið auglýst
með venjulegum hætti. Að
þeim tíma liðnum verður farið
með alla óskráða hunda skv. 6.
gr. samþykktarinnar."
Hér er þessvegna ekki um það
að ræða að veita ný leyfi fyrir
hundum heldur einungis sagt að
þeir fái að vera áfram svo lengi
sem þeir lifa og eru ströng skilyrði
fyrir þvi framhaldslífi ásamt
gjaldsetningu, enda er hugmyndin
sú með gjaldsetningunni að eig-
endur þessara hunda standi undir
öllum kostnaði, sem af tilvist
þeirra verður, eftirliti o.fl., en sá
kostnaður falli ekki á hinn sam-
eiginlega bæjarsjóð eða m.ö.o. á þá
þegna Kópavogs sem virt hafa
reglur um bann við hundahaldi í
Kópavogi.
Álla þessa hunda skal færa til
skráningar strax og boðað er, en
það verður gert með sérstöku
dreifibréfi, sem borið verður í
hvert einasta íbúðarhús í Kópa-
vogi nú á næstunni, ásamt þessum
nýju reglum. Þeir sem ekki hafa
komið með hunda sína til skrán-
ingar og annarra athugana innan
mánaðar frá dagsetningu dreifi-
bréfsins — skulu vera við því bún-
ir að ákvæðum 6. gr. samþykktar-
innar verði beitt með fullum
þunga, en hún hljóðar svo:
„6. gr.
Óleyfilegir hundar skulu teknir
hvar sem til þeirra næst og þeir
færðir í sérstaka hunda-
geymslu, sem starfrækt er á
vegum bæjarins eða í samstarfi
við nágrannasveitarfélög. Þar
skulu hundarnir geymdir í allt
að því hálfan mánuð, meðan eig-
endum er gefinn kostur á að
koma þeim fyrir til frambúðar
utan Kópavogs. Kostnaður við
töku og geymslu hundanna skal
að fullu greiddur af eigendum.
Hirði eigendur óleyfilegra
hunda ekki um að koma þeim í
vörslu utan Kópavogs innan
hálfs mánaðar frá að þeir eru
teknir, né greiði af þeim áfall-
inn kostnað, skulu hundarnir
aflífaðir."
Ennfremur er að finna í reglun-
um ákvæði um að ráða sérstakan
starfsmann til þess að annast
framkvæmdina á þeim og einnig
um mikilvægan þátt lögreglunnar
í Kópavogi við framkvæmd sam-
þykktarinnar.
Með þessum nýju reglum um
hundahald er Bæjarstjórn Kópa-
vogs, í samræmi við vilja meiri-
hluta íbúa Kópavogs, einhuga um
að koma lagi á þessa hluti í lög-
sagnarumdæmi Kópavogs — á
mannúðlegan hátt.
Með þökk fyrir birtinguna.
Einar I. Sigurdsson er fram-
kræmdastjóri heilbrigðiseftirlits
Kóparogs.
Hitlersdagbækurnar
falsaðar segir TASS
Mo.skvu, 30. aprfl. AP.
SOVÉZKA fréttastofan TASS lýsti í
dag dagbókum þeim, sem eignaðar
hafa verið Adolf Hitler, sem „auvirði-
legum folsunum", er ætlað væri að
efla fasisma. Eru þetta fyrstu opin-
beru viðbrögðin f Sovétríkjunum
gagnvart þessum umdeildu dagbók-
um. „Lýðræðissinnað fólk f Vestur-
Þýzkalandi lítur á birtingu þessara
auvirðilegu falsana sem grófa póli-
tíska ögrun,“ segir TASS.
Ýmsir vestur-þýzkir og brezkir
sagnfræðingar og skjalafræðingar
hafa dregið það í efa, að dagbæk-
urnar væru ófalsaðar og hafa sum-
ir þeirra komið fram með þá til-
gátu, að þær væru falsaðar að und-
irlagi kommúnista. Tímaritið
Stern, sem hóf birtingu dag-
bókanna, hefur hafnað tilmælum
um að láta nefnd sérfræðinga frá
nokkrum þjóðum rannsaka þær og
heldur því fram, að allt sem unnt
er hafi verið gert til þess að ganga
úr skugga um sannleiksgildi bók-
anna.
NÚNA Á APfílí. TOLLGENGI
AMERICAN
EAGLE4X4
EGILL.
VILHJALMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, s. 77200 og 77202
Stórkostlegur bíll sem nýtur sín
jafnt innanbæjar sem til fjaUa.
American Eagle 4X4 fyrir þá sem
vilja bíl fyrir islenskar aöstæðux.
Vegna sérstakra samninga við
verksmiðjumar, getum við boðið
takmarkað magn af Eagle 4x4
árg. 1982, á sérstöku af-
sláttarverði.
AMC-Eagle 4x4
:lli