Morgunblaðið - 03.05.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983
45
■■ jjt
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS „ „
eMtffiUUulfcifcJyouÁiL
Enn um Byggingarfé-
lag verkamanna og
Byggingarfélag alþýðu
Bjarni G. Tómaason skrifar:
„Velvakandi.
Það er deginum ljósara, að þeim
fjölgar frekar en fækkar, sem ráðsk-
ast vilja með íbúðir félagsmanna í
Byggingarfélagi verkamanna og
Byggingarfélagi alþýðu. Flokkarnir
tveir, annar að öllu leyti, hinn með
nokkra hvítflibba innan sinna vé-
banda, líta íbúðirnar sem gullkistu.
Og í kringum vafurlogann af gullinu
dansa þeir stríðsdans um „eignir"
farlama gamalmenna og fátæklinga,
þrátt fyrir að þetta sé ekki fjárhyggja
í þeirra hugskoti; aðeins litið á þetta
af þeirra hálfu sem algert réttlætis-
mál. Þessir ráðleysingjar eru að
þreifa fyrir sér með það, hvernig best
sé að hafa af þessu aldraða og fátæka
fólki. Þá órar ekki fyrir því, þessa
herra, að þetta á eftir að verða þeim
ásteytingarsteinn og hneykslunar-
hella. Þessir alþýðuvinir vilja um-
fram allt sýna því fólki, sem ekki er
fært um að bera hönd fyrir höfuð sér,
hvernig dæmalaus og siðlaus lítils-
virðing fyrir lýðræðinu og hefðum
þess á að líta út á spjöldum sögunnar.
Það mætti ætla að hugmyndaflug
þeirra manna, sem vinna hjá þvl
opinbera, væri það fjörugt, að miða
mætti við annað og meira en bygg-
ingu verkamannabústaða og bygg-
ingar, sem reistar eru fyrir lán fyrir
Húsnæðismálastofnun. Danir byggja
íbúðir til leigu á samvinnugrundvelli.
Leigjendur greiða fyrir inngöngu í fé-
lagið til þess að fá íbúð. Um leið og
flutt er inn greiða leigjendur það sem
áætlað er að viðhaldið kosti þegar
íbúðinni er skilað. Að lokum er gerð-
ur leigusamningur um mánaðar-
greiðslur. Þessum ibúðum fylgja öll
rafmagnsáhöld fyrir eldhús, stórt og
fullkomið þvottahús, öll sameiginleg
garðvinna, auk þessa allur snjó-
mokstur um allt hverfið að vetri til.
Hvað gerir allaballaauðvaldið hér og
hvítflibbarnir í hinum flokknum. Það
er gerður kaupsamningur við fólkið,
veðdeildin skal greidd á 42 árum, þá
er veitt afsal og fólk þinglýsir sér
sína prívat „eign“, en á ráðstöfunar-
réttinum sitja alþýðuvinirnir fast.
Byggingarfélag verkamanna var
stofnað til styrktar eignalausu fólki,
enginn mátti hafa meira en Dags-
brúnarlaun. Félagið hefur nú alger-
lega snúist gegn fólkinu, og upphaf-
lega meiningin með byggingum úr
Byggingarsjóði verkamanna er flogin
út í veður og vind. Ibúðir, sem byggð-
ar eru fyrir lán úr sjóðnum í dag,
standa opnar t.d. fyrir hjón, sem eru
á háum launum hjá því opinbera.
Þetta var ekki til staðar fyrr á árum.
Á sama tíma er aldrað fólk, sem hef-
ur átt íbúðirnar I 43 ár, látið greiða 5
og 6 hundruð kr. á mánuði, eða 6 og 7
þúsund kr. á ári af ellilaununum, sem
eru algerir blóðpeningar og oftast
greiddir fyrir ekki neitt. Þannig fer
allaballaauðvaldið að því að sýna
fólkinu hvernig það er að búa undir
ráðstjórn.
Hér þarf að grípa rækilega í taum-
ana. Það á ekki að miða við það hvað
fólk hefur átt íbúðirnar í mörg ár.
Með því gengur dæmið aldrei upp.
Það á að miða við að veðdeildin hafi
verið greidd, að engin skuld hvíli á
eigninni. Þar með á ráðstöfunarrétt-
urinn að fylgja og allar kvaðir að af-
skrifast.
Háttvirtur félagsmálaráðherra átti
að sýna manndóm í þessu réttlætis-
máli og leysa átthagafjötrana af fólk-
inu, veita því ráðstöfunarréttinn yfir
sinni prívat „eign“. En allaballaauð-
valdinu þykir betra að herða fjötrana
og brjóta í smælki samhjálp fátækra
' byggingarmálum, með aðferðum,
sem hafa reynst ráðleysa.
