Morgunblaðið - 12.05.1983, Page 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1983
Kista úr eigu Brynjólfs
slegin á 5 þúsund krónur
KISTA sem talin er hafa verid í eigu
Brynjólfs biskups Sveinssonar í
Skálholti, var slegin á 5 þúsund
krónur á uppboði hjá Klausturhólum
á sunnudag. Fjölmenni var á upp-
boðinu og var 91 númer slegið
hæstbjóðenda. Meðal gripa sem
seldir voru má nefna forláta Nat:
ional-peningakassa með 5 skúffum
en hann var sleginn á 16 þúsund
krónur.
Borðstofusett með norskum út-
skurði, skápur, borð, 10 stólar,
borðstofuskápur og glóbelín-
dúkur var slegið á 110 þúsund
krónur. Þá var borðstofusett úr
massívri eik, 2 skápar, 11 stólar og
borð smíðað af Jóni Halldórssyni
slegið á 22 þúsund krónur.
Á laugardag var bókauppboð og
meðal bóka sem slegnar voru má
nefna Skírni á 40 þúsund krónur,
Svartar fjaðrir Davíðs Stefáns-
sonar á 9 þúsund krónur og
Sagnablöðin á 18 þúsund krónur.
Verkmenntaskólinn á Akureyri:
Tilboð opn luð í
næsta áfai iga
— Lægsta tilbod 75% af kostnaðaráætlun
bauð kr. 6.194.068 (91,8%). Smári
hf. bauð kr. 6.376.404,- (94,5%).
Loks bauð Híbýli hf. kr. 6.440.928.-
(95,4%).
Verkfræðistofa Norðurlands er
nú að yfirfara tilboðin, en fundur
hefur verið boðaður í byggingar-
nefnd Verkmenntaskólans nú á
föstudaginn, og verður þá vænt-
anlega tekin ákvörðun um við
hvern þessara aðila verður samið.
G.Berg.
Fimm tilboó bárust í næsta áfanga Verkmenntaskólans. Ljóamynd G.Berg.
Akureyri, 4. maí.
í GÆR voni opnuð tilboð í næsta
áfanga byggingar Verkmenntaskól-
ans á Akureyri. Alls bárust 5 tilboð í
verkið, en kostnaðaráætlun Verk-
fræðistofu Norðurlands nam kr.
6.749.000.-
Lægsta tilboð kom frá Tré-
smiðjunni Ýr hf., kr. 5.064.138.-,
eða 75% af kostnaðaráætlun. Að-
algeir og Viðar hf. bauð kr.
5.657.476.- (83,8%). Norðurverk hf.
Kirkjukórinn í nýju batikbúningunum. Jón Björnsson er fyrir miðju.
Ljósm. Stefán Pedersen.
Skagafjörður:
Kirkjukvöld í Sæluviku
Mælifelli í apríl.
EINN ER SÁ árvissi þáttur í tónlistarlífi Skagfirðinga, sem ætíð er afar vel
sóttur, en það eru kirkjukvöldin í Sauðárkrókskirkju, sem haldin eru mánu-
dags- og þriðjudagskvöld í Sæluviku, nú í níunda sinn. Hátíðin í kirkjunni
var nú með nokkuð sérstökum hætti, þar sem Jón Björnsson frá Hafsteins-
stöðum, hið mikilhæfa tónskáld og söngstjóri, lætur senn af störfum sem
organisti Sauðárkrókskirkju eftir 60 ára starf aö söng- og kirkjumálum í
Skagafirði, en hann er nýorðinn áttræður.
Efnisskrá kirkjukvöldsins var
mjög fjölbreytt og vakti athygli,
að allir flytjendur tónlistar eru
búsettir í Skagafirði. Ræðumaður
kvöldsins var Andrés Björnsson
útvarpsstjóri, Skagfirðingur einn-
ig, en hann flutti snjallt erindi um
séra Pál Jónsson sálmaskáld í Við-
vík.
Kirkjukór Sauðárkróks, sem átt
hefur frumkvæði að kirkjukvöld-
unum frá upphafi, söng 6 lög, þar
af tvö eftir Jón Björnsson, tvö eft-
ir Sigvalda Kaldalóns og tvö út-
lend. Varð kórinn að endurtaka
mörg þeirra og söng Þorbergur
Jósefsson einsöng í lagi Jóns söng-
stjóra Við upprisu, ljóð Hólmfríð-
ar Jónasdóttur á Sauðárkróki.
