Morgunblaðið - 14.06.1983, Page 40

Morgunblaðið - 14.06.1983, Page 40
Sími 44566 RAFLAGNIR samvirki JS\/ _^\skriftar- síminn er 830 33 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983 Sultartangi: Framkvæmdir tefjast vegna stíflubrests „ÞAÐ MÁ búast við að hluti fram- kvæmdanna við Sultartanga tefjist um allt að 10 daga,“ sagði Elías Elí- asson verkfræðingur hjá Landsvirkj- un í samtali við Morgunblaðið, en á laugardag brast stíflugarður við Sultartanga vegna vatnavaxta í Þjórsá. „Það eru bara eðlileg vorflóð í ánni. Stíflugarðarnir eru til bráðabirgða og við því búist að þeir gætu farið í vorflóðum," sagði Elías. Elías sagði að við hönnun garð- anna hefði verið ákveðið að taka því ef vorflóð skemmdu þá, þar eð ella hefðu framkvæmdir orðið enn kostnaðarsamari, enda um bráða- birgðastíflu að ræða. „Það myndaðist um 100 metra skarð í garðinn á laugardag, þegar flóðin voru búin að standa í nokkra daga, en þau hófust í byrj- un síðustu viku, og við því er búist að þau standi nokkra daga í við- bót,“ sagði Elías. Elías sagði að flóðavatnið hefði komist ofan í gamlan farveg Þjórsár, og tefðust framkvæmdir í honum eitthvað, en aðrar ekki. Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki: Bandarískur aðili hyggst kaupa 10% BANDARÍSKT fyrirtæki, Wooding, hefur lýst áhuga á því að verða með- eigandi í Steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki. Aðild fyrirtækisins er bundin því að keyptur verði raf- bræðsluofn af fyrirtækinu og eru horfur á að svo verði gert. Að sögn Árna Guðmundssonar, stjórnar- formanns Steinullarverksmiðjunnar. íslenzkir hest- ar til Texas FIMM íslenzkir reiðhestar bíða þess nú að verða fluttir til Bandaríkj- anna, en í fyrra seldi Guðrún Fjeldsted á Ölvaldsstöðum í Borg- arfirði auðugum Bandaríkja- mönnum hestana. Tveir hestanna eiga að fara til El Paso í Texas, en hinir þrír til New York. Erfitt hefur reynst að koma hestunum úr landi, en nú er útlit fyrir að hestarnir, sem fara eiga til New York, fari með skipi þangað í byrjun júlí. Enn er óvíst hvernig og hvenær hestarnir fara til Texas. er reiknað með þvi að hlutafjáreign hins bandaríska fyrirtækis verði um 300 þúsund Bandaríkjadalir eða 10—12% hlutafjárins. Þá sagði Árni að sænsk-finnskt fyrirtæki hefði lýst áhuga á aðild en fyrirhugað er að framleiðslulína verksmiðjunnar verði keypt af því fyrirtæki. Aðild þess fyrirtækis yrði álíka og hins bandaríska en frá því hefur ekki verið gengið. „Við erum að vonum mjög ánægðir með áhuga þessara er- lendu aðila og þeir telja að við sé- um með álitlegan iðnaðarkost," sagði Árni Guðmundsson. Hann sagði hlutafjársöfnun verksmiðj- unnar hafa gengið þolanlega að öðru leyti; þótt menn legðu ekki mjög háar upphæðir í fyrirtækið væri þátttaka mjög almenn á Sauðárkróki. Upphaflega var mið- að við að hlutafé yrði um 30 millj- ónir króna en sú upphæð nemur nú líklega 50—60 milljónum. Árni sagði að Samband íslenskra sam- vinnufélaga yrði meðeigandi og væri frá því gengið að hlutafjár- eign þess yrði allt að 9 milljónum króna á verðlagi frá því í apríl. Árni sagði að stefnt væri að því að framkvæmdir hæfust strax og ofna- og vélasamningar væru full- frágengnir og reiknaði hann með að það yrði í ágúst. Framkvæmdir við lóð munu hefjast í haust og reiknað er með að bygging sjálfrar verksmiðjunnar hefjjst næsta vor. Ray Charles til Islands — heldur tvenna tónleika í byrjun júlí Blökkusöngvarinn heimsþekkti, Ray Charles, kemur hingað til lands í byrjun næsta mánaðar til tónleikahalds. Heldur hann tvenna tónleika í veitingahúsinu Broadway, dagana 7. og 8. júlí. Charles er ekki einn á ferð því með í fórinni hingað til lands er 25 manna hljómsveit. „Það er ákaflega gaman að stuðla að komu þessa manns hingað til