Morgunblaðið - 14.06.1983, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983
17
Að spinna
um Stalín
— eftir Tryggva
V. Líndal kennara
Nú er lokið framhaldssögu
Matthíasar Johannessen, Spunnið
um Stalín, eftir fimmtíu þætti. Ég
hef lesið þá flesta með áfergju.
Svo mun hafa verið um marga
aðra lesendur Mbl., enda samein-
aði hún á frísklegan hátt ýmis
áhugamá! lesenda, svosem leyni-
lögreglusögu, hryllingssögu, póli-
tíska refskák, sögulegt yfirlit,
skáldlegt innsæi og ljóð.
Þessir þættir vöktu með mér
spurningar um hlutverk blaða-
mennsku og skáldskapar í póli-
tískum áróðri hérlendis. Fyrstu
viðbrögð mín voru undrun yfir að
mest áberandi ritstjóri landsins
Tryggvi Líndal
skyldi voga sér að birta langa
framhaldssögu í eigin blaði sem
væri í senn svo reyfaraleg og
hlutdræg. Slíkt hlyti að útheimta
áræði, því mikill hluti áskrifenda
er ekki í Sjálfstæðisflokknum, og
jafnvel trúlegt að miklum hluta
flokksmanna þyki miður trúanlegt
það sjónarhorn á Sovétríkin sem
fram kemur í sögunni. Því gæfi
Matthías óþarfa höggstað á sér.
En við nánari umhugsun minnt-
ist ég þess sem einhver skrifaði, að
ekki væri alltaf skörp skil milli
Matthíasar sem blaðamanns og
sem skálds. Og þess er einnig að
minnast að stjórnmálamenn og
skáld eru vanir því að vera á milli
tannanna á fólki, ekki sist ef þeir
eru opinskáir.
Því þótti mér bara alþýðlegt af
Matthíasi að bregða sér svona á
leik á síðum Morgunblaðsins.
Jafnvel þótt það virtist á stundum
verða eins og skopmynd af
„moggaáróðri". Því öllu djúpu
gamni fylgir nokkur alvara. Þegar
betur er að gáð er framhaldssaga
þessi dæmi um áróður í besta
skilningi þess orðs:
Til að byrja með er hún læsileg.
Ég spurði þannig eitt sinn há-
skólanema hvað honum fyndist
um þættina. Hann svaraði hvass í
bragði að þar stæði varla steinn
yfir steini sagnfræðilega. Hins
vegar bætti hann við að hann vissi
til að margir læsu söguna nú
samt, virtust hafa gaman af
henni.
Mér finnst þó meginkostur sög-
unnar vera sá, að hér er fjallað
skáldlega um ofbeldið í Sovétríkj-
unum frá hægri sinnuðu sjónar-
miði. Ég held að ef litið sé til
skáldlegrar gagnrýni á Sovétríkin
hérlendis, þá hafi hún yfirleitt
komið frá pennum vinstrisinna.
Því tel ég að mótvægi sé tímabært,
vegna þess að ég held að hinn
skáldlegi heimur höfði til fólks á
miklu víðtækari grundvelli en
rökfastar og staðreyndalegar
greinar geti gert. Því megi ekki
leyfa vinstrisinnum að einoka
skáldskapargluggann til Sovét-
ríkjanna.
Hitt verð ég að segja að mér
fannst framhaldssagan hans
Matthíasar ekki tiltakanlega
hægrisinnuð. Myndin af Stalín
sem brugðið var upp minnti mig
annars vegar á Solzhenitsyn og
önnur sovézk skáld, og hins vegar
á þá mynd sem mér sýnist að þorri
almennings hérlendis geri sér um
Stalín.
Hins vegar þótti mér á köflum
uggvænlegt hve Matthías gat lifað
sig inn í ofbeldishugarfar Stalíns,
svo virtist jaðra við aðdáun, en um
leið ásakað Stalín um að vera of
hrifinn af Hitler.
Ég held að ég tali fyrir hönd
margra jafnaldra minna um þrf-
tugt, þegar ég segi að fátt við
Rússland nútímans minni á öfgar
Stalínismans, jafnvel þótt mið sé
tekið af fréttum Moggans. Því las
ég þessa sögu Matthíasar um
Stalíns-Sovétríkin með líku
hugarfari og menn lesa um Hitl-
ers-Þýzkaland, sem liðinn atburð
sem ekki má endurtaka sig. Þó
grunar mig að tilgangur fram-
haldssögunnar hafi í og með verið
sá að sveipa Sovétríki nútímans
stalínskum hjúpi, og þá um leið
Alþýðubandalagið. Jafnvel virtist
að sögulokum sem viðhorf Matthí-
asar til Sovét væru mest mótuð af
Stalinstimanum.
En Matthías hefur með fram-
haldssögu sinni unnið þarft verk.
Að lokum vil ég leggja til að
Matthías beiti þessari aðferð á
innlenda atburði, og vitni þá í ís-
lenska rithöfunda og skáld, frá
bæði hægri og vinstra kanti, til að
safna ljósi sem flestra þeirra sam-
an í einn brennipunkt.
Of mikið ber á að skoðanaskrif í
dagblöðum séu annaðhvort of
sérhæfð, svo þau höfði mest til
þeirra sem eru þegar á sama máli
og höfundurinn, eða þá að þau séu
svo almenn, að þau hjálpi engum
til að taka afstöðu. Frá sviði varn-
armála nefni ég sem dæmi skrifin
í Mbl. um NATO annars vegar og
um friðarhreyfingar hins vegar.
Mér finnst að aðferð Matthíasar
sé vænleg leið til að brúa bilið
milli slíkra lesendahópa.
Vinningamir verða
dregnir út 19. júní.
Enn er tfmi til þess að vera með.
Skrifstofa SÁÁ í Síðumúla 3-5 er opin
daglega frá kl. 9-21 og kl. 13-17 laugardaga
og sunnudaga.
Sækjum gjafabréf ef óskað er.
Síminn er 33370.
SÁÁ
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Utíhurðir
Hagstætt verð/góð greiðslukjör
Biðjið um myndalista ísíma 18430
Timburverzlunin Völundur hf. KLAPPARSTÍG 1 S. 18430 j SKEIFAN 19 S. 85244