Morgunblaðið - 22.05.1983, Síða 17

Morgunblaðið - 22.05.1983, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983 leg eins og að líkum lætur, og þar var ég svo lánsamur að kynnast Nínu Tryggvadóttur lítillega. Hún kom stundum á kaffihús þar sem við íslendingarnir sátum oft, og eitt sinn sagðist hún hafa áhuga á að koma á vinnustofu mína og sjá hvað ég væri að gera. Það var auð- sótt mál, en vinnustofan var raun- ar aðeins lítið hótelherbergi þarna skammt frá. Svo fór að hún bauð mér að vera með á sýningu hennar og fleiri listamanna 1955, og það var í fyrsta skipti, sem ég sýndi verk mín opinberlega. Alla tíð síð- an hef ég verið henni þakklátur fyrir þetta, og á sýningunni hlotn- aðist mér sá heiður að sýna innan um marga mjög kunna málara, svo sem Herbin, Vasarely og fleiri. — Ég sá sýninguna að vísu ekki sjálfur, en Jón óskar sá hana og sagði mér, að ég hefði fengið pláss í sama sal og þessir frægu listam- enn. Sjáfur var ég farinn heim, er sýningin var opnuð." „Ljóðrænn abstraktmálari“ — Hvernig skilgreinir þú sjálf- an þig sem listmálara, og hvaða breytingar hafa orðið á þeim ár- um, sem liðin eru frá sýningunni í Listamannaskálanum 1956? „Helst vildi ég nú sleppa við að skilgreina sjálfan mig eða það sem ég er að fást við, en kunningi minn einn hefur sagt að ég hafi breyst frá því að vera „harður geometr- ískur málari" í að að vera nú „ljóð- rænn abstraktmálari". — Öllu lengra færðu mig ekki í þessari umræðu, og þetta er sagt algjör- lega án ábyrgðar, en um leið get ég þó sagt að ég er þessu sammála að mestu leyti!" — Fígúratívar myndir höfða ekki til þín? „Ekki á þann hátt að mig langi til að mála slíkt verk, nei. Áður einhverjum sérstökum hughrifum, til dæmis þeim sömu og þú sjálfur, eða aþeim sem þú ert að reyna að koma til skila? „Nei, alls ekki. Engir tveir menn geta skynjað málverk á sama hátt, og fráleitt er að ætla að menn verði fyrir einhverjum fyrirfram ákveðnum hughrifum frá málar- anum. — Síst af öllu þegar um abstraktmálverk er að ræða. Ég vona á hinn bóginn að menn verði fyrir einhverjum áhrifum af verk- um mínum, og helst vildi ég að þau gætu gert menn að betri mönnum." — En búa einhver sérstök hughrif í hverri mynd frá þér? „Ekki á þann hátt, að í ein- hverju sérstöku skapi setjist ég niður og ljúki við mynd og komi tilfinningum mínum á blað eða léreft. Ég er ekki expressíonískur málari, sem lýk myndum mínum á tveimur tímum, ég er miklu leng- ur, allt upp í tvö ár, að ljúka við myndirnar, og er með fjölmargar í vinnslu í einu. — Hughrif eru vitaskuld að baki öllum myndum, en þau geta verið mörg, ótal mörg, því tíminn er svo langur. Og eitt af því sem gerist líka oft er það, að málverkið sjálft tekur af manni völdin, það breytist og verður á endanum allt annað en til var ætl- ast í upphafi. Oftast eru það bestu myndirnar, sem þannig verða til.“ Flaggað í hálfa stöng! — Skemmtilegt er að fletta gömlum blöðum, og sjá hvað sagt var um sýningar Hafsteins á hin- um ýmsu tímum. Árið 1960 hélt hann sýningu á Akureyri, og þá mátti meðal annars lesa eftirfar- andi í íslendingi: „Það er von þeirra sem að sýningu Hafsteins standa, að hún verði vel sótt, því að við Akureyringar eigum nokk- uð undir því að hún heppnist vel, Hafsteinn á fyrstu málverkasýningu sinni í Listamannaskálanum 1956. í baksýn er eitt málverkanna á sýningunni, en til hægri skúlptúr úr tré eftir Hafstein. fyrr gerði ég talsvert af slíku, það gat jafnvel komið fyrir að maður málaði sama mótífið út um glugga í heilan vetur, málaði ótal „húsa- partý“ hvert á fætur öðru. Hið óhlutbundna hefur síðan átt meira í mér, en um leið vil ég taka fram, að ég hef síður en svo á móti landslagsmyndum eða öðru fígúr- atívu málverki. — Málverk er gott eða slæmt, alveg án tillits til þess í hvaða stíl það er málað eða undir hvaða áhrifum, alveg á sama hátt og málverk af ljótri konu getur ekki síður verið gott málverk en mynd af fallegri konu. Ég hef alla tíð verið mikið úti í náttúrunni, en hef þó látið vera að festa hana á léreft. Um leið er þó rétt að taka fram, að ég verð fyrir miklum áhrifum úti í náttúrunni, og þess má vafalaust sjá merki í myndum mínum." Engir tveir skynja á sama hátt — Er þér mikið í mun að þeir, sem horfa á verk þín, verði fyrir því að þá er von um framhald á slíkum sýningum málara okkar, en á því hefur verið mikill hörgull, að okkur gæfist kostur á að fylgj- ast með í þessum efnum." — Gerðir þú góða ferð norður, Hafsteinn? „Já og nei,“ segir listamaðurinn og hlær við. „Það var gaman að fara norður, og aðsóknin