Morgunblaðið - 22.05.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
27
— Flestir héldu að þeir þyrftu
ekki á vörnum að halda. Ég hafði
ekki undirbúið mig fyrir þetta.
Eftir marga skjálfta á tímabil-
inu 1979—’80 var sett á laggirnar
nefnd sem athuga skyldi mögu-
leika á fyrirbyggjandi starfi og
minnka hættuna á algerri eyði-
leggingu við skjálfta. Nefndin
fékk til umráða 4,3 milljónir doll-
ara fyrsta árið, en áhuginn
minnkaði fljótlega og í ár fær hún
úthlutað af góðvild 125.000 dollur-
um. Nokkrum dögum eftir skjálft-
ana í Coalinga var það barið í
gegn að nefndin fengi til viðbótar
130.000 dollara til umráða.
Spurningin snýst tæplega um
tafarlausa fólksflutninga þó
það takist að spá með fyrirvara
um jarðskjálfta. En það er hægt
að reikna út hvaða byggðir búi við
mestu ógnunina. Það þarf að vita
um helstu ráðstafanir sem haldið
gætu skaða í lágmarki. Flytja til
dæmis slökkvibíla út fyrir svo þeir
lokist ekki inni ef slökkvistöðin
hrynur, svo eitthvað sé nefnt.
Útreikningar og spár gefa í
skyn að skjálfti í Los Angeles gæti
kostað um 10.000 manns lífið og
valdið tjóni upp á 20 milljarða
dollara.
Byggingarnar sem verst urðu
úti í Coalinga voru úr tígulsteini
og í Los Angeles eru minnst 8.000
hús smíðuð á sama hátt og eru þau
þar fyrir utan yfirleitt stærri og
hærri en þau í Coalinga. Sam-
kvæmt ákvörðun sem tekin var
fyrir tveimur árum var eigendum
þessara húsa gert skylt að rífa
húsin sín eða styrkja þau innan
átta til fimmtán ára. Líkindi á
jarðskjálfta sem deyða myndi
milli 3.000 til 13.000 manns í Los
Angeles innan næstu 30 ára eru
reiknuð 50 prósent. í San
Francisco hafa athuganir á styrk-
leika og mótstöðu húsa enn ekki
átt sér stað.
Þó finnst undantekning á fyrir-
varaleysinu. Security Pacific Nat-
ional Bank hefur kennt starfsfólki
sínu hjáip í viðlögum og sett
sterkar þverslár fyrir glugga
byggingar sinnar til að koma í veg
fyrir að fólk detti út um glugga
háhýsisins. Þá hefur bankinn
einnig tilkynnt að húsnæði hans
skuli notað sem líkhús ef til stór-
slysa kemur.
Ken Malay vinnur hjá sérstakri
stórslysanefnd stjórnarinnar.
Hann segir að Kaliforníubúar séu
áhugalausir um jarðskjálfta. Eftir
að hafa kynnst því sem gerðist í
Coalinga ráðleggur hann öllum að
byrgja sig upp af nauðsynjavarn-
ingi eins og vatni, mat, sáraum-
búðum og sterín-ljósi.
— Almenningur skilur ekki að
hann verður að sjá um sig sjálfur
fyrstu 72 tímana eftir jarð-
skjálfta, þegar opinber þjónusta
hefur lamast algerlega, segir
hann.
ICoalinga búa þeir sem verst
urðu úti í tjöldum í trjágörð-
um. Bærinn hlaut nafn sitt af
dýrmætum kolum sem í eina tíð
var nóg af á staðnum. Flestir
hinna 7.000 íbúa bæjarins hafa lif-
að á landinu síðan kolin þraut, eða
á olíusvæðum í nágrenninu. Fé-
lagsmálafulltrúar höfðu fyrir
skjálftann mestar áhyggjur af
vaxandi atvinnuleysi og aukinni
drykkju bæjarbúa. Rauði krossinn
gefur á hverjum degi um 5.000
máltíðir, en bráðbirgða svefn-
plássin sem komið var upp eftir
skjálftann fyrsta, standa næstum
auð. Eftir tvo jarðskjálfta sem
komu eftir þann stærsta sagði
talsmaður Rauða krossins, Bill
O’Callahan.
— Þetta er orðinn hluti af líf-
inu hér og við höfum vanið okkur
á það.
Brad Hames stendur í garðinum
sínum hann er 12 ára.
— Ég er hræddur við að fara
inn í húsið vegna þess að það getur
fallið ofan á mig. Ég stend hér úti.
í Coalinga á óttinn sér mörg líf.
Þýtt — ai.
LUKKULEIKUR. HAPPDRÆTTI
SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS.
SPILAR ÞÚ MEÐ ? (EB) VTÐ ÞÖRFNUMST ÞÍN - ÞÚ OKKAR
ELECTROLUX
ÖREYLGJU
GFNAR
Lukkuleikurinn snýst um það hverjir hreppi
120 Elektrolux örbylgjuoína og
5 STÓRGLÆSILEGA MAZDA BÍLA
Allir þessir vinningar eru skattfrjálsir.
Spilar þú með? Gleymdu þá ekki gíróseðlinum.