Morgunblaðið - 14.05.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1983
5
FRUMSÝNING UM HELGINA íLÁGMÚLA 5
BX, ný óþekkt stærö frá
Citroén.
Nýjasti bíllinn frá Citroén heitir BX.
Hann er meðalstór 5 dyra bíll sem
brúar bilið milli Citroén GSAtig Citroén
CX. Nýji BX-inn er 4,26 m á íengd og
breiddin er 1,66 m. Hann er snilldar-
lega hannaður eins og Citroén sæmir
og þú sérð það strax að BX þýðir svo
sannarlega ekki Bara X.
Fjölskyldubíll í tvennum
skilningi.
Citroén BX er fjölskyldubíll í tvennum
skilningi. Hann sver sig í ætt við frönsku
Citroén fjölskylduna í allri hönnun og
búnaði: Vökvafjöðrunin, Citroén útlit-
ið, sparneytnin, straumlínan og fram-
hjóladrifið er allt á sínum stað. Citroén
BX er líka ekta íslenskur fjölskyldubíll.
5 manna, 5 gíra, 5 dyra og hægt að
leggja aftursætið niður og breyta hon-
um þar með í stóran sendibíl.
90 hestöfl, 11,5 sek. í 100
km hraða, meðaleyðsla
7,3 I á hundraðið.
Það er auðvitað erfitt að trúa því að
þessar tölur eigi allar við sama bílinn.
En þannig er það nú samt og reyndar
er hægt að bæta einni við (ef þio lofið
að segja lögreglunni ekki frá því);
Hámarkshraðí er 176 km á klukku-
stund. Já Citroén hefur alltaf verið
öðruvísi.
Verðið er líka öðruvísi!
Citroén BX 16 TRS árgerð 1983, sem
er vandaðasta útgáfa af BX gerðinni,
kostar aðeins um 340 þúsund krón-
ur. Pví miður fáum við ekki marga bíla
af árgerð 1983, en samt vonumst við
til þess að eiga einn handa þér.
Við sýnum einnig Visa
Super E og GSA Pallas.
Á bílasýningunni nú um helgina sýn-
um við einhig árgerð 1983 af hinum
stórvinsæla Citroén GSA Pallas, sem
kostar aðeins um 250 þúsund krón-
ur og svo auðvitað litla stóra Citroén-
inn, Visa Super E, sem nú er kominn
með 4ra strokka vél og kostar aðeins
um 220 þúsund krónur.
Frumsýningin er á
laugardag, sunnudag og
mánudag.
Sýningin í Lágmúla 5 verður opin laug-
ardag frá kl. 13-19, sunnudag frá kl.
13-19 og mánudag frá kl. 9-19. Frum-
sýningargestir geta skráð sig í reynslu-
akstur á staðnum.
G/obus?
LÁGMÚLI5,
SÍMI81555
CITROÉN *