Morgunblaðið - 22.05.1983, Side 1
80 SÍÐUR
114. tbl. 70. árg.
SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Habib á fundi
með Mubarak
Kaíró, 21. maí. AP.
PHILIP C. Habib, sérlegur fulltrúi
Bandaríkjaforseta í fridarviðræðun-
um fyrir botni Miðjarðarhafsins
sagði í dag, að samkomulag það,
sem náðst hefði milli ísraels og Líb-
anons ryddi leiðina til þess að kalla
allt erlent herlið burt frá Líbanon
og skoraði hann á alla „sanngjarna
menn“ að styðja það. Sagði Habib
þetta að afloknum klukkustundar
löngum fundi hans og Hosni Mub-
araks Egyptalandsforseta í morgun.
Óvenjulegt er, að Habib ræði
jafn ítarlega við fréttamenn og
hann gerði og þykir það benda til
bjartsýni hans um framvindu
mála á næstunni, en hann kvaðst
mundu fara aftur til ísraels og
Líbanons næstu daga.
Kamal Hassan Aly, utanríkis-
ráðherra Egyptalands, sagði í
dag, en hann sat fund þeirra Hab-
ibs og Mubaraks, að egypzka
stjórnin styddi viðleitni Banda-
ríkjamanna til þess að fá allt er-
lent herlið burt frá Líbanon.
Skoraði hann á Sýrlandsstjórn að
hefja viðræður við bandarísk
stjórnvöld í þessu skyni, svo fljótt
sem tök væru á.
Fundarhöld
600 SS-manna
Bad Hersfeld, 21. maí. AP.
RÚMLEGA 600 fyrrum félagar í
Kanadamenn
framseldu
stríðs-
glæpamann
Toronto, 21. maí. AP.
KANADÍSK yfirvöld framseldu í
gær Albert Helmut Rauca til
Vestur-býskalands, en hann er
grunaður um að hafa á samvisk-
unni morð 11.000 gyðinga í Litháen
í síðari heimsstyrjöldinni.
Vestur-þýsk yfirvöld hafa all
lengi reynt að fá hinn 74 ára
gamla Rauca framseldan. Ákær-
an sem lögð hefur verið fram á
hendur honum hljóðar upp á
morð á 11.584 gyðingum. Var
Rauca yfirmaður í SS-sveitum í
Litháen, en hann er sakaður um
að hafa myrt með eigin hendi
fimm fórnarlambanna, en fyrir-
skipað morð hinna.
Rauca hefur til þessa barist
með kjafti og klóm gegn því að
vera framseldur, og haft um sig
fjölmennt og harðsnúið lið lög-
fræðinga, en í gær hætti hann
baráttunni. Hann kom til Kan-
ada löglega árið 1950 og gerðist
kanadískur ríkisborgari sex ár-
um síðar.
| SS-sveitum Adolfs Hitler komu til
borgarinnar Bad Hersfeld á föstu-
daginn og ætla þeir að hittast í sam-
komusal í borginni í dag. Þetta er í
fimmta skiptið á jafn mörgum árum
sem mennirnir koma saman á þess-
um stað og eru bæjarbúar allt annað
en ánægðir.
Búist er við því að allt að 10.000
manns taki þátt í mótmælaað-
gerðum sem beint verður gegn
hópnum og fundinum. Einn borg-
arbúi sagði í gær að stefnt væri að
því að þetta yrði síðasti nasista-
fundurinn sem haldinn væri í Bad
Hersfeld. Annar sagði: „Við vilj-
um ekki hafa þennan lýð í bæn-
um.“ Þó að borgarbúum sviði það
sem þeir kalla að „fortíðin sé að
reyna að ná yfirtökunum", er ann-
að sem sem þeir óttast meira. Það
er að hin vaxandi hreyfing nýnas-
ista í Vestur-Þýskalandi líti á
fundarhöldin sem hvatningu til að
láta meira að sér kveða. Er jafnvel
búist við ofbeldi af þeirra hálfu og
voru búðareigendur í miðborginni
hvattir til að ganga tryggilega frá
gluggum og læsingum.
Nasistafundurinn hefur haft
margvíslegar leiðinlegar afleið-
ingar í för með sér fyrir borg-
arbúa. Ýmsum lista- og menning-
arviðburðum hefur orðið að fresta
vegna þess að þátttakendur hafa
ekki viljað dvelja í sama bæ og
umræddir nasistar.
