Morgunblaðið - 12.05.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.05.1983, Blaðsíða 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1983 Liszt tónleikar Tónlist Jón Asgeirsson Martin Berkofsky lék verk eftir Frans Liszt í Þjóðleik- húsinu sl. mánudag með miklum glæsibrag. Það sem gerir leik hans eftirtektar- verðan er að hann hættir öllu til og hikar ekki á blábrún- inni. Aðra stundina leikur hann sér að því að skálda í tónana angurværð en þrumar því næst boðskap höfuðskepn- anna. Þannig sveiflast leikur Martin Berkofsky hans milli viðkvæmni og stormþrunginna átaka með svo miklum andstæðum að fágætt má telja. Fyrsta verkið á efnisskránni var Vallée d’Obermann, sjötti þátturinn í Svissneska ferða- albúminu. Verkið er nokkurs konar „sinfónískt ljóð“ og nefnt eftir skáldsögu, sem Liszt hélt mikið upp á. Titill sögunnar var Obermann og er hún eftir de Senencourt, sem Liszt tileinkaði verkið. Annað viðfangsefnið var stuttur þáttur úr raðverki er höfund- urinn kallar „sögulegar ungv- erskar mannamyndir". Deák er fimmta myndin og hefur Berkofsky fundið áður óþekkta gerð þessa þáttar. Tvær helgisögur, sú fyrri um heilagan Frans frá Assisi, að prédika yfir fuglunum og sú seinni, um heilagan Frans frá Paule er hann gengur á öldunum. Bæði verkin eru „prógramm“-tónlist en seinna verkið er samið fyrir áhrif af málverki eftir von Steinle, er sýnir heilagan Frans á vatn- inu. í þessu verki keyrði Berkofsky „klímaxinn" upp of snemma. Síðasta verkið á þessum eftirminnilegu tón- leikum var h-moll sónatan sem Berkofsky lék frábærlega vel, allt frá því að leika sér með fíngerðustu blæbrigði upp í Þórdunur leystar úr viðjum náttúrunnar, m.ö.o. stórglæsilegur flutningur á mikilfenglegu meistaraverki. Hafsteinn sýnir vatnslitamyndir Myndlist Valtýr Pétursson í Listasafni ASÍ við Grensás- veg stendur nú yfir sýning á vatnslitamyndum eftir Hafstein Austmann. Hann hefur valið að sýna eingöngu myndir gerðar í vatnslitum, og við fyrstu sýn er því þessi sýning nokkuð einhliða. En er maður gætir nánar að þessum verkum, kemur í ljós, að þrátt fyrir þessa einu aðferð við myndgerðina, er þetta nokkuð efnisrík sýning. Hafsteinn hefur nefnilega þann hátt á, að hann heldur hverju verki innan vissra lita og nær þannig mjög frjáls- legri og fjölþættri myndbygg- ingu, sem oft á tíðum hefur lipr- an og lifandi myndþokka. Hafsteinn Austmann hefur lagt mikla áherslu á vatnslita- meðferð sína á undanförnum ár- um. Hann hefur nú öðlast tækni, Baaten under solseilet Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir VIGDIS Stokelien er norskur höf- undur, tæplega fimmtug að aldri og hún vakti á sér athygli með fyrstu bók sinni, smásagnasafninu Dragsug, fyrir sextán árum eða svo. Síðan hefur hún skrifað þret- tán bækur og flestar þeirra munu vera smásagnasöfn. Það rennir stoðum undir þá niðurstöðu fræð- inga, að konur hallist meira að rit- un smásagna en lengri sagna. Hvað sem því líður er Baaten und- er solseilet ein saga og ákaflega sjarmerandi að gerð, einkum og sér í lagi eftir að lesandi hefur áttað sig á alls konar stflbrögðum höfundar, svo og tilfærslum fram og aftur í tíma og rúmi; það er fjarri því að vera hefðbundin