Morgunblaðið - 12.05.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.05.1983, Blaðsíða 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ1983 Keflavík: Tónlistarfé- lagið 25 ára Keflavík, 6. maí. NÚ UM þessar mundir er Tónlistarfélag Keflavíkur 25 ára. í tilefui þess hélt félagið veglegan afmæliskonsert í Félagsbíó sl. fimmtudagskvöld og komu þar fram fjöldinn allur af keflvískum tónlistarmönnum, að viðstöddu fjöl- menni. Fyrir 25 árum kom saman í Keflavík hópur áhugafólks um tónlist og stofnaði Tónlistarfélag Keflavíkur. Markmiö félagsins var að koma á fót tónlistarskóla í byggðarlaginu og fá þangað tónlistarmenn til tónleikjahalds. Fyrsti formaður Tónlistarfé- lagsins var Vígdís Jakobsdóttir og gegndi hún því embætti hátt á annan áratug, ásamt því sem hún var formaður skólanefndar skól- ans. Fyrstu árin sá félagið alger- lega um rekstur skólans og fjár- magnaði á eigin ábyrgð. Við skól- ann hafa ávallt kennt hinir fær- ustu kennarar og oft barðist Tón- listarfélagið í bökkum, því greiða þurfti þeim laun og borga húsa- leigu. En skólinn óx og þroskaðist undir handleiðslu þessa dugmikla fólks og Ragnars Björnssonar sem var skólastjori frá upphafi skól- ans. 1975 var fjárhagsáhyggjum létt af félaginu, þegar bæjarfélag- ið og ríkið tóku reksturinn í sínar hendur. Síðan hefur félagið getað einbeitt sér að menningarviðburð- um og uppákomum tónlistar- manna í Keflavík. Á afmælishátíðinni í Félagsbtó komu fram núverandi og fyrrver- andi nemendur skólans og greini- legt er að mikið starf hefur verið unnið þar. Lúðrasveit skólans vakti mikla athygli, en hún er skipuð mjög ungu fólki. Mjög öfl- ugt kóralíf er í Keflavík og kom það glöggt fram á tónleikunum. Kvennakór Suðurnesja, Kór Keflavíkurkirkju og Karlakór Keflavíkur komu þar fram og sameinuðust í söngnum í lok tón- leikanna undir stjórn Herbertar H. Ágústssonar, en hann er skóla- stjóri Tónlistarskóla Keflavíkur. Formaður skólanefndar, Elín- borg Einarsdóttir, og Sævar Helgason, form. Tónlistarfélags- ins, fluttu ávörp og var stofnend- um félagsins færður þakklætis- vottur og frú Vigdís Jakobsdóttir var gerð að fyrsta heiðursfélaga félagsins. Stjórn Tónlistarfélags Keflavík- ur skipa ásamt Sævari Helgasyni, Steinunn Karlsdóttir ritari, Hlíf Káradóttir gjaldkeri, og með- stjórnendur eru Bjarni Gíslason og Margrét Friðriksdóttir. — EFI. Karlakórinn syngur Viðræður fslands, Noregs og EBE: Óljóst hvort EBE- lönd stundi loðnu- veiðar í sumar skrifstofustjóra í utanríkisráðu- neytinu, sem var fulltrúi Islands 1 viðræðunum, voru þær tilkomnar að ósk Norðmanna vegna þess, að ekki er enn útkljáð mál hvar lög- saga Grænlands og Jan Mayen mætist. Hvort þar gildi miðlína eða 200 mílur frá Grænlandi, en Efnahagsbandalagið fer með þessi mál fyrir hönd Grænlands. Þar með myndast mikið hafsvæði, sem báðir aðilar gera kröfu til. Árið 1981 voru deilur um þetta svæði, en samkomulag náðist í fyrra. Þess vegna var það ósk Norð- manna, að reynt yrði að komast að samkomulagi nú um það, hvað hver ætti að veiða úr loðnustofn- inum. Eins og áður sagði mjakað- ist ekkert í samkomulagsátt, þannig að alveg er óljóst hvort Efnahagsbandalagið sendi einhver skipa sinna á loðnuveiðar á þessu umdeilda svæði í sumar. Talið er ljóst að hvorki íslendingar né Norðmenn geri það. NÚ ER nýlega lokið þríhliða viðræð- um íslands, Noregs og Efnahags- bandalags Evrópu, þar sem reynt var að komast að samkomulagi um skiptingu loðnustofnsins milli Græn- lands, Islands og Noregs. Ennfrem- ur