Hvítir kollar í góda vedrinu
Morjfunblaóið Kristján
Skólar landsins eru nú óðum að Ijúka vetrarstarfinu og sífellt bætast fleiri hvítir kollar í hópinn. Þessi mynd var
tekin á fóstudag af nýstúdentum frá Menntaskólanum í Kópavogi. Álíka traustur sumarboði og skógarþröstur
eða lóa.
Herinn í S-Afríku
í viðbragsstöðu
— eftir sprenginguna í Pretoríu, þar sem 17 manns biðu bana
Pretoríu, 21. maí. AP.
LÖGREGLUMENN og sveitir úr
her Suður-Afríku slógu í gærkvöldi
hring um miðhluta Pretoríu, höfuð-
borgar landsins, eftir sprengingu,
sem varð þar í gær, en þá létu 17
manns lífið og um 200 særðust,
sumir mjög hættulega. Er þetta
háskalegasti atburður af þessu tagi,
sem orðið hefur í sögu landsins og
hefur hann vakið mikla skelfingu
og óhug á meðal fólks. Her og lög-
reglu hefur verið skipað að vera í
viðbragðsstöðu.
Nánari könnun hófst í dögun í
morgun á blóði drifnu umhverf-
inu þar sem sprengingin varð. Er
Sakharov neitað
um læknisþjónustu
Moskva, 21. maí. AP.
YELENA Bonner, eiginkona Andrei
Sakharovs, sagði í gær að sovésk
yfirvöld hefðu mcinað eiginmanni
sínum að fara í hjartaaðgerð í
Moskvu og lífi hans væri ógnað af
slæmri heilsu og „martraðarlegum**
ofsóknum leynilögrcglunar.
Erú Bonner beindi orðum sínum
ekki hvað síst til stuðningsmanna
Sakharovs á Vesturlöndum.
Hvatti hún þá til að láta ekki af
tilraunum sínum til að setja
þrýsting á sovésk stjórnvöld, ef
það gæti orðið til þess að þau
leyfðu honum að flytjast úr landi.
Hafa þau Sakharov-hjónin mikinn
áhuga á því, einkum hafa þau
áhuga á því að þekkjast boð Norð-
manna um að setjast að í Noregi.
.Ég vona að engar lygar sov-
éskra yfirvalda dragi úr möguleik-
unum á því að við fáum að flytjast
burt frá Sovétríkjunum. Fyrir eig-
inmann minn er að hrökkva eða
stökkva. Hann hefur tvo valkosti.
Annar er að deyja, hinn er að fara
úr landi," sagði frú Bonner.
Sovéska vísindaakademían vék
að Sakharov í fréttatilkynningu
sem hún birti í gegnum TASS,
hina opinberu sovésku fréttastofu.
Þar var ekki minnst einu orði á
umsókn Sakharovs og konu hans
um að fá spítalavist í Moskvu, en
frú Bonner hefur ekki síður en
Andrei Sakharov
maður hennar verið hjartaveik.
Akademían gagnrýndi hins vegar
Ronald Reagan harðlega fyrir að
að gera gærdaginn að sérstökum
„Sakharov-degi“, en Sovétmaður-
inn átti 62 ára afmæli í gær.
ákaft leitað að einhverju, sem
gefið gæti upplýsingar um hverj-
ir bera ábyrgð á sprengingunni,
en hún varð kl. 16.30 að staðar-
tíma og einmitt á þeim tíma, sem
þúsundir manna voru á leið heim
frá nærliggjandi skrifstofubygg-
ingum, en margar þeirra hýsa
ráðuneyti stjórnarinnar.
Er sprengjan sprakk, féll fjöldi
fólks um koll. „Þetta var eins og í
stríði,“ sagði maður, sem lifði
sprenginguna óskaddaður af.
Magnus Malan, varnarmála-
ráðherra Suður-Afríku, sagði í
dag, að allt yrði gert til þess að
hafa upp á þeim, sem staðið
hefðu að sprengingunni, til þess
að koma fram ábyrgð á hendur
þeim.
Þjóðarráð blökkumanna hefur
lýst yfir velþóknun sinni á
sprengingunni og réttlætt hana
með því, að hún hafi fyrst og
fremst beinzt gegn fólki úr her
Suður-Afríku og því hafi hér ver-
ið um hernaðaraðgerð að ræða
gegn stjórn landsins og aðskiln-
aðarstefnu hennar. Talsmaður
þjóðarráðsins vildi hins vegar
ekki staðfesta, að það hefði staðið
að sprengingunni og að það tæki
á sig ábyrgðina á henni.