Morgunblaðið - 22.05.1983, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
37
Dröfn Magnúsdótt-
ir — Minningarorð
hins síðasta og hafði sérstaka
ánægju af að klæða sig fallega.
Hinn góði smekkur hennar kom
einnig fram í ótal fögrum munum,
sem hún vann í höndunum, og gaf
ættingjum og vinum. Hún ferðað-
ist þó nokkuð með okkur hjónun-
um í gegnum árin, og á síðasta
sumri til Osló í heimsókn til dótt-
ur okkar og fjölskyldu. Naut hún
þeirrar ferðar mjög. Flestar okkar
bæjarferðir enduðu upp á Hrafn-
istu og þá var kaffið og meðlætið
komið á borðið um leið, og ekkert
var til sparað, því rausnin var
takmarkalaus. Börn okkar,
tengdabörn og barnabörn nutu
sérstaks ástríkis hennar og mikið
var gaman að fara upp á Hrafn-
istu og heimsækja ömmu lang. Á
þessari kveðjustund er mér efst í
huga þakklæti til Kristjönu fyrir
umhyggjuna sem hún sýndi okkur
alla tíð og fjölda ára indæla og
skemmtilega viðkynningu. Guð
blessi hana. Stefán Vilhelmsson
Fædd 24. maí 1933
Dáin 31. júlí 1982
Hinn 31. júlí sl. lést í Bandaríkj-
unum vinkona mín, Dröfn Mark-
úsdóttir. Hún var fædd í Reykja-
vík 24. maí 1933 og hefði því orðið
50 ára í dag, hefði hún fengið að
lifa lengur. En á þessum sama
degi fyrir 43 árum, á 7 ára afmæl-
isdegi Drafnar, bar fundum okkar
fyrst saman. Við vorum báðar að
fara til sumardvalar að Hæli í
Flókadal, og urðum við strax góð-
ar vinkonur, og sú vinátta hélst
óskert alla tíð. Þessi fyrstu kynni
okkar standa mér enn ljóslifandi
fyrir hugskotssjónum, og man ég
greinilega okkar fyrstu orðaskipti,
sem við rifjuðum oft upp og hlóg-
um að seinna meir.
Dröfn var einstaklega glaðlynd
og ljúf manneskja, og hvar sem
hún fór, bar hún með sér birtu og
yl. Traustari og betri vin var ekki
hægt að eignast. Ég er þakklát
fyrir allar þær góðu stundir sem
við áttum saman. Bæði þau 10
sumur sem við dvöldum saman í
sveitinni, og sem unglingar, og
seinna fullorðnar manneskjur hér
í Reykjavík.
Dröfn var dóttir hjónanna Guð-
bjargar Eiríksdóttur og Markúsar
ísleifssonar, húsasmíðameistara.
Auk Drafnar eignuðust þau tvo
syni, Örn Ævar lyfjafræðing, og
Val Ævar, sem nú er látinn.
Dröfn giftist ung skólabróður
sínum, Halldóri Guðnasyni, lækni,
og eignuðust þau 4 börn, Hauk
Markús, Inga Valdimar, Guð-
björgu Helgu og Kristínu Hall-
dóru. En ári áður en Dröfn lést,
varð hún fyrir þeirri þungu sorg
að missa son sinn, Inga, af slysför-
um. Hún var þá sjálf orðin veik af
þeim sjúkdómi sem síðar varð
henni yfirsterkai i.
Siðustu árin var Dröfn búsett í
Bandaríkjunum, þar sem Halldór
var starfandi læknir. En hún
reyndi að koma heim eins oft og
hún gat. Hún bar í brjósti ríka
ættjarðarást og umhyggju fyrir
foreldrum sínum og vinum hér
heima. Það var alltaf hátíð í bæ
hjá okkur vinkonum hennar, þeg-
ar Dröfn kom heim. Það var eins
og lifnaði yfir tilverunni og vin-
áttuböndin styrktust. Þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika sem hún þurfti að
takast á við, hafði hún lag á að sjá
björtu hliðar lífsins, og gat miðlað
öðrum af sínum lífsþrótti og mikla
jafnaðargeði, enda alltaf tilbúin
að hjálpa þeim sem á þurftu að
halda, og láta gott af sér leiða.
Ég minnist Drafnar með sárum
söknuði, og geymi dýrmætar
minningar um góða vinkonu.
Fjölskyldu hennar óska ég frið-
ar og huggunar á þessum degi.
Margrét Guðmundsdóttir
ÞAÐ SKALVANDA
SEM LENGISKAL STANDA
Árið 1974 var orðið nauðsynlegt að skipta um veggklæðningar á
hinu stóra húsi varastöðvarinnar við Elliðaár. Húsið var byggt um 1947
og klæðning fyrir löngu orðin ónýt, hélt hvorki vatni né vindi. Húsið
stendur á opnu svæði og því miklar kröfur gerðar, bæði vegna veðurs
og umhverfis. Nú skyldi þvi vanda valið betur. Valin var Korrugal
veggklæðning. í dag eru þessar klæðningar eins að öllu leyti og verða
það um ókomin ár.
Korrugal er nefnilega vandað og traust efni með varanlegri lita-
áferð. Og Korrugal er meira en platan ein. Þvi fylgir gott úrval af
aukahlutum sem jafnan eru fyrirliggjandi. Listar, smeygar, vatnsbretti,
horn og festingar til nota við mismunandi aðstæður.
Siðast en ekki sist bjóðum við þjónustu og faglega ráðgjöf. Það er
sama hvort þú hugsar um uppsetningu, útlit eða endingu, lausnin er sú
sama: Korrugal álklæðning.
Leitið upplýsinga um Korrugal ál.
TÖQGURHF.
BYGGINGAVÖRUDEILP
Bíldshöfða 16
Sími 81530