Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
Karatefélag
Reykjavíkur
Nýtt byrjendanámskeiö í karate er aö hefjast.
Innritun veröur í Ármúla 36, vikuna 23. til 28. maí
milli kl. 19—21, sími 35025.
Aldurstakmark 14 ár.
Karate er spennandi og skemmtileg íþrótt.
Afbragðs líkamsrækt og fullkomnasta sjálfsvörn
sem völ er á.
Karate er jafn fyrir konur og karla.
SÍMASKRÁNA
íhlííóarkápu!
Símaskráin er allsstaðar nauðsynleg. En eftir nokkra
notkun vill hún verða snjáð. Stundum rifna blöð úr
og þá geta skapast vandræði. Forðum því.
Hlífðarkápan frá Múlalundi er lausnin.
Endist ár eftir ár og er ódýr í þokkabót.
Fæst í öllum bóka- og ritfangaverslunum
Múlalundur
Símar: 38400 - 38401 - 38405 og 38667
Áskriftarsíminn er 83033
Jón Nordal
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Efnisskrá:
Jón Nordal Choralis.
Saint-Saens Píanókonsert nr. 2.
Korsakoff Sjerasade.
Einleikari: Gabriel Tacchino.
Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat.
Einangrun okkar Islendinga
„norður við heimskaut í sval-
köldum sævi“ gerir okkur næma
á alla eftirtekt er samlandar
Gabriel Tacchino
okkar kunna að vekja á erlend-
um vettvangi. Það er stutt síðan
að á nær öllum sviðum vorum
við ekki taldir jafnokar erlendra
manna og það sem verra var,
þetta var nærri bjargföst trú
manna, sem enn í dag liggur læ-
vís í leynum alls staðar. Kynni
okkar af umheiminum hin síðari
árin hafa sannfært okkur um
það hversu einstaklingurinn er
verðmætur, dýr gersemi, ekki
aðeins í fámenni, heldur og með-
al milljónanna. íslenskir af-
burðamenn hafa smám saman
opnað leiðir út í hinn stóra heim,
kveðið sér hljóðs og beint sjón-
um manna að sérkennilegu
mannlífi hér uppi á gamla Fróni.
Á síðasta ári, nánar til tekið 23.
nóvember var flutt í Bandaríkj-
unum tónverk eftir Jón Nordal,
er hann nefnir Choralis. Flutn-
ingur verksins var í tengslum við
þá miklu norrænu kynningu,
sem mikið hefur verið skrifað
um og margir tengdu miklar
vonir við, en eins og verða vill,
þá eru margir til kallaðir en fáir
útvaldir. Choralis vakti mikla
athygli, fékk einróma góðar und-
irtektir. Það var því nokkur eft-
irvænting á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands sl. fimmtu-
dagskvöld, og Háskólabíó þétt-
skipað áheyrendum, þrátt fyrir
mikið geimskutlu óðagot á
mönnum. Verkið er eins og nafn-
ið bendir til með trúarlegum
grunntóni, sem er undirstrikað-
ur með Liljulaginu sérkennilega.
Undirritaður þykist finna ein-
hverja sterka leit að fegurð í
Choralis, svipaða og í hátíðar-
forleiknum, sem Jón samdi fyrir
opnun íslensku óperunnar.
Hógvær en ásækin listþörf, sem
stígur eins og bæn upp fyrir
jarðbundna grimmd samtíðar-
innar. Glæsiþáttur tónleikanna
var svo píanóleikur Gabriel
Tacchino í píanókonsert nr. 2,
eftir Saint-Saens. Tacchino er
stórkostlegur píanisti, teknískur
og músíkalskur. Síðasta verkið á
tónleikunum var svo Sjerasade
eftir Korsakoff. í þýðingu
Steingríms Thorsteinssonar á
Þúsund og ein nótt er dóttir Ves-
írskins nefnd Sjerasade og ætti
Sinfóníutónleikar
GLESILEGUR
SUMARBÚSTAÐUR
FRÁ
HUSASMIÐJUNNI
Til sýnis á svæöi Skógræktarfélags
Reykjavíkur í Fossvogi um helgina
og næstu daga.
Komið og skoöiö bústaöinn í fallegu umhverfi.
Leitið upplýsinga um möguleikana sem
sumarbústaðir okkar bjóöa.
HÚSASMIÐJAN HF.
Súðavogi 3-5,104 Reykjavík, sími: 84599