Morgunblaðið - 12.05.1983, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.05.1983, Blaðsíða 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1983 Bláa lónið í Svarteengi: Heilsustöð og baðstaður psoriasis- og exemsjúklinga eftir Valdimar ólafs- son, formann Sam- taka psoriasis- og ex- emsjúklinga Vegna hinna fjölmörgu fyrir- spurna sem Samtökum psoriasis- og exemsjúklinga hefur borist um afstöðuna sem samtökin hafa fyrir félagsmenn sína í Svartsengi langar mig til að koma á framfæri nokkrum uppiýsingum um þessa aðstöðu. Það munu vera um tvö ár frá því að fólk fór að prófa vatnið í Bláa lóninu, með því að synda í vatninu og bera á sig kísilinn sem á botn- inn fellur. Vegna veðurs og ófull- kominnar aðstöðu hafa þó komið þeir kaflar á þessum tveimur ár- um sem ekki var hægt að stunda lónið sem skyldi, t.d. um hávetur vegna kulda og ófærðar. Einnig hefur komið í ljós, að með psorias- is á háu stigi nær ekki árangri nema með því að stunda lónið reglulega, þ.e. dagiega í allt að 3 til 4 vikur í senn. Samt sem áður er óhætt að fullyrða að lónið hefur eitthvað það til að bera sem hjálp- ar psoriasissjúklingum til að halda sjúkdómnum í skefjum. Við þekkjum dæmi þess að maður með psoriasis á háu stigi náði sér alveg góðum með því að fara reglulega í lónið í nokkrar vikur, og síðan hef- ur hann haldið sjúkdómnum niðri með því að fara að jafnaði tvisvar í viku. Ýmis vandamál hafa komið upp á þessu tímabili, sum hefur okkur tekist að leysa en önnur bíða enn úrlausnar, ýmist vegna fjárskorts svo og að enn frekari reynslu er þörf til að geta leyst þau. Má þar sérstaklega nefna að hitastig lóns- ins getur sveiflast verulega til. Fróðir menn fullyrða þó að með aukinni þekkingu verði hægt að leysa það mál. Aðstaða okkar þarna suðurfrá hefur til þessa verið mjög frum- stæð. Við fengum lánaðan vinnu- skúr frá ístak hf. sem við höfum notað fram að þessu sem bún- ingsklefa, en nú í mánuðinum munum við taka í notkun hús sem við fengum að láni frá Sjúkrahús- inu í Keflavík. Með tilkomu þessa húss geta mun fleiri athafnað sig samtímis og er í raun ætlunin að reyna að koma af stað hópferðum frá Reykjavík til að halda kostn- aði niðri. Þessi tilraun mun verða gerð í samvinnu og samráði við landlækni, m.a. til þess að heil- brigðisyfirvöld geti gengið úr skugga um hvort Bláa lónið sé raunveruleg heilsulind. Með tilliti til reynslu þeirra, sem lónið hafa sótt, erum við þess fullviss að það er tvímælalaust heiisuiind, sem okkur ber að kanna og nýta í framtíðinni. Ýms- ir aðilar fullyrða að hefðu þeir ekki sótt lónið hefðu þeir orðið að leggjast inn á spítala. Það er því augljóst ef Bláa lónið getur komið í veg fyrir slíkt, að hér er um mjög verulegt hagsmunamál að ræða. Við sem höfum reynt það að fara á sjúkrahús, sem psoriasis-sjúkl- ingar, þrátt fyrir frábæra umönn- un og þjónustu, viljum í raun allt gera áður en í þær nauðir rekur. Allt frá því að við fórum að stunda Bláa lónið höðfum við not- ið frábærrar fyrirgreiðslu starfsmanna og forráðamanna Hitaveitu Suðurnesja. Þeir hafa frá upphafi sýnt þessu máli mjög mikinn velvilja og stutt okkur með ráðum og dáð. Sú þakkarskuld verður seint goldin. Við höfum frá upphafi lagt ríka áherslu á að trufla sem minnst þá starfsemi sem þarna fer fram og vil ég meina að það hafi tekist vel, því allir, sem stundað hafa lónið á okkar vegum, hafa lagt sig fram um að láta fara sem minnst fyrir sér og kann ég þeim góðar þakkir fyrir. Fljótlega eftir að fréttist um baðmöguieikana