Islendingar eiga að snúa sér að öðr-
um verkefnum, sýna dáð sem tekið
verður eftir. Þeir eiga að banna vísi-
töluna. Taka upp skattalögreglu, sem
leitar að fjármagni, er aldrei hefur
verið skattlagt. Vinna haldgóð efni úr
því sem keyrt er í tonnatali á ösku-
haugana. Síðast en ekki síst á Reykja-
vík að vera í forustu með það að
leggja leiðslur meðfram ströndinni og
veita í þær frárennsli borgarinnar,
svo að það megi hreinsa næst þvi að
verða drykkjarvatn. Orkuna má fá úr
úrganginum. Það sem umfram er af
orku getur veitt ljósi og yl inn á fátæk
heimili. Ég veit að það yrðu þúsund
hendur á lofti til þess að vinna að
þessu í sjálfboðavinnu, af fólki, sem
er að leggja verk úr hendi sökum ald-
urs. Hrein að þessu leyti yrði Reykja-
vík, heilbrigð og fögur borg í hugum
fólks. Sláið skjaldborg um þetta,
maður við mann, en hættið að ráðast
á eignir gamla fólksins, sem ekki get-
ur borið hönd fyrir höfuð sér. Það er
kjarni málsins.
Að lokum vil ég hvetja alla, sem
geta fallist á þessi sjónarmið mín,
hvað snertir ráðstöfunarréttinn og
algert eignarhald á ibúðunum, að
sameinast í allsherjar félagsskap inn-
an Byggingarfélags alþýðu og Bygg-
ingarfélags verkamanna, jafnvel um
allt land. Gleðilegt sumar."
óskir í ljós, sem ég tel að eigi að
vera óumdeilt og sjálfsagt. Þá
komu fram endurteknar óskir um
að fella niður tóna samhliða töl-
uðu máli. En svarið sem hlustend-
ur fengu hjá einum stjórnanda
þess þáttar var þetta: „Kemur
ekki til rnála."
Laugardaginn 5. febrúar sl., eða
tveimur dögum seinna, var fluttur
í útvarpinu þátturinn „Óskalög
sjúklinga". Stjórnandi þess þáttar
sagði eftirfarandi við hlustendur
sína (sem í báðum tilfellum eru
„allir" landsmenn); „Ef eitthvað
hefur fallið niður af því sem þið
hafið beðið mig um að flytja, þá
látið mig vita, því að þetta er ykk-
ar þáttur."
Utvarp Reykjavík. Vinsamlega
skerðið ekki þennan eina þátt í út-
varpinu, þar sem sjúklingar eiga
kost á að koma vinarkveðjum til
skyldra eða vandalausra. Kaup-
menn mega ekki og eiga ekki að
sitja í fyrirrúmi með auglýsingar,
eins og glögglega varð vart fyrir
jólin og oft hefur áður átt sér stað.
Með þökk fyrir.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Englendingar og Argentínumenn skutu á
stöðvar hvors annars.
Rétt væri: ... skutu hvorir á stöðvar annarra.
Chrysler Windsor 1947
Af sérstökum ástæöum er til sölu
einn af glæsilegustu fornbílum
landsíns.
Þeir sem áhuga hafa vinsamlega
sendiö nafn og símanúmer til
auglýsingadeildar Morgunblaðsins
merkt: „Chrysler — 182“.
Aldrei fyrr
höfum viö flutt inn eins falleg og vönduö
v-þýsk hjólhýsi.
Hjolhysiri eru komin til landsins og meira
fáum viö ekki í sumar.
Gisli Jonsson & Co. hf
Sundaborg 41, sími 86644.
Spánn — Portúgal
Vekjum athygli á því aö í maí mun m.s. Múla-
foss lesta á Spáni og í Portúgal sem hér segir:
Tarragona 9—10/5
Barcelona 11/5
Lissabon 14/5
Leixoes/Oporto 16/5
Bilbao 18/5
Þeir viöskiptavinir sem óska eftir
vörum í skipiö hafiö samband viö
ingadeild Eimskips.
EIMSKIP
GJAFAVÖRUVERSLUNIN
ELEGANT
SILFURPLETT
POSTULÍN — GLERVÖRUR
ELEGANT FYRIR VANDLÁTA
GANGIÐ INN í
ELEGANS
Á SKÓLAVÖROUSTÍG 42
aö koma
stórflutn-