Morgunblaðið - 14.06.1983, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 14.06.1983, Qupperneq 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983 Nýtt - - Nýtt Peysur, blússur, kjólar, pils, buxur, buxnapils. Glugginn, Laugavegi 40. Stykkishólmur: Bækur og myndir úr rausnargjöf sýndar Til leigu 100 fm Til leigu er glæsilegt fullinnréttað skrifstofuhús- næði í stórhýsi með fögru útsýni. Ármúla 18, sími 82300. Stykkishólmi, 8. júní. EINS OG ádur hefir komið fram í fréttum, arfleiddi Ketill Jónsson frá Hausthúsum í Eyjarhreppi Amtbóka- safnið í Stykkishólmi að bókasafni sínu, alls rúmum 13 þúsund bókatitl- um. Hann gerði og meira, því hann lét í arfleiðsluskránni fylgja með yfir 400 myndir, bæði málverk, eftir- prentanir, og teikningar, og skal þar vera stofn í listasafn sem hann hugs- aði sér að komið yrði á fót í Stykk- ishólmi og bæri hans nafn. Aður hafði Ketill gefið Laugagerðisskóla í Eyjarhreppi við stofnun hans 600 bindi úrvalsbóka og stofnað þar með bókasafn við skólann. Þessi bóka og myndasöfnun var æfistarf Ketils, sem lést í fyrrahaust 78 ára að aldri. Ketill fæddist að Hausthúsum í Eyjarhreppi 11. janúar 1904 sonur merkishjónanna Kristrúnar Ket- ilsdóttur og Jóns Þórðarsonar sem þar bjuggu yfir 40 ár. Þau fluttu til Reykjavíkur 1948 og þá gerðist Ketill starfsmaður við Reykjavík- AVOXTUNStW Ávöxtun sf. annast kaup og sölu verðbréfa, fjárvörslu, fjármálaráðgjöf og ávöxtunarþjón- ustu. Vegna mikillar eftirspurnar í spariskír- teinum ríkissjóðs vantar okkur spariskírteini til sölu strax. GENGI VERÐBRÉFA v 13. júní 1983 Verðtryggð Spariskírteini Ríkissjóðs Ár Sölug,/ Fl. 100 kr. Endurgr. 1970 2 14.056 05.02.84 1971 1 12.112 15.09.85 1972 1 11.621 25.01.86 1972 2 9.158 15.09.86 1973 1 7.078 15.09.87 1973 2 7.151 25.01.88 1974 1 4.517 15.09.88 1975 1 3.604 10.01.93 1975 2 2.655 25.01.94 1976 1 2.330 10.03.94 1976 2 1.895 25.01.97 1977 1 1.587 25.03.97 1977 2 1.352 10.09.97 1978 1 1.077 25.03.98 1978 2 865 10.09.98 1979 1 750 25.02.99 1979 2 559 15.09.99 1980 1 479 15.04.00 1980 2 363 25.10.00 1981 1 307 25.01.86 1981 2 233 15.10.86 1982 1 217 01.03.85 1982 2 162 01.10.85 Öll kaup og sala verðbréfa miöast við daglegan gengisútreikning. Ávöxtun ávaxtar fé þitt. ávöxtm# VERÐBRÉFAMARKAÐUR LAUGAVEGUR 97 101 REYKJAVÍK SÍMI28815 Opid frá 10—17 urhöfn og var hann það til æfi- loka. Ungur var hann fróðleiksfús og notaði sér hverja bók sem hann náði í, aflaði sér fróðleiks af eigin rammleik enda ekki völ á fram- búðarnámi. Hann komst fljótt upp á lag með að meta bækur og leið- beindi mörgum í bókasöfnun, var vinur fornbókasala og allra sem áhuga höfðu fyrir bókum. Þá hafði hann yndi af málverkum og keypti af upprennandi listamönnum og hvatti þá til dáða. Á þeim vett- vangi eignaðist hann marga kunn- ingja. Ketill var mjög ómann- blendinn, fór eigin leiðir, stundaði sína vinnu af kostgæfni, var hús- bændum sínum trúr. Hann átti ekki langt að sækja hollustu við góðar dyggðir. Móðir hans hafði numið margt á Bessastöðum á seinustu árum Gríms Thomsen sem hún vann hjá og kunni vel að meta og þau hvort annað. Þeirra tíma minntist hún oft. Ekki fór Ketill út fyrir landsteinana, en þeim mun betur þekkti hann sitt eigið land. Búskap var hann Iítið fyrir og þar sem hann var einka- sonur hjónanna, var búskapnum hætt þegar þau gátu ekki rekið hann lengur. Þessi gjöf Ketils til Amtbóka- safnsins sýnir vel tryggð hans við heimahaga og er hún því metin að verðleikum. Stjórn Amtbóka- safnsins sýndi í gær sýslunefndar- mönnum þessa góðu gjöf og voru menn sammála um að aldrei hefði bókasafninu borist jafn höfðing- leg og vel þegin gjöf. Og svo í dag var opnuð malverkasýning í hótel- inu og sýndar þar yfir 30 myndir úr safni Ketils og mönnum gefinn kostur á að skoða. Jóhannes Árna- son, sýslumaður las upp gjafa- bréfið og færði gefanda miklar þakkir og Árni Helgason, stöðvar- stjóri minntist Ketils og foreldra hans og sagði frá æfistarfi hans. J.C. félagar höfðu aðstoðað við að koma upp myndunum. Sýslunefnd og oddviti og sveitarstjóri Stykk- ishólms voru einnig mættir og bauð sýslunefnd viðstöddum í kaffisamsæti. Nú þegar er farið að ræða um að stækka bókasafnshús- ið og er það brýn nauðsyn til að geta komið þessu viðbótarsafni vel fyrir. FrélUriUri. Kirkja og kjarnorku vígbúnaður Kirkja og kjarnorka HJÁ Máli og menningu er komin út ný pappírskilja: Kirkja og kjarnorkuvíg- búnaður. 1 formála séra Gunnars Kristj- ánssonar segir m.a.: „Það er hið samkirkjulega friðarráð hollensku kirknanna sem hefur staðið fyrir samningu bókarinnar og fengið til þess hóp sérfróðra manna á hinum ýmsu sviðum sem snerta vígbúnað samtímans...“ Séra Gunnar Kristjánsson og Halldór Guðmundsson þýddu Kirkju og kjarnorkuvígbúnað. Bókin er 173 bls. að stærð, prentuð í Prentsmið- junni Hólum hf. Kápumynd er eftir Þröst Magnússon. (Í r rrétutilkynningu)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.