Konurnar úr kirkjukórnum mynd-
uðu kvennakór og sungu tvö lög
eftir Kaldalóns og spánskt lag
mjög skemmtilega og er góð til-
breyting að fá að heyra kvenradd-
irnar einar, þvi að oftar heyrum
við karlakóra. Vert er að geta
þess, að kórfólkið var klætt nýjum
búningum, batikkjólum og vestum
í fjólubiáum lit, unnum af Katrínu
H. Ágústsdóttur, en verk hennar
eru til sýnis í Safnahúsinu á Sauð-
árkróki nú á Sæluviku. Bæjar-
stjórn Sauðárkróks gaf kirkjuk-
órnum búningana í tilefni af af-
mæli kórsins og Sauðárkróks-
kirkju.
Tveir kennarar í Tónlistarskóla
Skagafjarðarsýslu áttu stóran
þátt í að gera kvöldið eins eftir-
minnilegt og raun ber vitni, þau
Jiri Hlavacék, sem lék orgelverk
eftir Bach, Kuchar og Frank af
mikilli snilld, og Gróa Hreinsdótt-
ir, sem lék frábærlega vel undir
söng kórs og einsöngvara.
Jóhann Már Jóhannsson, bóndi í
Keflavík, söng einsöng sinni háu
og fögru röddu, hefur hann ekki
síðri rödd en bróðir hans Kristján,
söngvari. Söng Jóhann 5 lög eftir
Jón Björnsson honum til heiðurs,
og voru þau: Brúna ljós þín blíðu,
Gott er sjúkum að sofa, Lævirk-
inn, Bí, bí og blaka og Mildi blær.
Þá sungu þeir Jóhann og Þorberg-
ur saman þrjú lög eftir Jón
Björnsson, sem einnig höfðu verið
flutt í afmælishófi tónskáldsins
fyrr í vetur. Falla raddirnar svo
vel saman, að unun er á að hlýða,
en lögin sem þeir sungu voru:
Svefnljóð, Þú varst mitt blóm og
Hirðingjasveinn. Kirkjukvöldið
var öllum þeim, sem að því stóðu
til hins mesta sóma.
— Fréttaritari
Mikil samvinna milli
húsbyggjenda á Hólmavík
Hólmavík, 10. mars.
HÉR Á Hólmavík hefur verið all-
nokkuð um byggingaframkvæmdir
undanfarin ár. Ibúum kauptúnsins
hefur á síðustu tíu árum fjölgað um
þriðjung. í dag búa hér rúmlega 400
manns. 1978 komst verulegur skrið-
ur á íbúðabyggingar. Frá þeim tíma
hefur verið byrjað á 29 íbúðum og
eru 7 þeirra enn í byggingu.
Til að forvitnast um það hvern-
ig væri að vera húsbyggjandi á
Hólmavík þá töluðum við á dög-
unum við ung hjón sem eru um
þessar mundir að flytja inn í nýtt
og fallegt einbýlishús. Eysteinn
Gunnarsson, starfsmaður hjá
Orkubúi Vestfjarða, og kona hans
Jensína Guðrún Pálsdóttir hófu
byggingu húss sfns fyrir u.þ.b.
þremur árum síðan. Þau eiga þrjú
börn á aldrinum 2ja mánaða til
Vk árs.
Þau Eysteinn og Jensína höfðu
strax í upphafi margvíslega sam-
vinnu við aðra húsbyggjendur.
Þessi samvinna var meðal annars
fólgin í því að fengnir voru smiðir
til staðarins með flekamót til að
slá upp fyrir alls þremur húsum.
Eysteinn Gunnarsson framan við hús sitt.
Eysteinn Gunnarsson og Jensína Guðrún Pálsdóttir ásamt hjálparkokk-
unum við húsbygginguna.
Þau hjón kváðust þó hafa unnið
mest sjálf við byggingu hússins en
auk þess sem að framan greinir
þá fengu þau mann til að annast
pípulagnir.
Eysteinn lét þau orð falla að
hýsbyggjendur fengju hér góða
þjónustu hjá Kaupfélagi Stein-
grímsfjarðar en nauðsynlegt
reyndist þó eigi að síður að fara
við og við suður til efniskaupa.
Þau hjón byrjuðu með „allar
hendur tómar" fyrir þremur árum
síðan og létu þau vel af þjónustu
lánastofnana hér í byggðarlaginu.
Þau hafa einnig fengið lán úr líf-
eyrissjóði og frá Húsnæðismála-
stofnun. Þess ber að geta að sveit-
arfélagið innheimtir ekki gatna-
gerðar- og tengigjöld og er það
tvímælalaust mikill stuðningur
við húsbyggjendur.
Að lokum óskum við fjölskyld-
unni velfarnaðar í nýja húsinu og
vonum að vel gangi að greiða af
lánunum. Fréttaritarar.