í Bláa lóninu vildu fleiri en félagar í Samtökum psoriasis- og exemsjúklinga baða sig þar. Því miður er engin að- staða fyrir slíkt og er það bannað. Ef lónið væri opið fyrir almenning þyrfti að vera stöðug gæsla þar, því það er engan veginn sama hvar synt er í lóninu, og því miður komu fyrir óhöpp í upphafi. Nú er svo háttað að félagar í Samtökum psoriasis- og exemsjúklinga sem baða sig í lóninu hafa sérstakt vegabréf útgefið af samtökunum. Sú reynsla sem við höfum fengið af lóninu bendir ótvírætt í þá átt að þarna sé heilsulind sem á er- indi, ekki bara til psoriasis-sjúkl- inga, heldur til miklu fleiri. Það er til dæmis ekki nokkur vafi á að gigtarsjúklingar myndu hafa gagn af hitanum í lóninu. Það þarf því ekki að undra neinn að við höfum mjög mikinn áhuga á, að skapa við Svartsengi sem besta aðstöðu fyrir alla þá sem þangað vilja sækja. Við höf- um í því sambandi rætt við stjórn Hitaveitu Suðurnesja, Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum svo og við landeigendur og hafa aliir sýnt þessum áhuga okkar bæði mikinn velvilja og skilning, og hafa lýst sig reiðubúna að starfa með okkur að uppbyggingu heilsu- stöðvar í sambandi við Bláa lónið. Framtíðarhugmyndir okkar um heilsustöð í Svartsengi mun ég fjalla um í annarri grein. Þjóðminjasafin- ið og fatlaðir eftir Þór Magnússon, þjóðminjavörð Nemendur úr Hlíðaskóla sendu mér opið bréf í Morgunblaðinu 30. apríl um erfiðleika fatlaðra við að komast í Þjóðminjasafnið og taka dæmi af fötluðum dreng úr sínum bekk, sem átt hafi erfitt með að komast upp tröppurnar við húsið. Ég þekki vel þennan misbrest á hönnum hússins, en hann er ekki hinn eini. Þetta hús hentar illa þeim, sem heilbrigðir eru, hvað þá fötluðum. Það nálgast nú 40 ár síðan Þjóð- minjasafnshúsið var byggt. Á þeim tíma höfðu menn greinilega allt aðrar skoðanir á gerð og hönnun húsa en nú er, og þóttust menn þó greinilega gera vel. Þá byggðu menn miklu meira á hæðina en síðar varð og spöruðu hvorki stiga né þrep í húsum. Og eitt af því, sem hvert hús átti að hafa, voru myndarlegar og vegleg- ar útitröppur. Við sjáum þess hvarvetna dæmi, að minnsta kosti er svo um öll þau hús, sem bera áttu af. Við þurfum ekki annað en líta á Þjóðleikhúsið, Háskólann og stúdentagarðana, ýmsa spítala og skóla, og sé farið enn lengra aftur í tímann má benda t.d. á Pósthús- ið, Safnahúsið við Hverfisgötu og Alþingishúsið, þar sem hvarvetna eru tröppur og stigar. Virðuleiki húsa átti að sýna sig fyrst á úti- tröppunum, og það er í rauninni einkennilegt að sjá samkomuhús frá fyrri árum eins og Hótel Borg og Iðnó, sem ekki heilsa gestum sínum með stórum tröppum. En þetta á ekki einungis við hérlendis. Erlendis eru flestar opinberar byggingar, sem eitthvað eru komnar til ára sinna, með sama merki brenndar, stórar tröppur upp að ganga áður en komizt verður inn. Þjóðminjasafnshúsið er líkleg- ast sú opinber bygging hérlendis, sem státar af stærstum útitröpp- um. Fyrst eru 9 tröppur af gang- stétt upp á lóðina, síðan 11 tröpp- ur að útidyrum með palli á miðri leið, og svo að lokum, þegar inn er komið í forstofu, tvö þrep áður en komið er inn á gólf á aðalhæð. Svona hefur arkitekt hússins og byggingarnefnd greinilega fundizt að það ætti að vera, virðulegar tröppur að virðulegu húsi. En eng- inn áttaði sig hins vegar á því, að hér er hið versta veðravíti, enda kemur oft fyrir þegar eitthvað er að veðri, að varla er stætt í tröpp- unum auk þess sem þær fyllast af snjó. Hefðu menn verið að reisa