lands," sagði Ámundi Ámundason, umboðsmaður, er Morgunblaðið ræddi við hann í Blómarósir á grænu ljósi LÖGREGLA og Umferðarráð, í samvinnu við skáta og sveitir SVFÍ, munu í þessari viku leggja áherslu á að fræða gangandi vegfarend- ur um rétta hegðun við gangbrautir og umferðarljós. Kjörorðið er „Gangbraut er bezta leiðin — ef aðgát er höfð“ og dreifa fyrrnefnd- ir aðilar bæklingi með þessu nafni frá Umferðarráði. Á gatna- mótum Bankastrætis og Lækjargötu hitti ljósmyndari Morgun- blaðsins þessar blómarósir síðdegis í gær. Morsunblaðið/ Guðjðn Krafist þyngri refsingar en 16 ára fangelsis ÁKÆRUVALDIÐ krafðist í gær há- marksrefsingar með viðbót, sam- kvæmt heimildarákvæði 77. greinar hegningarlaganna yfir Grétari Sigurði Árnasyni, sem gefið er að sök að hafa myrt frönsku stúlkuna Yvette Bahu- aud og fyrir stórfeilda líkamsárás á systur hennar, Marie Luce á Skeiðar- ársandi í ágúst á síðastliðnu ári. Hámarksrefsing fyrir morð er 16 ár, en með ákvæðinu getur refsing orðið allt að 24ra ára fangelsi. Það hefur aðeins einu sinni gerst að maður hafi verið dæmdur til lengri fangelsisdvalar en 16 ára hér á landi, en það var er Sævar Ciec- elski var dæmdur í 17 ára fangelsi vegna Geirfinnsmálsins svokall- aða. f Sjá frétt: „Akærði skaut stúlkuna af ásetningi af 35—40 metra færi í bakið“, í miðopnu. ------ Tveir í gæslu- varðhaldi TVEIR útlendingar hafa verið úr- skurðaðir í gæsluvarðhald í 30 daga vegna gruns um ffkniefnamisferli, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í gær. Mennirnir voru handteknir fyrir rúmri viku, annar á götu í Reykja- vík en hinn á Höfn í Hornafirði. Var sá sem tekinn var í Reykjavík með á annað hundrað grömm af hassi í fórum sínum. Lögreglan vinnur nú að rannsókn málsins. Auglýsendur athugið! Auglýsingar sem birtast eiga í Morgunblaðinu sunnudaginn 19. júní þurfa að hafa borist auglýs- ingadeildinni fyrir kl. 16 fimmtu- daginn 16. júní. „Líklegt að Flugleiðir fái pílagrímaflug“ — segir blaðafulltrúi Flugleiöa pflagrímaflug frá Alsír til Jedda í sumar. „ÉG TEL mjög líklegt að af þess- um samningum verði, en það skýr- ist á allra næstu dögum,“ sagði Sæmundur Guðvinsson, blaðafull- trúi Flugleiða, vegna viðræðna full- trúa Flugleiða og Air Algérie um við franska umboðsskrifstofu um komu Charles hingað til lands. „Það ber öllum, sem hafa séð tónleika Ray Charles og hljómsveitar hans saman um, að um meiriháttar upplifun sé að ræða,“ sagði Ámundi ennfremur. Hann bætti því við, að ef Charles hefði ekki verið á leið yfir til Evrópu og því „stop-over“ far- þegi hér, hefði verið útilokað að standa í innflutningi þessum. Ray Charles er einhver allra frægasti jazz- og blússöngvari heimsins og hefur verið um langt árabil. Hann er fæddur í Georgíu og blindaðist aðeins 6 ára gamall. Plötur hans eru fjöldamargar og hafa selst í milljónum eintaka. Ray Charles gærkvöldi. Hann hafði þá nýlok- ið við að ganga frá samningum Sæmundur sagði að ef af samn- ingum yrði hæfist pílagrímaflugið upp úr 20. ágúst næstkomandi. Vegna sumaráætlunar Flugleiða yrði að hluta að leigja vélar og fólk frá öðrum flugfélögum til að sinna þessu verkefni. Flugleiðir sáu um pílagríma- flutninga fyrir Air Algérie í fyrra og voru þá á annað hundrað ís- lendingar við þá flutninga, en einnig voru leigðar flugvélar og fólk frá SAS til þeirra. í fyrra fluttu Flugleiðir yfir 70 þúsund pílagríma á vegum Air Algérie á tæpum tveimur mánuð- um. Notaðar voru fjórar þotur af gerðinni DC-8 og ein Boeing-747. Sæmundur sagði að ef af píla- grímafluginu yrði að þessu sinni mundi það engin áhrif hafa á sumaráætlun félagsins, þótt píla- grímaflugið yrði fyrr á þessu ári en í fyrra vegna annars tímatals múhameðstrúarmanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.