Morgunblaðið - 22.05.1983, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ1983
JARÐSKJÁLFTAR
Sagan endurtekur
síg í Kafifomíu
1983. Eftir jarðskjálftana í bænura Coalinga 1983. Heimilislausir þiggja
máltíð úti undir berum hirani.
Mánudagurinn 2. maí leit út
fyrir að ætla að verða rólegur
dagur í litla bænum Coalinga í Kali-
forníu. En síðdegis, klukkan 16.25
fór jörðin allt í einu að skjálfa. Á
nokkrum sekúndum jöfnuðust stórir
hlutar bæjarins við jörðu. Fólk
horfði á eftir lífsstarfi sínu í rykið,
en fyrir eitthvert stórkostlegt krafta-
verk týndi enginn lífinu.
Kalifornía er eitthvert mesta
jarðskjálftasvæði í heimi. Á
hverju ári verða á þessu fjölmenn-
asta svæði Bandaríkjanna einn
eða tveir skjálftar af sama styrk-
leika og sá sem reið yfir Coalinga.
Skaði af þeirra völdum fer eftir
því hvar þeir bera niður. Jarð-
skjálftafræðingar bíða eftir „stóra
jarðskjálftanum" sem kannski
verður 100 sinnum öflugri en sá í
Coalinga og þeir giska á að hann
muni koma eftir innan við 25 ár —
kannski innan við tíu ár.
Enginn hluti Kaliforníu getur
sloppið við jarðskjálfta. Upp-
hafsmaður þekktasta kvarðans
sem mælir styrk jarðskjálfta er sá
hinn frægi Charles Richter. Hann
hefur oft verið spurður að því hvar
menn helst ættu að búa í Kali-
forníu til að komast undan
ógninni. Hann svarar:
— Hvergi, það finnst nálega
enginn staður í öllu ríkinu þar
sem ekki þarf að óttast um kröft-
ugan skjálfta.
Síðustu fimm árin hefur tala
skjálfta verið hærri en undan-
farna þrjá áratugi. Jarðskjálfta-
fræðingar segja að slíkum tíma-
bilum stöðugrar virkni jarðskorp-
unnar fylgi oft stærri og meiri
skjálftar, sjö stig eða meira á
Richter-kvarða. Skjálftinn í Coal-
inga mældist 6,5 stig. Líkingaspá,
sem birt er árlega segir að 13 pró-
sent líkur séu á skjálfta, sem, ef
hann verður í stærri bæjum eða
borgum, getur valdið stórslysi.
— Viðvörun —
Skjálftinn í Coalinga var við-
vörun um hvað íbúar Kaliforníu
geta átt von á í framtíðinni. Jim
Crawford hafði rétt lagt bíl sínum
og var á leið í símasjálfsala.
— Þetta var hræðilegt, jörðin
bara skalf. Frá fjallinu hér vestur
af gaus upp mikill reykmökkur.
Bílinn minn hoppaði upp og niður
á stæðinu og neðar í götunni
heyrði ég hræðsluóp í mönnum.
— Þakið var um það bil að
hrynja yfir börnin, sagði Lupe
Gonzales, sem sat yfir börnum
dóttur sinnar. Tengdasyni hennar
tókst að bera börnin út rétt í þann
mund sem þakið gaf sig.
Þök hrundu, veggir lögðust sam-
an, hús hrukku af grunni, þegar
jörðin skaif. Bensín-, rafmangs-
og símalínur slitnuðu. í eldhúsinu
á veitingastaðnum Coalinga-Inn
rofnaði gasleiösla. Það kviknaði í
gasinu sem streymdi út og eldlog-
arnir gleyptu í sig innviði hússins.
Næsta hús við, skartgripabúð,
varð einnig fyrir barðinu á eldin-
um.
Um 50 manns meiddust en
aðeins tveir alvarlega.
Landbúnaðarverkamaður að nafni
Walter Fratti var grafinn upp úr
rústunum með brákaða höfuð-
kúpu. Hann liggur enn meðvitund-
arlaus á spítala og er óvíst hvort
hann muni lifa af.
— Það er ótrúlegt að enginn
skyldi deyja í skjálftunum, sagði
ríkisstjórinn, Glenn Marcussen,
við fréttamenn daginn eftir jarð-
hræringarnar.
