Morgunblaðið - 12.05.1983, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.05.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1983 69 Þá er síra Hákon yfirgaf Akur- eyri, var hann næstu árin meira og minna viðloðandi Jófríðarstaði i Hafnarfirði og Landakotskirkju í Reykjavík og þjónaði kirkjunni á ýmsa vegu, skrifaði í tímarit kaþ- ólsku kirkjunnar, Merki krossins, þýddi messubók fyrir kirkjuna og sitthvað fleira. Hann fór til Stykkishólms 1972 og þar ílentist hann sem þjónandi prestur við kapellu St. Franciskusystra til æviloka. Hann vann sér þar sem annars staðar bæði virðingu og vinsældir. Hann var listamaður af guðs náð eins og hann átti kyn til — sonur Lofts ljósmyndara — kunni alfabetið i hinum og þessum listgreinum — tónlist, málaralist, skrautskrift, leiklist — samdi sjálfur messutónlist, sem var byggð á hefð íslenzkrar tónlistar og gregorísks söngs — og voru lög hans sungin við hámessur í kap- ellu systranna í Hólminum. Vinum hans er í fersku minni, þá hann eitt sinn fann upp á því, að fá lánað stálþráðstæki — upp- tökutæki, sem var í eigu gamla skólans á Akureyri — og leika inn á það allar persónur i leikritinu Gullna hliðinu eftir Davíð frá Fagraskógi. Hann kryddaði út- færslu sína með tónlistarivafi eins og í kvikmynd — slík tíðni og slík- ur kraftur var i þeirri listrænu túlkun, að það væri synd, ef þetta andlega afrek hans hefði orðið forgengileikanum að bráð. Sira Hákon var alltaf uppnuminn af Gullna hliði Davíðs og taldi það kaþólskustu bókmenntir sem hefðu verið skrifaðar á íslandi frá upphafi, t.a.m. sá sérstæði húmor sem birtist þar og ekki síður hin djúpa alvara á bak við allt í sög- unni um sálina hans Jóns mfns. Síra Hákon gat flestum betur líkt eftir hvaða persónu sem var og lifað sig inn í hvaða hlutverk sem var — og þvílík leikni. Þegar hann hafði séð áhrifarika kvikmynd sem t.d. var byggð á leikriti eftir Shakespeare, endurómaði hann lengi á eftir atriði og persónur og vísdóm sem fólst í slíku listaverki. Það var mikill sjónarsviptir að síra Hákoni, er hann lézt. Með endurreisn kaþólskrar kirkju á Norðurlandi árið 1952 var kominn jarðvegur sem leitazt hefur verið við að yrkja og rækta. Og nú er kominn nýr prestur, sem settist að í kaþólska húsinu við Eyrarlandsveg 26 fyrir rúmum þrem árum. Hann hefur tekið við „stærsta brauði á íslandi, en ein- um minnsta söfnuðinum" eins og síra Hákon sagði eitt sinn af gamansemi sinni í viðtali, sem birtist í norðanblaði. „Stærsta brauðinu" — já, mikið rétt — það nær yfir hið forna Hólabiskups- dæmi og í seinni tíð að auki yfir alla Vestfirðina og Austurland. Síra van Hooff frá Hollandi söng sálumessu að Munkaþverá laugardaginn 30. sl. mánaðar kl. tvö síðdegis. Fyrst var forleikur á orgel, þá sungið Requiem; svo bænir fyrir hinum framliðna um eilíft líf; ritningarlestur um upp- risu holdsins í einingu við frelsar- ann; þá fórnir Krists til Föðurins, honum til dýrðar og öllum til frelsunar; síðan altarisganga og þá eftirleikur. Kirkjukór Ongul- staðahrepps sýndi þá elskusemi að syngja sálma við undirleik systur sóknarprestsins á Laugalandi. Síra Bjartmar sóknarprestur las ritningarkafla. Eftir sálumessuna var þagnarstund með bænum við gröf síra Hákonar. Við helgiathöfnina á Munka- þverá 30. apríl sl. rifjuðust upp þessar línur úr kvæði Matthiasar, „Jón Arason á aftökustaðnum": „... H e r r a, láttu spretta/ upp af okkar blóði/allt hið sanna og rétta:/ trú og frelsið forna,/ frægð og þrek og tryggðir./ Drekkið svo minn dreyra,/dýru fósturbyggð- ir!“ stgr Stjórn Sparisjóðs Kópavogs á aðalfundi sjóðsins 9. aprfl 1983 ásamt fundar- stjóra, Ásmundi Guðmundssyni. urinn á hluta í því húsi. Utibús- stjóri er Björn Magnússon. Það er von forráðamanna spari- sjóðsins, að með opnun útibús austast í bænum, verði hann betur fær um en áður að veita Kópa- vogsbúum siaukna þjónustu. Uti- búið er í miðju, nýju og mjög fjöl- mennu íbúðahverfi og örskammt frá er eitt mesta athafnasvæði á Reykjavíkursvæðinu, með fjöld- ann allan af iðnaðar-, verslunar- og þjónustufyrirtækjum. í næsta nágrenni eru og fjölmenn íbúða- hverfi í byggingu. Stjórn sparisjóðsins skipa nú: Ólafur St. Sigurðsson formaður, Jósafat J. Líndal og Pétur Maack Þorsteinsson, kjörnir á aðalfundi af ábyrgðarmönnum, og Rannveig Guðmundsdóttir og Richard Björgvinsson, kosin af bæjar- stjórn. Sparisjóðsstjóri er Jósafat J. Líndal. Fróóleikur og skemmtun fyrirháa semlága! 1000 KRÓNURÚT Philips ryksugur. 2JA ÁRA BYRGÐIR AF POKUM SVISSNESKA HWMULAN... Flestir vita hversu hagkvæmt það er að leggja peninga inn í banka í Sviss. En það er líka hagkvæmt að leggja inn í Sparisjóðina. Heimilislán Sparisjóðanna, sem veita rétt til láns eru svo hagstæð að við köllum útreikninginn á þeim „Svissnesku formúluna". Dæmi A: Þú leggur inn 1000 krónur í 3 mánuði og hefur að því loknu til ráðstöfunar 6.210 krónur. DæmiB: Þú leggur inn 1000 krónur í 6 mánuði og hefur að því loknu til ráð- stöfunar 14.235 krónur. DæmiC: Þú leggur inn 1000 krónur í 9 mánuði og hefur að því loknu til ráð- stöfunar 24.225 krónur. Þetta köllum við svissneska formúlu! Þú getur líka lagt inn 2000 kr., 3000 kr. eða 4000 kr. á mánuði og hefur þá ásamt því er sparisjóðurinn lánar þér til ráðstöfunar 2,3 eða 4 sinnum hærri upphæð en í dæminu að ofan. Athugaðu heimilislán sparisjóðanna svissneska formúlan svíkur ekki! SAMBAND SPARISJÓÐA * Lántöku- og stimpilgjald dregst frá við afhendingu heimilislánsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.