Morgunblaðið - 12.05.1983, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.05.1983, Blaðsíða 30
78 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1983 Móttaka í frystihúsinu, Jón E. Alfreósson, kaupfélagsstjóri, heldur ræðu. Hðrður Ásgeirsson, skólastjóri Hólmavíkurskóla, með nokkrum nemenda sinna. Hátíð á Hólmavík er Hólmadrangur kom heim Hólmavík, 3. maí. EINS OG skýrt var frá hér í blaðinu laugardaginn 30. apríl, þá kom togarinn Hólmadrangur í fyrsta sinn til heimahafnar sl. fimmtudag. Þann dag var mikið um dýrðir á Hólmavík. Togarinn var til sýnis almenningi og börnum var boðið upp á veitingar um borð. Um kvöldið var þeim íbúum Hólmavík- urhrepps og nærliggjandi hreppa sem höfðu aldur til boðið upp á ræðuhöld og veitingar. Að þessari móttöku lokinni bauð áhöfn togarans öllum þeim sem vildu á dansleik í samkomuhúsinu. Daginn eftir var farið með yngstu íbúa Hólmavíkur og Drangsness í siglingu um Steingrímsfjörð. Mikið hefur verið rætt og ritað um þetta dýrasta veiðiskip flotans og sýnist mönnum sitthvað um ágæti þessara skipakaupa. Skip- stjórinn á Hólmadrangi, Magni Kristjánsson, og nokkrir Hólm- víkingar voru teknir tali og spurð- ir hvað þeim fyndist um togarann og þýðingu hans fyrir atvinnulíf á staðnum. Magni Kristjánsson sagði að hinn nýi togari veiddi e.t.v. ekki þrefalt á við togara sem kostaði í kringum 50 milljónir, en hins veg- ar væri sjálfsagt að byggja upp góðan fiskveiðiflota og það væri tæplega gert með innflutningi á gömlum togurum. Hann lét vel af skipinu en sagði að enn væri eðli- legur reynslutími ekki liðinn. Ýmsir minni háttar byrjunarörð- ugleikar hefðu komið fram, m.a. vegna vinnslunnar um borð. Er Magni var spurður um það hvaða þýðingu togarinn hefði fyrir at- vinnulíf á Hólmavík, þá benti hann á að um þriðjungur áhafnar- innar væri frá Hólmavík. Þetta hlutfall myndi líklega breytast ef skipið yrði gert út héðan. Auk þess myndi það skapa önnur störf tengd þjónustu í landi. I móttökunni á fimmtudags- kvöld voru nokkrir Hólmvíkingar teknir tali. Halldór Hjálmarsson rafvirki og Maríus Kárason, sjó- maður, sögðust hafa allt gott um togarann að segja. Þeir sögðust hafa trú á því að togarinn kæmi til með að brúa það atvinnuleys- istímabil sem orðið hefur hér á undanförnum árum á vorin og staðið hefur hátt í tvo mánuði. I dag stundar stór hluti bátanna á Hólmavík veiðar á suðvesturhorni landsins. Þeir bátar sem urðu eftir ætluðu flestir að fara á grásleppu- veiðar en enn sem komið er hefur veiði verið mjög dræm hér. Aðalheiður Ragnarsdóttir, starfsmaður í frystihúsinu sagði að sér litist vel á þetta fyrirtæki. Hún sagðist engu vilja spá um hvenær togarinn legði upp næst en sagðist vona að tilkoma hans skapaði fólki á staðnum atvinnu- öryggi. Jón Magnús Magnússon er einn af þeim Hólmvíkingum sem eru á togaranum. Hann sagði að sér lík- aði vel um borð en of lítill munur væri á kaupi í ísfisktúrum og frystitúrum (þegar aflinn er full- unninn um borð). Jón Magnús sagðist ekki hafa verið á togara áður og helstu viðbrigðin væru þau að þurfa að vera langtímum fjarri fjölskyldu. Það yrði því til mikilla bóta ef togarinn landaði hér. Er við hringdum í Jón E. Al- freðsson, kaupfélagsstjóra, sl. föstudag, þá tjáði hann okkur að stefnt væri að því að togarinn landaði hér í framtíðinni, en til að það gæti orðið þá þyrfti að bæta aðstöðuna í landi, m.a. koma upp svartolíugeymi. Fréttaritarar. Krakkarnir frá Drangsnesi ferjaðir um borð í Hólmadrang. Innilegar þakkir færi ég bömum mínum og tengdaböm- um, einnig Betelsöfnuðinum Vestmannaeyjum og Fíla- delfíusöfnuðinum í Reykjavík, samstarfsfólki mínu í Vinnslustöðinni Vestmannaeyjum, verkstjórum og for- stjóra. ÖUum vinum minum sem glöddu mig á 75 ára afmœlisdegi mínum þann 7. maí sl. Drottinn blessi ykkur öll. Kristín Jónína Þorsteinsdóttir. Hvitasunnu- kappreiðar Fáks veröa haldnar 21. og 23. maí nk. Keppt veröur í báöum aldursflokkum unglinga og hefjast dómar í þeim fimmtudaginn 19. maí kl. 18.00. Dómar í A- flokki gæöinga hefjast kl. 18.00, föstudaginn 20. maí og í B-flokki gæöinga hefjast dómar kl. 9, laugardag- inn 21. maí. Keppt veröur í eftirtöldum hlaupagreinum: 800 m stökki, 350 m stökki, 250 m stökki. 250 m skeiöi, 150 m skeiöi og 300 m brokki. Undanrásir kappreiöa hefjast laugardaginn 21. maí kl. 14.00. Skráning fer fram á skrifstofu Fáks, föstu- daginn 13. maí nk. kl. 14.00 til 18.00 og laugardaginn 14. maí frá kl. 10.00—13.00. Skráningargjald fyrir aðrar keppnir og greinar en unglingakeppni greiöist viö skráningu. Hestamannafélagiö Fákur. Höfóar til .fólks í öllum starfsgreinum! Hestakynning — sveitadvöl Tek börn 6—12 ára til sumardvalar. Útreiðar á hverj- um degi. 11 dagar í senn. Uppl. í síma 93-5195. ELDRI BORGARAR MEÐ URVAL Eldri borgarar — Reykjavík Ferðaskrifstofan Úrval og Félagsmálastofnun Reykjavíkur- borgar efna til kynningarfundar í Norðurbrún 1, föstudaginn 13. febrúar. Kynnt verður: 18 daga rútuferð um Mið-Evrópu 3. ágúst. 21 daga sólarlandaferð til Mallorca 27. september (gisting á Hótel Pionero í Santa Ponsa). Kaffiveitingar. FERDASKRIFSTOFAN Allir Reykvíkingar 60 ára og eldri eru URVAL Nánari upplýsingar og bókanir í Pósthúastrseti 9, sími 26900.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.