Þjóð- minjasafnshús nú hefði senni- legast verið farið nokkuð öðruvísi að. Menn hefðu reynt að byggja húsið þannig, að inngangur væri af jarðhæð og þá gengið beint af gangstétt inn í húsið, aðeins þá eitt þrep til að verjast vatnsaga, en skábraut sett fyrir hjólastóla. Nýjum inngangi er ekki auðvelt að koma fyrir, og jafnvel þótt menn vildu taka upp nýjan inn- gang frá Suðurgötu, af jarðhæð, er fyrirkomulag þannig innan dyra, að það er nánast útilokað nema með svo stórfelldum breytingum inni í húsinu, að ég held að það þyki frágangssök að hugsa um slíkt eins og nú standa sakir. En nokkur úrbót er samt í sjón- máli, sem mun auðvelda fötluðu fólki að komast inn í húsið. Verið er að útbúa skrifstofur og vinnustofur á jarðhæð hússins austanverðri. Þar verður sérstak- ur inngangur af stéttinni með- Þór Magnússon Starfsfólk safnsins er ævinlega reiðubúið að hjálpa öllum þeim, sem þurfa aðstoðar við að komast inn í safnið. Bezt er auðvitað, þegar fatlaðir eiga í hlut, að hringja fyrst og boða komu þeirra. fram húsinu. Er vonast til, að skrifstofurnar verði tilbúnar nú fyrir sumarið. Svo er ráð fyrir gert, að þar geti fólk í hjólastólum komið inn og verður þá sett upp skilti, sem sýn- ir það. Þarna verður ævinlega ein- hver viðstaddur á skrifstofutím- um sem hleypt getur fötluðum inn og síðan er greiður aðgangur að lyftunni inni í húsinu. Einnig er ráð fyrir gert, að kom- ast megi inn bakdyramegin, frá Suðurgötunni, með hjólastól. Starfsfólk safnsins er ævinlega reiðubúið að hjálpa öllum þeim, sem þurfa aðstoðar við að komast inn í safnið. Bezt er auðvitað, þeg- ar fatlaðir eiga í hlut, að hringja fyrst og boða komu þeirra. Þannig hefði kennarinn sem kom með um- ræddan bekk úr Hlíðaskóla, átt að láta þess getið, að þar væri nem- andi sem þyrfti aðstoðar við að komast inn. Þá hefði verið í lófa lagið að greiða úr því. — Það er engin minnkun að því að biðja um aðstoð, öll þurfum við einhvern tíma hjálpar og aðstoðar við. í fáum orðum sagt: Þjóðminja- safnið er óárennilegt hús þeim, sem fatlaðir eru. En allan vanda má leysa. Hér er starfsfólk ævin- lega þegar safnið er opið og sér- stakir safnkennarar annast skóla- heimsóknir og þeir munu að sjálfsögðu einnig veita aðstoð. Hitt efni bréfsins, um merk- ingar og útskýringar á hlutum, þarf að taka til endurskoðunar og greiða þar betur úr. Vinnubrögð og verkhættir fyrri tíðar eru mun fjarlægari fólki nú, en var þegar safnið var sett upp með þeim skýr- ingum, sem enn eru að flestu óbreyttar. Ungt fólk þekkir ekki orð eins og vaður, fyrir fiskifæri, hvað þá að menn átti sig á því, að vaðsteinn sé sakka. Og kannske skilja heldur ekki allir, hvað sakka merkir. Senn líður að því, að ráðizt verði í enduruppsetningu alls safnsins þegar Listasafnið flytur, sem von- andi verður innan fárra ára. Þá verður skipulag uppsetningar, merkingar og leiðbeiningar endur- skoðað, en safnkennarar þeir, sem annast leiðbeiningar nemenda, eiga að geta leiðbeint og skýrt hluti eins og vaðsteinn. Safnkenn- arinn fylgir nemendum og útskýr- ir og leiðbeinir, og gæzlukonur hafa einnig á takteinum útskýr- ingar margra hluta í safninu. Þetta atriði stendur vonandi einnig til bóta. Þór Magnússon. SIGLFIRDINGAFELAGIÐ í Reykjavík og nágrenni Siglfirðingar í Reykjavík og nágrenni Hinn árlegi fjölskyldudagur veröur haldinn í Glæsibæ sunnudaginn 15. maí. Kaffi og kökusala frá 3—6. Þeir, sem gefa kökur, eru beönir aö afhenda þær kl. 2. Nefndin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.