hvort hægt væri að koma sér sam- an um algjört bann við loðnuveiðum á þessu svæði, þar til nýjar mælingar á stofninum gætu farið fram í haust. Engin samstaða náðist og hefur ann- ar fundur ekki verið boðaður. Að sögn Hannesar Hafstein, Þessi mynd var tekin á námskeiði eftirmenntunarnefndarinnar hér á landi. Norræn menntunarnefnd rafiðnaðarins: Eftirmenntun rafvirkja er mikilvæg nú á tím- um örrar tækniþróunar segir Guðmundur Gunnarsson starfsmað- ur íslensku eftirmenntunarnefndarinnar NÝLEGA voru staddir hér á landi fulltrúar rafvirkja og rafverktaka á Norðurlöndunum á vinnufundi Norrænu menntunarnefndar rafiönaðarins. Þessi nefnd hefur starf- að síðan 1974 og hefur það hlutverk fyrst og fremst að fjalla um eftirmenntun og grunnmenntun rafvirkja. Á íslandi hefur verið starf- andi eftirmenntunarnefnd í 7 ár, skipuð tveimur mönnum og einum starfsmanni, Guðmundi Gunnarssyni. Guðmundur Gunnarsson sagði í samtali við Mbl. að á sl. árum hefði íslenska nefndin staðið fyrir námskeið- um á 12 stöðum á landinu og haldið samtals 152 námskeið frá upphafi með 1.600 þátttak- endum. Á þessu ári er áætlað að haldin verði 34 námskeið. „Þetta samnorræna starf er ákaflega mikilvægt," sagði Guð- mundur Gunnarsson. „Það hef- ur meðal annars orðið hvatinn til þessara námskeiða hérlendis síðustu árin. Danir hafa lengst- um staðið fremst í flokki hvað varðar endurmenntun og stefnumótun í menntunarmál- um rafvirkja. Við höfum flutt inn mikið af námskeiðum og tækjum frá Danmörku, mest í sambandi við stýringar og tölvutækni, svo sem námskeið um segulliðastýringar, raf- eindastýringar, loftstýringar og forritunarleg stýrikerfi. Og nú erum við að fara af stað með námskeið í aðvörunar- og kall- búnaði. Það er miklu hagkvæm- ara fyrir okkur íslendinga að fá námskeiðið þannig til afnota en þurfa að þróa þau upp á okkar einsdæmi. Guðmundur sagði að nám- skeiðin væru fjármögnuð bæði af ríkinu og félögunum, þ.e. Landssambandi íslenskra raf- verktaka og félögum rafvirkja á íslandi, en undanfarið hefði dregið talsvert úr fjárveitingum ríkisins. Taldi Guðmundur það miður, því á tímum örrar tækniþróunar væri þörfin á endurmenntun rafvirkja mjög rík. Hin Norræna menntunar- nefnd rafiðnaðarins saman- stendur af fulltrúum rafvirkja og rafverktaka frá öllum Norð- urlöndunum, en skrifstofa nefndarinnar er f Kaupmanna- höfn. Fyrir utan það hlutverk að fjalla um endur- og grunn- menntun rafvirkja, lætur nefndin sig einnig varða mennt- un fagkennara og flest það sem tengist menntun í greininni. Ráðstefnur eru haldnar á eins og hálfs árs fresti og vinnu- fundir 3—4 sinnum á ári. Síð- asta ráðstefna var í Leangkoll- en í Noregi í febrúar sl., en sú næsta verður haldin hér á landi sumarið 1984. Á íslandi eru um 1000 raf- virkjar, þar af rúmlega 300 raf- verktakar. V* ‘wjWjmL mí ll llgj h > * Þátttakendur vinnufundarins núna eru frá vinstri talið: Sven-Eric Paalson frá Svíþjóð, Hannes Vigfússon, formaður Félags löggiltra rafverktaka í Reykjavík, B. Lindberg frá Svíþjóð, Gunnar Bachman, fulltrúi Rafiðnað- arsambandsins í þessu samstarfi, Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri eftirmenntunarnefndarinnar hér á landi, Arne Nielsen frá Danmörku, Árni Brynjólfsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra rafverk- taka, Erkki Weijola frá Finnlandi, Magnús Geirsson, formaður Rafiðnaðarsambands íslands og Ronald Rooth frá Noregi. MorgunblaAiA/ KrLstján Einaramn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.