var ágæt, en ég seldi bara eina mynd, og það var Reykvíkingur sem keypti hana! Það að ég fór norður atvik- aðist þannig, að Ásgeir Jakobsson bjó þá nyrðra, og falaðist eftir að ég kæmi til Akureyrar eftir að sýningu, sem ég var með í Reykja- vík, lyki. Ég sló til, og sýningin var ákveðin í Gagnfræðaskólanum. Ásgeir sendi út fjölda boðskorta, og fólk dreif að, ekki vantaði það. Ásgeir komst þó ekki á sýninguna sjálfur af einhverjum ástæðum, og varð ég því einn að taka á móti fólkinu. Það gekk í salinn og tók i höndina á mér, en raðaði sér síðan upp í hring og horfði á mig halda áfram að heilsa nýjum gestum! Eitthvað var þetta vandræðalegt, en smám saman lagaðist þetta þó, í tilefni sýningar Hafsteins f Unuhúsi 1966 lét Ragnar í Smára gera kynn- ingarrit um listamanninn, þar sem var aó finna litprentun á einu verka Hafsteins og ritgerð um hann eftir Þorstein frá Hamri. Hér sést forsíða ritsins. en ekki voru nú Akureyringar yfir sig hrifnir af abstraktmálaranum! Einn mann þekkti ég, sem kom á sýninguna, en það var Gunnar Reynir Sveinsson tónlistarmaður, sem þá kenndi á Akureyri. Bað ég hann að draga fána að hún fyrir utan, til að fá meiri stemmningu, og gerði hann það. — Skömmu eft- ir að hann fór út kemur hann svo hlaupandi inn aftur, og segir allt vera fast! „Fast“ spyr ég, „hvað er fast?“ — „Fáninn," segir hann, „hann er fastur í hálfri stöng, og fer hvorki upp né niður!“ — Þetta reyndist rétt og varð að fá slökkvi- liðið til að ná honum niður ef ég man rétt. — Já, það var bara gaman að fara norður með sýninguna!" Réð sjálfur Austmannsnafninu — Hvaðan kemur Austmanns- nafnið, Hafsteinn, er það gamalt ættamafn eða tókst þú þér það sem listamannsnafn? „Hvorugt. Ég réð sjálfur hvað ég var skírður á sínum tíma, og kaus þá að heita Hafsteinn Aust- mann! — Ástæður þessa voru þær, að ég var ekki skírður þegar ég var barn; foreldrar mínir voru harðir kommar, og munu ekki hafa talið kristilega skírn sérstaklega mik- ilvæga! — Þegar ég er svo orðinn 6 eða 7 ára, er ég var í sveit austur í Biskupstungum. Þá kemst þetta upp þegar presturinn kom að skíra börn á bænum, og fólki finnst ótækt að ég skuli ekki hafa verið skirður. Það er drifið í að skíra mig, og ég sagði sjálfur til nafns, kvaðst vilja heita Hafsteinn eins og ég hafði alltaf verið kallaður, en bætti Austmann við. — Þar komu til áhrif frá því að ég var fæddur á Vopnafirði, og hugsaði talsvert austur eftir að ég fór að komast til vits. Fullu nafni heiti ég því Hafsteinn Austmann Kristjánsson, og á opinberum plöggum nefnist ég Hafsteinn A. Kristjánsson! — Ég hef ekki viljað breyta því, auðvitað held ég mínu föðurnafni, en þó má segja að þetta sé orðið hálfgert dulnefni! — Austmann finnst mér aftur prýði- legt listamannsnafn, og set það á myndir mínar." OLÍS-menn halda hópinn — Að loknu þessu síðasta vatnslitamyndatímabili, hvað tek- ur þá við? „Ég veit það varla ennþá, en ég er þó farinn að fást við olíuliti á ný, er að vinna að nokkrum mynd- um þessa dagana, enda reyni ég helst að mála eitthvað á hverjum degi, lykta svona aðeins af túbun- um að minnsta kosti! — Kannski set ég eitthvað af þessum myndum á sýningu hjá „Listmálarafélag- inu“ — OLÍS, eins og gárungarnir kalla það, en við verðum með sam- sýningu á Kjarvalsstöðum í júní.“ — Þið haldið hópinn eitthvað, OLÍS-menn? „Já, þetta er félagsskapur sem stofnaður var fyrir fáum misser- um, og við reynum eitthvað að halda hópinn, hittumst og ræðum málin, og sýnum saman. Upphaf- lega átti þetta félag nú að heita einfaldlega „Málarafélagið", en húsamálarar gátu ekki hugsað sér að leyfa okkur afnot af stéttar- heiti sínu, svo orðið „list“ varð að koma framan við, þótt það sé á margan hátt útþvælt. Þa er gam- an að vera í félagi eða samtökum af þessu tagi, það eru ekki svo mörg tækifæri sem málarar hafa til að hittast. — Áður var meira um þetta, til dæmis þegar Lista- mannaklúbburinn var í Leikhús- kjallaranum, eða þegar listamenn hittust uppi á lofti í Naustinu á þurrum kvöldum." Þar með var sleginn botninn í viðtalið að þessu sinni, eftir ánægjulega dagstund heima hjá Hafsteini og í vinnustofu hans úti í Skerjafirði, og skemmtilega heimsókn á sýningu hans í Lista- safni ASÍ. — Ýmislegt verður að bíða næsta viðtals, svo sem skemmtileg frásögn af dvöl í Circ- olo Scandinavo í Róm og annarri í Árósum í Danmörku, og margt fleira. Sýningu Hafsteins Austmann lýkur á morgun, annan í hvíta- sunnu, og er opið í dag og á morg- un frá klukkan 14 til 22. — AH

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.