Enginn hafði séð fyrir skjálft-
ana í Coalinga. Það voru engir
smáskjálftar á undan honum, sem
jarðskjálftafræðingar vilja meina
að séu undanfarar stærri skjálfta.
Þessi átti sér stað meðfram áður
óþekktri misgengissprungu, en
það segir sig sjálft að það er erfitt
að sjá fyrir skjálfta á svæði sem
er gegnum skorið af misgengjum.
Jarðskjálftafræðingar beina
augum sínum að San Andreas-
misgenginu, sem liggur í norðvest-
ur frá mexíkönsku landamærun-
um, beint í gegnum San Francisco
og þaðan áfram í norður. Menn
veigra sér við að giska á hvaða
afleiðingar skjálftinn i Coalinga
hefði haft ef hann hefði átt sér
stað í San Francisco. Rannsóknir
sýna ótvírætt að jarðskjálftinn í
Coalinga hefur ekki létt á þrýst-
ingi meðfram San Andreas-
sprungunni og ekki heldur á stóra
skjálftanum sem fræðingarnir
segja að nálgist með degi hverjum.
— Los Angeles
á hreyfinu —
San Andreas-misgengið liggur
á mörkum tveggja jarðar-
hluta, Kyrrahafshluta og þeim
norður-ameríska, og núast þeir
stöðugt saman. Kyrrahafshlutinn
færist í norðvestur og með hverju
ári færist Los Angeles nokkra
sentimetra nær San Francisco.
Við misgengið koma þessar hreyf-
ingar af stað núningi og hlutarnir
tveir grípa í hvor á móti öðrum.
Og dag einn er spennan sem
myndast við þetta orðin svo mikil
að núningurinn getur ekki lengur
haldið í hlutana. Þegar hreyf-
ingarnar verða hvað mestar fer
hafhlutinn að færast í norðvestur
með stórkostlegu afli og eyðilegg-
ing á jörðu verður óhemjumikil.
— Það er aðeins tímaspursmál
hvenær stór jarðskjálfti verður ,
segir Tom Heaton hjá bandarisku
landafræðistofnuninni. — Við vit-
um að það er óumflýjanlegt og að
það gerist trúlega á meðan við er-
um enn á lífi.
Kalifornía tilheyrir einu af
mestu hættusvæðum jarðarinnar
og öflin við mörk jarðarhlutanna
hafa í gegnum tíðina umturnað og
eyðilagt margt af því sem menn-
irnir hafa byggt upp.
Árið 1906 hrundi borgin San
Francisco til grunna í jarðskjálfta
sem varð um 500 manns að aldur-
tila. Skjálftinn skall á áður en
Charles Richter fann upp kvarð-
ann sinn, en hann hefur að líkind-
um verið 8,5 stig að styrkleika.
Skalinn er lógaritmískur og fyrir
hvert eitt stig sem bætist á hann
verður jarðskjálftinn tíu sinnum
sterkari. Landsskjálftinn 1906
reiknast því næstum hundrað
sinnum sterkari en sá sem ölli
hörmungunum í Coalinga.
Þegar jarðfræðingar gera spár
sínar um komu stóra jarð-
skjálftans hafa þeir til hliðsjónar
skjálftann 1857. Eftir samtíma-
heimildum að dæma titraði jörðin
þá svo ofboðslega, að dæmi voru
fýrir því að menn yrðu sjóveikir á
meðan á honum stóð. Þá var Los
Angeles aðeins lítil borg. I dag er
hún þriðja stærsta borgin í
Bandaríkjunum með um þrjár
milljónir íbúa og San Andreas-
misgengið liggur beint í gegnum
framtíðariðnaðarsvæði hennar,
Silico Valley.
Sérfræðingar sem grafið hafa
niður í misgengið til að rannsaka
hvenær skjálftinn stóri er vænt-
anlegur, segja að tíminn milli
hinna sögulegu jarðskjálfta og
þess sem væntanlegur er, setað
renna út.
— Varnir —
Flestir eru illa undir það búnir
að taka á móti stóra skjálftanum,
ef má orða það svo. Það er skylda
að skipuleggja jarðskjálftavarnir,
en margir segja að það sé svo dýrt
og vona að hörmungarnar lendi
ekki á þeim. Forstöðumaður al-
mannavarna í Coalinga, Tom Euli-
kov, sagði eftir skjálftana þar: