Morgunblaðið - 22.05.1983, Side 15

Morgunblaðið - 22.05.1983, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAl 1983 Rússneskar nunnur myrtar f Jerúsalem Jerúsalem, 20. maí. AP. SÉRSTÖK rannsókn var fyrir- skipuð í dag á morði á mæðgum, sem voru nunnur í rússnesku rétt- trúnaðarkirkjunni í Jerúsalem. Kirkjan nýtur stuðnings frá Sovét- ríkjunum. Upp komst um morðið í morgun, þegar nunnurnar mættu ekki til morgunverðar í nunnuklaustri hinnar rússnesku kirkju Jóhann- esar skírara í vesturúthverfinu Ein Karem. Nunnurnar fundust látnar á gólfi herbergis síns og höfðu verið reknar í gegn mörgum sinnum. Móðirin var fædd 1915 og dóttir hennar 1940. Þær höfðu verið í rússnesku kirkjunni í Jerúsalem síðan 1945. Lögreglustjórinn í Jerúsalem, Yehoshua Caspia, sagði að kvart- anir hefðu borizt um skemmdar- verk og tilraun til íkveikju í kirkj- unni, en að öðru leyti hefði allt verið þar með felldu á síðari árum. ísraelska útvarpið sagði að inn- brotstilraun hefði einnig verið gerð skammt frá í frönsku nunnu- klaustri í Ein Karem, þar sem munnmæli herma að Jóhannes skírari sé fæddur. Nunnurnar voru úr hinni svo- kölluðu „rauðu rússnesku" kirkju, eins og kirkja sú sem sovétstjórn- in styður er kölluð, til aðgrein- ingar frá „hvítu rússnesku" kirkj- unni, sem nýtur stuðnings rússn- eskra útlaga. Aðalstöðvar hvít- rússnesku kirkjunnar eru í New York og hún rekur einnig kirkju í Jerúsalem. Iðnskólinn í Reykjavík Innritun fer fram í Miðbæjarskólanum í Reykjavík 1., 2. og 3. júní kl. 9.00—18.00 og í lönskólanum í Reykjavík á Skólavöröuholti 6. júní kl. 13.00—18.00. Póstlagöar umsóknir sendist í síöasta lagi 1. júní. Umsóknum fylgi staöfest afrit af prófskírteini. 1. Samningsbundiö iðnnám. Nemendur sýni námssamning eöa sendi staöfest afrit af honum. 2. Verknámsdeildir Framhaldsdeildir Ðókiönadeild Offsetiönir Prentiðnir Bókband Fataiönadeild Kjólasaumur Klæöskuröur Hársnyrtideild Hárgreiösla Hárskuröur Málmiðndeild Bifvélavirkjun Bifreiöasmíöi Rennismíöi Vélvirkjun Rafiöndeild Rafvélavirkjun Rafvirkjun Rafeindavirkjun (útv.virkjun) skriftvélav.) Tréiöndeild Húsasmíði Húsgagnasmíöi 3. Tækniteiknun. 4. Meistaranám byggingarmanna. Húsasmíöi, múrun og pípulögn. 5. Fornám. lönskólinn í Reykjavík. Alltaf í hádeginu Sjávarréttahlaðborð meö úrvali heitra og kaldra rétta — o — Hvítasunnudagur Kvöldveröur: Skeldýrakoktail. Steikt villigæs meö waldorfsalati og parísarkartöflum. Sherry Triffle. — O — 2. hvítasunnudag Kvöldverður: Graflax meö sinnepssósu. Heilsteiktar nautalundir bordelaise meö rauövínssósu, sveppum og bakaðri kartöflu. Marineraöir ávextir Peter Heering. lorion RESTAURANT AMTMANNSSTÍGUR 1 TEL. 13303 MetsöluUad á hverjum degi! Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga Húsavík. 13. maí. AÐALFUNDUR Kaupfélags Þingey- inga 1983 var haldinn í Félagsheim- ili Húsavíkur þann 7. maí sl. Teitur Björnsson stjórnarfor- maður stýrði fundi og minntist látinna félaga. Kaupfélagsstjóri og stjórnarfor- maður gátu þess í framsöguræð- um að liðið ár var afmælis- og há- tíðarár Kaupfélags Þingeyinga og allra samvinnumanna. Var þess minnst með ýmsum hætti og bar þar hæst samvinnuhátíðina að Laugum i júnímánuði. Veltuaukning á árinu var um 66,5% í verslun og 76,7% í iðnaði, sem var talið mjög viðunandi. Kostnaður hækkaði þó einnig mik- ið, einkum vaxta og fjármagns- kostnaður, sem varð 130% meiri en árið áður. Þessir vextir leggjast þyngst á versiunina sem er aug- ljóslega rekin með verulegu tapi, en bókfærður rekstrarhalli félags- ins varð 1,8 millj. Úr stjórn áttu að ganga Teitur Björnsson, Jóhann Hermannsson og Jónas Egilsson og voru allir endurkjörnir. Úthlutað var úr Menningarsjóði K.Þ.: Til Ásgeirs H. Steingríms- sonar kr. 10.000, Héraðssambands S-Þingeyinga kr. 10.000, Ræktun- arfélags Norðurlands kr. 6.000, Tónlistarskóla Húsavíkur kr. 6.000. Mikið var rætt um afurðasölu- mál landbúnaðarins og m.a. sam- þykkt eftirfarandi ályktun: „Aðalfundur K.Þ. 1983 skorar á bankaráð Seðlabankans að flýta greiðslum afurðalána til slátur- leyfishafa frá því sem verið hefur. Telur fundurinn það sanngirnis- kröfu að 60% lánsupphæðar, mið- að við fyrra árs framleiðslu, sé greidd fyrir 20. október, en full- naðargreiðslu sé lokið fyrir 1. des- ember.“ KrétUrilvi. Sérstakt ferðatilboð í tengslum við „I love New York" Það er ómögulegt að láta sér leiðast i New York. Pað er alltaf hægt að finna eitthvað nýtt og skemmtileg við sitt hæfi. leikarar fara til New York til að sjá söngleikina á Broadway, æfingaleikhúsin í SoHo og Creenwich Village, og frumsýningaleikina á 44. götu. Á Upper East Side rekur Sella Pálsson þekktan leiksýningastað Söngvarar sækja söngskemmtanir í Town Hall og Lincoln Center t.d. hiá Metropolitan Opera House. Par söng Maria Markan á sínum tíma. Listamenn sækja sýningar The Cloisters, The Frick Collection, Cuggenheim Museum og Museum of Modern Art, Cuggenheim á það til að sýna verk eftir Nínu Tryggvadóttur. Ef þú vilt versla eins og innfæddur Manhattan- búi, þá skaltu skoða þig um i Bloomingdales og hjá Saks Fifth Avenue, en þess skal getið að þessar verslanir eru ekki þær ódýrustu í borginni. Ef þú vilt fara á veitingastað, þar sem New York .stjörnurnar' koma til að sýna sig og sjá aðra, er reynandi að kíkia inn á Sardis i hádeginu, .21' club í kvöldmat, og hiá Elaines eftir miðnætti. Sérstakt Flugleiða tilboð til þeirra sem vilja notfæra sér vorskemmtanir stór- borgartnnar glæsilegu. - leikhús, söng- leikl, óperur, balletta, Jazzklúbba, tónlelka, listsýningar, uppboð, o.fl., o.fl. Flugferðir í maí frá 11.003.00 krónum. Gistlng í 7 daga á góðu hóteli frá 4.813.00 krónum. FLUGLEIDIR S ___ Gott fólk hjá traustu félagi Æ. EWYORK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.