Morgunblaðið - 22.05.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
5
— dagskrá á aldarfjórðungsártíð Steins Steinarrs
Eldfuglinn
Á dagskrá kl. 22.10 er kanad-
ísk ballettmynd, Eldfuglinn
(L’Oiseau de Feu). Tónlistin er
eftir Igor Stravinsky, Sinfóníu-
hljómsveitin í Montreal leikur,
Charles Dotoit stjórnar. Mynd-
in hlaut gullverðlaun á sjón-
varpsmyndahátíð í Prag 1980.
Á dagskrá sjónvarps kl.
18.00 í kvöld, hvítasunnu-
dagskvöld, er finnsk barna-
mynd, Villigróður. Þýðandi
er Jóhanna Jóhannsdóttir.
„Það vex eitt blóm
fyrir vestan“
Á dagskrá hljóðvarps kl. 14.10
er þáttur sem nefnist „Það vex eitt
blóm fyrir vestan’*. Dagskrá á ald-
arfjórðungsártíð Steins Steinarrs í
samantekt Hjálmars Ólafssonar.
— Steinn Steinarr lést á
hvítasunnudag fyrir 25 árum,
sagði Hjálmar, — og þessi
dagskrá er tekin saman af því
tilefni. Ég flyt svolítið spjall inn
á milli upplestra, en þeir sem
lesa þarna með mér eru Lárus
Pálsson, Óskar Halldórsson,
Herdís Þorvaldsdóttir og skáldið
sjálft. Við lesum ljóðin hans og
nokkuð af óbundnu máli, sem
hann gaf út í litlu kveri, „Við
opinn glugga". Inn á milli verður
svo sungin og leikin tónlist við
kvæði Steins.
Steinn Steinarr
Yfir Kjöl
Á dagskrá sjónvarps I kvöld kl. 20.40 er kvikmynd sem ísfilm hefur
gert og hlotið hefur nafnið Yfir Kjöl. Er þar fetað í fótspor dansks
liðsforingja og könnuðar, Daniel Bruuns, sem fór ríðandi suður Kjöl árið
1898 ásamt dönskum málara og islenskum fylgdarmönnum. Landstjórn-
in hafði veitt honum styrk til að varða Kjalveg hinn forna, svo að hann
mætti á ný verða ferðamannaleið. Leikstjóri er Ágúst Guðmundsson.
Myndina, sem hér fylgir með, tók Jóhannes Klein, og er hún af íslensku
fyigdarmönnunum.
Hljóövarp á hvíta.sunnudag kl. 14.10:
llljóóvarp á annan
í hvílasnnnn kl. 1 (>.20:
Afram
hærra
— dagskrá um
kristileg málefni
Á mánudag, annan í hvíta-
sunnu, kl. 16.20 er á dagskrá
hljóðvarpsþáttur sem nefnist
Áfram hærra. Dagskrá um kristi-
leg málefni. Umsjónarmenn: Ás-
dís Emilsdóttir, Gunnar H. Ingi-
mundarson og Hulda H.M.
Helgadóttir.
Gunnar H. Ingimundarson
sagði: — Stofnun kristinnar
kirkju má rekja til hins fyrsta
hvítasunnudags, er heilagur
andi kom yfir lærisveina Jesú
Krists. í þættinum, sem helgað-
ur er hvitasunnunni, verður
fjallað um kirkjuna, heilagan
anda og hvað það er, sem krist-
in kirkja leggur áherslu á í boð-
un sinni. Þá verður og leikin
trúarleg tónlist af léttara tag-
inu, svokölluð „gospel-tónlist".
Efnið ætti því að höfða til allra
aldurshópa.
Toronto
Winnipeg
14. júlí - 4. ágúst
3ja vikna dvöl í Toronto, 3ja vikna dvöl
í Winnipeg, bílaleigubíll, Florida, Hawaii,
stórborgir á vesturströndinni eöa hvað
annað sem hugurinn girnist. Leiguflugið
til Toronto og þaðan yfir til Winnipeg er
einstaklega ódýr byrjun á góðri ferð til
Vesturheims.
Kína
18. ágúst-11. september.
Ævintýraferðin í ár er til Kína í fylgd
þaulkunnugs íslensks fararstjóra. Ferðin
hefst með 1 nætur dvöl í London en síðan
er flogið til Peking og ekið þaðan vítt og
breitt um landið, alla leið suður til Hong
Kong. Hér verður hver dagur nýtt og
framandi ævintýri sem aldrei gleymist.
Bændaferð
16. - 28. júní
Stórskemmtileg bændaferð til Skotlands.
Ekið er víða um landið, gist í frægum
borgum og fallegum bæjum, víðfrægir
ferðamannastaðir heimsóttir og jafnvel
kíkt á Loch Ness skrímslið! Frægir og
athyglisverðir búgarðar sóttir heim og
ótal margt fleira gert sem jafnt heillar
hinn almenna ferðamann og er stórfróð-
legt fyrir allt landbúnaðarfólk.
Rútuferðir
Við minnum i lokin á hinar sívinsælu
rútuferðir um mið-Evrópu, 8-landa sýn,
6-landa sýn, Rínarlönd og Jersey/
Frakkland. Nú seljum við síðustu sætin
í hverri rútu!
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Sovétríkin
15. júlí - 5. ágúst
5.-26. ágúst.
Tvær þriggja vikna ferðir til Moskvu,
Leningrad og Sochi ásamt fimm nátta
dvöl í Kaupmannahöfn. Dvalist er í tíu
daga á hinum frábæru baðströndum
Svartahafsins við Sochi, í óviðjafnanlega
fögru umhverfi þessa stærsta og fræg-
asta sólbaðsstaðar Sovétríkjanna.
Helsinki
16. júlí - 3. ágúst
Helsinki-ferðin er á einstaklega hag-
stæðu verði og nú opnast kórum,
lúðrasveitum, íþróttafélögum og ótal
öðrum félagasamtökum ásamt auðvitað
einstaklingum langþráð og kærkomið
tækifæri til þess að heimsækja Finnland
með ævintýralega litlum tilkostnaði.
18. júní-1. júlí
Vegna langra biðlista í ferðirnar til
sumarhúsanna í Eemhof i Hollandi efnum
við til sérstakrar aukaferðar til Kemper-
vennen sumarhúsanna á landamærum
Hollands og Belgíu. Þessi hús og öll sú
aðstaða sem þeim fylgir voru byggð í
vetur og óhætt er að fullyrða að aðbún-
aðurinn í Kempervenneni eigi eftir að
koma farþegunum hressilega á óvart
með stærð sinni og glæsileika.
Sumarhús
í Danmörku
11.-30. júní 1.-22. júlí
22. júlí - 11. ágúst
Þrjár bráðsmellnar og óvenjulegar ferðir
á ótrúlega glæsilegum kjörum fyrir alla
aðildarfélaga. Ekið er vítt og breytt um
landið og dvalist í glæsilegum sumar-
húsum á þremur stöðum í Danmörku.
Skemmtileg blanda af rútu- og sumar-
húsaferð.
Átta safáríkar
Ný sumarhús
í Hollandi