skáldsaga, sem hér er boðið upp á. Sagan segir frá ungri stúlku, Gro sem er loftskeytamaður á norskum dalli, „Marianna", upp úr 1950. Með augum hemar skynjum við lífið um borð og í höfnum. Með því að bregða okkur aftur í tímann kynnumst við ástarævintýri hennar og júgóslavneska læknisins Miro, lánlaus maður, sem er á flótta fær hvergi landvistarleyfi fyrr en í lokin, að það er líklegt að hann komist til Ástralíu. Svip- myndum frá hernámi Þjóðverja í Noregi er og brugðið upp og gefa þær myndinni af ungu Vigdis Stokelien stúlkunni aukna dýpt. Faðir hennar hafði verið „réttu megin" en fjölskylda móðurinnar galt þess að hafa verið á hinum vængnum. Vigdis Stokelien gefur okkur býsna áhrifaríka mynd af hugs- unarhætti ungu stúlkunnar og viðhorfi hennar til skipsfélaga sinna og umhverfis þess sem hún upplifir ákaflega sterkt. Einnig eru lýsingar hennar á Austur- löndum þessa tíma býsna litrík- ar og sannfærandi. 1 þessari bók vefur höfundur saman af mikl- um hagleik nútíð og fortíð og það er varla á færi annarra en snjallra höfunda. Mér skilst að höfundur sé sjálf loftskeytamað- ur að mennt og hafi stundað það starf um hríð og það kemur henni ugglaust að gagni við gerð þessarar bókar. Það er Asche- houg sem gefur bókina út. sem aðeins verður þróuð með mikilli vinnu og miklum yfirleg- um. Hann virðist margvinna myndir sínar á sama blað og hef- ur þá þann hátt á að þvo mynd- irnar aftur og aftur. Þannig verða til mild og ljóðræn verk, sem hafa mikið aðdráttarafl og sannarlega lofa meistara sinn. Það má því með sanni segja, að þessi sýning Hafsteins sé viss áfangi í listferli hans og sýni á honum hlið, sem að vísu er ná- tengd því, er hann vinnur í olíu- litum, en er samt sérstakur kap- ituli í litferli hans. Með þessari sýningu kveður Hafsteinn sér sterklega hljóðs á vettvangi vatnslitanna og eykur þannig álit áhorfandans á hæfni hans sem málara. Það er sérlega skemmtilegt að kynnast þeirri hlið á Hafsteini Austmann, sem hér blasir við. Hann vinnur af ákefð og hugrekki og hann nær árangri í samræmi við það. f heild er þessi sýning í Listasafni ASf ein sú eftirtektarverðasta sem Hafsteinn hefur haldið. Þarna eru 41 vatnslitamynd og að mínum dómi ekkert áhlaupa- verk að gera upp á milli þessara verka. Samt ætla ég að benda á nokkrar myndir, sem mér fannst einna mest til koma. Það eru nr. 1, 7, 24, 27 og 36. Allt eru þetta myndir, sem mundu sóma sér á hvaða sýningu sem er úti í hin- um stóra heimi, eins og sagt er. Auðvitað dettur mér ekki í hug að miða við það sýningarfargan er þjáir okkur hér við Faxa- flóann á þessum seinustu og verstu tímum. Það virðist alltaf vera að færast í aukana og gerir lítið annað en trufla listaskyn almennings og orsaka litla sölu hjá þeim, er vanda til verka sinna og vinna í fyllstu alvöru. Hafsteinn Austmann er einn þeirra, og besta vitnið um þessa fullyrðingu er núverandi sýning hans í Listasafni ASf. Vonandi lætur fólk ekki þessa sýningu framhjá sér fara og að lokum: Til hamingju með árangurinn, er þar blasir við. Zola á rúmstokknum Kvikmyndir Ólafur M. Jóhannesson Nafn í frummáli: NANA Framleidd af Menahem Golan og Yoram Globus. Handrit: March Behm. Leikstjóri: Dan Wolman. Tónlist: