Morgunblaðið - 14.06.1983, Side 16

Morgunblaðið - 14.06.1983, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983 BRIDGESTONE 1100x20 vörubíladekk Eigum til á lager 1100x20 vörubíladekk. Hagstætt verð og góð greiðslukjör BÍLABORG HF Smiöshöföa 23, sími 812 99 / 17JUNI SUMARPÖT AÖLLBÖRHIN ALdrei meim úrval MIÐBÆJARMARKAÐNUM AÐALSTRÆTI9 SÍMI 27620 REYKJAVÍK ÚR ÝMSUM ÁTTUM Mozart myrtur vegna afbrýðissemi eiginmanns? „Réttarhöld" ef nota má það orð, sem haldin voru á tónlistar- hátíð í Brighton fyrir skömmu, komust að þeirri niðurstöðu að tónskáldið frábæra Wolfgang Amadeus Mozart hafi verið myrtur og morðinginn hafi verið maður að nafni Franz Hofdemel, en hann var embættismaður við hirðina í Vínarborg. Eiginkona hans Magdalena þótti fögur og hún nam pfanóleik í einkatímum hjá Mozart. Var „kviðdómurinn" í Brighton nær samdóma í áliti sínu að Hofdemel hafi byrlað Mozart eitur þar eð hann taldi hann halda við konu sína. Mozart lést langt um aldur fram, 35 ára gamall, og síðan hafa menn ekki verið á eitt sátt- ir hver dánarorsökin var, hvort hann lést úr taugaveiki eða hvort honum var byrlað eitur. Og hvers vegna var hann lagður til hinstu hvílu í ómerktri gröf fátæklings þrátt fyrir að útförin var ákveðin? Rannsóknarrétturinn fór þannig fram, að nokkrir sér- fræðingar og áhugamenn röktu allt það sem vitað er um málið og fóru auk þess út fyrir það, veltu fyrir sér hvað gæti hafa gerst og hvaða rök lægju fyrir. „Kviðdómurinn" var 250 manns í áheyrendasalnum. Eftir mál- flutninginn voru kviðdómendur nær allir sammála um að hin hefðbundna kenning um dauða Mozarts, að hann hefði látist „af eðlilegum orsökum", gæti alls ekki staðist. En einhugurinn var ekki hinn sami er átti að nefna morðingjann. Ian Hunter, framkvæmda- stjóri tónlistarhátíðarinnar, átti Mozart hugmyndina að „réttarhöldun- um“ og hann sagði m.a.: „Það er útilokað að skera endanlega úr um hvernig dauða Mozarts bar að, en það hniga að því óve- fengjanleg rök að hann hafi ver- ið myrtur." Þrír voru greinilega grunaðir öðrum fremur. Það voru Franz Hofdemel sem áður er um getið, Antonio Salieri, keppinautur Mozarts sem hirð- tónskáld og Franz Sussmayr. Salieri viðurkenndi í hárri elli að hafa byrlað Mozart- eitur, en hann var þá svo hrumur af elli og úti að aka að ekki þótti mark takandi á rausinu í honum. Sussmayr var sambýlismaður Mozarts og hann lauk við síðustu blaðsíðurnar í Requim í D-min- or. Eftir að hafa metið þau gögn sem lögð voru fyrir felldi kvið- dómurinn dóm. 60 töldu Hofd- emel hafa myrt Mozart, 39 töldu Sussmayr hafa framið ódæðið, en 28 töldu Salieri hafa verið að verki. Margir tóku ekki afstöðu svo sem sjá má. Framkvæmdastjórinn Ian Hunter sagði að hann væri eftir sem áður í mikilli óvissu um hvernig dauða tónskáldsins bar að. En hann lagði fram fram- burðinn gegn Hofdemel: „Við vitum að miðað við sjúkdóms- einkenni þau sem Mozart sýndi, er mjög hugsanlegt að honum hafi verið byrlað eitur sem heitir Aqua Toffana. í því er m.a. bæði arsenik og blý. Það virkar hægt og sígandi, fórnarlambið veslast upp. Mozart og Hofdemel virtust vera kunningjar og þeir voru reglubræður í frímúrararegl- unni. Það eru engin sönnunar- gögn sem ganga úr skugga um að Mozart hafi átt vingott við kvenkyns nemendur sína. En ör- uggt er, að daginn sem Mozart var til moldar borinn, læsti Hofdemel sig inni í íbúð sinni ásamt Magdalenu konu sinni. Þar skar hann hana illa í andliti með rakhníf til að afmynda hana og síðan svipti hann sig lífi. — Það að Mozart var lagður í ómerkta gröf en ekki þá sem honum hafði verið ætluð bendir til þess að einhverjir aðilar hafi ekki haft áhuga á því að hægt væri að finna líkið til krufningar í kjölfarið á Hofdemel-hneyksl- inu.“ Frá fornleifauppgreftri að Stóru-Borg. Unnið við fornleifarannsókn- ir á þrem stöðum í sumar Á VEGUM Þjóðminjasafns íslands mun verða haldið áfram fornleifarann- sóknum í sumar, bæði að Któru-Borg sonar, þjóðminjavarðar. Á Stóru-Borg undir Eyjafjöllum hefur verið unnið síðastliðin fjög- ur sumur við rannsóknir í bæjar- hólnuni forna. Hafa fundist þar hlutir úr tré, skinni og leðri sem varðveist hafa óvenju vel. Að Stóru-Borg var búið allt frá mið- öldum og fram til ársins 1840 að bærinn var fluttur vegna land- og á Þingnesi, að sögn Þórs Magnús- brots af völdum sjávargangs. Þingnes er nes sem gengur út í Elliðavatn að austan. Þar hafa fundist margar þingtóftir en aldur búðarústanna hefur enn ekki verið greindur. Þarna mun stjórna rannsóknum í sumar Guðmundur Ólafsson. Þá eru að hefjast á vegum Ár- bæjarsafns fornleifarannsóknir í Suðurgötu. Flytja á húsið á Suður- götu 7 upp í Árbæjarsafn en áður en hafist verður handa við að byggja á lóðinni að nýju verður hún rannsökuð. Kristín Huld Sig- urðardóttir vinnur við þessar rannsóknir en þær eru kostaðar af Reykjavíkurborg og Þjóðhátíð- arsjóði. Þarna er um að ræða framhald á þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið á þessu svæði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.