Morgunblaðið - 14.05.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
3
Slóans-gelgja og
fleiri „furðufiskar“
ALLTAF er nokkuð um það, að
svokallaðir „furðufiskar" veiðist
hér við land. Misjafnar heimtur
eru á þessum fiskum, sumir berast
Hafrannsóknastofnun, af öðrum
eru teknar myndir, en margir
þeirra glatast alveg. Gunnar Jóns-
son, fiskifræðingur, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að „furðufiska-
vertíðin“ væri óvenjugóð það sem
af væri árinu, ef svo mætti að orði
komast. Meðal annars hefði stofn-
unni borizt fyrir nokkru svo sjald-
gæfur fiskur, að enn væri hann
nafnlaus, hefði aðeins latneskt teg-
undarheiti. Sagði Gunnar líklega
skýringu á auknum „furðufiska-
afla“ geta verið þá, að togararnir
væru farnir að veiða á meira dýpi
og utan hefðbundinna miða. Héldi
svona áfram yrðu margir þessara
fiska ekki sjaldgæfir lengur.
Morgunblaðinu bárust fyrir
nokkru myndir af ýmsum
„furðufiskum", sem Guðbjartur
Gunnarsson, stýrimaður á haf-
rannsóknaskipinu Hafþóri, tók
þar um borð í karfaleiðangri
fyrir skömmu. Má nefna fiska
eins og ennisfisk, silfurfisk,
slóans-gelgju, bersnata, álsnípu.
Allt eru þetta sjaldséðir fiskar,
sem aðallega hafast við utan
hefðbundinna miða og um miðj-
an sjó. Má um þá ýmislegt segja
en réttast að láta myndirnar
tala sínu máli.
Ennisfiskur
j&Wt
fsberg, flutningasip Oks hf„ sem fórst við England, skömmu eftir árekstur.
Útgerðarfélagið Ok hf.:
Leitað að skipi
í stað ísbergsins
OK hf„ útgerðarfélag flutn-
ingaskipsins ísbergs, sem sökk
eftir árekstur við Englandsstrend-
ur fyrir nokkru, hefur ákveðið að
halda starfseminni áfram, og
könnun á kaupum á nýju skipi er
þegar hafin.
Hinrik Matthíasson, stjórn-
arformaður Oks hf„ sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær, að haldið hefði
verið uppi fyrirspurnum og
könnunum um nýtt skip í stað
ísbergsins, og kæmi nú helst
eitt skip til greina. Ekki væri þó
á þessu stigi unnt að segja neitt
nánar um það, en málið gæti
skýrst eftir helgina.
13 ára piltur
fyrir sendibfl
ÞRETTÁN ára piltur varð fyrir
sendibifreið í Hábæ í Árbæ laust
fyrir klukkan hálf tíu í gærmorg-
un. Pilturinn var að koma úr
strætisvagni við biðstöð SVR;
gekk aftur fyrir vagninn og út á
götuna með fyrrgreindum afleið-
ingum. Hann hlaut höfuðhögg,
nefbrotnaði og blæddi mikið úr
honum.
Tveir lýst kröf-
um í Bollagötu 12
FYRIR liggja tvær kröfur í húsið
Bollagata 12 í Reykjavík, en eins og
kunnugt er var ákvæði í erfðaskrá
eigenda hússins um að fullnægt yrði
skilyrðum um að eigendur störfuðu í
anda Marx og Lenins.
Hefur einn aðili lýst kröfu á
grundvelli erfðaskrárinnar, en
auk þess hefur einn lögerfingi lýst
kröfu sinni, samkvæmt upplýsing-
um sem Mbl. fékk hjá borgarfó-
getaembættinu.
Hins vegar hafa nokkrir spurst
fyrir um mál þetta og því er ekki
ljóst hvort fleiri aðilar munu lýsa
kröfum sinum í húsið. Kröfulýs-
ingarfrestur rennur út hinn 30.
júlí næstkomandi.
Gefin saman undir minnisvarða Jóns Sigurðssonar:
Ekki þeir annmarkar á
vígslunni að ógild sé
- konan verður að leita til dómstólanna til ógildingar
Dómsmálaráðuneytið hefur úr-
skurðað, að ekki hafi verið þeir
annmarkar á hjónavígslu, sem
framkvæmd var undir minnis-
merki Jóns Sigurðssonar á Austur-
velli, að ógild sé. Konan verður að
höfða mál fyrir dómstólum til
ógildingar hjúskapnum. Tapi hún
málinu fyrir dómstólum, þá eru
henni ekki aðrar leiðir færar en að
leita skilnaðar með venjulegum
hætti.
Tildrög þessa máls eru þau, að
í nóvember síðastliðnum var
konan, sem er 28 ára gömul, gef-
in 38 ára gömlum sjómanni, en
hún taldi að aðeins hefði verið
um glens og gaman að ræða, svo
sem skýrt var frá í Mbl.
Forstöðumaður Ásatrúarsafnað-
arins á íslandi framkvæmdi
vígsluna, en hann hefur heimild
til þess að gefa fólk saman í
hjónaband. Konunni varð svo
ekki um sel, þegar henni varð
ljóst að hún var komin í opinber-
ar bækur sem gift kona.
í 25. grein laga um stofnun og
slit hjúskapar, segir að annað
hjóna geti krafist ógildingar
hjúskapar að vissum skilyrðum
uppfylltum. Þau eru meðal ann-
ars, að annar aðilinn eða báðir,
hafi verið viti sínu fjær þegar
vígsla fór fram, eða að öðru leyti
hafi verið svo ástatt að eigi hafi
mátt skuldbinda sig til hjúskap-
ar að lögum. Að annar hvor aðil-
inn hafi villt á sér heimildir, sem
hefðu fælt hinn frá ráðahagnum.
Að fólk hafi verið gefið öðrum en
þeim sem það hafi bundist hjú-
skaparorði, eða hafi verið vígt án
þess að það ætlaðist til þess. Þá
er ennfremur getið sem ógild-
ingarástæðu, að fólk hafi verið
neytt til hjónavígslu. Tvíkvæni
eða of náin ættartengsl ógilda
sjálfkrafa hjónaband.
NOEMNROGNYIR
SAAB GU '82, ekinn 5 þús. SAAB 900 GLS '81. ekinn 14 þús.
Opiðíckigtilkl4
SAAB-eigendur athugið, tökum þann gamla upp
í nýjan - eða seljum hann fyrir þig ef þú vilt
heldur. Mikil eftirspurn tryggir hagstæð skipti.
TÖGGURHR
SAAB
UMBODIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530