Ennio Morricone. Sýningarstaður: Austurbæjarbíó. Saga Emile Zola, yfirstéttar- hórunni Nönu hefur aldeilis orð- ið drjúgur efniviður kvikmynda- gerðarmönnum, ég man ekki betur en sjálfur Jean Renoir hafi filmað söguna án hljóðsetningar í kringum ’30. Auðvitað gátu þeir vestanhafs ekki stillt sig um að filma söguna og gáfu henni þá nafnið Lady of the Boulevards og það er ekki lengra síðan en sjötíu að Frakkar og Svíar tóku hönd- um saman um að mynda söguna og gáfu vinnuheitið: Take Me, Love Me. Fleiri útgáfur mætti nefna cn hér er ætlunin að eyða fáeinum orðum að nýjustu til- rauninni í þá átt að festa Nönu á filmu; er hér átt við samnefnda mynd Austurbæjarbíós. Ég verð að segja að miðað við þær útgáf- ur er ég hef áður augum barið er sú Nana sem nú birtist á tjaldi Austurbæjarbíós herfilegur óskapnaður sem nær því hvorki að líkjast persónunni í sögu Zola né lifa áhugaverðu eigin lífi. Það er nánast að manni detti 1 hug að aðstandendur þessarar mynd- ar hafi glápt yfir sig á danskar rúmstokksmyndir og vilji nú feta í fótspor Dananna og hressa uppá franska menningu með læra- og píkusýningu skreytta nafni Emile Zola. Gæti ég best trúað að þessi mynd væri gerð í tveimur eintökum (líkt og rúm- stokksmyndirnar) og fengju íbú- ar þeirra ríkja þar sem kvik- myndalöggjöfin er gloppóttari en hér að sjá píkur og tilla í ögn skarpari nærmynd en gestur Austurbæjarbíós. Þetta minnir mig á að kunn- ingi minn sagði mér þær fréttir að hann hefði um daginn skropp- ið á níusýningu í Bíóbæ að sjá J.R. og fjölskyldu í „samkvæm- isleik". Tjáði hann mér að mynd þessi hefði verið að mestu óklippt og væri hiklaust hægt að flokka hana með „bláum" mynd- um. Ef þetta er rétt þá er hér brotið blað í íslenskri bíósögu því hér er í fyrsta sinn á íslandi leyfð opinber sýning á „blárri" mynd. Ég held að þessi þróun verði raunar ekki stöðvuð af kvikmyndaeftirlitinu á meðan menn geta labbað útí næstu sjoppu og fengið sér eina „bláa“ til heimabrúks. Það er skömm- inni skárra að hafa klámbíó í út- hverfi borgarinnar þar sem kvikmyr.daeftirlitið getur veitt hæfilegt aðhald en að menn sæki óhindrað útí búð spólur sem börn og óharðnaðir unglingar geta komist í. Það er nefnilega svo með klámmyndir að þar er ekki hlúð að mannlegum tilfinningum. Áherslan er gjarnan lögð á kyn- nautnina eina saman og hún blásin upp líkt og blaðra sem springur að lokum og skilur ekk- ert eftir nema tómleika. Þá eru gjarnan hórur notaðar í þessum myndum og þær niðurlægðar á alla lund. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra því sú er hættan að karlmann sem ánetjast slík- um myndum fái ranghugmyndir um kvenfólk. Þær greinast í hugskoti þeirra annarsvegar í siðprúðar húsmæður en hins vegar eru siðlausar hórur. Nú gætu menn talið að ég væri kom- inn nokkuð langt frá efni grein- arinnar sem er nýjasta kvik- mynd Austurbæjarbíós — Nana; svo er þó ekki því iýsing sú sem ég hef brugðið upp á hugmynda- heimi klámmynda á mæta vel við þessa mynd. Munurinn er bara sá að hér er reynt að klæða klámið í spariföt og þau fengin að láni frá einu fremsta skáldi Frakka, Emile Zola. Svona fer vor klámtíð með skáldin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.