Morgunblaðið - 12.05.1983, Page 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1983
mmánn
sejlst hc*-fa \jer\6 ab r-æaa bankann.
oa aí> éir\V\\Jer be>f; stolið bllnom þ'mu/r*
d rr\eóar\ ?"
Ast er ...
,.. að vita hvað
hann vildi fá í af-
mœlisgjöf
TM Rag. U.S Ptt Oft.-U rtotits rwtrvwl
•1982 Lo« Angatoa TlmM 8yndlota
Áttu að fara til tannlæknis á morg-
un, það var þér líkt að leiða hug-
ann aðeins að því sem skemmti-
legt er!
Áfengisvandamálið:
Mikilvægi hinnar fyr-
irbyggjandi aðferðar
má aldrei gleymast
I.Þ. skrifar:
„Velvakandi.
Margir eru þeir, sem telja
áfengisvandamálið „mesta mein
aldarinnar" vegna þess marg-
þætta böls, sem af því leiðir. Og er
þá efst í huga, hve ofneysla áfeng-
is gerir marga, sem ánetjast
henni, að ólæknandi sjúklingum.
Á seinni árum hefur þó nokkuð
rofað til og möguleikar á bata
þessara sjúklinga stórum aukist
frá því sem var fyrir 2—3 áratug-
um. Er vonandi að á því verði
framhald. En til þess að svo geti
orðið þarf góð læknishjálp og rétt
meðferð á viðeigandi meðferðar-
stofnunum að vera fyrir hendi.
Þess vegna er barátta SÁÁ fyrir
nýrri og fullkominni sjúkrastöð
stórt og lofsvert framtak, og þjóð-
arnauðsyn að hún komist sem
fyrst upp.
En þetta mál sem flest önnur
hefur tvær hliðar. Fyrst má segja
að við blasi hin beina lækninga-
meðferð fyrir þá, sem tekið hafa
sjúkdóminn. í öðru lagi — og síst
minna virði — er svo fyrirbyggj-
andi aðferðin, sem miðar að því að
forða mönnum frá því að verða
sjúkir. Að gefa sjúkum kost á
lækningu eftir því sem unnt er
hverju sinni, er sjálfsögð mannúð-
ar- og samfélagsskylda í dag, sem
óneitanlega verður oft að hafa for-
gangsrétt. En mikilvægi hinnar
fyrirbyggjandi aðferðar má aldrei
gleymast. Þótt hún sé oft bæði
vandfarin og seinfarin leið hefur
hún þráfaldlega reynst að lokum
það helsta (jafnvel það eina) sem
dugað hefur gegn margs konar
vanda og sjúkdómsfári. Sú hefur
orðið m.a. reyndin í viðureigninni
við fjölda smitsjúkdóma, einnig
atvinnusjúkdóma og slys. Og það
sem áunnist hefur er fyrst og
fremst að þakka aukinni þekk-
Eins og þú heilsar öðrum
HÖGNI HREKKVÍSI
H. Kr. skrifar:
„Það er alltaf viðkunnanlegra
þegar tekið er undir við mann og
því sendi ég Ævari Kvaran nú
kveðju mína. Þegar ég sagði um
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
hann „veit ekki vesalings maður-
inn“ hafði ég í huga að þannig tal-
aði hann um konuna sem hann
svaraði. Ég freistaðist til að nota
sjálfs hans tungutak og fannst það
við hæfi.
Eins og þú heilsar öðrum
ávarpa aðrir þig.
Ævar segir að Jónas heitinn
Guðmundsson og Guðmundur Jó-
hannsson hafi hætt að starfa í
góðtemplarareglunni. Ekki er það
nú alls kostar rétt. Jónas var í
stúkunni Einingunni til æviloka
og Guðmundurr er enn í stúkunni
Víkingi og ég hef séð hann þar á
fundum oftar en einu sinni í vetur.
Við Jónas vorum saman í Ein-
ingunni og mat ég hann mikils
sökum mannkosta og vitsmuna.
Þó bar okkur stundum á milli. Ég
taldi — án þess að fara í mann-
jöfnuð — að það væri jafn farsælt
afrek hinna jákvæðu afla í mann-
lífinu að hafa alla ævi verndað
mig frá áfenginu og að frelsa hann
frá drykkjunni. Hann er því sam-
mála og sagði sem svo: „Það er
ekkert að marka með Halldór, því
hann hefur aldrei byrjað vegna
þess að einhver góð öfl hafa varð-
veitt hann.“
Ég taldi hins vegar að finna
mætti jarðnesk rök fyrir því hvers
vegna ég hefði valið mlna stefnu
og haldið henni. Þar með var ég
alls ekki að neita ósýnilegri vernd
enda hefur stundum greiðst úr
mínum efnum farsællega þó að af
ráðleysi væri til stofnað. En það er
önnur saga.
En enn þann dag í dag legg ég
að jöfnu vernd og björgun þó að
betra sé heilt en vel gróið."
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Drengurinn verður fjórtán á morgun.
Rétt væri: ... verður fjórtán ára á morgun.
(Englendingur, sem lítið kann í íslensku, kynni að
segja hið fyrra.)